Viðbragðsaðilar fengu tilkynningu um klukkan 18:20 að staðartíma í gærkvöldi vegna árásarmannsins í Saint Stephen's Episcopal kirkjunni í Birmingham úthverfinu í Vestavia Hills.
Grunaður árásarmaður var handtekinn stuttu síðar og sá sem særðist færður á spítala til læknisaðstoðar. Lögregla vildi hvorki nafngreina fórnarlömbin né árásarmanninn og vildi heldur ekki greina nánar frá atburðum kvöldsins.

Samkvæmt tilkynningu frá kirkjunni var pálínuboðið sérstaklega fyrir eldri borgara og fór fram inni í kirkjunni. Prestur kirkjunnar, Séra John Burruss, skrifaði þetta á Facebook-síðu kirkjunnar þar sem hann tók fram að hann væri sjálfur staddur í Grikklandi í pílagrímagöngu með safnaðarmeðlimum en væri að reyna að komast aftur heim til Alabama eins fljótt og hann gæti.
Aðeins einn mánuður er liðinn síðan skotárás var síðast gerð á kirkju í Bandaríkjunum en í þeirri árás lést einn og fimm særðust. Sú árás var gerð á taívanska kirkju í Suður-Kaliforníu.
Samkvæmt frétt AP um málið var mikill viðbúnaður á vettvangi í Vestaviu Hills í allt gærkvöld og langt fram á nótt. Búið var að girða vettvanginn af með gulu lögregluteipi. Bandaríska alríkislögreglan FBI, Alríkislögreglumenn á vegum dómsmálaráðuneytisins og fulltrúar frá Áfengis-, skotvopna-, tóbaks- og sprengiefnalögreglu Bandaríkjanna voru á staðnum.