Noregur

Verkfalli olíustarfsmanna gæti lokið í dag
Tíu daga löngu verkfalli norskra olíu- og gasverkamanna gæti lokið í dag fallist stéttarfélag þeirra á tilboð olíufyrirtækja. Olíuframleiðsla Noregs gæti dregist saman um fjórðung haldi verkfallið áfram inn í næstu viku.

Hjartaaðgerð Noregskonungs gekk vel
Hjartaaðgerð sem Haraldur Noregskonungur gekkst undir í morgun gekk vel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni.

Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels?
Norska Nóbelsnefndin tilkynnir um nýjan handhafa friðarverðlauna Nóbels á fréttamannafundi klukkan 9.

Verkfall í Noregi gæti stöðvað fjórðung olíuframleiðslu
Framleiðsla á olíu og gasi gæti dregist saman um allt að fjórðung vegna verkfalls starfsmanna í olíuiðnaði í Noregi. Heimsmarkaðsverð á olíu gæti hækkað fyrir vikið. Norska ríkisstjórnin ætlar ekki að grípa inn í verkfallið eins og sakir standa.

Noregskonungur þarf að gangast undir hjartaaðgerð
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er gert ráð fyrir að hann gangist undir hjartaaðgerð á morgun.

Ættingi Tom Hagen ákærður fyrir afskipti af framburði vitnis
Lögreglan í Lørenskog hefur grun um að ættingi norska auðkýfingsins Tom Hagen hafi reynt að hafa áhrif á vitnisburð eins vitnis í rannsókn lögreglunnar á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen.

Telur að dómurinn geti ekki horft fram hjá vitnisburði um galla byssunnar
Bjørn Andre Gulstad, verjandi Gunnars Jóhanns Gunnarssonar, telur að rannsókn vopnasérfræðinga norsku rannsóknarlögreglunnar á skotvopninu sem varð Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður Gunnars, að bana í Mehamn í Noregi í apríl í fyrra, verði til þess að Gunnar verði sýknaður af ýtrustu kröfu ákæruvaldsins í málinu.

Krefst þess að Gunnar verði dæmdur í þrettán ára fangelsi
Málflutningi lauk í héraðsdómi Austur-Finnmerkur í morgun

Segir Gunnar Jóhann hafa verið með mikið magn áfengis og fíkniefna í blóði
Gunnar Jóhann Gunnarsson var með mikið magn fíkniefna og áfengis í blóði sínu kvöldið sem hann varð Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður sínum, að bana þann þann 27. apríl 2019 í Mehamn í Noregi.

Vitni full eftirsjár vegna atburðarins í Mehamn
Fjöldi fólks sem var í partýi með Gunnari Jóhanni Gunnarssyni sama kvöld og hann varð Gísla Þór Þórarinssyni, hálfbróður sínum, að bana hefur stigið fram og lýst eftirsjá vegna atburðanna.

Nýja parið „rottur“ sem myndu „uppskera eins og þær sáðu“
Kærasta Gísla Þórs Þórarinssonar heitins segist endurtekið hafa fengið hótanir frá Gunnari Jóhanni Gunnarssyni, barnsföður sínum og hálfbróður Gísla, fyrir nóttina afdrifaríku í Mehamn í apríl í fyrra.

Haglabyssan biluð og ekki hægt að útiloka voðaskot
Galli er á haglabyssunni sem skot hljóp úr og banaði Gísla Þór Þórarinssyni í Mehamn í Noregi í apríl í fyrra. Þetta staðfestu vopnasérfræðingar hjá rannsóknarlögreglunni í dómsal í dag.

Gunnar gekk út þegar blóði drifnar myndir voru sýndar
Gunnar Jóhann Gunnarsson fékk heimild frá dómara að yfirgefa dómsalinn í héraðsdómi Austur-Finnmerkur í morgun þegar sýndar voru myndir lögreglu frá blóðugum vettvangi drápsins.

Ísland og Noregur fjármagna kaup á bóluefni fyrir íbúa þróunarríkja
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að taka þátt í samkomulagi sem Norðmenn hafa gert um þátttöku í samstarfi ríkja um að tryggja öllum þjóðum aðgang að bóluefni við COVID-19 (COVAX).

Strax ljóst að Gísla yrði ekki bjargað
Yfirlögregluþjónn sem var fyrstur á vettvang nóttina sem Gísli Þór Þórarinssyni var ráðinn bani í norska bænum Mehamn í apríl segir að strax hafi verið útséð að Gísla yrði ekki bjargað.

Lögregla skaut mann til bana á Þelamörk
Félagar mannsins sem vitjuðu hans í dag segja að hann hafi komið á móti þeim með öxi á lofti.

„Ég verð skugginn þinn þangað til þú hengir þig“
Gunnar Jóhann Gunnarsson segir að sér hafi ekki dottið í hug að nota neitt annað en haglabyss til að hræða hálfbróður sinn Gísla Þór Þórarinsson. Edel Olsen, réttargæslumaður íslenskra aðstandenda Gísla, spurðist fyrir um þetta í dómsal í dag.

Tók biblíu, haglabyssu og Captain Morgan með sér heim til Gísla
Gunnar Jóhann Gunnarsson segist einungis hafa ætlað sér að hræða hálfbróður sinn nóttina sem hann hélt heim til hans, vopnaður haglabyssu og skaut hann að lokum til bana.

„Annar okkar mun ekki lifa af“
Lögreglan í Finnmörk var hvorki talin hafa gert alvarleg mistök né hafa brotið gegn skyldu sinni til þess að afstýra refsiverðu broti í aðdraganda þess að Gunnar Jóhann Gunnarsson skaut hálfbróður sinn til bana í smábænum Mehamn í Noregi í apríl í fyrra.

Réttarhöld hefjast yfir Gunnari Jóhanni
Réttarhöld hefjast í Noregi í dag yfir 37 ára gömlum íslenskum manni, Gunnari Jóhanni Gunnarssyni, sem ákærður er fyrir að hafa af ásetningi skotið hálfbróður sinn, Gísla Þór Þórarinsson, til bana í norska smábænum Mehamn í apríl í fyrra.

Norski fjöldamorðinginn sækir um reynslulausn
Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hyggst sækja um reynslulausn. Þetta staðfestir lögmaður hans í samtali við Verdens Gang.

Skip á vegum Eimskips rakst í hafnarbakka í Noregi
Flutningaskipið Svartfoss, sem er í eigu Eimskips, lenti harkalega á hafnarbakkanum við í Skattøra í Noregi í kvöld. Lögreglan rannsakar atvikið.

Gætu gripið til hertra aðgerða
forsætisráðherra Noregs kveðst hafa miklar áhyggjur af útbreiðslu kórónuveirunnar í landinu og að vel mögulegt sé að grípa þurfi til hertari aðgerða til að stemma stigu við útbreiðsluna. Óvissan sé mikil og staðan alvarleg.

Norskur þingmaður tilnefnir Trump til friðarverðlauna Nóbels
Donald Trump er tilnefndur fyrir aðkomu sína að „sögulegum samningi“ Ísraela og Sameinuðu arabísku furstadæmanna.

Bertheussen hafi viljað kenna aðstandendum leikrits um glæpinn
Réttarhöld hófust í morgun í máli Lailu Bertheussen, sambýlisskonu Tor Mikkel Wara, fyrrverandi dómsmálaráðherra Noregs. Bertheussen er ákærð fyrir að hafa kveikt í bíl, bera ljúgvitni og hótað öðrum ráðherra í ríkisstjórn Noregs.

Rúmlega þúsund í sóttkví eftir trúarsamkomu í Noregi
Yfir hundrað manns hafa smitast af kórónuveirunni í Fredrikstad og Sarpsborg í Noregi og 1.100 eru í sóttkví eftir hópsýkingu sem kom upp á svæðinu.

Nokkrir byrgispartígesta enn inniliggjandi með heilaskaða
Nokkrir þeirra sem sóttu fjölmennt partíi í byrgi, sem er að finna í garði í norsku höfuðborginni Osló, um síðustu helgi eru enn inniliggjandi á sjúkrahúsi og með heilaskaða eftir að hafa orðið fyrir kolmónoxíðeitrun.

Vill auðvelda ferðafólki að sjá einu konungsgröfina á Íslandi
Ekkert aðgengi er fyrir ferðamenn að einu konungsgröfinni sem vitað er um á Íslandi. Heimamenn á Árskógsströnd vilja bæta úr þessu með gerð áningarstaðar þar sem menn geti kynnst skrautlegri sögu konungsins sem fyrir þúsund árum var fluttur nauðugur til Íslands.

Lögregla sneri aftur að heimili Hagen-hjónanna
Lögregla í Noregi hélt áfram rannsókn á heimili hjónanna Tom og Anne-Elisabeth Hagen í Lørenskog í morgun.

Tölvuárás gerð á norska þingið
Umfangsmikil tölvuárás hefur verið gerð á norska þingið þar sem tölvupóstsreikningar fjölda þingmanna hafa verið hakkaðir.