

Sportið í dag
Sportið í dag er fréttaþáttur um íþróttir á Stöð 2 Sport. Þátturinn er sýndur alla virka daga klukkan 15.00.

Slæm ákvörðun sem við breyttum í mjög góðan hlut
„Auðvitað á að vera kvennalið í Breiðholti, annað er bara rugl,“ segir Margrét Valdimarsdóttir, leikmaður ÍR í handbolta, en þeirri ákvörðun að leggja liðið niður hefur nú verið snúið og ÍR leikur því í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð.

Leikmannamarkaðurinn frosinn: „Maður þorir varla að nefna eitthvað slíkt“
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir lið sitt Melsungen hafa burði til að gera góða hluti í þýsku 1. deildinni í handbolta. Leikmannamarkaðurinn sé hins vegar frosinn núna.

Hafþór ætlar að setja rosalegt heimsmet í beinni: „Þetta á ekki að vera hægt“
Aflraunamaðurinn Hafþór Júlíus Björnsson ætlar að setja heimsmet í réttstöðulyftu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport um kl. 17 á laugardaginn.

Guðmundur kveðst hálfnaður með landsliðið: „Menn héldu að ég yrði íhaldssamur“
„Ég er búinn að sjá liðið taka nokkur mikilvæg framfaraskref og mér finnst mjög gaman að vera hluti af þessu, og þess vegna hef ég áhuga á því að halda áfram,“ segir Guðmundur Guðmundsson sem á í viðræðum við HSÍ um framlengingu á samningi sínum sem landsliðsþjálfari karla í handbolta.

Rúnar Alex rólegur yfir ákvörðun Frakka og nýtur fæðingarorlofsins
Ekki verður spilaður aftur fótbolti í Frakklandi fyrr en í fyrsta lagi í september, vegna kórónuveirufaraldursins, og tímabilinu er því lokið hjá Rúnari Alex Rúnarssyni, markverði Dijon.

Lykilatriði að fá börnin á æfingar í maí: „Fundist þetta mjög erfitt“
Pálmar Ragnarsson, körfuboltaþjálfari í yngri flokkum Vals, segir mikilvægt að fá börn í innanhússíþróttum aftur inn á æfingar í maí til að klára tímabilið almennilega og hindra brottfall í sumar.

Umfangsmikil rannsókn á líkamlegu atgervi ungs knattspyrnufólks: „Gríðarlega gott verkfæri fyrir iðkendur og þjálfara“
„Þetta er gríðarlega gott verkfæri fyrir iðkendur, þjálfara og KSÍ,“ segja knattspyrnukonurnar Lára Hafliðadóttir og Katrín Ýr Friðgeirsdóttir sem í meistaranámi sínu í íþróttafræði við HR hafa kannað líkamlegt atgervi 15-16 ára knattspyrnufólks á Íslandi.

Ánægður að geta hætt á eigin forsendum og stefnir á þjálfun
Guðjón Valur Sigurðsson er sáttur með ákvörðunina sem hann tók um að hætta að spila handbolta. Þjálfun verður væntanlega næst á dagskránni hjá honum.

Fjársterkir einstaklingar lífæð knattspyrnudeilda
Fjársterkir stuðningsmenn eru lífæð margra knattspyrnudeilda á Íslandi, sérstaklega á meðal bestu liðanna í Pepsi Max-deild karla.

Glódís spenntust fyrir toppliði á Englandi
Glódís Perla Viggósdóttir yrði leikmaður Manchester United á næstu misserum ef að kærasti hennar fengi að ráða. Hún er spenntust fyrir því að fara í ensku úrvalsdeildina þegar tímanum í Svíþjóð lýkur.

Stakk upp á kerfi til að gera launaumhverfið heilbrigðara í íslenska boltanum
Jóhann Már Helgason, höfundur skýrslu um fjárhagsstöðu íslenskra knattspyrnufélaga, ræddi í Sportinu í dag um hugmynd að nýju samningakerfi fyrir félögin sem ætlað er að gera launaumhverfið í íslenska boltanum heilbrigðara og auka gagnsæi.

Martin tilbúinn að klára tímabilið: „Langar að verða þýskur meistari“
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson segist gjarnan vilja byrja að spila körfubolta aftur og líst ágætlega á þær hugmyndir sem uppi eru um að klára tímabilið í Þýskalandi fyrir lok júní.

Veðmálafyrirtæki vildu kaupa nafnið á Valsvellinum
Þegar Valur var að leita að styrktaraðila til að kaupa nafnið á heimavelli félagsins bönkuðu tvö veðmálafyrirtæki upp á. Slíkum fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á íþróttaviðburðum á Íslandi.

Lukka með klifurvegg í garðinum og herberginu
Lukka Mörk, 16 ára klifurkona, var ferðbúin og mjög spennt fyrir Norðurlandamótinu þegar hætt var við mótið vegna kórónuveirufaraldursins. Í samkomubanninu hefur hún æft sig í garðinum heima og er komin með prýðisgóða aðstöðu til þess.

Leikmenn voru hitamældir inn á æfingar hjá Degi: „Ég vildi slútta þessu“
Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Japans í handbolta karla, var með liðið í æfingabúðum og undirbúningi fyrir Ólympíuleika þegar kórónuveirufaraldurinn hóf að setja allt íþróttalíf úr skorðum.

Dagur nýtur þess að þjálfa Japan og útilokar ekki að vera lengur með liðið en til 2024
Dagur Sigurðsson kann afar vel við sig í starfi þjálfara japanska karlalandsliðsins í handbolta. Hann hefur áhuga á að vera lengur með liðið eftir að samningur hans við japanska handknattleikssambandið rennur út.

Segir eina íþróttamanninn í heiminum sem hækkað hafi í verði spila á Sauðárkróki
Körfuknattleiksmaðurinn Nikolas Tomsick skrifaði undir samning við Tindastól á dögunum og varð þar með eini íþróttamaðurinn í heiminum til að hækka í verði á fordæmalausum tímum kórónaveirufaraldursins að sögn formanns körfuknattleiksdeildar KR.

Engin lyfjapróf verið tekin í samkomubanni
Lyfjaprófum á íþróttafólki hefur fækkað verulega í kjölfar kórónaveirufaraldursins en á Íslandi er áfram hægt að lyfjaprófa. Það hefur þó ekki verið gert síðan samkomubann skall á.

Kallar eftir heiðursmannasamkomulagi milli félagana um erlenda leikmenn
Formaður körfuknattleiksdeildar KR, Böðvar Guðjónsson, vonast eftir meiri samvinnu innan félagana í körfuboltanum og að menn setji heiðursmannasamkomulag hversu margir erlendir leikmenn geta verið í hverju liði þegar boltinn fer af stað aftur í haust.

Væsir ekki um handboltalið FH í glæsilegum búningsklefa | Myndband
Það fer vel um Olís-deildar lið FH í handbolta en leikmenn liðsins tóku klefann hjá sér í gegn í vetur. Það voru ekki sjálfboðaliðar sem komu að verkinu heldur tóku leikmenn höndum saman í samkomubanninu og umbreyttu klefanum svo úr varð algjör bylting.

Kári gerði golfíþróttinni skil í sjöunda þættinum úr skúrnum
Kári Kristján Kristjánsson hefur slegið í gegn í þættinum Sportinu í dag að undanförnu og í dag birtist hans sjöundi þáttur úr bílskúrnum í Vestmannaeyjum þar sem línumaðurinn knái hefur eytt löngum tímum undanfarnar vikur.

KR-ingar verða af 15-20 milljónum: „Þetta er rosalegt högg“
Formaður körfuknattleiksdeildar KR segir að félagið hafi orðið fyrir miklum fjárhagslegu höggi þegar tímabilið var flautað af.

„Erfiðasta ákvörðun sem stjórn í sérsambandi hefur þurft að taka“
Kjartan Atli Kjartansson ræddi við Birnu Lárusdóttur, stjórnarmeðlim körfuknattleiksdeild Vestra, um ákvörðun KKÍ að blása tímabilið hér heima af.

Súrt tap gerði Valdísi Þóru staðráðna í að verða enn betri
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir mætti í Sportið í dag, í gær. Þar sagði hún meðal annars frá því að hún hafi valið golf fram yfir fótbolta og hvernig það kom til.

Einn hressasti Twitter-notandi landsins skoðaði gamlar færslur
Valdís Þóra Jónsdóttir atvinnukylfingur er ekki bara góð í golfi heldur virðist hún einnig vera afskaplega hreinskilin. Það má meðal annars sjá á Twitter síðu hennar.

Var í fýlu út í Óla Stef í viku en segir að áritunin eigi vel við í dag
Handboltamaðurinn Bjarki Már Elísson er léttur og skemmtilegur yfirleitt í viðtölum. Hann var í viðtali í Sportinu í dag en Bjarki Már var á dögunum krýndur markakóngur þýsku úrvalsdeildarinnar.

Staðnaði í Bandaríkjunum því þjálfarinn var meiri umboðsmaður en þjálfari
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir segir að hún dýrki Bandaríkin en segir tíma sinn í háskólagolfinu þar ekki hafa verið besta tíma ferilsins þar sem þjálfari skólans var meiri umboðsmaður en þjálfari.

Bauð Valdísi Þóru tvö kameldýr fyrir að giftast sér
Valdís Þóra Jónsdóttir sagði frá skemmtilegri uppákomu í Sportinu í dag.

Guðmundur lét það í hendur Vignis að ákveða hvort hann kæmi með á Ólympíuleikana í Peking
Vignir Svavarsson segir að það hafi verið bæði erfitt og sætt að fylgjast með Ólympíuleikunum í Peking 2008. Ísland náði í silfur á mótinu en línumaðurinn meiddist rétt fyrir brottför og ferðast ekki með liðinu á mótið.

Prufuðu boltaspuna á kollinum á Henry
KKÍ hefur sett skemmtilegan leik á laggirnar á tímum samkomubanns en þar hefur verið svokölluð boltaspuna-áskorun í gangi þar sem fólk á öllum aldri er hvatt til þess að taka þátt. Þetta er ein þraut af mörgum sem KKÍ hyggst koma fram með á næstu dögum og vikum.