

Andlát

Leikkonan Kirstie Alley er látin
Leikkonan Kirstie Alley er látin eftir baráttu við krabbamein. Hún var 71 árs. Alley var einna þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Cheers, Look Who's Talking myndunum og fyrir að tilheyra Vísindakirkjunni.

Twin Peaks-leikari látinn
Bandaríski leikarinn Al Strobel, sem þekktastur er fyrir að fara með hlutverk hins einhenta Philip Gerrard í þáttunum Twin Peaks, er látinn. Hann varð 83 ára gamall.

Friðfinnur Freyr er látinn
Friðfinnur Freyr Kristinsson, maðurinn sem leitað hefur verið að seinustu vikur, er látinn. Þessu greinir bróðir hans frá á Facebook síðu sinni. Hann segir ekkert saknæmt hafa átt sér stað.

Danska ungstirnið Hugo Helmig látinn
Danski tónlistarmaðurinn Hugo Helmig er látinn, aðeins 24 ára að aldri. Hann naut mikilla vinsælda í heimalandinu og átti mest spilaða lagið í dönsku útvarpi árið 2017.

Orange Is the New Black-leikari látinn
Bandaríski leikarinn og fótboltaspilarinn Brad William Henke, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum Orange Is the New Black, er látinn, 56 ára að aldri.

Veiðigoðsögnin Völundur Þorsteinn er látinn
Völundur Þorsteinn Hermóðsson frá Álftanesi í Aðaldal er látinn en hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi þann 26. nóvember síðastliðinn.

Christine McVie er látin
Enska tónlistarkonan Christine McVie, einn af meðlimum hljómsveitarinnar Fleetwood Mac, er látin. Hún var 79 ára.

Fyrrverandi forseti Kína látinn
Jiang Zemin, fyrrverandi forseti Kína og leiðtogi Kommúnistaflokksins, er látinn, 96 ára að aldri. Hann komst til valda eftir mótmælin á Torgi hins himneska friðar og hafði meðal annars umsjón með því þegar Kínverjar tóku aftur við Hong Kong úr höndum Breta.

Die Hard-stjarna látin
Bandaríski leikarinn Clarence Gilyard Jr., sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í þáttunum Walker, Texas Ranger og Matlock og aukahlutverk sitt í stórmyndinni Die Hard, er látinn, 66 ára að aldri.

Utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands bráðkvaddur
Vladimir Makei, utanríkisráðherra Hvíta-Rússlands, er látinn. Frá þessu greindi hvítrússneski ríkismiðillinn Belta í dag.

Irene Cara er látin
Irene Cara, söngkonan sem gerði garðinn frægan með söng og leik í kvikmyndum á borð við Fame og Flashdance, er látin aðeins 63 ára að aldri.

„Íshokkíkóngurinn“ er látinn
Fyrrverandi íshokkíkappinn Börje Salming lést í dag, 71 árs að aldri. Hann tilkynnti í ágúst á þessu ári að hann glímdi við MND-sjúkdóminn sem að lokum dró hann til dauða. Gælunafn Salming á íshokkísvellinu var The King eða Kóngurinn.

Fyrrverandi dýrasti leikmaður Liverpool látinn
Liverpool missti einn úr fjölskyldunni í gær. David Johnson, fyrrum leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, er látinn eftir glímu við krabbamein. Hann var 71 árs gamall.

Twerkoholic-rapparinn B. Smyth er látinn
Bandaríski rapparinn B. Smyth, sem þekktastur er fyrir lag sitt Twerkoholic frá árinu 2014, er látinn, 28 ára að aldri.

Franskur dómari lést eftir að hafa fengið hjartaáfall á æfingu
Einn reyndasti fótboltadómari Frakklands lést í dag eftir að hafa fengið hjartaáfall á æfingu.

UFC-stjarna lést 38 ára að aldri
Fyrrverandi UFC-bardagakappinn Anthony „Rumble“ Johnson lést á sunnudaginn, 38 ára að aldri, eftir glímu við líkamleg veikindi.

Pabbi Jennifer Aniston er fallinn frá
Leikkonan Jennifer Aniston hefur greint frá því að faðir hennar, leikarinn John Aniston er fallinn frá. Þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlinum Instagram.

Einn stofnenda The Clash og PiL er látinn
Gítarleikarinn Keith Levine er látinn, 65 ára að aldri. Hann var einn af þeim sem stofnuðu goðsagnakenndu pönkhljómsveitina The Clash og síðar hljómsveitina Public Image Ltd.

Sven-Bertil Taube er látinn
Einn ástkærasti listamaður Svía, Sven-Bertil Taube, er látinn, 87 ára að aldri. Hann var sonur tónskáldsins Evert Taube og öðlaðist frægð fyrir endurútgáfur af lögum föður síns.

„Hann verður alltaf minn Leðurblökumaður“
Kevin Conroy, rödd Leðurblökumannsins til margra ára, er látinn 66 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein.

Söngvari Nazareth er látinn
Skoski söngvarinn Dan McCafferty, sem var einn af forsprökkum þungarokkssveitarinnar Nazareth, er látinn, 76 ára að aldri. Sveitin gerði garðinn frægan með rokkslögurum á borð við Love Hurts og Hair of the Dog.

Stjörnurnar syrgja Aaron: „Ó hvað ég elskaði þig heitt á okkar unglingsárum“
„Ég er svo miður mín yfir því hvað lífið var þér erfitt og að þú hafir þurft að glíma við það fyrir framan allan heiminn,“ skrifar leikkonan Hilary Duff um fyrrverandi kærasta sinn Aaron Carter. Aaron fannst látinn á heimili sínu á laugardaginn.

Leslie Phillips er látinn
Breski leikarinn Leslie Phillips er látinn, 98 ára að aldri. Hann var þekktastur fyrir hlutverk sitt í Carry On-kvikmyndunum og fyrir að ljá flokkunarhattinum í Harry Potter-kvikmyndunum rödd sína.

Aaron Carter látinn 34 ára
Söngvarinn Aaron Carter er látinn 34 aðeins ára gamall. Fjölmiðlar ytra greina frá því að hann hafi látist í baðkarinu heima hjá sér. Ekki er grunur um saknæma háttsemi.

Rússneskur bardagakappi lést eftir að hafa borðað eitraða melónu
Alexander Pisarev, rússneskur bardagamaður, er látinn, 33 ára. Talið er að rekja megi orsök andlátsins til eitraðrar vatnsmelónu sem hann borðaði.

Rithöfundurinn Julie Powell er látin
Rithöfundurinn Julie Powell, sem best er þekkt fyrir að hafa eldað allar uppskriftir í bók kokksins Juliu Child, „Mastering the Art of French Cooking“ er látin 49 ára að aldri. Powell lést úr hjartastoppi á heimili sínu í New York.

Takeoff skotinn til bana
Bandaríski rapparinn Takeoff var skotinn til bana í Houston í Texas í dag. Fjöldi fólks hefur vottað rapparanum virðingu sína á samfélagsmiðlum í dag.

Vinkona Önnu Frank er látin
Hin þýska Hannah Pick-Goslar, sem var ein af bestu vinkonum Önnu Frank, er látin, 93 ára að aldri.

Jóhannes Tómasson er látinn
Jóhannes Tómasson, blaðamaður og fyrrverandi upplýsingafulltrúi, er látinn, sjötugur að aldri. Hann starfaði lengi sem blaðamaður á Morgunblaðinu en tók árið 2006 við starfi upplýsingafulltrúa samgönguráðuneytisins, síðar innanríkisráðuneytisins, og starfaði þar í tólf ár með níu ráðherrum.

Söngvari Low roar er látinn
Ryan Karazija, söngvari hljómsveitarinnar Low Roar er látinn aðeins fertugur að aldri. Hann hafði verið búsettur hér á landi frá árinu 2010.