Miðflokkurinn
1 2 3 4 5 6 … 30 ›
Bergþór áfram þingflokksformaður Bergþór Ólason hefur verið kjörinn þingflokksformaður Miðflokksins. Hann var einnig þingflokksformaður á síðasta kjörtímabili. Karl Gauti Hjaltason verður varaformaður stjórnar þingflokks og Ingibjörg Davíðsdóttir verður ritari. Innlent 14.1.2025 15:59
Gott sparnaðarráð fyrir ríkisstjórnina að leggja niður ÁTVR Netverslun með áfengi hefur tekið stakkaskiptum með sérstöku „sýningarrými“ sem opnað var um helgina. Þingmaður Miðflokksins segir gott sparnaðarráð til ríkisstjórnarinnar vera að leggja niður ÁTVR. Enginn grundvöllur sé fyrir einkasölu ríkisins á áfengi. Innlent 4.1.2025 22:31
Bak við tjöldin í Kryddsíldinni 2024 Kryddsíld Stöðvar 2 var á sínum stað á Gamlársdag líkt og síðustu þrjátíu og fjögur ár. Með sanni má segja að þátturinn hafi verið sérstaklega fjörugur í þetta skiptið en Hulda Margrét ljósmyndari tók myndir af hamagangnum á bak við tjöldin. Lífið 3.1.2025 14:01
„Það eru fleiri með köggla en þú“ Inga Sæland spennti tvíhöfðana í Kryddsíldinni og sagði fleiri vera með köggla en Sigmundur Davíð þegar rætt var um litla þingflokka. Sigurður Ingi sagði Sigmund ekkert þurfa að mæta á þingið fyrst Miðflokkurinn væri kominn með átta þingmenn. Lífið 2.1.2025 17:21
„Ég þekki mann sem að móðgast yfir dagskránni á RÚV“ Einar Lövdahl steig á stokk í Kryddsíld Stöðvar 2 þetta árið og flutti nýtt lag sitt Um mann sem móðgast. Árið var gjöfult hjá Einari sem gaf út Gegnumtrekk, fyrstu skáldsöguna sína, og svo lagið sem fékk áhorfendur Kryddsíldar til að brosa. Lífið 2.1.2025 11:31
Flokkur fólksins dalar eftir kosningar Fylgi flokks Fólksins dregst saman um rúm þrjú prósentustig frá kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu og stendur í tæpum ellefu prósentum. Innlent 31.12.2024 12:32
Árið gert upp í Kryddsíld 2024 Kryddsíld verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 14:00 í dag og verður í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi. Innlent 31.12.2024 12:02
Flestir ánægðir með Kristrúnu en mest óánægja með Bjarna Nýr forsætisráðherra er sá formaður sem flestir telja að hafi staðið sig vel en formaður Sjálfstæðisflokksins mælist afar óvinsæll í nýrri könnun Maskínu. Prófessor í stjórnmálafræði segir hann í erfiðri stöðu og að veiting hvalveiðileyfis kunni að hafa áhrif á það. Ánægja með nýja ríkisstjórn mælist meiri en kjörfylgi stjórnarflokkanna. Innlent 30.12.2024 20:32
Ummælin hörð gagnrýni sem ekki eigi að flokka sem hatursorðræðu Helga Vala Helgadóttir lögmaður segir að með ummælum sínum um trans fólk sé Eldur Smári Kristinsson að ráðast á minnihlutahóp með markvissum aðgerðum. Það sé hatursorðræða sem hvetji til ofbeldis og það megi sjá þá þróun í samfélaginu um allan heim. Brynjar Níelsson lögmaður segist ekki sammála. Ummælin séu hörð gagnrýni en eigi ekki að flokka sem hatursorðræðu. Innlent 19.12.2024 23:19
Jóhannes Þór svekktur og sár vegna skrifa þingmanns Miðflokksins Heitar umræður hafa nú sprottið á síðu Snorra Mássonar þingmanns Miðflokksins eftir að hann birti þar grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið og birti í morgun. Jóhannes Þór Skúlason hefur stigið fram og lýst yfir vanþóknun á skrifunum. Innlent 19.12.2024 12:12
Eru skoðanir ungs fólks þýðingalitlar og ómarktækar? Sigur Miðflokksins í krakkakosningunum og góður árangur í skuggakosningum framhaldsskóla er mikið áhyggjuefni samkvæmt Heimildinni. Skoðun 17.12.2024 11:00
Hallalaus fjölmiðlaumfjöllun Í kjölfar alþingiskosninga bíður þjóðin með öndina í hálsinum eftir niðurstöðum varðandi stjórnun landsins næstu fjögur árin. Sem stendur er oddvitar Flokks fólksins, Samfylkingar og Viðreisnar að vinna að því að koma saman starfhæfri ríkisstjórn, en við þann ráðahag hafa margir athugasemdir þó það sé ekki umfjöllunarefni þessa pistils. Skoðun 15.12.2024 10:32
Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir Stjórnmálaflokkar, aðildarfélög þeirra og einstaka frambjóðendur til Alþingis vörðu samtals um 44,8 milljónum króna í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta síðustu 30 dagana fyrir kosningar. Mestu varði Sjálfstæðisflokkurinn eða rétt tæpum níu milljónum króna, þá Flokkur fólksins sem notaði rúmar 7,5 milljónir í slíkar auglýsingar og Framsóknarflokkurinn kemur þar fast á hæla með rúmar 7,2 milljónir sem fóru í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta, það er Facebook og Instagram. Samfylkingin er í fjórða sæti og eyddi tæpum 5,7 milljónum og þá Miðflokkurinn sem eyddi rétt undir 4,6 milljónum. Innlent 10.12.2024 23:02
Þessi voru oftast strikuð út í Norðausturkjördæmi Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi var sá frambjóðandi í kjördæminu sem oftast var strikað yfir í nýafstöðnum kosningum. Næstur var oddviti Samfylkingarinnar en þar á eftir kom maðurinn í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins hugnaðist ekki 23 kjósendum flokksins. Innlent 5.12.2024 13:02
Halla Hrund og Karl Gauti oftast strikuð út í Suðurkjördæmi Fimm af sex oddvitum flokkanna sem náðu inn á þing í Suðurkjördæmi raða sér í efstu sæti listans yfir þá frambjóðendur sem oftast var strikað yfir í kosningum til alþingis. Oddviti flokksins sem er stærstur í kjördæminu er ekki þeirra á meðal. Innlent 5.12.2024 11:11
Hvers vegna eru allir að tala um „borgaralega“ ríkisstjórn? Borgaraleg gildi, borgaralegir flokkar, og borgaraleg ríkisstjórn eru hugtök sem hafa verið áberandi í kosningabaráttunni og núna strax í kjölfar kosninga. Innlent 5.12.2024 07:03
Allir flokkar innan frávika í könnunum nema Flokkur fólksins Þóra Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Maskínu, segir frávik í skoðanakönnunum í öllum tilvikum, nema hjá Flokki fólksins, hafa verið eitt til tvö prósent. Þá segir hún Sjálfstæðisflokkinn hafa verið vanmetinn í síðustu þremur kosningum. Innlent 3.12.2024 09:18
Eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig á umboðinu Formaður Viðreisnar hefur lagt til að Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar, fái umboð til stjórnarmyndunar. Inga Sæland segist treysta Kristrúnu fyrir umboðinu og Sigmundur Davíð telur eðlilegt að Kristrún fái fyrst að spreyta sig. Innlent 2.12.2024 16:02
Upp á líf og dauða fyrir bæði Bjarna og Kristrúnu Stefán Einar Stefánsson blaðamaður á Morgunblaðinu telur stjórnarmyndun nú snúast um líf og dauða fyrir bæði Bjarna Benediktsson formann Sjálfstæðisflokksins og Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir ljóst að möguleikarnir til stjórnarmyndunar séu nokkrir, en hann hefur trú á því að Flokkur fólksins verði til í málamiðlanir. Samstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sé pólitískur ómöguleiki. Innlent 2.12.2024 10:47
Vaktin: Myndun nýrrar ríkisstjórnar Stjórnarmyndunarviðræðum formanna Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður framhaldið í dag. Innlent 2.12.2024 08:02
Hver fær stjórnarmyndunarumboðið?: Forsetinn hittir formennina á Bessastöðum Fundir Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, með formönnum flokkanna hefjast klukkan níu en fyrst til að sækja hana heim verður Kristrún Frostadóttir. Innlent 2.12.2024 06:46
Margir möguleikar á þriggja flokka stjórn Stjórnarandstaðan bætti við sig tuttugu og fjórum þingsætum og vann Samfylkingin stærsta sigurinn og bætti við sig níu mönnum. Kjörsókn var 80,2 prósent, örlítið meiri en í síðustu þingkosningum. Margir möguleikar eru á þriggja flokka stjórn. Stefanía Óskarsdóttir prófessor í stjórnmálafræði fór yfir niðurstöðurnar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 1.12.2024 23:03
Bjarni og Sigmundur segja eðlilegt að Kristrún fái fyrst umboð Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir eðlilegt að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar fái stjórnarmyndunarumboð fyrst. Það vinni ekki margt með Sjálfstæðisflokknum svo hann geti gert kröfu um að fá það fyrst. Samfylkingin eigi að fá tilraun til þess að vinna úr því hann er stærstur flokka á þingi. Þetta kom fram í formannaspjalli við Heimi Má Pétursson eftir kvöldfréttir. Innlent 1.12.2024 21:36
„En þá snappar Bjarni sem ég tel vin minn“ Bolli Kristinsson, oft kenndur við 17, kaus Miðflokkinn en óskar þess heitast að fá að koma heim í Sjálfstæðisflokkinn sem hafi yfirgefið hann. Bjarni Benediktsson hafi snappað þegar Bolli og aðrir reyndu að búa til DD-lista í september Innlent 1.12.2024 20:45
Lokatölur í Suðvesturkjördæmi: Willum Þór úti í kuldanum Sjálfstæðisflokkurinn hlaut afgerandi bestu kosningu sína í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi formanns og varaformanns flokksins. Willum Þór Þórsson, sem var ráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, datt út af þingi. Innlent 1.12.2024 16:24
Úrslit á landsvísu: Þessi sitja á þingi næsta kjörtímabil Fjórir stjórnarandstöðuflokkar bættu samtals við sig 24 þingsætum í alþingiskosningunum í gær á meðan ríkisstjórnarflokkar síðasta kjörtímabils guldu sameiginleg afhroð. Vinstri græn þurrkuðust út af þingi en Sjálfstæðisflokkur vann varnarsigur. Innlent 1.12.2024 13:28
Krossar fingur vegna Sigurðar Inga Sigríður Á. Andersen hefur tryggt sér þingsæti fyrir Miðflokkinn og Halla Hrund Logadóttir tekur nýliðasæti fyrir Framsóknarflokkinn. Halla Hrund bindur enn vonir við að Sigurður Ingi tryggi sér sæti á þingi. Innlent 1.12.2024 12:45
„Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn“ Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hvergi nærri af baki og lýsir því yfir að það séu ýmis stjórnarmynstur inni í myndinni. Hann lítur ekki á niðurstöður kosninganna sem einhvern sigur vinstrisins. Innlent 1.12.2024 11:51
Lokatölur í Norðvesturkjördæmi: Flokkur fólksins með flesta þingmenn Sjálfstæðisflokkurinn hlaut flest atkvæði í Norðvesturkjördæmi en Flokkur fólksins flesta þingmenn. Sex flokkar fengu yfir tíu prósent atkvæða í kjördæminu og hvern sinn kjördæmakjörna þingmanninn. Innlent 1.12.2024 11:42
Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Gömlu stjórnarflokkarnir töpuðu fjórðungi atkvæða Ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu samtals tæplega fjórðungi þeirra atkvæða sem þeir fengu í síðustu kosningum í Norðausturkjördæmi. Vinstri græn þurrkuðust út í kjördæmi sem var helsta vígi flokksins utan Reykjavíkur. Innlent 1.12.2024 11:36