Rannsaka hvernig Saltkallinn komst inn á völlinn Alþjóða knattspyrnusambandið, FIFA, ætlar að rannsaka hvernig tyrkneski kokkurinn Nusret Gokce, betur þekktur sem Salt Bae, komst inn á völlinn eftir úrslitaleik HM. Fótbolti 23. desember 2022 07:31
Manchester United fær C-deildarlið Charlton í heimsókn Dregið var í átta liða úrslit enska deildarbikarsins í knattspyrnu eftir að viðureign Manchester City og Liverpool lauk í kvöld. Fótbolti 22. desember 2022 22:57
Sveindís og stöllur unnu risasigur | Englandsmeistararnir gulltryggðu efsta sætið Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg unnu sannkallaðan risasigur er liðið heimsótti St. Polten í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld, 2-8. Þá unnu Englandsmeistarar Chelsea öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti PSG. Fótbolti 22. desember 2022 22:05
Englandsmeistararnir slógu bikarmeistarana úr leik Englandsmeistarar Manchester City eru á leið í átta liða úrslit enska deildarbikarsins á kostnað ríkjandi bikarmeistara Liverpool efti 3-2 sigur í frábærum leik í kvöld. Enski boltinn 22. desember 2022 21:53
Fjórði sigurinn í röð hjá Sverri og félögum Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í PAOK unnu góðan 0-2 útisigur er liðið heimsótti Panetolikos í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Þetta var fjórði deildarsigur liðsins í röð. Fótbolti 22. desember 2022 19:29
Birkir og félagar úr leik eftir óvænt tap Birkir Bjarnason og félagar hans í Adana Demirspor eru úr leik í tyrknesku bikarkeppninni í fótbolta eftir óvænt tap gegn B-deildarliðinu Rizespor í framlengdum leik í kvöld. Lokatölur 3-4 eftir að staðan var 2-2 að venjulegum leiktíma loknum. Fótbolti 22. desember 2022 18:38
KSÍ mun ekki styðja Infantino til endurkjörs Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, mun ekki styðja við framboð Gianni Infantino til endurkjörs sem forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Fótbolti 22. desember 2022 17:31
Blatter gagnrýnir Infantino harðlega Sepp Blatter hefur gagnrýnt eftirmann sinn í embætti forseta FIFA fyrir hugmyndir um að breyta keppnum á vegum sambandsins. Fótbolti 22. desember 2022 16:31
Ronaldo skrifi undir sjö ára samning við Sáda Cristiano Ronaldo er við það að ganga frá stærsta samningi fótboltamanns í sögunni við Sádi-Araba. Sjö ára samningur muni skila honum yfir 560 milljónum króna á viku. Fótbolti 22. desember 2022 15:45
Sá fyrir HM-gullið og að hann myndi skora í úrslitaleiknum Argentínski landsliðsmaðurinn Ángel Di María er maður stórleikjanna enda hefur hann skorað í úrslitaleiknum í síðustu þremur stóru titlum Argentínumanna, á Ólympíuleikum, í Suðurameríkukeppni og á heimsmeistaramóti. Fótbolti 22. desember 2022 14:31
Ætlaði að skila tæpu tonni kókaíns til glæpagengis Orlando Rollo, fyrrum forseti brasilíska stórliðsins Santos, sem jafnframt vann fyrir lögregluna, er sakaður um að hafa tekið við greiðslu frá stærstu glæpasamtökum Brasilíu með það fyrir augum að skila þeim gríðarlegu magni kókaíns úr vörslu lögreglu. Fótbolti 22. desember 2022 14:00
Þóttist ekki skilja ensku til að sleppa við treyjuskipti við Ástrala Leikmaður ástralska landsliðsins hefur greint frá sérstakri ástæðu þess að hann skiptist ekki á treyjum við Olivier Giroud eftir leikinn gegn Frakklandi á HM í Katar. Fótbolti 22. desember 2022 13:31
LeBron og eigendur Liverpool líta til Las Vegas Fenway Sports Group, sem á meirihluta í enska fótboltaliðinu Liverpool, ætla að selja félagið til að demba sér í bandaríska körfuboltann ásamt körfuboltastjörnunni LeBron James sem á einnig hlut í Liverpool. Þeir hyggjast stofna nýtt lið í NBA-deildinni. Enski boltinn 22. desember 2022 13:00
Ísland niður um eitt sæti og heimsmeistararnir komust ekki á toppinn Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu endar árið 2022 í 63. sæti á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Fótbolti 22. desember 2022 10:15
Ástand Pelés versnar og hann verður á spítala yfir jólin Heilsu brasilíska fótboltagoðsins Pelé hefur hrakað enn frekar og hann verður á spítala yfir jólin. Fótbolti 22. desember 2022 07:31
Karólína Lea sneri aftur | Guðrún fékk á sig sex mörk í Katalóníu Guðrún Arnardóttir stóð vaktina í vörn Rosengård þegar liðið tapaði 6-0 fyrir stórliði Barcelona í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Athygli vakti að enginn Íslendingur var í byrjunarliði Bayern München í 2-0 sigri á Benfica en Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn af bekknum undir lok leiks. Fótbolti 21. desember 2022 22:15
Jóhann Berg spilaði allan leikinn á Old Trafford en Man United fór nokkuð þægilega áfram Manchester United lagði Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley í enska deildarbikarnum í kvöld. Lokatölur á Old Trafford 2-0 heimamönnum í vil. Enski boltinn 21. desember 2022 21:55
Sara Björk hvergi sjáanleg þegar Juventus féll úr leik | Arsenal skoraði níu Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir var ekki í leikmannahóp Juventus þegar liðið gerði markalaust jafntefli við hennar fyrrum lið Lyon. Jafnteflið þýðir að Juventus er úr leik í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 21. desember 2022 20:05
Tvær vítaspyrnur fóru forgörðum en samt komst Rúnar Alex áfram Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson og samherjar hans í Alanyaspor unnu 3-2 sigur á Eyupspor í tyrknesku bikarkeppninni. Leikurinn fór í framlengingu þar sem Koka, samherji Rúnars, brenndi af tveimur vítaspyrnum í venjulegum leiktíma. Fótbolti 21. desember 2022 19:02
Martínez sagði Ten Hag að kaupa sig til að losna við Arsenal Nýkrýndi heimsmeistarinn Lisandro Martínez var með tilboð frá Arsenal á borðinu síðasta sumar en vildi frekar endurnýja kynnin við Erik ten Hag, stjóra Manchester United. Enski boltinn 21. desember 2022 17:45
Guðbjörg fékk styttuna eftir fimm ára bið Guðbjörg Gunnarsdóttir fékk í dag afhenta styttu frá Knattspyrnusambandi Íslands fyrir að spila 50 landsleiki fyrir Íslands hönd. Afhendingin kemur í kjölfar gagnrýni á sambandið fyrr í vetur. Fótbolti 21. desember 2022 17:00
Konungurinn heimtaði að mömmur fótboltahetjanna væru með á myndinni Marokkó var sannarlega spútniklið heimsmeistaramótsins í fótbolta í Katar þar sem liðið komst, fyrst landsliða frá Afríku, alla leið í undanúrslit keppninnar. Fótbolti 21. desember 2022 13:31
Messi og félagar flúðu í þyrlu þegar æsingurinn varð of mikill Áhuginn á sigurskrúðgöngu argentínsku heimsmeistaranna var það mikill í heimalandinu að leikmenn liðsins urðu að flýja af vettvangi. Fótbolti 21. desember 2022 13:00
Vialli fer halloka í baráttunni við krabbamein Ástand ítalska fótboltagoðsins Gianlucas Vialli fer versnandi. Hann glímir við krabbamein í brisi. Fótbolti 21. desember 2022 12:00
Van Gaal útilokar ekki að taka við Portúgal Louis van Gaal útilokar ekki að hætta við að hætta í þjálfun og taka við portúgalska landsliðinu. Fótbolti 21. desember 2022 11:31
Real Madrid bjartsýnt á að vinna kapphlaupið um Bellingham Forráðamenn Real Madrid eru bjartsýnir á að vinna kapphlaupið um enska landsliðsmanninn Jude Bellingham. Fótbolti 21. desember 2022 08:31
Sakaður um að hafa lekið upplýsingum úr franska hópnum í fjölmiðla Benjamin Pavard, leikmaður franska fótboltalandsliðsins, er sakaður um að hafa gagnrýnt samherja sína á meðan úrslitaleik HM stóð og lekið upplýsingum úr herbúðum franska liðsins. Fótbolti 21. desember 2022 08:00
Martínez mætti með Mbappé-brúðu í fögnuðinn Emiliano Martínez hélt áfram að strá salti í sár Frakka þegar Argentínumenn fögnuðu heimsmeistaratitlinum í Búenos Aires í gær. Fótbolti 21. desember 2022 07:32
Infantino vill HM á þriggja ára fresti Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, vill að heimsmeistaramótið í fótbolta sé haldið með þriggja ára millibili frekar en fjögurra eins og hefur verið venjan frá því mótið var sett á laggirnar. Fótbolti 21. desember 2022 06:01
Fjögur af fimm úrvalsdeildarliðum áfram Leicester City, Newcastle United, Southampton og Úlfarnir eru öll komin áfram í enska deildarbikarnum í fótbolta. Enski boltinn 20. desember 2022 22:30