Almannavarnir
1 2 3 4 5 6 7 … 38 ›
Neyðarstigi almannavarna lýst yfir Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna eldgossins sem hófst á tíunda tímanum í kvöld, við Sundhnúkagíga. Innlent 22.8.2024 22:08
Vaktin: Eldgos hafið Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar. Innlent 22.8.2024 21:13
Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Þrátt fyrir að nýtt hættumat bendi til að miklar líkur séu á að hraun komi upp innan Grindavíkur á næstu vikum verður ráðist í framkvæmdir innan bæjarmarka eftir Verslunarmannahelgi. Brottfluttir íbúar eru bjartsýnir á að komast aftur heim. Innlent 25.7.2024 18:53
Lýsa yfir hættustigi Hættustigi verður lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Hættumat Veðurstofu Íslands verður uppfært í gær en kvika heldur áfram að safnast undir Svartsengi og búist er við kvikuhlaupi eða eldgosi á næstunni. Innlent 24.7.2024 13:25
Haraldur spyr hvort gosum sé lokið í Sundhnúksgígaröðinni Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir vísbendingu um að kvikustreymi upp í lárétta kvikuinnskotið undir Svartsengi hafi verulega minnkað eða að því sé lokið. Hann spyr: „Goslok í Sundhnúksgígaröðinni?“ í fyrirsögn nýs pistils á eldfjallabloggi sínu. Innlent 20.7.2024 22:04
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 22.6.2024 18:15
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13.6.2024 20:40
Fylgjast sérstaklega með hrauntjörnum sem gætu brostið fram Hraun rennur áfram úr eldgosinu sem hófst í gær en hægt. Almannavarnir kanna í dag með drónaflugi hvar mögulega hrauntjarnir gætu verið að myndast og hvert þær gætu runnið. Vel er fylgst með öllum helstu innviðum en skyggni er erfitt vegna veðurs. Lokað er á svæðinu og inn í Grindavík. Vilji fólk sjá gosið er mælt með vefmyndavélum. Innlent 30.5.2024 08:13
Vaktin: Virknin á svipuðum nótum í alla nótt Virkni í eldgosinu sem hófst nærri Sundhnúki norðan við Grindavík upp úr hádegi í gær hefur verið á svipuðum nótum í alla nótt. Hún er enn mest á nokkrum gosopum en erfitt að fullyrða hvað þau eru mörg vegna lélegs skyggnis. Innlent 30.5.2024 06:18
Mikilvægt að Grindvíkingar láti vita af sér Almannavarnir vilja að Grindvíkingar sem eru búsettir í Grindavík eða voru í bænum þegar rýming átti sér stað láti vita hvar þau eru. Innlent 29.5.2024 12:15
Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi Í dag fer fram rýnifundur ríkislögreglustjóra á aðgerðum almannavarnadeildar og annarra viðbragðsaðila á aðgerðum síðustu sex mánaða á Reykjanesi. Dómsmálaráðherra ávarpaði fundinn í morgun. Um 70 manns sitja fundinn í heild sinni. Fundarstjóri er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Innlent 23.5.2024 12:48
Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna skemmda á þeirri lögn sem flytur vatn til neyslu og húshitunar í Vestmannaeyjum. Innlent 16.5.2024 12:32
Gætu verið einhverjar vikur í næsta gos Fagstjóri náttúruvár hjá Veðurstofu Íslands segir að einhverjar vikur geti verið í næsta eldgos á Reykjanesi. Kvika haldi áfram að safnast saman í Svartsengi en reynslan síni að sífellt meiri þrýsting þurfi til að koma af stað öðru kvikuhlaupi. Innlent 10.5.2024 20:09
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15
Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4.5.2024 23:46
Telja líkur á öðru eldgosi Áframhaldandi landris eykur líkur á öðru kvikuhlaupi þó eldgos sé yfirstandandi Meiri óvissa um þróun jarðhræringanna næstu daga eða vikur. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.4.2024 15:51
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44
Fólk á Austfjörðum sleppi því að vera á ferðinni Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi fundaði fyrir skemmstu með Veðurstofu og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Gert er ráð fyrir talsverðri úrkomu í nótt. Búið er að rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað. Innlent 6.4.2024 21:13
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24
Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3.4.2024 21:40
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. Innlent 26.3.2024 22:22
Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna. Innlent 25.3.2024 15:53
Níu svæði í Grindavík girt af Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin. Innlent 25.3.2024 12:13
Íbúar í Höfnum loki gluggum vegna mengunar Á mælum Umhverfisstofununar mælist nú mikil mengun í Höfnum. Vegna þess mæla Almannavarnir með að íbúar á svæðinu loki gluggum og slökkvi á loftræstingu. Innlent 24.3.2024 13:50
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Landris geti leitt til lengra goss Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. Innlent 19.3.2024 20:53
Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Forsvarsmenn HS Orku ákváðu að rýma starfsstöðina í Svartsengi í morgun vegna gasmengunar sem leggur yfir svæðið vegna eldgossins í Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 18.3.2024 11:39