
Börn og uppeldi

Hvað á ég að gera við barnið mitt?
Ég hef haft áhyggjur af dagvistun frá því ég fékk staðfestingu á því að ég væri ólétt. Frá því áður en við maðurinn minn fórum að segja fólki í kringum okkur að von væri á barni þá hefur blundað í mér kvíði varðandi leikskólamál í Reykjavík. Vitiði hvað það er fáránlegt að þurfa að líða svona?

Notkun á TikTok og Snapchat dregst saman hjá níu til tólf ára börnum
Hlutfall barna á aldrinum 9 til 12 ára sem nota samfélagsmiðlana TikTok og Snapchat lækkar töluvert frá árinu 2021. Youtube er algengasti samfélagsmiðillinn sem nemendur í 4. til 7. bekk nota en Google og Roblox koma þar á eftir. 99 prósent framhaldsskólanema eiga sinn eigin farsíma.

Ungmenni séu byrjuð að átta sig á slæmum afleiðingum klámáhorfs
Sífellt fleiri nemendur í grunnskólum landsins kjósa að horfa ekki á klám. Verkefnastýra hjá Reykjavíkurborg segir það gleðitíðindi þar sem klámáhorf sé tengt vanlíðan barna á grunnskólaaldri. Unglingar fagna betri fræðslu.

Kæri útskriftarárgangur 2024, grunnskólans í Stykkishólmi
Í dag, 4. júní, er útskriftardagurinn ykkar og er tilefni til að gleðjast og fagna.Við sem tilheyrum skólasamfélaginu í kringum ykkur, hvort sem það erum við fjölskyldurnar ykkar, vinir eða starfsfólk skólans hlökkum öll til að sjá hvað þið gerið í framtíðinni

Stórar og flóknar tilfinningar sem aðstandendur glíma við
„Margir þeirra sem leita til okkar þurfa fyrst og fremst áheyrn. Þau koma til okkar og segja: Ég hef engan að tala við. Ég get ekki rætt þetta við fjölskylduna eða vini mína. Fólki finnst erfitt að tjá sig um þetta og upplifir líka að aðrir vilji ekki hlusta,“ segir Eiríkur Steinarsson sem er fjölskyldufræðingur hjá Bjargráð ásamt Jennýju Þórkötlu Magnúsdóttur.

Munurinn á meðgöngu- og fæðingarsjúkdómum
Það er gömul saga og ný að ráðherrar og þingmenn, þrátt fyrir her aðstoðarmanna sem túlka fyrir þau, eru misduglegir við að lesa og skilja afleiðingar frumvarpa ráðuneyti og stofnanir landsins leggja fyrir þau að samþykkja sem lög. Hér verður rakið stuttlega eitt slíkt dæmi sem spannar tæpa þrjá áratugi.

Segja tíma SÍS hafa verið „sóað í sýndarsamráð“ um gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Tíma stjórnarmanna og starfsmanns Sambands íslenskra sveitarfélaga var „sóað í sýndarsamráð“ þar sem ekkert tillit var tekið til athugasemda eða leiða til að sætta mismunandi sjónarmið varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir.

Hagsmunir barna ekki „tromp spil“ og niðurstaða umboðsmanns ótæk
Dómsmálaráðuneytið segir umboðsmann barna komast að „ótækri“ niðurstöðu í umsögnum sínum um útlendingafrumvarpið svokallaða. Hagsmunir barna séu ekki „tromp spil“ í útlendingamálum.

„Ef við erum lausnamiðuð þá sköpum við tækifærin“
Röð atburða leiddi til þess að Kolbrún Róbertsdóttir tók stóra og djarfa ákvörðun árið 2012. Hún flutti til Spánar ásamt börnunum sínum þremur, og það eina sem höfðu meðferðis voru fimm ferðatöskur. Kolbrún lét hjartað ráða för og leyfði tækifærunum að koma til sín. Það borgaði sig á endanum; hún opnaði jógastúdíó við suður strönd Spánar.

Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók
Bókaútgáfan Ævintýri.is var að gefa út nýja barnabók þar sem söguhetjan, eigandi bókarinnar, verður forseti Íslands.

Dóttir mín – uppgjör eineltis
Elsku dóttir mín útskrifast úr grunnskóla í dag, ekki grunnskólanum í sínu lögheimils sveitarfélagi, heldur úr öðrum grunnskóla í öðru bæjarfélagi. Fyrir tæpu ári síðan kemur dóttir mín upp að okkur foreldrunum algjörlega niðurbrotin, hún bara gat ekki meir, og hvað gerir maður þá?

Ástandið í Hafnarfirði geti haft langvarandi áhrif á börn
Á mánaðartímabili hafa komið upp fjögur tilvik þar sem veist er að eða setið um börn í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir þetta ástand geta haft mjög alvarleg áhrif á börnin. Þau geti alið með sér ótta, kvíða eða þunglyndi. Tilvikin eru enn til rannsóknar hjá lögreglu sem er með aukið eftirlit í hverfinu með foreldrum.

Bíða eftir pizzu og potti eftir milljón króna göngu
Sex drengir eru í þann mund að klára 111 kílómetra göngu. Um er að ræða lokaverkefni þeirra í tíunda bekk Réttarholtsskóla, en tilgangurinn með göngunni er að styrkja börn á Gaza. Þeir hafa safnað um milljón króna til styrktar málefninu.

Ungmenni kveiktu í skólabókum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um ungmenni að kveikja eld í Hlíðahverfi í Reykjavík í dag. Rannsókn lögreglu leiddi í ljós að krakkarnir hefðu verið að kveikja í skólabókunum sínum.

Opinber umræða í þágu hugsunar
Fyrir rúmum mánuði birtist pistill á Vísi að nafni „Opinber umræða fyrir hvern?“ eftir Þorbjörgu Þorvaldsdóttur, sem svar við öðrum pistli eftir Helga Áss borgarfulltrúa. Þar fjallar hún um hvernig umræða um hormónameðferðir barna með kynama ætti að eiga sér stað innan fagteyma, svo sem trans teyma spítalans en ekki á opinberum vettvangi. Hún segir þessa afstöðu skynsamlega vegna þess að málaflokkurinn krefjist þekkingar sem til að mynda sérfræðingar í þessum meðferðum búa yfir. Ég tel að það sé ákveðið sannleikskorn í pistli hennar. Á sama tíma sé ég þetta í ólíku ljósi og langar mig að fjalla stuttlega um það hér.

Dæmi um að börn þori ekki út í frímínútur
Foreldrafélög grunnskóla í Hafnarfirði hafa stóreflt foreldrarölt vegna manns sem veist hefur að börnum. Börn eru mörg hver afar slegin vegna málsins.

Rýnum í rót lestrarvandans. Hvað ert þú að gera til að styðja við barn í þínu nærumhverfi ?
Lestrarnám byrjar við fæðingu og jafnvel fyrr vilja sumir meina. Það að tala við, lesa, syngja og útskýra fyrir börnum er hluti af lestrarnámi þeirra.

Ganga 111 kílómetra til styrktar börnum í Gasa
Sex drengir, þeir Benjamín, Erik, Felix, Markús, Stefán og Óðinn lögðu af stað snemma í morgun í 111 kílómetra gönguferð til styrktar börnum á stríðshrjáðu Gasasvæðinu. Gangan mun taka þrjá daga.

„Það er svo ótrúlega erfitt að vera synjað um að hitta börnin sín”
„Hvað hafa börnin mín gert? Það var ég sem braut af mér en ekki börnin mín. En samt voru það börnin mín sem þurftu örugglega að gjalda mest fyrir þetta. Það er mjög erfitt fyrir mig að díla við það, ég er bara hérna einn á meðan fjölskyldan mín er heima að líða ömurlega. Ég er ekki í neinni aðstöðu til að vera til staðar fyrir börnin,“ segir íslenskur karlmaður sem afplánar dóm í fangelsi.

Yrði stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar
Fyrirhuguð sala Hagkaups á áfengi er stærsta lýðheilsuslys Íslandssögunnar. Þetta segir forvarnarsérfræðingur sem telur verslunina þverbrjóta áfengislög.

Neyðarlínan lýsir eftir börnum sem komu færandi hendi
Óþekkt börn skyldu eftir glaðning á stéttinni fyrir framan húsnæði Neyðarlínunnar í gær. Glaðningurinn innihélt gjafir og þakklætisbréf og skilaboðin voru einföld; „Takk 112!“

Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu
Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur og áhrifavaldur, segist þakklát fyrir það að fá að ganga með barn eftir að hafa barist við ófrjósemi í mörg ár. Hún segir það þó ekki sjálfgefið að konur fórni líkama sínum og heilsu í tíu mánuði þar sem gyllinæð, tannpína og krónískt kvef telst eðlilegur fylgikvillu barnsburðar.

Árás á tólf ára stúlku fór betur en á horfðist
Helgi Ingason, faðir tólf ára gamallar stúlku sem ráðist var á í morgun á leið sinni í skólann í Hafnarfirði, er nýkominn frá lögreglu þar sem hann gaf skýrslu. Hann segir stúlkuna furðu bratta eftir allt sem á gekk.

Vilja upplýsingar frá Strætó vegna framkomu í garð barna
Umboðsmaður barna hefur sent Strætó bréf þar sem óskað er eftir upplýsingum um verklagsreglur þess varðandi samskipti við börn og hvernig vagnstjórum beri að tryggja öryggi þeirra.

Lexía lærð á hálfum degi
Ég gæti legið svona í allan dag. Hlýjað unganum mínum með nærverunni minni. Eitthvað bjóst ég við að þetta tímabil yrði erfiðara, að sinna nýbura, verandi oft ein án aðstoðar. Ekki misskilja mig, ég er illa sofin, finn fyrir þreytu, upplifi hvað það er flókið að fara milli staða, er oftar en ekki almennilega illa lyktandi, gleymdi eflaust að tannbursta mig — rétt eins og eðlilegt er fyrir konu í minni stöðu.

Þórdís Björk og Júlí Heiðar eignuðust hárprúða stúlku
Dóttir listaparsins Þórdísar Bjarkar Þorfinnsdóttur og Júlís Heiðars Halldórssonar kom í heiminn á dögunum. Þau segja dótturina hafa stækkað hjörtu þeirra um nokkurn númer.

VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf
Tryggingafélagið VÍS hefur nú í um tvö ár gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf. Hugmyndin kemur upphaflega frá viðskiptavinum félagsins.

Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs
Foreldrar barna í Vatnsendaskóla í Kópavogi hafa verið beðnir um að senda flugnanet með börnunum sínum í skólann. Ástæðan er mikill flugnafaraldur sem nú geysar í Vatnsendahverfinu.

„Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“
Stjórnarmaður Knattspyrnusambands Íslands segir þá sem glíma við spilafíkn marga upplifa sína dýpstu dali og íhugi að taka eigið líf. Vandamálið eigi einungis eftir að verða stærra og stærra á næstu árum bregðist enginn við.

Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn
Heilbrigðisráðherra hyggst leggja fram reglugerð til að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Læknar hafa hótað því að hætta að gefa út tilvísanir vegna barna.