Stöku él og vaxandi norðaustanátt Veðurstofan gerir ráð fyrir stöku éljum fram eftir degi en vaxandi norðaustanátt þegar líður á daginn. Veður 4. desember 2024 07:05
Stígarnir fá falleinkunn hjá hjólafólki Töluverð hálka hefur myndast á höfuðborgarsvæðinu síðustu sólarhringa. Hjólreiðafólk og gangandi eru allt annað en sáttir með stígahreinsun sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og víðar. Innlent 3. desember 2024 21:48
Hitasveifla upp á 23 gráður á innan við sólarhring Hitabreytingar voru með mesta móti á Austfjörðum í gær. Hitinn fór sem dæmi úr -23,6 gráðum í Möðrudal á Fjöllum í gærmorgun yfir í -0,4 gráður klukkan níu í morgun. Innlent 3. desember 2024 16:58
Skúrir eða él á víð og dreif Nú í morgunsárið eru þrjár mis aðgangsharðar lægðir fyrir vestan land. Sú sem er skammt suðvestur af landinu mun sigla yfir landið í dag á meðan hinar halda sig nálægt Grænlandi og hafa takmörkuð áhrif á landsmenn. Veður 3. desember 2024 07:13
Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? Mjög vel er fylgst með ástandinu í Ölfusá vegna stórrar krapastíflu við Ölfusárbrú og Selfosskirkju. Lögreglan notar meðal annars dróna til að fylgjast með ánni. Heimamenn hafa miklar áhyggjur af grenitré í kletti í ánni, hvort áin eigi eftir að skemma það eða ekki. Innlent 2. desember 2024 20:59
Gekk betur en óttast var Umferðin á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld virðist hafa gengið betur en óttast var, þó hún hafi farið hægar en gengu og gerist. Segja má að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi upplifað sinn fyrsta vetrardag í dag. Innlent 2. desember 2024 19:33
Ástand á Reykjanesbrautinni Viðbragðsaðilar eru á fjórum vettvöngum á Reykjanesbraut þar sem árekstrar eða óhöpp hafa orðið. Ekki er vitað um slys á fólki. Innlent 2. desember 2024 15:58
Lögreglan fylgist vel með ástandinu í Ölfusá Lögreglan á Suðurlandi fylgist grannt með stöðunni í Ölfusá vegna krapastíflu í ánni á milli Ölfusárbrúar og Selfosskirkju. Fólk er beðið að sýna sérstaka varúð við ána en vatn var farið að flæða upp að og yfir göngustíga við ánna í gær. Innlent 2. desember 2024 13:05
Vegir víða á óvissustigi Vegir á Suðurlandi, Vesturlandi og á Vestfjörðum verða á óvissustigi síðdegis vegna gulrar veðurviðvörunar og geta lokað með stuttum fyrirvara. Líkt og fram hefur komið er spáð suðaustan hríð síðdegis upp úr klukkan 14:00. Innlent 2. desember 2024 11:35
Vaxandi lægð og gular viðvaranir víða um land Það var mjög kalt á landinu í nótt, frost fór til dæmis niður fyrir tuttugu stig á nokkrum stöðvum á Norðausturlandi. Veður 2. desember 2024 07:29
Gosið mallar en framrás hraunjaðarsins er hægur Á meðan landsmenn gengu til Alþingiskosninga mallaði eldgosið á Reykjanesskaga áfram. Lítil breyting hefur orðið á hegðun gossins samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofu. Innlent 2. desember 2024 07:04
„Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Vatn er farið að flæða yfir göngustíga við Ölfusá vegna ís- og krapamyndunar og er fólk beðið að sýna varúð. Lögreglan fer í reglulegar eftirlitsferðir um svæðið til að fylgjast með þróuninni. Innlent 1. desember 2024 21:44
Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Vatnsyfirborð Ölfusár hækkar og hækkar vegna klakastíflu sem hefur myndast í henni. Hækkunina má sjá myndrænt á myndum þar sem klakinn nálgast grenitré sem stendur á toppi Jórukletts í miðri ánni. Innlent 1. desember 2024 19:43
Gular viðvaranir í borginni og víðar Gular viðvaranir taka gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Miðhálendi og Suðurlandi seinni partinn á mánudaginn. Veður 1. desember 2024 13:29
„Förum ekki að stefna öryggi fólks í hættu“ Formaður landskjörstjórnar telur ólíklegt að fresta þurfi kjörfundi vegna veðurviðvarana í kvöld. Líklega gangi allt upp samkvæmt áætlun. Innlent 30. nóvember 2024 15:27
Tekist að opna alla kjörstaði í Norðausturkjördæmi Framkvæmd alþingiskosninganna í Norðausturkjördæmi hefur gengið betur en menn þorðu að vona þrátt fyrir að færð hafi spillst af völdum veðurs, að sögn varaformanns yfirkjörstjórnar kjördæmisins. Tekist hefur að opna alla kjörstaði í kjördæminu. Innlent 30. nóvember 2024 11:44
Ölfusá orðin bakkafull af ís Vatnsyfirborð Ölfusár heldur áfram að hækka vegna klakastíflunnar sem hefur myndast í henni. Farvegurinn er nú sagður bakkafullur af ís og vatn komið yfir gróður nærri Hótel Selfossi. Innlent 30. nóvember 2024 11:09
Viðvaranir komnar í gildi og orðið ófært sums staðar Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og Austurlandi fyrir klukkan átta í morgun vegna norðaustan og norðan hríðar með snjókomu og skafrenningi. Veður versnar á norðanverðu landinu með deginum en þar taka viðvaranir gildi klukkan þrjú. Veður 30. nóvember 2024 08:34
„Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Yfirkjörstjórnir landsins vinna nú að því að gera allt klárt fyrir kosningar á morgun en veður gæti sett strik í reikninginn. Vegagerðin hefur ráðið fleiri verktaka og fjölgað tækjum. Ef ekki tekst að opna alla kjörstað þarf að fresta talningu. Innlent 29. nóvember 2024 21:14
Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Ís er farinn að hrannast upp aftur í farvegi Ölfusár neðan og við Selfoss. Vegna stíflunnar er vatnshæð árinnar komin upp í fjóra metra og hefur ekki verið hærri síðan árið 2020. Innlent 29. nóvember 2024 20:16
„Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“ Veðrið getur haft áhrif á framkvæmd Alþingiskosninganna á morgun. Gular veðurviðarnarnir verða í gildi frá því í kvöld þar til á sunnudaginn á Austfjörðum. Formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi segir að allt kapp verði lagt á að halda kjörfundi allstaðar. Ekki má telja atkvæði fyrr en öllum kjörfundum hefur verið lokað. Innlent 29. nóvember 2024 15:04
Fleiri gular viðvaranir á kjördag Gular veðurviðvaranir verða í gildi á stórum hluta landsins á kjördag á morgun. Veðurspáin hefur aukið ásókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Austurlandi en nú hafa viðvaranir vegna hríðar á norðanverðu landinu bæst við. Innlent 29. nóvember 2024 13:14
Frost fór víða yfir tuttugu stig í nótt Vindur er nú víðast hvar hægur á landinu og verður bjart með köflum og hörkufrost, en það fór yfir tuttugu stig á nokkrum veðurstöðvum í nótt. Það blæs þó nokkuð við suðausturströndina og þar eru einhverjir úrkomubakkar á sveimi. Veður 29. nóvember 2024 07:10
Stefnir enn í hríðarveður á Austfjörðum á kjördag Gul veðurviðvörun tekur gildi síðdegis fyrir Suðausturland og klukkan átta í kvöld á Austfjörðum, þar sem spáð er norðaustan hríðarveðri þar sem vindhraði verði 15 til 20 metrar á sekúndu. Innlent 29. nóvember 2024 06:51
Óvenjumikil aðsókn vegna veðurs „Fólk tekur það yfirleitt fram þegar það kemur til okkar að það sé eins gott að fara drífa sig, því það sem vofir yfir er það sem að Íslendingar þekkja því miður betur en aðrar þjóðir, vont veður.“ Innlent 28. nóvember 2024 18:39
Kaldri norðlægri átt beint til landsins Hæð yfir Grænlandi og lægð fyrir norðaustan land beina til okkar kaldri norðlægri átt og má víða gera ráð fyrir kalda eða strekkingi í dag og dálitlum éljum. Það verður bjart að mestu um landið suðvestanvert. Veður 28. nóvember 2024 07:11
Gul viðvörun á Vestfjörðum Gul viðvörun er í gildi á norðanverðum Vestfjörðum til klukkan tvö í nótt. Veður 27. nóvember 2024 19:59
Tvær sviðsmyndir á kjördag Kjördegi í heild sinni verður ekki frestað að sögn framkvæmdastjóra landskjörstjórnar sem liggur yfir veðurspánni. Veðrið gæti þó valdið því að niðurstaða kosninga liggi fyrir síðar en ella. Innlent 27. nóvember 2024 12:03
Yfirgnæfandi líkur á óveðri á kjördag og líklegt að vegir teppist Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir yfirgnæfandi líkur á óveðri á Austurlandi og hríðarveðri á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum á kjördag. Hann segir líklegt að einhverjir vegir teppist á kjördag. Veður 27. nóvember 2024 08:34
Skúrir eða slyddu en þurrt austantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu og skúrum eða slydduéljum, en þurrt að mestu á austanverðu landinu. Veður 27. nóvember 2024 07:14