Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. Erlent 1. febrúar 2024 22:01
Viktor Orban gaf eftir: Ná saman um stuðning til Úkraínu Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð saman um stuðning til handa Úkraínu. Áður hafði Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sett sig upp á móti stuðningnum. Erlent 1. febrúar 2024 11:17
Þurfa árið til að snúa vörn í sókn Ástandið á vígvöllum í austanverðri Úkraínu hefur færst Rússum í vil á undanförnum mánuðum. Rússar hafa mun meira af skotfærum fyrir stórskotalið, eiga fleiri skrið- og bryndreka og eiga auðveldar með að fylla upp í raðir sínar vegna mannfalls. Erlent 31. janúar 2024 22:30
Sjötug kona í fimm ára fangelsi fyrir að vanvirða herinn Eldri kona hefur verið dæmd í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að vanvirða rússneska herinn. Það gerði konan, sem er 72 ára gömul og frá Rostov-héraði, með því að deila tveimur færslum á rússneska samfélagsmiðlinum VKontakte. Erlent 30. janúar 2024 22:41
Sagður vilja reka Járnherforingjann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er sagður ætla sér að skipta út Valerí Salúsjní, yfirmanni herafla landsins. Þeir funduðu í gær og bauð forsetinn Salúsjní að taka að sér stöðu varnarmálaráðgjafa en hann neitaði að segja af sér. Erlent 30. janúar 2024 18:21
Áhersla tjónaskrárinnar verði á alvarlegustu brotin Róbert Spanó var á þessu ári kjörinn í stjórn alþjóðlegrar tjónaskrár fyrir Úkraínu sem tekur til eignaskemmda, manntjóns og alvarlegra meiðsla sem orðið hafa í stríði Rússlands í Úkraínu. Gert er ráð fyrir því að nefndin starfi í það minnsta í þrjú ár. Innlent 27. janúar 2024 12:58
Áfram samið á þingi þó Trump mótmæli Samningaviðræðum um mögulegar aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó annars vegar og hernaðaraðstoð handa Úkraínu og öðrum ríkjum hefur ekki verið hætt á bandaríska þinginu. Talið er að koma muni í ljós á næstu dögum hvort samkomulag sé mögulegt. Erlent 26. janúar 2024 14:01
Girkin dæmdur í fjögurra ára fangelsi Igor Girkin, fyrrverandi yfirmaður í Leyniþjónustu Rússlands (FSB) og fyrrverandi leiðtogi aðskilnaðarsinna í Dónetsk í Úkraínu, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir öfgar. Hann var árið 2022 dæmdur í fjarveru í lífstíðarfangelsi fyrir aðkomu hans að því þegar MH17, flugvél Malasyia Airlines, var skotin niður yfir austurhluta Úkraínu árið 2014. Erlent 25. janúar 2024 13:47
Semja ekki um landamærin til að grafa ekki undan Trump Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, tilkynnti þingflokki sínum í gær að leiðtogar flokksins væru hættir að reyna að ná samkomulagi við Demókrata um aðgerðir á landamærum ríkisins og Mexíkó. Hann sagði Donald Trump, væntanlegan forsetaframbjóðanda flokksins, vilja keyra á vandanum á landamærunum í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 25. janúar 2024 10:50
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Barátta um skotfæri Nærri því tvö ár eru liðin frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst. Engar vísbendingar eru um að stríðið muni enda í bráð en staða Úkraínumanna hefur versnað nokkuð á undanförnum mánuðum og má það að miklu leyti rekja til skorts á skotfærum. Erlent 25. janúar 2024 08:00
Vill að alþjóðleg rannsókn fari fram á vélinni sem hrapaði Forseti Úkraínu, Volodomír Selenskíj, hefur sakað Rússa um að leika sér að lífum úkraínskra fanga. Selenskíj hefur krafist þess að alþjóðleg rannsókn fari fram á vélinni sem hrapaði í Belgorod-héraði í gær. Erlent 25. janúar 2024 07:28
Herflugvél féll til jarðar í Belgorod Flutningaflugvél rússneska hersins hrapaði til jarðar í Belgorod-héraði í morgun og sprakk. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir Il-76 flugvélina hafa borið 65 úkraínska stríðsfanga sem til stóð að skipta við Úkraínumenn, auk áhafnar, alls 74 manns. Erlent 24. janúar 2024 10:08
Heimur haturs, átaka og hergagnaframleiðslu Það horfir ekki friðvænlega í heiminum þessa dagana. Úkraínustríðið heldur áfram og hefur nú staðið yfir í hér um bil 2 ár. Átök eru á milli Ísraelshers og Hamas eftir árás hins síðarnefnda á Ísrael í október á 2023. Hútar í Jemen sem styðja Hamas ráðast á skip sem fara um Rauðahafið og þeir telja tengjast Ísrael eða bandamönnum Ísrael. Skoðun 22. janúar 2024 10:00
Láta ekki ógna sér með stórri æfingu NATO Steadfast Defender 24, sem eru stærstu heræfingar Atlantshafsbandalagsins í áratugi, marka afturför til tíma kalda stríðsins milli Nato og Sovétríkjanna, samkvæmt Alexander Grushko, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Hann segir æfingarnar auka hættuna á átökum en að Rússum verði ekki ógnað með þessum hætti. Erlent 21. janúar 2024 14:15
Drónaárásir í Rússlandi í nótt Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í Rússlandi í nótt en ein þeirra olli miklum eldi á olíuvinnslustöð nærri Pétursborg. Hin árásin ku hafa verið gerð á verksmiðju þar sem loftvarnarkerfi eru framleidd. Erlent 21. janúar 2024 09:34
Stærstu heræfingar NATO í áratugi Hermenn Atlantshafsbandalagsins og Svíþjóðar munu á næstu mánuðum halda umfangsmestu heræfingar bandalagsins í áratugi. Æfingarnar hefjast í næstu viku og munu standa yfir þar til í maí og í heildina munu um níutíu þúsund hermenn koma að þeim. Erlent 20. janúar 2024 07:55
Fordæmir svikara eftir fjölmenn mótmæli í Rússlandi Ríkisstjóri Bashkortostan, eins fjölbreyttasta lýðveldis rússneska sambandsríkisins, hefur fordæmt skipuleggjendur mótmæla gegn fjögurra ára fangelsisdómi aðgerðasinna sem öfgamenn og svikara. Hann hefur sakað fólkið um að reyna að skipta upp Rússlandi. Erlent 18. janúar 2024 13:02
Viðræðurnar snerust um uppgjöf, ekki frið Úkraínskir erindrekar höfðu ekki samþykkt skilmála Rússa áður en viðræðum var hætt nokkrum mánuðum eftir innrás Rússa í Úkraínu. Þeir segja viðræðurnar ekki hafa snúist um frið, heldur uppgjöf. Erlent 7. janúar 2024 07:02
Pólverjar vilja vopna Úkraínumenn langdrægum flaugum Utanríkisráðherra Póllands hefur kallað eftir því að bandamenn Úkraínumanna sjái þeim fyrir langdrægum eldflaugum til að gera stjórnvöldum kleift að hæfa bækistöðvar Rússa í Úkraínu. Erlent 3. janúar 2024 12:54
Pútin segist eiga harma að hefna og ræðst gegn Kænugarði Umfangsmiklar loftárásir standa nú yfir á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Samkvæmt blaðamönnum AFP hafa að minnsta kosti tíu háværar sprengingar heyrst í morgun og íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls. Erlent 2. janúar 2024 07:51
Selenskí boðar stóraukna vopnaframleiðslu á nýju ári Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur heitið því að eigin vopnaframleiðsla Úkraínumanna muni stóraukast á nýju ári. Erlent 1. janúar 2024 07:51
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. Erlent 31. desember 2023 12:12
Fleiri látnir í loftárás á rússnesku borgina Belgorod Átján manns létu lífið í árás Úkraínumanna á rússnesku borginni Belgorod í dag. Þar af þrjú börn, samkvæmt rússneskum yfirvöldum. Einnig særðust 111 manns. Erlent 30. desember 2023 21:44
Úkraínsk körfuboltahetja fórst í stórfelldum árásum Rússa Einn fórst og fjórir særðust í loftárásum Úkraínuhers á landamærahéraðið Belgorod í suðurhluta Rússlands í gær. Þetta segir héraðsstjóri Belgorod en Bryansk-hérað varð sömuleiðis fyrir eldflaugaárásum Úkraínumanna. Erlent 30. desember 2023 10:28
Minnst þrjátíu látnir í umfangsmestu loftárásum Rússa til þessa Minnst þrjátíu manns létu lífið í umfangsmestu loftárásum Rússa í Úkraínu til þessa. Einnig særðust meira en 160 þegar sprengjum ringdi yfir Kænugarð, Ódessu, Dnípropetrovsk, Karkív og Lvív í morgun. Erlent 29. desember 2023 22:32
Heimsótti bæ sem Rússar reyna að umkringja Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, virðist hafa heimsótt hermenn við og í bænum Avdívka, sem Rússar hafa reynt að umkringja frá því í október. Forsetinn birti myndband af sér standa við skilti bæjarins þar sem hann sagðist hafa þakkað hermönnum á svæðinu fyrir harða og erfiða baráttu þeirra og veitti hann hermönnum orður. Erlent 29. desember 2023 16:56
Umfangsmestu loftárásir Rússa hingað til Talsmaður flughers Úkraínu segist aldrei hafa upplifað jafn margar árásir á sama tíma eins og Rússar hafa gert nú í morgun. Rússar gerðu loftárásir um allt land og notuðu til þess bæði eldflaugar og dróna. Erlent 29. desember 2023 08:24
Dæmdir í áralangt fangelsi fyrir ljóðlestur gegn átökunum í Úkraínu Dómstóll í Moskvu í Rússlandi hefur dæmt tvo menn fyrir að flytja ljóð og vera viðstaddir upplesturinn en um var að ræða mótmæli gegn átökunum í Úkraínu. Erlent 29. desember 2023 07:04
Partý í Moskvu vekur reiði og fordæmingu yfirvalda Rússneskur rappari hefur verið dæmdur í fangelsi og til að greiða sekt í tengslum við „næstum því nakinn“ partý sem haldið var í Moskvu 21. desember síðastliðinn. Erlent 28. desember 2023 08:27
Síðasta vopnasendingin í bili samþykkt Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur nú samþykkt hernaðaraðstoð til handa Úkraínu upp á 250 milljónir dollara. Erlent 28. desember 2023 07:41
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent