
Ástralía

Hugh Jackman og Deborra í sitthvora áttina
Ástralska leikaraparið Hugh Jackman og Deborra-lee Furness hafa ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir 27 ára langt hjónaband.

Átta sentímetra ormur úr pýtonslöngu fjarlægður úr heila konu
Taugaskurðlækninum Hari Priya Bandi brá heldur betur í brún þegar hún fann átta sentímetra langan hringorm í framheila konu á sjúkrahúsi í Canberra í Ástralíu.

Talin hafa gefið fyrrverandi tengdaforeldrunum eitraða sveppi
Áströlsk kona er grunuð hafa notað eitraða sveppi þegar hún matreiddi Beef Wellington-steik fyrir foreldra fyrrverandi eiginmanns síns. Þrír hafa látist eftir að hafa borðað máltíðina.

Upprættu „tæknilega fágaðan“ barnaníðshring eftir morð á fulltrúum FBI
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og Ástralíu handtóku 98 einstaklinga og 45 hafa þegar verið dæmdir í tengslum við umfangsmikinn barnaníðshring. Einstaklingarnir notuðu djúpvefinn til að skiptast á efni en meðal þeirra voru þó nokkrir sérfræðingar í forritun og upplýsingatækni.

Segir hugmyndir Google aðför að höfundaréttinum
Forsvarsmenn Google hafa lagt til að breytingar verði gerðar á höfundaréttarlögum til að heimila fyrirtækjum að mata gervigreind á öllum texta sem fyrirfinnst á netinu. Ef útgefendur vilja ekki að efni þeirra sé notað verði það undir þeim komið að láta vita.

Frumbyggjar gagnrýna mótshaldara í Ástralíu
Hópur fótboltamanna af frumbyggjaættum hefur skrifað bréf til ástralska fótboltasambandsins og Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, vegna skorts á fjárstuðningi. Slíkt eigi að tilheyra arfleifð heimsmeistaramóts kvenna sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi þessi dægrin.

Sagði „Æi, fjandinn hafi það“ og skaut 95 ára konu með rafbyssu
Saksóknarar í Ástralíu segja lögregluþjóna sem beittu rafbyssu gegn 95 ára gamalli konu með elliglöp hafa beitt óhóflega miklu valdi. Konan, sem hét Clare Nowland, féll í gólfið og höfuðkúpubrotnaði þegar hún var beitt rafbyssunni. Þá dó hún nokkrum dögum síðar.

Leikmenn með stjörnur í augum þegar Ólympíuhetja mætti óvænt á liðsfundinn
Ástralska landsliðið í knattspyrnu leikur fyrsta leik sinn á heimsmeistaramótinu gegn Írlandi í dag. Þjálfari liðsins kom leikmönnum þess heldur betur á óvart í síðustu viku þegar hefðbundinn liðsfundur var á dagskrá.

Skipverja og hundi bjargað eftir marga mánuði á sjó
Áströlskum skipverja og hundi hans hefur verið bjargað undan ströndum Mexíkó eftir að hafa verið skipreka í tvo mánuði. Þeir lifðu á engu nema regnvatni og hráum fisk.

Rússar skutu eldflaugum á Kherson í dag
Rússar héldu áfram loftárásum á borgir í suðurhluta Úkraínu í dag. Flugskeyti hæfðu skrifstofubyggingu miðborg Kherson sem Rússar höfðu hertekið en var stökkt á flótta þaðan í nóvember.

Lionel Messi aldrei verið sneggri að skora en í dag
Lionel Messi, sem fagnar 36 ára afmæli sínu eftir níu daga, er greinilega ekki dauður úr öllum æðum enn. Í vináttulandsleik Argentínu og Ástralíu sem fram fór fyrr í dag skoraði hann eftir aðeins 81 sekúndu leik, og hefur aldrei verið sneggri að koma boltanum í markið.

Ástralir stöðva byggingu á nýju sendiráði Rússa
Ástralska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp sem felur í sér að framkvæmdir á nýju sendiráði Rússa í grennd við þinghúsið í áströlsku höfuðborginni Canberra séu stöðvaðar. Er þar vísað til öryggissjónarmiða.

Minnst tíu brúðkaupsgestir létust í rútuslysi
Minnst tíu létust þegar rúta, sem flutti hóp brúðkaupsgesta frá vínbúgarði, valt í Nýja Suður-Wales í Ástralíu í kvöld.

Kathleen Folbigg náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi
Kathleen Folbigg hefur verið náðuð og sleppt eftir 20 ár í fangelsi. Hún var dæmd í 25 ára fangelsi árið 2003 fyrir að myrða þrjú barna sinna og valda dauða þess fjórða.

Kvenkyns yfirmaður á skrifstofunni í fyrsta skipti
Áströlsk endurgerð á bresku seríunni The Office er á leiðinni en hún verður sú fyrsta þar sem yfirmaðurinn verður kona. Ricky Gervais sem lék yfirmanninn David Brent eftirminnilega í upprunalegu útgáfunni hefur lýst yfir ánægju sinni með endurgerðina.

Táningar gáfu sig fram við lögreglu vegna eldsins í Sidney
Tveir þrettán ára táningar hafa gefið sig fram við lögreglu í Sidney í Ástralíu vegna sögufrægs húss sem varð eld að bráð í gær. Lögreglan hafði áður sagt að hópur ungmenna hefði sést hlaupa frá byggingunni skömmu áður en hún stóð í ljósum logum.

Óðagot þegar alelda hús hrundi
Þúsundir íbúa Sydney horfðu á sjö hæða sögufræga byggingu í viðskiptahverfi borgarinnar verða eldhafi að bráð í dag. Eldurinn kviknaði um fjögur leytið að degi til (að staðartíma) og varð fljótt alelda.

Aldraða konan sem var skotin með rafbyssu er látin
Eldri áströlsk kona sem skotin var með rafbyssu á dögunum er látin. Lögregluþjónn hefur verið ákærður fyrir að skjóta hina 95 ára gömlu Clare Nowland með rafbyssu þegar hún nálgaðist hann hægt á göngugrind en með hníf í hendi.

Kynferðisbrotamaðurinn Rolf Harris er látinn
Ástralski kynferðisbrotamaðurinn og fyrrverandi sjónvarpsmaðurinn Rolf Harris er látinn, 93 ára að aldri.

Heita því að hlífa engum eftir að öldruð kona með heilabilun var beitt rafbyssu
Forsvarsmenn lögreglunnar í Nýja Suður-Wales í Ástralíu, heita því að velta öllum steinum og hlífa engum í rannsókn á atviki þar sem lögregluþjónn skaut 95 ára konu með heilabilun með rafbyssu. Rannsóknarmenn í morðadeild lögreglunnar eru með málið til rannsóknar.

Mikil reiði eftir að 95 ára gömul kona með göngugrind var skotin með rafbyssu
Mikil reiði er nú í garð lögreglunnar í Ástralíu eftir að 95 ára gömul kona sem býr á elliheimili í bænum Cooma var skotin með rafbyssu.

Komst lífs af með því að lifa á víni í fimm daga í óbyggðum Ástralíu
Lögregla í Ástralíu fann á dögunum 48 ára konu í óbyggðum Viktoríu þar sem hennar hafði verið saknað í fimm daga. Konan komst lífs af með því að neyta einungis sleikipinna og víns sem hún var með í bílnum, en hún hafði fest bíl sinn í leðju á fáförnum vegi.

Blæja ritskoðuð vegna fitusmánunar
Ástralska fjölmiðlafyrirtækið ABC hefur ritskoðað og breytt þætti af Bluey til að bregðast við gagnrýni um fitusmánun. Í þættinum er fjölskyldan á salerninu og pabbi Blæju, eins og hún heitir á íslensku, er að bursta tennurnar og vigta sig.

Líkamsleifar týnds manns fundust í krókódíl
Líkamsleifar ástralsks manns sem týndist fundust í krókódíl. Maðurinn hvarf er hann var að veiða með vinum sínum í þjóðgarði í norðanverðri Ástralíu. Leit að manninum hafði staðið yfir í tvo daga þegar líkamsleifarnar fundust í krókódílnum.

MasterChef-dómarinn Jock Zonfrillo er látinn
Skoski sjónvarpsmaðurinn Jock Zonfrillo er látinn, 46 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem dómari í áströlsku útgáfu MasterChef-þáttanna.

Katy Perry tapaði gegn Katie Perry
Söngkonan Katy Perry tapaði í dag máli sem ástralski tískuhönnuðurinn Katie Taylor höfðaði gegn henni. Taylor selur föt sín undir merkinu „Katie Perry“ sem er fæðingarnafn hennar. Þarf söngkonan að greiða nöfnu sinni skaðabætur fyrir varning sem hún seldi í tengslum við tónleikaferðalag sitt árið 2014.

Kona handtekin með gullbyssu í fórum sínum
Bandarísk kona var á sunnudag handtekin í Sydney í Ástralíu eftir að gullbyssa fannst í ferðatösku hennar. Konan er laus gegn tryggingu en hún gæti átt allt að tíu ára fangelsi yfir höfði sér.

Dragstjarnan „Dame Edna“ látin
Ástralski leikarinn Barry Humphries sem frægastur er sem dragstjarnan „Dame Edna Everage,“ sem hann lék í áratugi í sjónvarpi er látinn, 89 ára að aldri.

Mischa Barton til liðs við Nágranna
Hollywood- og OC-stjarnan Mischa Barton mun ganga til liðs við leikarahóp áströlsku sápuóperunnar Nágranna sem hefja göngu sína að nýju síðar á árinu.

Sydney ekki lengur fjölmennasta borg Ástralíu
Ástralska stórborgin Sydney er ekki lengur stærsta borg landsins. Í heila öld hefur Sydney haldið þessum titli og raunar telja margir hana ranglega vera höfuðborg Ástralíu.