
Ferðaþjónusta

Kenndi félagið við keppinautinn korter í gjaldþrot og borgaði ekki skatta
Gunnar Örn Gunnarsson, eigandi og framkvæmdarstjóri Hópferða Ellerts ehf. hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar og 46 milljóna króna fjársektar fyrir meiri háttar skattalagabrot. Eigandi helsta keppinautarins, Hópferða, heitir Ellert.

Vilja bjóða gestum í iður jarðar við Perluna
Félag sem leigir Perluna hefur óskað eftir því að fá að reisa færanlegt sýningarhúsnæði undir eldfjallasýningu við bygginguna. Ætlunin er að bjóða gestum upp á ferð niður í iður jarðar á Reykjanesi með „lyftu“.

Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun
Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu.

Fyrstu 757-þotu Íslendinga lagt eftir 33 ára þjónustu
Fyrstu Boeing 757-þotunni sem Íslendingar eignuðust, TF-FIH, hefur núna verið lagt, eftir 33 ára þjónustu hjá Icelandair. Engin flugvélartegund hefur þjónað íslenskum flugfarþegum jafn lengi og þessi.

Ekkert ferðamannagos
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði.

Býst við svipuðum fjölda gistinótta á hótelum í ár
Eftirspurnin eftir ferðum til Íslands í sumar er minni en fyrir ári en búast má við að fleiri bóki með skömmum fyrirvara en áður, segir forstjóri samsteypu ferðaskrifstofa. „Það lítur út fyrir gott sumar,“ að sögn framkvæmdastjóra hótelkeðju sem reiknar með að fjöldi gistinótta á hótelum verði með svipuðum hætti og í fyrra.

Óvíst hvort heiðin opni í dag og illfært um Tröllaskaga
Hringvegurinn er lokaður um Öxnadalsheiði, sem og Möðrudal- og Mývatnsöræfi, og óvist hvort hægt verður að opna hann í dag. Vegir á Tröllaskaga eru opnir en illa færir, og því skiptir búnaður og reynsla ökumanna sem ætla að fara þar um öllu máli

Allt að gerast í Vík í Mýrdal
Aldrei hefur verið eins mikið byggt af íbúðarhúsnæði í Vík í Mýrdal eins og nú, og þá á að fara að byggja nýjan leikskóla og flytja sveitarstjórnarskrifstofuna í nýtt ráðhús. Þúsundir ferðamanna heimsækja Vík á hverjum degi enda á að fara að stækka verslunarmiðstöðina á staðnum og nýjar verslanir eru að fara að opna.

Auka sætaframboð til Íslands með breiðþotum
Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hyggst auka sætaframboð í flugferðum sínum frá New York til Íslands og notar nú Boeing 767 breiðþotu á leiðinni í stað Boeing 757. Fyrsta þota flugfélagsins þetta árið kom til Keflavíkur frá New York í morgun. Þetta er þrettánda árið sem Delta flýgur milli Íslands og Bandaríkjanna.

Síðasta flugið í bili frá Akureyri til London: Millilandaflugið stórmál fyrir Norðlendinga
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður og flugumferðarstjóri, segir flug Easyjet frá Gatwick í London til Akureyrar í vetur hafa gengið svakalega vel. Sætanýting hafi verið góð. Hann segir það stórmál fyrir Norðlendinga að svo stórt flugfélag fljúgi beint til Akureyrar.

Vill meiri og betri löggæslu í Mýrdalshreppi
Sveitarstjóri Mýrdalshrepps gagnrýnir stöðu löggæslumála í sveitarfélaginu, sem hann segir allt of litla á sama tíma og þúsundir ferðamanna heimsækja þorpið í Vík á hverjum degi og þekkta ferðamannastaði í sveitarfélaginu eins og Reynisfjöru.

Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn
Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað um fjórðung síðustu tólf mánuði hefur orðið samdráttur í fjölda gistinótta og meðaleyðslu ferðamanna að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Þetta geti haft margvísleg neikvæð áhrif á þjóðarbúið. Mikilvægt sé að Íslandsstofa hefji aftur markaðssetningu á landinu.

„Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“
Gosi Ragnarsson framkvæmdastjóri Superjeep harmar að starfsmenn fyrirtækisins séu sakaðir um að hafa hrakið burt fjölskyldu í norðurljósaleiðangri síðasta sunnudag.

Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum
Fjölskylda sem ætlaði sér að horfa á norðurljósin á slóða rétt hjá Litlu kaffistofunni var rekin í burtu af starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækis. Mennirnir sökuðu fjölskylduna um að ónáða fólk sem hefði borgað dýrum dómi fyrir norðurljósaferð.

Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins
Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar.

Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu.

Bílastæði uppbókuð yfir páskana
Langtímastæðin við Keflavíkurflugvöll eru nú uppbókuð fram yfir páskana. Það er því ekki hægt að ferðast bílleiðis á völlinn og fá bílastæði nema stæðið hafi verið bókað fyrirfram.

Bjarnheiður hættir sem formaður SAF
Bjarnheiður Hallsdóttir mun láta af störfum sem formaður Samtaka ferðaþjónustunnar eftir sex ára setu. Félagsmenn samtakanna kusu nýja stjórn á aðalfundi á fimmtudaginn.

Starfsemi í lóninu vart forsvaranleg að mati lögreglu
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur vart forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu við núverandi aðstæður en hætta er talin á loftmengun vegna eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni.

Tjallar héldu uppi stuðinu á Hlíðarenda: „Alveg trylltir“
Fimm Bretar vöktu mikla kátínu á meðal áhorfenda á N1-vellinum við Hlíðarenda í gær þegar Valur mætti ÍA í undanúrslitum Lengjubikarsins. Þeir héldu uppi stemningunni á vellinum og mátti vel heyra í þeim í sjónvarpsútsendingu frá leiknum.

Fyrsta skemmtiferðaskip ársins komið til landsins
Fyrsta skemmtiferðaskip ársins lagðist að bryggju á Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Um er að ræða breska skipið Ambition. 258 skipakomur eru áætlaðar í ár sem er örlítil fækkun frá því á síðasta ár þegar metfjöldi farþegaskipa kom til landsins. Markaðsstjóri segir nú frekar horft til þess hvernig hægt sé að auka tekjur af ferðamönnum frekar en að fjölga þeim.

Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila.

Umfjöllun um eldsumbrot fælir ferðamenn frá
Miklar umræður hafa skapast á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar um áhrif villandi fréttaflutnings erlendra miðla um eldsumbrotin á Reykjanesskaga á ferðaþjónustu í landinu. Borið hefur á afbókunum ferðamanna og hægst hefur á nýbókunum eftir hörmungarnar í Grindavík.

Metfjöldi skemmtiferðaskipa í sumar
Aldrei hafa jafn mörg skemmtiferðaskip boðað koma sína á Ísafjörð líkt og í sumar. Bæjarstjórinn segir unnið að því að tryggja að ferðamenn í bænum verði ekki fleiri en innviðirnir þola.

Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað tryggingafélagið VÍS og ferðaþjónustufyrirtækið Fjórhjólaævintýri af bótakröfu ungrar konu sem lenti í slysi í fjórhjólaferð á vegslóða við Suðurstrandarveg árið 2021. Dómarinn í málinu mat konuna hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi enda hafi hún ekki verið komin með ökuréttindi þegar slysið varð.

Sjö hundruð manns drifu sig úr Bláa lóninu
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að rýming í Grindavík og í Bláa lóninu hafi gengið vel. Örfáir voru í bænum að hans sögn, en sex- til sjöhundruð í Bláa lóninu.

Búið að rýma í Bláa lóninu
Bláa lónið í Svartsengi hefur þegar rýmt öll sín athafnarsvæði vegna eldsumbrotanna við Sundhnjúkagígaröðina nú í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bláa lóninu.

Glæpahópar láti ljósmynda sig og flýi land með vasa fulla af seðlum
Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir vasaþjófnað vaxandi vandamál sem ekki hafi þekkst hér fyrir örfáum árum. Ferðamálastofa varaði á dögunum við þjófum á vinsælum ferðamannastöðum þar sem fólk hafi tapað háum fjárhæðum.

Ferðamenn greiddu 200 milljónir í bílastæðagjöld við Seljalandsfoss
Ferðamenn greiddu rúmlega 200 milljónir króna í bílstæðagjöld við Seljalandsfoss í fyrra. Fjöldi einkabifreiða sem óku að fossinum var tæplega 213 þúsund og þá komu 12 þúsund bifreiðar frá aðilum í ferðaþjónustu.

Hafa tapað mjög háum fjárhæðum vegna vasaþjófa á Íslandi
Ferðamálastofa varar við vasaþjófum sem hafa orðið til þess að ferðamenn hafi tapað háum fjárhæðum.