Skoðun

Lítil ferðasaga

Sara McMahon skrifar
Það var eitt sinn fjögurra manna fjölskylda sem ákvað að fara saman í svolítið frí, svona eins og fjölskyldur eiga til að gera. Ferðinni var heitið norður á bóginn, nánar tiltekið til Íslands. Fjölskylda hugðist treysta fjölskylduböndin með því að ferðast saman um landið og njóta náttúrufegurðarinnar. Fjölskyldunni skildist að á Íslandi væri margt að sjá og gera; Til dæmis mætti grafa þar upp nokkurt magn af geislasteini – en geislasteinar eru metnir á stórfé af erlendum steinasöfnurum.

Á brottfarardeginum sjálfum stóð fjölskyldan ferðbúin fyrir utan heimili sitt. Þau höfðu pakkað hlýjum fatnaði, gönguskóm og regnfatnaði – þau höfðu heyrt að það væri allra veðra von á Íslandi. Þau höfðu líka pakkað sundfatnaði og auðvitað nokkrum hömrum, einum meitli og efnablöndum til tegundagreiningar á steinum. Og svo fóru þau í fríið!

Þegar austur á firði var komið hófst litla fjölskyldan handa við að grafa upp geislasteina á friðlandinu við bæinn Teigarhorn í Berufirði. Öll lögðu þau sitt af mörkum: mamman, pabbinn og synirnir tveir. Hamarshöggin glumdu um allan Berufjörð og náðu loks eyrum landvarðarins á Teigarhorni. Landvörðurinn ákvað að kanna málið betur, líkt og landvarða er siður, en þegar hann nálgaðist hina vinnusömu fjölskyldu, fóru þau öll undan í flæmingi og reyndu að fela dagsverk sitt.

„Hvað gengur hér á?“ spurði landvörðurinn hissa.

„Ekki neitt,“ ansaði fjölskyldufaðirinn skömmustulegur á svip.

„Vitið þið ekki að þetta er friðland?“ innti landvörðurinn þau eftir. „Nei…það vissum við ekki, svæðið er svo illa merkt. Og þótt við hefðum vitað það, þá skiptir þessi litli uppgröftur okkar öngvu máli því eins og þú sérð sjálfur er hér af nógu að taka,“ sagði ferðalangurinn örlítið öruggari með sig.

Landvörðurinn viðurkenndi að merkingar á friðlandinu mættu vera betri og sá sér ekki annan leik á borði en að senda fjölskylduna burt eftir að hafa lesið þeim pistilinn.

„Þetta er allt í lagi,“ sagði faðirinn við vonsvikna fjölskyldu sína. „Helgustaðanáma er hérna rétt hjá.“ Og af stað héldu þau.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×