

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

City afgreiddu Forest á fjórtán mínútum | Rodri sá rautt
Manchester City er áfram með fullt hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-0 sigur á Nottingham Forest í dag.

Arnór aðeins níu mínútur að skora fyrir Blackburn
Arnór Sigurðsson spilaði sinn fyrsta leik fyrir Blackburn í Championship deildinni ensku í dag og byrjaði með látum þegar hann skoraði fyrsta mark liðsins þegar liðið sótti Ipswich heim.

Guimarães skrifar undir nýjan samning með söluákvæði
Bruno Guimarães skrifaði í dag undir nýjan samning við Newcastle sem tvöfaldar vikulaunin hans. Guimarães er nú samningsbundinn liðinu út 2028 en söluákvæði í nýja samningnum segir að hann sé falur fyrir 100 milljónir punda.

Sérfræðingur Sky spáir ljótum United sigri í kvöld
Manchester United hefur ekki átt sjö dagana sæla í upphafi leiktíðar en liðið hefur tapað fjórum af fyrstu sex leikjum sínum í öllum keppnum. United mætir sigurlausu liði Burnley í kvöld og sérfræðingur Sky, Lewis Jones, spáir ljótum United sigri.

Maddison: Aldrei upplifað svona áður
James Maddison, leikmaður Tottenham, segir að það sé eitthvað sérstakt í gangi hjá Tottenham á þessu tímabili.

Erik Ten Hag: Verðum að standa saman
Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, segir að liðið hans muni vinna hörðum höndum að því að snúa gengi liðsins við.

Snus notkun leikmanna til rannsóknar
Leikmannasamtökin í Bretlandi hefur hrundið af stað sameiginlegri rannsókn á nikótínpúðanotkun knattspyrnumanna með háskólanum í Loughborough. Hagsmunafulltrúi innan samtakanna segist taka eftir aukinni notkun á púðunum.

Breska ríkisstjórnin neitar að afhenda gögn tengd máli Man City
Breska ríkisstjórnin hefur staðfest að sendiráð sitt í Abu Dhabi hafi rætt við utanríkis- og samveldisráðuneyti Bretlands um ákærurnar sem borist hafa á hendur Manchester City í tengslum við brot á fjármálareglum.

Jurgen Klopp: Við munum ekki fljúga í gegn
Liverpool vann 3-1 sigur á LASK eftir að hafa lent marki undir í fyrstu umferð Evrópudeildarinnnar. Þetta var fjórði endurkomusigur Liverpool í sex leikjum á þessu tímabili.

Segja Manchester United tilbúið að selja Sancho ódýrt í janúar
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er tilbúið að selja vængmanninn Jadon Sancho ódýrt þegar janúarglugginn opnar eftir áramót til að losna við leikmanninn frá félaginu.

Ødegaard skrifar undir nýjan fimm ára samning við Arsenal
Norski miðjumaðurinn Martin Ødegaard hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við Arsenal.

Sheffield United í sárum eftir að leikmaður þeirra lést
Maddy Cusack, leikmaður Sheffield United í ensku B-deildinni, lést síðastliðinn miðvikudag, aðeins 27 ára að aldri.

Kudus: Líður eins og hluti af fjölskyldunni
Mohammed Kudus, leikmaður West Ham, segir að honum sé strax farið að líða eins og hann sé hluti af West Ham fjölskyldunni.

Raya: Ramsdale verður að leggja sig allan fram
David Raya, markvörður Arsenal, segir að Aaron Ramsdale verði að leggja sig allan fram fyrir liðið fái hann tækifæri til þess á ný.

Haaland fyrsti norski fótboltamilljarðamæringurinn
Erling Haaland, framherji Englands- og Evrópumeistara Manchester City, er fyrsti norski fótboltamilljarðamæringurinn.

Enn streyma peningar frá Bandaríkjunum til Chelsea
Fjárfestingasjóðurinn Ares Management er við það að setja fjögur hundruð milljónir punda, tæpa 68 milljarða íslenskra króna, í enska knattspyrnufélagið Chelsea.

Varar við svefnvenjum Haaland: „Getur verið hættulegt“
Erling Braut Haaland passar afar vel upp á að ná góðum nætursvefni. Sænskur svefnfræðingur varar þó við sérstakri aðferð sem Haaland og fleiri hafa nýtt sér að undanförnu.

Segir Tottenham geta keypt Kane til baka
Daniel Levy eigandi Tottenham Hotspur segir að í samningi liðsins við Bayern Munchen vegna Harry Kane sé klásúla sem geri Lundúnaliðinu kleift að fá enska landsliðsmanninn aftur.

Segir að það hafi verið mistök að semja við Ronaldo
Ole Gunnar Solskjær, fyrrum leikmaður og knattspyrnustjóri Manchester United, hefur viðurkennt að það hafi verið mistök að fá Cristiano Ronaldo aftur til liðsins við félagið árið 2021.

Segist aldrei hafa getað stillt upp sínu besta byrjunarliði
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að langur meiðslaliðsti hafi gert það að verkum að hann hafi aldrei hafa getað stillt upp sínu besta byrjunarliði.

Vaxandi meiðslalisti setji fullkomna byrjun City í hættu
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur áhyggjur af því að liðið gæti lent í vandræðum á komandi vikum vegna fjölda meiðsla.

Framlengdi í sumar en er nú látinn taka poka sinn 74 ára gamall
Neil Warnock mun stíga til hliðar sem þjálfari Huddersfield Town eftir leikinn gegn Stoke City í ensku B-deildinni í knattspyrnu annað kvöld. Hinn 74 ára gamli Warnock framlengdi veru sína hjá Huddersfield í sumar eftir að halda liðinu uppi en hefur ákveðið að nú sé nóg komið.

Meiðslalisti Chelsea metinn á 65 milljarða
Gríðarleg meiðsli herja á leikmenn enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Hægt væri að stilla upp 11 manna byrjunarliði með leikmönnum sem eru frá keppni um þessar mundir.

Schmeichel ekki hrifinn af hugmyndafræði Arteta þegar kemur að markvörðum
Peter Schmeichel, margfaldur Englandsmeistari með Manchester United og Evrópumeistari með Danmörku, er ekki hrifinn af uppátæki Mikel Arteta, þjálfara Arsenal. Hann vill deila spilatíma markvarða sinna og jafnvel skipta um markvörð í miðjum leik þó ekkert ami að þeim sem er inn á.

Ótrúleg tölfræði Brighton síðan De Zerbi tók við
Brighton & Hove Albion batt enda á gott heimavallargengi Manchester United í ensku úrvalsdeildinni um helgina þegar liðin mættust á Old Trafford um liðna helgi. Brighton hefur byrjað tímabilið einkar vel en gengi liðsins undir stjórn Roberto de Zerbi hefur verið magnað.

Jóhann Berg og félagar komnir á blað en enn án sigurs
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Nottingham Forest í Skíriskógi í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Vandræði United aukast enn
Ekkert lát virðist vera á erfiðleikum Manchester United. Nú hefur enn einn leikmaðurinn bæst á meiðslalistann.

Barnaníðingurinn Bennell látinn
Barnaníðingurinn og fyrrverandi fótboltaþjálfarinn Barry Bennell lést í fangelsi, 69 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein.

Enn hræddur við Ferguson
Ashley Young, leikmaður Everton og fyrrum lærisveinn Sir Alex Ferguson hjá Manchester United, kveðst enn ekki geta kallað hann með nafni. Hann sé aðeins stjóri.

Segir að 89 milljóna punda maðurinn þurfi að skilja leikinn betur
Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að leikskilningi Mykhailos Mudryk sé ábótavant.