Ömurlegt gengi Chelsea ætlar engan endi að taka Graham Potter hefur ekki átt sjö dagana sæla sem þjálfari Chelsea og ömurlegt gengi liðsins undir hans stjórn hélt áfram í dag þegar fallkandídatar Southampton unnu 1-0 útisigur á Brúnni. Enski boltinn 18. febrúar 2023 17:10
Chris Wood orðinn uppáhalds leikmaður Arsenal stuðningsfólks Nýsjálenski framherjinn Chris Wood skoraði jöfnunarmark Nottingham Forest gegn Englandsmeisturum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur í Skírisskógi 1-1 sem þýðir að Arsenal er áfram á toppi deildarinnar. Enski boltinn 18. febrúar 2023 16:55
Gladbach áfram með tak á Þýskalandsmeisturum Bayern Borussia Mönchengladbach vann 3-2 sigur á Þýskalandsmeisturum Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Bæjurum hefur ekki tekist að sigra Gladbach í síðustu fimm leikjum í deild eða bikar. Fótbolti 18. febrúar 2023 16:35
Kórdrengir verða ekki með og Ægir fær sæti í Lengjudeildinni Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur staðfest að Kórdrengir munu ekki taka þátt á Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Kórdrengir voru með lið í Lengjudeildinni síðasta sumar, en Ægir frá Þorlákshöfn tekur sæti þeirra í næst efstu deild. Fótbolti 18. febrúar 2023 13:31
Stjarnan fær liðsstyrk frá Blikum Stjarnan hefur fengið unglingalandsliðskonuna Eyrúnu Völu Harðardóttur til liðs við sig fyrir komandi átök í Bestu-deild kvenna í fótbolta. Fótbolti 18. febrúar 2023 10:01
Guðný dregur sig úr landsliðshópnum Guðný Árnadóttir hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum sem leikur á Pinatar Cup á Spáni um þessar mundir vegna meiðsla. Fótbolti 18. febrúar 2023 09:31
Atsu fannst látinn í rústum Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn. Fótbolti 18. febrúar 2023 08:48
Al Thani leggur fram tilboð í Manchester United Sjeik Jassim bin Hamad Al Thani, stjórnarformaður eins stærsta banka Katar, QIB, hefur staðfest að hann muni leggja fram tilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester Unied. Fótbolti 17. febrúar 2023 23:30
Dýrkeypt mistök kostuðu Lee Mason starfið Knattspyrnudómarinn Lee Mason og dómarasambandið PGMOL hafa komist að samkomulagi um að Mason muni yfirgefa sambandið eftir dýrkeypt mistök. Hann mun því ekki dæma aftur í ensku úrvalsdeildinni. Fótbolti 17. febrúar 2023 23:01
Kvaratskhelia og Osimhen enn sjóðheitir og Napoli nálgast titilinn Napoli er nú með 19 stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir góðan 2-0 útisigur gegn Sassuolo í kvöld. Fótbolti 17. febrúar 2023 21:47
Blikar hefndu fyrir tapið gegn FH Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan 3-1 sigur er liðið tók á móti FH í riðli tvö í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld. Fótbolti 17. febrúar 2023 21:22
Mikael tryggði AGF sigur og liðið stökk upp um fjögur sæti Mikael Neville Anderson skoraði eina mark leiksins er AGF vann 1-0 útisigur gegn Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Með sigrinum stökk AGF úr áttunda sæti og upp í það fjórða. Fótbolti 17. febrúar 2023 19:59
Fjögurra ára bann fyrir að sparka í Ramsdale Joseph Watts, 35 ára gamall stuðningsmaður Tottenham Hotspur, hefur játað sök fyrir dómi eftir að hafa sparkað í markvörð Arsenal þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni fyrr í vetur. Fótbolti 17. febrúar 2023 18:16
Ten Hag ánægður með tíuna Weghorst Erik ten Hag var ánægður með hvernig Wout Weghorst spilaði í nýrri stöðu þegar Manchester United gerði 2-2 jafntefli við Barcelona í umspili um sæti í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í gær. Fótbolti 17. febrúar 2023 17:01
Xavi segir að Raphinha hafi ekki þurft að biðjast afsökunar Brasilíski knattspyrnumaðurinn Raphinha baðst í gær afsökunar á því hvernig hann brást við þegar hann var tekinn af velli í 2-2 jafntefli Barcelona og Manchester United í Evrópudeildinni. Fótbolti 17. febrúar 2023 16:01
Ensku konurnar eru enn taplausar síðan Sarina tók við Evrópumeistarar Englands héldu sigurgöngu sinni áfram í gær þegar liðið vann 4-0 sigur á Suður-Kóreu í æfingaleik. Fótbolti 17. febrúar 2023 15:00
Ramos bað ljósmyndarann sem hann ýtti við afsökunar Sergio Ramos, leikmaður Paris Saint-Germain, hefur beðið ljósmyndarann sem hann stjakaði við eftir leikinn gegn Bayern München afsökunar. Ljósmyndarinn segir málinu lokið. Fótbolti 17. febrúar 2023 14:31
Nunnan sem liggur á bæn um að Messi komi aftur heim Lionel Messi á sér marga aðdáendur í Barcelona eftir magnaðan tíma þar en ein af þeim frægustu er nunnan Systir Lucia. Fótbolti 17. febrúar 2023 12:30
Ólafur Gottskálksson dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Ólafur Gottskálksson, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, hefur verið dæmdur í þriggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi tengdaföður sinn á heimili hans fyrir ári síðan. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness að Ólafur hafi grunað tengdaföðurinn um áfengisneyslu en börn Ólafs og fyrrverandi konu hans voru á heimili tengdaföðurins. Innlent 17. febrúar 2023 11:14
Kolbeinn Sigþórs og Kristín Helga eignuðust dóttur Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson og Kristín Helga Þorsteinsdóttir hafa eignast dóttur. Lífið 17. febrúar 2023 11:11
Slagsmál liðsfélaga enduðu inn á borði lögreglunnar Tveimur leikmönnum danska úrvalsdeildarliðsins Bröndby lenti saman á æfingu liðsins og svo alvarleg voru átök þeirra að þetta er nú orðið að lögreglumáli. Fótbolti 17. febrúar 2023 07:30
Rannsaka greiðslur Barcelona til varaformanns dómaranefndar Saksóknarar á Spáni rannsaka nú greiðslur sem spænska stórveldið Barcelona greiddi fyrirtæki í eigu José María Enríquez Negreira á árunum 2016 til 2018. Negreira var þá varaformaður spænsku dómaranefndarinnar, CTA. Fótbolti 17. febrúar 2023 07:01
Búist við katörsku tilboði í United Búist er við því að katarskir fjárfestar tengdir konungsfjölskyldunni muni leggja fram tilboð í enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United á morgun. Fótbolti 16. febrúar 2023 23:31
„Fannst þetta vera Meistaradeildarleikur og jafnvel meira“ Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var ánægður með spilamennsku sinna manna er liðið gerði 2-2 jafntefli gegn Barcelona í Evrópudeildinni í kvöld. Hann hefði þó þegið sigur, enda fannst honum sínir menn stjórna leiknum. Fótbolti 16. febrúar 2023 23:01
Sevilla valtaði yfir PSV og Juventus missti frá sér sigurinn Seinni fjórum leikjum kvöldsins í Evrópudeildarinni í fótbolta er nú lokið þar sem Sevilla vann öruggan 3-0 sigur gegn PSV Eindhoven og Juventus þurfti að sætta sig við 1-1 jafntefli gegn Nantes á heimavelli. Fótbolti 16. febrúar 2023 22:06
Salzburg og Shakhtar með yfirhöndina en jafnt hjá Ajax og Union Berlin Alls er fjórum af átta leikjum kvöldsins í Evrópudeildinni í fótbolta nú lokið. Salzburg og Shakhtar Donetsk unnu nauma sigra gegn Roma og Rennes, en Ajax og Union Berlin skildu jöfn í Hollandi. Fótbolti 16. febrúar 2023 20:14
Allt jafnt fyrir stórleikinn á Old Trafford Barcelona og Manchester United áttust við í fyrri viðureign liðanna í Evrópudeildinni í fótbolta í kvöld. Lokatölur urðu 2-2 og því verður allt undir þegar liðin mætast á Old Trafford í seinni leiknum að viku liðinni. Fótbolti 16. febrúar 2023 19:42
Conte snýr ekki aftur til vinnu fyrr en hann hefur náð fullum bata Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, verður ekki á hliðarlínunni þegar liðið tekur á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni næstkomandi sunnudag. Hann verður frá vinnu þar til hann hefur náð fullum bata eftir að hafa gengist undir aðgerð þar sem gallblaðran var fjarlægð úr honum. Fótbolti 16. febrúar 2023 18:02
Fyrrum forsætisráðherra Svía gæti orðið forseti sænska sambandsins Fredrik Reinfeldt, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur verið orðaður við forsetastólinn hjá sænska knattspyrnusambandinu. Fótbolti 16. febrúar 2023 16:30
Ráku sama þjálfara tvisvar sinnum á 31 degi Ítalska félagið Salernitana hefur rekið þjálfarann Davide Nicola í annað skiptið á þessu ári. Fótbolti 16. febrúar 2023 15:30