Guðmundur lagði upp í stórsigri Guðmundur Þórarinsson lagði upp fjórða og seinasta mark OFI Crete er liðið vann öruggan 4-1 útisigur gegn botnliði Lamia í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 13. febrúar 2023 17:19
Tékkneskur landsliðsmaður kemur út úr skápnum Jakub Jankto, landsliðsmaður Tékklands í fótbolta, kom út úr skápnum í dag. Hann tilkynnti þetta á Twitter. Fótbolti 13. febrúar 2023 15:31
Valinn bestur og fékk fisk í verðlaun Norski framherjinn Alexander Sörloth var valinn besti leikmaður Real Sociedad í janúar en verðlaunin hans voru ekki beint hefðbundin. Fótbolti 13. febrúar 2023 14:46
Sjáðu þrumuskalla Glódísar Perlu og mark Sveindísar um helgina Landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir kom báðar á skotskónum til móts við íslenska landsliðið eftir að hafa skorað fyrir lið sín í þýsku deildinni um helgina. Fótbolti 13. febrúar 2023 13:00
Xavi getur bætt Guardiola metið á móti Man. United á fimmtudaginn Xavi Hernández stýrði Barcelona liðinu til sigurs á Villarreal í spænsku deildinni í gær og með því náði liðið ellefu stiga forskoti á Real Madrid á toppi deildarinnar. Fótbolti 13. febrúar 2023 10:30
Landsliðskonurnar hætta í verkfalli eftir hótanir um skaðabótamál Leikmenn kanadíska kvennalandsliðsins í fótbolta eru hættar í verkfalli eftir að forráðamenn kanadíska knattspyrnusambandsins hótaði leikmönnum og leikmannasamtökum þeirra með hundruðum milljóna í skaðabótakröfur. Fótbolti 13. febrúar 2023 09:30
Gunnhildur Yrsa: Sorglegt að sjá hvað þurfti að reka marga þjálfara Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir segir hneykslismál í bandaríska fótboltanum hafi haft sitt að segja þegar hún tók ákvörðun að snúa heim til Íslands. Fótbolti 13. febrúar 2023 09:01
Sjálfsblekking Arsenal-manna Nokkur hópur stuðningsmanna Arsenal virðist lifa í ákveðinni sjálfsblekkingu varðandi ímynd félagsins. Það endurspeglaðist vel á leik liðsins við Brentford um helgina en þar tapaði liðið stigum aðra helgina í röð. Enski boltinn 13. febrúar 2023 08:00
Tvö félög lið í efstu deild búin að draga lið sín úr keppni vegna jarðskjálftanna Tyrknesku efstudeildarliðin Gaziantep FK og Hatayspor hafa nú bæði dregið lið sín úr keppni í tyrknesku fótboltadeildinni. Fótbolti 13. febrúar 2023 07:31
Pedri hetja Börsunga og forystan orðin ellefu stig Barcelona er í góðri stöðu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir nauman sigur á Villarreal í kvöld. Fótbolti 12. febrúar 2023 22:00
Lionel Messi kominn á Hvolsvöll Knattspyrnuhetjan Messi og átrúnaðargoð margra er nú mættur á Hvolsvöll, reyndar ekki í eigin persónu en níu ára strákur á staðnum fékk málverk af honum í afmælisgjöf, sem mamma hans málaði. Verkið hefur vakið mikla athygli. Lífið 12. febrúar 2023 21:39
Sigurganga Napoli heldur áfram Ekkert fær stöðvað topplið Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 12. febrúar 2023 21:39
KA komið á blað í Lengjubikarnum KA vann 2-1 sigur á Fylki í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag en leikið var á Akureyri. Fótbolti 12. febrúar 2023 17:01
Guðný lagið upp fyrir Milan í sigri gegn Pomigliano Guðný Árnadóttir og samherjar hennar í AC Milan unnu góðan 1-0 sigur á liði Pomigliano í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 12. febrúar 2023 16:31
Valur hafði betur í Reykjavíkurslag Lengjubikarsins Valur vann 2-0 sigur á KR þegar liðin mættust í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag. Mörkin komu í sitt hvorum hálfleiknum en þetta var fyrsti leikur liðanna í keppninni. Fótbolti 12. febrúar 2023 16:04
Sveindís skoraði fyrir Wolfsburg Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eitt marka Wolfsburg sem lagði Essen 3-0 í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag Fótbolti 12. febrúar 2023 14:30
María lék í tapi Fortuna Sittard Fortuna Sittard tapaði 1-0 gegn PSV Eindhoven í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. María Ólafsóttir Gros var í byrjunarliði Fortuna Sittard í dag. Fótbolti 12. febrúar 2023 14:01
ÍBV heldur áfram að styrkja sig Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur samið við hina bandarísku Caeley Lordemann um að leika með liðinu í Bestu deildinni í sumar. Fótbolti 12. febrúar 2023 12:31
Dilja Ýr kemur inn í hópinn fyrir Spánarferðina Dilja Ýr Zomers, leikmaður sænska liðsins Häcken, kemur inn í leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta fyrir Pinatar-æfingamótið sem hefst Spáni í næstu viku. Fótbolti 12. febrúar 2023 07:00
Leikmenn Kanada í verkfalli Leikmenn kanadíska kvennalandsliðsins í fótbolta hafa ákveðið að fara í verkfall. Leikmenn liðsins hafa áhyggjur af því að aðbúnaður verði ekki nægilega góðu næstu misserin en þeir eru orðnir leiðir á því að berjast fyrir því að hlutirnir færist í átt að jafnrétti þegar kemur að aðbúnaði karlaliðsins og umgjörð í kringum liðin. Fótbolti 11. febrúar 2023 22:54
Mörkunum rigndi þegar Real Madrid varð heimsmeistari Real Madrid varð í kvöld heimsmeistari félagsliða í fótbolta karla en liðið vann Al Hilal 5-3 í úrslitaleik mótsins á Prince Moulay Abdallah-leikvangnum í Rabat í Marokkó í kvöld. Fótbolti 11. febrúar 2023 21:08
Enn eitt jafnteflið hjá Newcastle United Bournemouth og Newcastle United skildu jöfn, 1-1, þegar liðið leiddu saman hesta sína á Vitality-leikvanginn í ensku úrvaldseildinni í fótbolta karla í kvöld. Fótbolti 11. febrúar 2023 19:33
Stjarnan skoraði sex gegn Tindastóli Stjarnan vann öruggan 6-0 sigur þegar liðið mætti Tindastóli í Miðgarði í A-deild Lengjubikars kvenna í fótbolta í dag. Fótbolti 11. febrúar 2023 18:23
Jóhann Berg stefnir hraðbyri í átt að efstu deild Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Burnley endurheimti sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir að hafa fallið þaðan síðasta vor. Fótbolti 11. febrúar 2023 17:47
Toppliðin unnu bæði í Bundeslígunni Bayern München og Borussia Dortmund báru bæði sigurorð í leikjum sínum í 20. umferð þýsku efstu deildarinnar í fótbolta karla í dag. Fótbolti 11. febrúar 2023 16:34
Manchester City saxaði forskotið á toppliðið Manchester City hafði betur, 2-1, þegar liðið mætti Arsenal í toppslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta kvenna í dag. Fótbolti 11. febrúar 2023 15:41
Glódís Perla kom Bayern á bragðið Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, skoraði fyrra mark liðs síns, Bayern München þegar liðið lagði Eintracht Frankfurt að velli með tveimur mörkum gegn einu í þýsku efstu deildinni í dag. Fótbolti 11. febrúar 2023 15:14
Sara Björk hafði betur gegn Alexöndru Það var boðið upp á Íslendingaslag í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar Juventus heimsótti Fiorentina. Fótbolti 11. febrúar 2023 13:48
Sannfærður um að Man City sé saklaust og segir önnur félög standa saman gegn þeim Enska úrvalsdeildin kærði nýverið Englandsmeistara Manchester City fyrir meira 100 brot á fjárhagsreglum deildarinnar frá 2009 til 2018. Pep Guardiola, þjálfari liðsins, segist fullviss um að félagið sé saklaust. Enski boltinn 11. febrúar 2023 07:01
Ein sú besta í heimi gagnrýnir að Sádi-Arabía sé mögulegur styrktaraðili HM Alex Morgan, ein af þremur bestu knattspyrnukonu heimsins samkvæmt FIFA, hefur gagnrýnt mögulegan styrktarsamning milli heimsmeistaramóts kvenna og Sádi-Arabíu. Fótbolti 10. febrúar 2023 23:30