Noregur

Flutningaskip Eimskips strandaði í Noregi
Flutningaskip Eimskips strandaði í Álasundi í Noregi í dag. Níu menn eru um borð í skipinu en enginn þeirra slasaðist.

Dæmd í 21 árs fangelsi í Noregi fyrir að myrða börnin sín
Dómstóll í Osló hefur dæmt 35 ára konu í 21 árs fangelsi fyrir að hafa drepið tvo syni sína, sjö og eins árs, í Lørenskog, austur af Osló, á síðasta ári.

Eiga í viðræðum um seinkun á endurgreiðslu á AstraZeneca-skömmtunum
Viðræður standa yfir á milli íslenskra og norskra yfirvalda um seinkun á endurgreiðslu á 16 þúsund skömmtum af bóluefni AstraZeneca sem Íslendingar fengu lánaða frá Noregi í vor.

Þurfum að skila Noregi 16 þúsund skömmtum af AstraZeneca fyrir mánaðarlok
Ísland þarf að skila Noregi 16 þúsund skömmtum af bóluefni AstraZeneca fyrir mánaðarlok nema samið verði um annað. Tíu þúsund voru bólusettir með efninu í Laugardalshöll í gær.

Breskir tónlistarmenn ærast ekki af fögnuði yfir auknu aðgengi að Íslandi
Innanríkisráðherra Bretlands, Oliver Dowden, tilkynnti keikur á föstudag að breskir tónlistarmenn gætu nú ferðast til og spilað á Íslandi, í Noregi og Liecthenstein án þess að þurfa vegabréfsáritun, vegna nýs fríverslunarsamnings sem Bretland hefur gert við ríkin. Viðtökur breskra tónlistarmanna hafa þó ekki verið dynjandi lófatak og þakkir.

Hundaeigandinn í Noregi ákærður vegna dauða barnsins
Lögregla í Noregi hefur ákært eiganda hundanna tveggja sem urðu átján mánaða barni að bana í Brumunddal, um 130 kílómetra norður af Osló, á laugardaginn. Barnið var í heimsókn hjá ættingjum þegar atvikið átti sér stað.

Lík 15 mánaða gamals drengs fannst við strendur Noregs
Líkamsleifar fimmtán mánaða gamals drengs, sem hvarf á Ermarsundi í fyrra, hafa fundist við strendur Noregs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku lögreglunni.

Hundar drápu ungt barn í Noregi
Eins og hálfs árs gamalt barn lést þegar tveir hundar réðust á það í bænum Brumunddal í austanverðum Noregi í gær. Hundarnir voru aflífaðir strax í kjölfar.

Mætti á æfingu norska landsliðsins í FCK fötum
Ståle Solbakken gleymdi sér aðeins á æfingu norska landsliðsins í dag því hann mætti í stuttbuxum merktum FCK.

Minnst hundrað hafa yfirgefið heimili sín vegna gróðurbruna í Noregi
Minnst hundrað hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Kårtveit í Øygarden í Noregi. Eitt hús hefur orðið eldinum að bráð og nokkur hús eru í hættu á að brenna. Slökkviliðið er nú að vinna í því að koma fjögur hundruð íbúum í Kårtveit af heimilum sínum og í öruggt skjól.

Natan Dagur komst ekki í lokaúrslitin
Þátttöku íslenska söngvarans Natans Dags Benediktssonar í norsku útgáfu hæfileikakeppninnar The Voice lauk í kvöld. Hann var einn fjögurra keppenda í lokaþættinum en hann komst ekki áfram í lokaúrslitin.

Veðbankar spá Natani sigri í kvöld
Natan Dagur Benediktsson keppir í úrslitum The Voice í Noregi í kvöld og verður sá þáttur í beinni útsendingu á TV2 klukkan 18 að íslenskum tíma.

Fimm ára fangelsisdómur yfir Gunnari Jóhanni stendur
Hæstiréttur Noregs vísaði frá áfrýjun saksóknara á dómi yfir Gunnari Jóhanni Gunnarssyni vegna drápsins á Gísla Þór Þórarinssyni hálfbróður hans í bænum Mehamn árið 2019. Það þýðir að fimm ára fangelsisdómur sem Gunnar hlaut stendur óraskaður.

Natan Dagur komst áfram í undanúrslit með mögnuðum flutningi
Natan Dagur sló enn og aftur í gegn í átta manna úrslitum The Voice Norway í kvöld og er nú kominn áfram í undanúrslit söngvakeppninnar vinsælu.

Drógu úr fugladauða með því að mála einn spaða svartan
Fuglaáhugamenn í Noregi krefjast aðgerða eftir að norskir vísindamenn uppgötvuðu tiltölulega einfalda leið, að því er virðist, til að draga úr hættunni á því að fuglar fljúgi á vindmylluspaða. Niðurstaðan hefur vakið heimsathygli en aðferðin felst í því að mála eitt af vindmyllublöðunum svart.

Norsk kona dæmd fyrir að aðild að ISIS
Dómstóll í Noregi dæmdi í dag þrítuga, norska konu í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir aðild sína að hryðjuverkasamtökunum ISIS. Taldi dómari að konan hafi breytt „með vitund og vilja“.

Samherji segir sekt DNB-bankans ekki tengjast viðskiptum sínum
Samherji segist enga aðild eiga að máli norska fjármálaeftirlitsins gagnvart DNB-bankanum, sem í dag var sektaður um 400 milljónir norskra króna, eða um sex milljarða íslenskra króna, vegna brota á reglum um peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið. Þá segist Samherji engar upplýsingar hafa um þessa sektarákvörðun umfram það sem birst hefur opinberlega.

DNB sektað um sex milljarða vegna Samherjamálsins
Norska fjármálaeftirlitið hefur sektað DNB-bankann um 400 milljónir norska króna, um sex milljarða íslenskra króna, vegna brota á reglum um peningaþvætti í tengslum við Samherjamálið.

Natan Dagur söng á íslensku og komst áfram
Natan Dagur Benediktsson komst í gær áfram í norsku útgáfunni af sjónvarpsþáttunum The Voice. Átta keppendur stigu á svið í gær en aðeins fjórir komust áfram.

Reisa styttu af Solskjær í Kristjánssundi
Stytta hefur verið reist af Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United, í heimabænum Kristjánssundi í Noregi en hann er einn af stærstu stjörnum bæjarins.

Læstist inni í matvöruverslun eftir lokun
Kona nokkur í norska bænum Lillestrøm, skammt austur af höfuðborginni Osló, kallaði eftir aðstoð lögreglu í kvöld eftir að hafa læsts inni í matvöruverslun eftir lokun. Konan hafði verið að versla í búðinni en svo virðist sem starfsfólk hafi ekki verið meðvitað um veru konunnar í versluninni þegar henni var skellt í lás.

Skuldaði hinni látnu um 176 milljónir króna eftir dómsmál
Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt konu á götu úti í Frogner-hverfi í norsku höfuðborginni Osló í morgun, skuldaði hinni látnu 11,8 milljónir norskra króna. Maðurinn hafði nýverið verið dæmdur til greiðslu bóta í dómsmáli sem staðið hafði í mörg ár.

Kona skotin til bana á götu úti í Osló
Kona var skotin til bana á götu úti í Frogner-hverfi í vesturhluta norsku höfuðborgarinnar Osló í morgun. Lögregla hefur handtekið mann sem grunaður er um verknaðinn.

Notaður bolli seldist á 1,7 milljónir
Kona búsett í Stafangri rataði í fjölmiðla í Noregi á dögunum fyrir sögulega hátt verð sem hún fékk fyrir Múmínbolla sem hún var að selja frá sér. Engin furða, enda var verðið lyginni líkast: Hún fékk 110.000 norskar krónur fyrir þennan eina staka bolla, andvirði 1.650.000 króna.

Natan Dagur áfram í næstu umferð eftir stórbrotinn flutning á lagi Rihönnu
Natan Dagur Benediktsson er kominn áfram í sextán manna úrslit í norsku útgáfunni af sjónvarpsþáttunum Voice. Natan Dagur flutti lagið Stay með Rihönnu með glæsibrag í 32 manna úrslitunum sem fram fóru í gær en þetta var í þriðja sinn sem Natan Dagur steig á svið í þáttunum en flutning hans má sjá í spilaranum hér að neðan.

Norðmenn staðfesta bóluefnalánið til Íslands og Svíþjóðar
Heilbrigðisráðherra Noregs hefur staðfest að Norðmenn muni lána Íslendingum og Svíum bóluefni AstraZeneca. Svíar fá 200 þúsund skammta en Íslendingar 16 þúsund skammta.

Norðmenn koma af fjöllum með lán á bóluefni til Íslendinga
Norska heilbrigðisráðuneytið kannast ekki við að ætla að lána Íslendingum AstraZeneca-bóluefni. Það er þannig í mótsögn við íslensk stjórnvöld, sem fullyrða að hingað til lands séu 16.000 skammtar á leiðinni.

Íslendingar borga ekki krónu fyrir bóluefnið
Norðmenn ætla að lána Íslendingum 16.000 skammta af bóluefni AstraZeneca og gert er ráð fyrir að skammtarnir berist til landsins um helgina.

Norðmenn lána Íslendingum bóluefni
Samkvæmt nýju samkomulagi Íslands og Noregs munu Íslendingar fá að láni 16.000 skammta af AstraZeneca bóluefni frá Noregi.

Til rannsóknar hvort fermingarbúðir 140 ungmenna standist sóttvarnareglur
Norska lögreglan hefur til rannsóknar hvort sóttvarnareglur hafi verið brotnar þegar 140 fermingarbörn komu saman til fermingarfræðslu í Gjøvik síðustu helgi. Þátttakendur voru fermingarbörn úr fimm sveitarfélögum sem komu saman í Campus Arena í Gjøvik en viðburðurinn var liður í borgaralegri fermingarfræðslu á vegum samtakanna Human-Etisk.