
Hrefna Sigurjónsdóttir


Öryggi og notkun rafbíla
Fjölbreyttir fararmátar standa nú fólki til boða. Horft er til vistvænni og hagkvæmari fararmáta og rafbílar hafa rutt sér til rúms hér á landi. Þeir henta íslenskum aðstæðum vel og eru þjóðhagslega hagkvæmir þar sem allt rafmagn á Íslandi er framleitt innanlands.

Allt á floti alls staðar?
Vatnstjón eru ein algengasta orsök tjóna á heimilum hér á landi. Aðstæður eru margvíslegar en iðulega eiga tjónin sér stað í eða út frá votrýmum sem eru þá til dæmis þvottahús, eldhús og baðherbergi.

Farsælt samstarf um forvarnir og öryggi
Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Félagið var stofnað árið 1999 þegar Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg voru sameinuð. Þá urðu til ein stærstu samtök sjálfboðaliða á Íslandi með um 18.000 félögum.

Örugg á hjólinu
Hjólreiðafólki hefur fjölgað ört síðastliðin ár og njóta hjólreiðar sívaxandi vinsælda bæði sem íþrótt og samgöngumáti. Síminn Cyclothon verður haldið dagana 22. til 25. júní 2021 en fjöldi málefna hafa fengið góðan stuðning frá Cyclothon í gegnum árin.

Hvað ertu með í eftirdragi?
Sumarið er komið, daginn tekur að lengja og fólk hugar að sumarfríinu. Með auknum ferðalögum innanlands hefur sala og leiga á hjólhýsum og tjaldvögnum aukist síðustu misseri. Mikilvægt er að vera með á hreinu hvað þarf að hafa í huga áður en lagt er af stað.

Rafhlaupahjól í umferð
Nú er vor í lofti og hjól af ýmsu tagi algengari í umferðinni. Rafhlaupahjól hafa á skömmum tíma náð miklum vinsældum hér á landi líkt og annars staðar í heiminum. Víða má sjá vegfarendur á þeysireið um stíga borgar og bæja og margir hafa tileinkað sér þennan einfalda og umhverfisvæna fararmáta.

Lestur er ævilöng iðja
„Lestur er ævilöng iðja,” var yfirskrift kynningar á Læsissáttmála Heimilis og skóla sem vinna hófst við fyrir fimm árum og gefinn var út árið 2016.

Dagur gegn einelti – við höfum öll hlutverk
Dagur gegn einelti er nú haldinn í tíunda sinn en hann var haldinn hátíðlegur í fyrsta skipti hér á landi 8. nóvember árið 2011 og hefur síðan verið haldinn fyrsta virka dag kringum þá dagsetningu sem er 9. nóvember þetta árið.

Hvað kostar gjaldfrjáls grunnmenntun í raun?
Við lifum á viðsjárverðum tímum og víða kreppir að í samfélaginu. Flest erum við sammála um að mikilvægast sé að standa vörð um grunnstoðir samfélagsins og að áhersla sé lögð á að halda daglegu lífi gangandi.

Skólabyrjun á skrýtnum tímum
Vanalega fylgja skólabyrjun ýmsar tilfinningar og oftar en ekki tilhlökkun. Ný árstíð, nýtt upphaf. En eins og við öll vitum geta líka fylgt blendnar tilfinningar, kvíði og óvissa.

Stöðvum spillinguna!
Virðulegi forsætisráðherra og ríkisstjórn. Hlutirnir gerast hratt í heiminum þessa dagana, á Íslandi sem annars staðar og brýnt er að við sem þjóð leggjumst öll á árarnar og róum í sömu átt.

Fimm ráð til foreldra á tímum heimsfaraldurs
Við lifum nú einstaka tíma og foreldrar standa frammi fyrir krefjandi verkefnum. Áður en lengra er haldiðer best að leyfa öxlum að síga, slaka á kjálkum og anda rólega.

Höfum við gengið til góðs? Af vinnumarkaði og verkföllum
Áhugaverð umfjöllun um álag á vinnustöðum er í boði þessa dagana á Vísi. Þar kemur m.a. fram að reglubundnar kannanir Gallup sýna að mun fleiri segjast úrvinda eftir vinnu en áður þrátt fyrir að tölur um vinnuálag hreyfist furðu lítið milli ára.

Eru foreldrar fífl?
Hafið þið heyrt um stællega nútímaforeldrið sem er alltaf í ræktinni og á djamminu?

Skólinn snýst um samskipti
Haustið er handan við hornið og skólar hefja göngu sína á næstu dögum.

Hvað er svona merkilegt við það að vera starfsmaður?
Þegar vafrað er um híbýli alnetsins rekst maður á alls konar upplýsingar. Misgagnlega búta sem flestir fljóta inn í vitundina eitt augnablik og síðan út aftur.

Víkingablóð og kjöt í morgunmat
Árangur íslenska karlalandsliðsins í fótbolta hefur ekki farið framhjá neinum undanfarið enda HM í knattspyrnu í hámæli.

Er skjárinn að skelfa þig?
Nýrri tækni fylgja tækifæri en líka áskoranir. Foreldrar standa frammi fyrir gjörbreyttu umhverfi og þurfa að huga að uppeldi á fleiri sviðum en áður. Skiljanlega vilja foreldrar leiðsögn, núna strax, en vandinn er sá að enn sem komið er er ekki til umfangsmikill rannsóknargrunnur að byggja á.

Óheillaþróun sem snúa þarf við
Um þessar mundir eru vangaveltur um hvort Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga nái að semja áður en til aðgerða kemur.

Foreldrar og sjálfsmynd barna
"Lífið er læk!” En þarf það að vera svoleiðis? Hvernig geta foreldrar haft áhrif á sjálfsmynd barna sinna?

Þarf einnig annars konar læsi á 21. öld?
Er það ósk þeirra sem standa að þessu verkefni að vitund um mikilvægi miðlalæsis aukist hér á landi þannig að við náum að standa jafnfætis Norðurlöndunum hvað þessa þekkingu varðar.

Réttur barna gagnvart fjölmiðlum
Hlutverk fjölmiðla er að veita upplýsingar og stuðla að upplýstri og ábyrgri umræðu í samfélaginu. Mikilvægt er að fjölmiðlar veiti raunsanna mynd af veruleikanum og axli sína ábyrgð gagnvart samfélaginu.

Ekkert hatur – orðum fylgir ábyrgð
Þriðja árið í röð er 8. nóvember helgaður baráttunni gegn einelti. Markmiðið með deginum er að vekja sérstaka athygli á málefninu sem á sér ýmsar birtingarmyndir. Ein þeirra birtingarmynda er rafrænt einelti.

Hver ber ábyrgð á börnunum?
Átta ára drengur er að leik í frímínútum í skólanum og fær þá hugmynd að príla upp á vegg sem skilur að skólalóð og kirkjulóð.

Í orði en ekki á borði
Borgaryfirvöld sæta harðri gagnrýni um þessar mundir fyrir hvernig staðið er að sameiningu skóla í Grafarvogi og foreldrar í Hvassaleitisskóla eru æfir yfir skorti á samráði. Upplýsingaflæðið er slakt og foreldrar fá ekki svör við þeim spurningum sem brenna á þeim. Þetta skapar óvissu sem leiðir af sér óöryggi og kvíða fyrir því sem koma skal. Hér er um framtíð barna að ræða og því eðlilegt að foreldrar vilji skýrari svör og einhvers konar staðfestingu á því að gæði skólastarfsins verði ekki skert.