
Stefnir í spennandi keppni í Barein: „Nánast ekkert þarna á milli“
Þrátt fyrir að Max Verstappen sé á ráspól í fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 þá búast sérfræðingar við jafnari keppni en á sama tíma í fyrra.
Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Þrátt fyrir að Max Verstappen sé á ráspól í fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 þá búast sérfræðingar við jafnari keppni en á sama tíma í fyrra.
Fyrrverandi heimsmeistari segir að Daniel Ricciardo sé bara í Formúlu 1 vegna vinsælda hans, ekki vegna ökuhæfileikanna.
Christian Horner, liðsstjóri Formúlu 1 meistara Red Bull, hefur verið hreinsaður af öllum ásökunum samstarfskonu hans um óviðeigandi hegðun.
Toto Wolff, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs Mercedes, segir rannsókn á ásökunum á hendur Christian Horner, liðsstjóra Red Bull Racing, um meinta óviðeigandi hegðun í garð kvenkyns starfsmanns liðsins, vera mál sem varðar Formúlu 1 í heild sinni. Vill hann fá allt upp á borðið tengt rannsókninni.
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og núverandi ökumaður Aston Martin, segist ekki hafa átt samtöl við forráðamenn Mercedes þess efnis að hann taki yfir sæti Lewis Hamilton hjá liðinu að komandi tímabili afloknu þegar að Bretinn skiptir yfir til Ferrari.
Christian Horner, liðsstjóri Formúlu 1 meistara Red Bull, er til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar. Hann var yfirheyrður í dag, föstudag, en enn er engin niðurstaða komin í málið. Horner vill hreinsa nafn sitt.
Charles Leclerc ku hafa verið vonsvikinn þegar hann komst að því að Lewis Hamilton yrði liðsfélagi hans hjá Ferrari frá og með tímabilinu 2025.
Christian Horner, liðsstjóri Red Bull í Formúlu 1, verður yfirheyrður vegna ásakana um óviðeigandi hegðun á föstudaginn.
Christian Horner, liðsstjóri Formúla 1 meistara Red Bull, er til rannsóknar vegna óviðeigandi hegðunar.
„Ég náttúrulega bara trúði þessu ekki,“ sagði Bragi Þórðarson um vistaskipti sjöfalda heimsmeistarans Lewis Hamilton frá Mercedes til Ferrari.
Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes í Formúlu 1, viðurkennir að það hafi komið honum á óvart að sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton hafi tekið ákvörðun um að yfirgefa liðið að komandi tímabili loknu.
Carlos Sainz, ökumaður Ferrari í Formúlu 1, mun yfirgefa liðið að komandi tímabili loknu.
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, er á förum frá Mercedes eftir ellefu ára samstarf með liðinu.
Markaðsvirði Ferrari rauk upp úr öllu valdi eftir að fréttir bárust af því að Lewis Hamilton væri að öllum líkindum á leið til liðsins frá Mercedes.
Ein stærstu félagaskipti í sögu Formúlu 1 kappakstursins virðast vera í pípunum því talið er að sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton sé að ganga til liðs við Ferrari.
Lando Norris hefur skrifað undir nýjan samning við McLaren í Formúlu 1 og segist vera sannfærður um það að hann geti orðið heimsmeistari með liðinu.
Fyrrverandi eiginkona bróður Michaels Schumacher var rekin úr raunveruleikaþættinum I'm A Celebrity vegna ótta um að hún myndi ljóstra einhverju upp um heilsu þýska ökuþórsins.
Sjöfaldi heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, getur setið til borðs með fjölskyldu sinni.
Ýmislegt er gert í ummönnum Michaels Schumachers. Meðal annars er reynt að vekja upp tengsl við ökumannsferill hans.
Eiginkona Michaels Schumacher stjórnar því hverjir geta hitt ökuþórinn fyrrverandi og er með strangar reglur í þeim efnum.
Þann 29. desember næstkomandi verða tíu ár liðin frá skíðaslysi fyrrum Formúlu 1 ökuþórsins Michaels Schumacher. Bróðir hans sagði nútímatækni læknisfræðinnar gera honum kleift að gera vissa hluti, en „ekkert er eins og það var“.
Jean Todt, fyrrverandi framkvæmdastjóri Ferrari í Formúlu 1 og forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins, hefur tjáð sig um sig ástand Michaels Schumacher.
Toto Wolff, liðstjóri Mercedes í Formúlu 1, segir að önnur lið þurfi að klífa Everest ætli þau sér að ná Red Bull liðinu á næsta tímabili.
Red Bull Racing, með Hollendinginn Max Verstappen í fararbroddi, bar höfuð og herðar yfir andstæðinga sína á nýafstöðnu tímabili í Formúlu 1. Verstappen varð heimsmeistari ökumanna og Red Bull Racing heimsmeistari bílasmiða. Árangur og stigasöfnun sem sér til þess að liðið mun þurfa að borga hæsta þátttökugjaldið í sögu Formúlu 1 ætli það sér að vera á meðal keppenda á næsta tímabili.
Síðasti kappaksturinn á F1 tímabilinu fór fram í Abú Dabí í dag þar sem Max Verstappen fór sem fyrr með sigur af hólmi. Charles Leclerc endaði í öðru sæti á meðan George Russel tók þriðja sætið.
Hollendingurinn fljúgandi, Max Verstappen, verður á ráspól í Aby Dhabi kappakstrinum á morgun en þetta verður í tólfta sinn sem Verstappen ræsir fremstur í ár.
Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton, ökumaður Mercedes, segir Christian Horner, liðsstjóra Red Bull Racing, fara með rangt mál er hann segir Hamilton hafa sett sig í samband við forráðamenn Red Bull Racing og viðrað hugmyndir um að ganga til liðs við liðið.
Fyrrum keppinautur formúlukappans Michael Schumacher er meðal viðmælanda í nýrri heimildarþáttarröð sem kemur út tíu árum eftir að þýski heimsmeistarinn slasaðist illa í skíðaslysi í Ölpunum.
Þrátt fyrir refsingu og árekstur var það heimsmeistarinn Max Verstappen sem fagnaði sigri í Formúlu 1 keppni næturinnar í Las Vegas. Sigurinn er sá átjándi hjá Verstappen á tímabilinu.