Hafnarfjörður

Kallar eftir stillingu: „Menn eru saklausir uns sekt er sönnuð!“
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri í Hafnarfirði og verðandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir dapurlegt að fylgjast með óvæginni orðræðu og dómhörku í kjölfar úttektar Deloitte á Skessunni, knatthúsi FH-inga.

Hafi litað bæjarpólitík í Hafnarfirði í áratugi
Fyrrverandi varabæjarfulltrúi Hafnarfjarðar hvetur fráfarandi bæjarstjóra til að fara betur með opinbert fé í störfum sínum sem þingmaður en bæjarstjóri. Bæjarfulltrúanum var vikið úr öllum nefndum og ráðum fyrir sjö árum. Annar fyrrverandi bæjarfulltrúi segist efast um að margir geri sér grein fyrir því hversu stórt og viðamikið málið sé í reynd, forsaga þess hafi litað hafnfirska bæjarpólitík í áratugi.

Vill að stjórn FH fari frá
Sigurður P. Sigmundsson, formaður frjálsíþróttadeildar FH, segir að stjórn félagsins verði að fara frá nú í kjölfar þess greint hefur verið frá skýrslu Deloitte sem var unnin fyrir Hafnafjarðarbæ. Þar kom fram að fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúsið Skessuna hafi farið í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir.

Umfangsmikið útkall í Suðurhrauni vegna mikils reyks
Slökkvilið af mörgum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um korter í fimm vegna mikils reyks í Ísafoldarverksmiðju við Suðurhraun í Hafnarfirði.

Stjórn segir uppbygginguna þrekvirki en frjálsíþróttirnar harma stöðuna
Aðalstjórn FH segir þrekvirki hafa verið unnið við byggingu íþróttamannvirkja í Kaplakrika við erfiðar efnahagsaðstæður. Frjálsíþróttadeild félagsins segist harma þá stöðu sem félagið er komið í vegna málsins.

Tugir milljóna króna beint til formanns FH
Um fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúss íþróttafélagsins FH fór í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir. Spurningar eru uppi um hvort að allt að 120-130 milljónir hafi verið réttilega færðar sem hluti af byggingarkostnaðinum.

Nýr verkefnastjóri svæðisbundins farsældarráðs
Hanna Borg Jónsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri farsældar á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun leiða saman fagfólk sem vinnur að málefnum barna til þess að undirbúa svæðisbundið farsældarráð.

Hægt að borga með korti í strætó
Frá og með deginum í dag er hægt að borga snertilaust með korti í Strætó í gegnum Klapp greiðslukerfið. Fyrirkomulagið hefur verið í prófun hjá fyrirtækinu og er nú komið í fullna virkni að því er segir í tilkynningu frá Strætó.

Fólk hafi áhyggjur ef jólalegasta húsið í bænum er ekki skreytt
Hjón sem að leggja mikið upp úr jólaskreytingum segjast toppa sig á hverju ári. Ef þau standi sig ekki í stykkinu byrji fólk hreinlega að hafa áhyggjur af þeim.

Kæru nágranna álversins í Straumsvík vegna starfsleyfis hafnað
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði kröfu eigenda jarðar í nágrenni álversins í Straumsvík um að breytingar á starfsleyfi þess yrðu felldar úr gildi. Starfsleyfið heimilaði álverinu að auka framleiðslu sína um allt að átján þúsund tonn.

Mannlaus bifreið á miðjum vegi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð út vegna líkamsárásar, sem reyndist minniháttar.

Wok to Walk opnar á Smáratorgi
Alþjóðlega veitingakeðjan Wok to Walk opnaði fyrsta veitingastað sinn á Íslandi á Smáratorgi í dag. Tveir staðir til viðbótar verða opnaðir innan tíðar.

Hefði átt að vera ljóst að logandi pappír í skáp gæti endað með bruna
Ungur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að kveikja í sumarhúsi í Hafnarfirði, skammt frá Hvaleyrarvatni í febrúar 2020. Hann þarf jafnframt að greiða tryggingarfélagi 15,6 milljónir króna vegna athæfisins.

Reif í hár konu svo hún féll í gólfið og samdi svo við hana
Kona hefur verið dæmd til eins mánaðar skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás gegn annarri konu. Undir rekstri málsins sömdu konurnar um bætur og konan játaði sök.

Allir í viðbragðsstöðu í Kaplakrika vegna endurtalningar
Æfingar barna og unglinga sem fara áttu fram í Kaplakrika, íþróttahúsi FH í Hafnarfirði, á morgun falla að óbreyttu niður vegna endurtalningar atkvæða. Framkvæmdastjóri FH staðfestir að beiðni hafi borist frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis vegna fyrirhugaðrar endurtalningar.

Þyngri refsing fyrir hnífstungu fæli ekki endilega frá
Margrét Valdimarsdóttir dósent í félags- og afbrotafræði við HÍ segir fjögurra ára fangelsisdóm Daníels Arnar Unnarssonar í samræmi við önnur sambærileg mál þar sem dæmt var fyrir tilraun til manndráps. Þá segir hún þyngri refsingar ekki endilega hafa meiri fælingarmátt.

Styttum biðtímann í umferðinni
Biðtíminn og pirringurinn í umferðinni eykst með hverju ári. Ástæðan er að ekki hefur verið farið í uppbyggingu nauðsynlegra samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu á síðustu áratugum, á sama tíma hefur bifreiðaeign á svæðinu margfaldast. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins tekur að einhverju leiti á þessu máli. Ár og áratugir munu líða þar til allar væntingar um framkvæmd samgöngusáttmálans nái fram að ganga, á meðan munum við íbúar á höfuðborgarsvæðinu vera áfram í umferðarteppum.

Fjögur ár fyrir að reyna að myrða lækninn
Daníel Örn Unnarsson, þrítugur, hefur verið dæmdur til fjögurra ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps. Hann stakk lækni á kvöldgöngu ásamt konu sinni og vinahjónum ítekað í Lundi í Kópavogi í sumar.

Bæjarstjóraskipti á áætlun í Hafnarfirði
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði og nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins í suðvesturkjördæmi, lætur af störfum sem bæjarstjóri um áramótin eins og til stóð. Samkvæmt málefnasamningi við Framsóknarflokksins verður Valdimar Víðisson oddviti flokksins og formaður bæjarráðs bæjarstjóri síðasta eina og hálfa ár kjörtímabilsins.

Ungir menn grunaðir um langa brotahrinu
Tveir ungir menn um tvítugt sem eru grunaðir um að ræna drengi, hóta þeim og beita ofbeldi, voru líka ákærðir fyrir brot í nánu sambandi í máli sem varðaði heiðursofbeldi. Í því máli voru átta fjölskyldumeðlimir konu ákærðir fyrir ýmis brot gagnvart henni, en einungis fjórir þeirra hlutu dóm, það voru foreldrar hennar, mágur og systir.

Embætti og stöður sem losna eftir kosningar
Mikið hefur verið fjallað um fjölda embættismanna sem voru í framboði til Alþingis í nýafstöðnum kosningum. Þar að auki er fjöldi sveitastjórnarfólks í framboði. Spurningin er hvaða stöður og embætti losna eftir kosningarnar?

Gekk berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði
Maður var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu eftir að tilkynnt var um að hann hefði gengið berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði í gær. Hann er sagður grunaður um húsbrot, eignaspjöll og vörslu ávana- og fíkniefna.

Ungt fólk í Hafnarfirði stendur með Rósu Guðbjartsdóttur
Við, hópur ungs fólks í Hafnarfirði, viljum lýsa yfir stuðningi við Rósu Guðbjartsdóttur sem skipar 4. sæti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Undir hennar forystu hefur bærinn blómstrað og orðið spennandi staður fyrir ungt fólk til að búa og starfa í.

Sögulegt tækifæri til breytinga með Samfylkingunni
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, nýtur yfirburðatrausts hjá kjósendum til að leiða næstu ríkisstjórn sem forsætisráðherra. Þetta sýna kannanir. Til þess að það nái fram að ganga verður Samfylkingin að fá sterka kosningu á laugardaginn og verða stærsti flokkurinn að loknum kosningum.

Sjálfstæðisflokkurinn – svarið fyrir fjölskyldur og ungt fólk
Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins, og það skiptir máli hver stjórnar þegar kemur að framtíð barna okkar. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja að ungt fólk og barnafjölskyldur fái stuðninginn sem þær þurfa til að blómstra í lífi og starfi.

Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri
Ræktun á bönunum er hafin í Hafnarfirði en ræktandinn, sem flutti inn til landsins litla plöntu gafst upp á að vera með hana heima hjá sér því hún óx svo hratt. Þá var farið með plöntuna í hesthús eigandans, en þar óx hún líka svo hratt, sem varð til þess að hún endaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði. Plantan hefur gefið af sér tvo hundrað og fimmtíu bananaklasa.

Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar
Foreldrar barna í Hafnarfirðinum og víðar hafa sumir farið á samfélagsmiðla og kvartað yfir jólasveini í Hellisgerði í jólaþorpi Hafnarfjarðar. Sumir segja að hann hafi hunsað öll börn sem til hans komu og að hann hafi verið drukkinn, og auk þess hafi hann ekki talað íslensku. Verkefnastjóri jólaþorpsins segir að rekstraraðilar í Hellisgerði hafi viljað hjálpa til og verið með aukajólasvein á sínum snærum, og vísar því á bug að hann hafi verið drukkinn.

Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur
Tilkynnt var um umferðarslys í Hafnarfirði í dag þar sem engin slys urðu á fólki en bifreiðin var mikið skemmd. Ökumaður viðurkenndi að hafa verið í símanum og var einnig grunaður um að vera undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Ökumaður var vistaður í fangageymslu.

Ekkert verður af verkfalli í Hafnarfirði
Stéttarfélagið Hlíf og Hafnarfjarðarbær hafa skrifað undir kjarasamning vegna félaga Hlífar í leikskólum bæjarins. Þannig hefur verkfalli sem hefði lamað starfsemi allra leikskóla bæjarins verið afstýrt.

Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu
Nokkuð var um pústra í miðbæ Reykjavíkur í nótt og segir lögregla að töluverður hiti hafi verið í fólki. Sex gistu fangageymslur lögreglunnar í nótt og einn var fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Hafnarfirði.