Fréttir

Ólafur vill leiða listann
Ólafur Adolfsson lyfsali hjá Apóteki Vesturlands og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akranesi gefur kost á sér í fyrsta sæti Sjálfstæðisflokksins á Norðvesturlandi. Áður hefur Teitur Björn Einarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins tilkynnt að hann sækist eftir sama sæti.

Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu
Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum.

Dálítil rigning sunnan- og vestanlands
Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlægri átt í dag, þremur til tíu metrum á sekúndu og skýjuðu, en átta til þrettán metrum á norðvestanverðu landinu.

Skora á Alþingi að axla ábyrgð og greiða fyrir nýrri Ölfusárbrú
Héraðsnefnd Árnesinga skorar á Alþingi að axla ábyrgð og leysa úr þeim hnökrum sem upp hafa komið vegna fjármögnunar nýrrar brúar yfir Ölfusá.

„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“
Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar.

Kjarasamningar opinberra starfsmanna megi ekki raska kjarasátt
„Kennarar eru til fyrirmyndar og ég öfunda þau af því að fá að kenna. Það eru því mikil vonbrigði að samninganefnd kennara og forysta kennarasambandsins grípi nú til skæruverkfalla með tilheyrandi röskun á skólastarfi og óvissu án þess að leggja fram skýrar kröfur í kjarasamningum.“

Ráðist á starfsfólk hótels
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna einstaklings sem var sagður hafa ráðist á starfsfólk hótels í póstnúmerinu 105.

Sunnudagurinn í Valhöll gæti orðið úrslitastund fyrir Þórdísi
Reikna má með fjölmenni í Valhöll á sunnudaginn þegar hart verður barist um sæti á lista flokksins fyrir Alþingiskosningarnar þann 30. nóvember næstkomandi. Formaður og varaformaður bjóða sig fram í tvö efstu sætin en reikna má með að varaformaðurinn fái harða baráttu um annað sætið. Sigur yrði risaskref í átt til formennsku en tap gæti sett frekari frama innan flokksins úr skorðum.

Sendur í leyfi
Úlfur Einarsson forstöðumaður Stuðla hefur verið sendur í ótímabundið leyfi frá störfum sínum á meðferðarheimilinu. Úlfur tjáði sig opinskátt um alvarlega stöðu sem uppi væri á Stuðlum í fréttaskýringarþættinum Kveik í gær.

Aldursforsetinn hvergi af baki dottinn
Tómas A. Tómasson þingmaður Flokks fólksins, sem kenndur er við Hamborgarabúlluna, hyggst gefa kost á sér á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar.

Þórunn og Guðmundur Árni munu bítast um oddvitasætið
Þórunn Sveinbjarnardóttir gefur kost á sér í 1. sæti Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður flokksins sækist einnig eftir oddvitasætinu.

Uppstillingar á báðum listum í Reykjavík
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík samþykkti í kvöld einróma að haga vali á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmum með uppstillingu.

Hundrað ára Carter búinn að kjósa
Jimmy Carter, fyrrverandi Bandaríkjaforseti sem varð hundrað ára á dögunum, er búinn að kjósa í bandarísku forsetakosningunum. Hann kaus með utankjörstaðaratkvæði, sem var lagt í pósthólf við dómshús í borginni Americus í Georgíuríki.

Oddný ætlar ekki aftur fram
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi formaður flokksins, mun ekki sækjast eftir sæti á lista flokksins í komandi alþingiskosningum.

Minnihlutastjórn tekur væntanlega við völdum á morgun
Allt útlit er fyrir að tveggja flokka minnihluta starfsstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks taki við völdum á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á morgun. Þar með lýkur stjórnartíð ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar sem skipuð var í apríl, og eftir atvikum tveggja daga stjórn starfsstjórnar undir hans forsæti.

Sigþrúður Ármann sækist eftir fjórða sæti Kragans
Sigþrúður Ármann, fyrsti varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, býður sig fram í 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi alþingiskosningar.

„Þetta er einhver leikur sem menn ákváðu að spila“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir stefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga á hendur Kennarasambandsins ekki munu hafa áhrif á boðuð verkföll kennara.

Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Skýr skilaboð um að hún vilji verða formaður
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir segir ákvörðun sína um að bjóða sig fram í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Bjarna Benediktssonar, vera skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að taka við formennsku í Sjálfstæðisflokknum þegar þar að kemur.

Steinunn Þóra gefur ekki kost á sér
Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, hefur gefið það út að hún sækist ekki eftir því að taka sæti á lista hreyfingarinnar yfir komandi Alþingiskosningar.

Stemningin „eftir atvikum ágæt“
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hyggst leggja skiptingu ráðuneyta Vinstri grænna fyrir forseta á ríkisráðsfundi á morgun, sem haldinn verður á Bessastöðum klukkan 18. Hann segir ráðherra VG samt sem áður verða áfram ráðherrar.

Óli Björn hættir á þingi
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst ekki sækjast eftir endurkjöri í komandi kosningum. Hann segir ákvörðunina hafa legið fyrir í nokkurn tíma.

„Ef allir gerðu þetta væri landið stjórnlaust“
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir með ólíkindum ábyrgðarlaust af Vinstri grænum að starfa ekki í starfsstjórn, sem forseti hefur óskað eftir að sitji þar til ný ríkisstjórn er mynduð.

Teitur Björn vill setjast í laust sæti Þórdísar
Teitur Björn Einarsson hefur boðið sig fram til að leiða lista Sjálfstæðiflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum. Það tilkynnti hann á nánast sama tíma og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tilkynnti að hún fari fram í Kraganum.

Eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti gæti náð hámarki á þessum áratug
Aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku í heiminum gæti orðið til þess að eftirspurn eftir jarðefnaeldsneyti nái hámarki sínu fyrir lok áratugsins. Stríðsátök sem olíuríki eru aðilar að í Miðausturlöndum og Rússlandi eru þó sögð skapa mikla óvissu.

Sigurður Ingi fær innviðaráðuneytið og Bjarni hin tvö
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna komu saman til ríkisstjórnarfundar í síðasta sinn síðdegis í dag.

Þórdís vill sæti Jóns í kjördæmi formannsins
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, hyggst gefa kost á sér í Suðvesturkjördæmi. Hún leiddi lista flokks síns í Norðvesturkjördæmi í síðustu þingkosningum.

Hildur leiðir aðgerðahóp forsætisráðherra um að brúa bilið
Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn í Reykjavík leiðir aðgerðahóp innan forsætisráðuneytisins sem á að vinna að því að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Aðstoðarmenn ráðherra þurfa nú að líta í kringum sig
Hvað verður um aðstoðarmenn ráðherra nú þegar kosningar eru í vændum? Víst er að aðstoðarmenn ráðherra Vinstri grænna þurfa að hætta snarlega. Sem opinberir starfsmenn njóta þeir hins vegar ekki þess að eiga langan uppsagnarfrest heldur er þar um að ræða þrjá mánuði.

Fimm milljarða dómur ekki talinn varða mikilvæga hagsmuni
Dómur í máli þrotabús Karl Wernerssonar og Jóns Hilmars Karlssonar, sonar hans, stendur óhaggaður. Landsréttur dæmdi Jón Hilmar til greiðslu alls um fimm milljarða króna en Hæstiréttur telur málið ekki varða sérstaklega mikilvæga hagsmuni hans.