

Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Tottenham tryggði stig úr viðureign sinni gegn Manchester City í uppbótartíma eftir gífurlega fjörugan leik. Allt stefndi í fjórða tapleik Tottenham í röð en þeir neituðu að gefast upp og uppskáru undir lokin 3-3 jafntefli gegn Englandsmeisturunum.
Chelsea vann mikilvægan 3-2 sigur er liðið tók á móti Brighton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Liverpool vann ótrúlegan 4-3 sigur er liðið tók á móti Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Arsenal og Liverpool munu eigast við í þriðju umferð FA-bikarsins í knattspyrnu sem leikin verður fyrstu helgi næsta árs.
„Frábær sigur í dag. Hefur verið risastór vika fyrir okkur, góð augnablik og sum erfið sem við fórum í gegnum sem lið,“ sagði Anthony Gordon eftir 1-0 sigur Newcastle United á Manchester United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Gordon skoraði sigurmark leiksins.
Newcastle United vann Manchester United 1-0 í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Sigurinn var síst of stór.
Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra, var varpað upp á risaskjáinn í DNB-höllinni í Stafangri á meðan leik Íslands og Frakklands stóð. Ekki var það til að benda á að ráðherra frá Íslandi væri í salnum.
Jón Daði Böðvarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Bolton Wanderers þegar liðið fékk Harrogate Town í heimsókn í ensku bikarkeppninni í knattspyrnu. Jón Daði gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í fyrri hálfleik en leiknum lauk með 5-1 sigri Bolton.
Topplið ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, Arsenal, var á leið að vinna þægilegan 2-0 heimasigur á Wolves þangað til gestirnir skoruðu undir lok leiks. Nær komust þeir ekki og unnu Skytturnar 2-1 sigur í dag.
Burnley vann Sheffield United örugglega í nýliðaslag liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir frá Sheffield voru manni færri allan síðari hálfleik og það nýttu lærisveinar Vincents Kompany sér.
Jurgen Klopp, þjálfari Liverpool, var spurður út í heimavallarárangur liðsins í ensku úrvalsdeildinni á fréttamannafundi fyrir leik liðsins gegn Fulham um helgina.
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, kom Andre Onana til varnar á fréttamannafundi í gær.
Ange Postecoglou, þjálfari Tottenham, segist vera spenntur fyrir viðureign síns liðs gegn Manchester City á Ethiad vellinum á morgun.
Manchester United liggur undir lögreglurannsókn eftir að fjöldi fólks veiktist eftir viðburð á vegum félagsins þar sem meint er að hrár kjúklingur hafi verið borinn á borð.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hrósaði kollega sínum hjá Tottenham, Ange Postecoglou, fyrir stórleik liðanna í Manchester á sunnudaginn.
Enska knattspyrnufélagið Everton hefur áfrýjað dómnum sem fól í sér að liðið missti tíu stig á yfirstandandi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni.
Michael Owen þolir ekki tvo fyrrverandi félaga sína í enska landsliðinu vegna dýrra mistaka þeirra á stórmóti.
Ítalski fótboltamaðurinn Mario Balotelli skaut föstum skotum að Brendan Rodgers í sjónvarpsviðtali og sparaði ekki stóru orðin.
Alisson Becker meiddist um helgina og verður ekki með Liverpool liðinu á næstunni. Hann missir af Evrópuleiknum í kvöld og verður hugsanlega frá í tvær vikur.
Maddie Cusack, varafyrirliði Sheffield United sem lést í september, átti erfitt með að ná endum saman. Móðir hennar segir of mikla pressu á fótboltakonum.
Lið í ensku úrvalsdeildinni hafa haldið áfram að spila leikmönnum vitandi það að þeir hafa fengið á sig ásakanir um kynferðisbrot eða heimilisofbeldi.
Arnór Sigurðsson kom inn sem varamaður í hálfleik þegar Blackburn vann góðan sigur í Championship-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Innkoma Arnórs hafði góð áhrif á lið Blackburn.
Það er nánast daglegt brauð að norski framherjinn Erling Haaland bæti einhvers konar markamet enda raðar hann inn mörkum með Manchester City.
Argentínska ungstirnið Alejandro Garnacho var alveg til í að gefa skóna sína frá því í leiknum á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni um helgina.
Alejandro Garnacho skoraði stórkostlegt mark með bakfallsspyrnu í sigri Manchester United á Everton um helgina, mark sem Cristiano Ronaldo hefði verið mjög stoltur af. Þetta var líka mark sem aðeins maður með hæfileika, hroka og sjálfstraust Ronaldo gæti skorað.
Enska úrvalsdeild karla í knattspyrnu stefnir á að taka upp tíu mínútna kælingu fyrir leikmenn sem fá gult spjald fyrir taktískt brot eða munnsöfnuð. Verður þetta ekki eina breytingin sem tekin verður upp á næstu leiktíð.
Fábio Vieira, miðjumaður enska toppliðsins Arsenal, verður frá keppni þangað til á næsta ári. Þetta staðfesti Mikel Arteta, þjálfari liðsins, á blaðamannafundi í dag.
Knattspyrnustjóri Wolves, Gary O'Neil, var enn og aftur ósáttur við dómgæsluna eftir leik Úlfanna gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Enska fótboltafélagið Sheffield United rannsakar nú atburði sem gætu hafa leitt til andláts Maddy Cusack í september.
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er sagt vilja fá þýska framherjann Timo Werner til liðs við sig þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar.