Kastaði skó Suárez af velli Leikmaður Cruzeiro stríddi úrúgvæsku ofurstjörnunni Luis Suárez í leik gegn Gremio í brasilísku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 28. ágúst 2023 16:01
Sjáðu mörkin: Valur nálgast titilinn og fallið blasir við Selfyssingum Síðasta umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu fyrir tvískiptingu deildarinnar fór fram í gær þegar heil umferð var leikin á sama tíma. Valskonur eru með pálmann í höndunum í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn, en Selfyssingar þurfa á kraftaverki að halda til að halda sæti sínu í deildinni. Fótbolti 28. ágúst 2023 15:30
Bestu mörkin: Sofandi Stjörnukonur vöknuðu loksins eftir Verslunarmannahelgi Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar Bestu markanna gerðu upp tímabilið hjá hverju liði fyrir sig í þætti gærkvöldsins eftir að lokaumferð Bestu-deildar kvenna fyrir tvískiptingu fór fram. Stjörnunni var spáð titilbaráttu fyrir tímabilið, en liðið var langt frá því að standa undir væntingum framan af sumri. Fótbolti 28. ágúst 2023 14:30
Real Madrid og Barcelona gæti verið hent úr Meistaradeildinni vegna Rubiales-hneykslisins Hneyklismálið með Luis Rubiales hefur þegar haft mikil áhrif og þau gætu orðið enn meiri. Fótbolti 28. ágúst 2023 14:01
United og Bayern gætu skipt á leikmönnum Manchester United og Bayern München gætu skipt á leikmönnum áður en félagaskiptaglugganum verður lokað um mánaðarmótin. Enski boltinn 28. ágúst 2023 13:30
Bestu mörkin: Tap í bikarúrslitum gerði útslagið í titilbaráttu Blika Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar Bestu markanna gerðu upp tímabilið hjá hverju liði fyrir sig í þætti gærkvöldsins eftir að lokaumferð Bestu-deildar kvenna fyrir tvískiptingu fór fram. Breiðabliki hefur fatast flugið í síðustu leikjum og liðið er nú átta stigum á eftir toppliði Vals. Fótbolti 28. ágúst 2023 13:01
Sjáðu öll átta mörkin er Víkingar settu níu fingur á titilinn gegn óstundvísum Blikum Víkingar eru komnir með níu fingur á Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir 5-3 sigur gegn óstundvísum Blikum í gær. Liðið er nú með 14 stiga forskot á toppnum þegar liðið á sex leiki eftir. Fótbolti 28. ágúst 2023 12:01
Mamma Rubiales í hungurverkfalli í kirkju Þegar málið með Luis Rubiales virtist ekki geta orðið skrítnara varð það skrítnara. Móðir hans hefur nefnilega blandast í málið. Fótbolti 28. ágúst 2023 10:29
Leikmenn og stuðningsmenn sýndu Hermoso stuðning Leikmenn og stuðningsmenn knattspyrnuliða um alla Evrópu sýndu Jenni Hermoso, leikmanni heimsmeistara Spánar, stuðning í verki í leikjum helgarinnar eftir að Hermosofékk óumbeðinn rembingskoss frá Luis Rubiales, forseta spænska knattspyrnusambandsins. Fótbolti 28. ágúst 2023 09:31
Arsenal lánar Tierney til Spánar Varnarmaðurinn Kieran Tierney er genginn í raðir spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Sociedad á láni frá Arenal. Fótbolti 28. ágúst 2023 08:31
Múrsteini kastað í liðsrútu Aston Villa eftir sigurinn gegn Burnley Liðsmenn Aston Villa lentu í heldu í heldur óskemmtilegu atviki er liðið gerðaðist heim eftir góðan 1-3 útisigur gegn Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum í Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar múrsteini var kastað í liðsrútuna. Fótbolti 28. ágúst 2023 07:31
Verður sá launahæsti í heimi Roberto Mancini hefur tekið við stöðu landsliðsþjálfara Sádi Arabíu. Samningurinn gerir hann að hæstlaunaðasta knattspyrnustjóra í heiminum. Fótbolti 27. ágúst 2023 23:00
Annar krísufundur framundan hjá Spánverjum Spænska knattspyrnusambandið hefur boðað til annars krísufundar á morgun vegna málefna forsetans Luis Rubiales. Forsetinn neitar að hætta en FIFA hefur dæmt hann í þriggja mánaða bann. Fótbolti 27. ágúst 2023 21:31
Albert byrjaði í sigri Genoa | Öruggur sigur meistaranna Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem lagði Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Meistarar Napoli eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki. Fótbolti 27. ágúst 2023 20:56
„Ég sagði við hann eftir leikinn að hann yrði á miðjunni í næsta leik“ Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum ánægður með 2-0 sigur liðsins gegn Fylki í dag. KR-ingar spiluðu mjög vel í fyrri hálfleik og höfðu öll tök á leiknum en Aron Snær Friðriksson, markvörður liðsins fékk beint rautt spjald í upphafi seinni hálfleiks þegar hann handlék boltann fyrir utan teig sem breytti leiknum. Fótbolti 27. ágúst 2023 20:32
Haraldur Freyr: Ætli þetta séu ekki sanngjörn úrslit Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur að hafa ekki hrósað sigri gegn Fram í dag en segir þó jafntefli líklega sanngjarna niðurstöðu. Fótbolti 27. ágúst 2023 19:41
Óskar Hrafn skaut fast á Víkinga: Þeir hafa ekki verið í þessari stöðu sem við erum í Óskar Hrafn Þorvaldsson skaut föstum skotum að Víkingum í viðtali fyrir umtalaðan leik liðanna í Bestu deildinni sem nú er í gangi. Blikar mættu í Víkina aðeins tæpum hálftíma áður en leikurinn hófst. Fótbolti 27. ágúst 2023 19:35
Blikar létu bíða eftir sér í Víkinni Lið Breiðabliks lét heldur betur bíða eftir sér fyrir leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að hefjast nú klukkan 19:15. Hálftíma fyrir leik hafði ekkert sést til liðs Breiðabliks í Víkinni. Fótbolti 27. ágúst 2023 18:55
Íslendingar í eldlínunni á Norðurlöndunum Fjölmargir leikir fóru fram í Noregi og Svíþjóð í dag. Óskar Borgþórsson skoraði fyrir Sogndal og þá spilaði Valgeir Lunddal Friðriksson í nágrannaslag í Gautaborg. Fótbolti 27. ágúst 2023 18:06
Rússíbanareið þegar Barcelona vann góðan útisigur Barcelona vann 4-3 sigur á Villareal þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn var mikil rússíbanareið þar sem liðin skiptust á að hafa forystuna. Fótbolti 27. ágúst 2023 17:55
Tvö mörk frá Kane í sigri Bayern Harry Kane sýndi í dag af hverju Bayern borgaði fullt af peningum fyrir hann í sumar. Kane skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Bayern gegn Augsburg. Fótbolti 27. ágúst 2023 17:45
Hákon Arnar skipt út í fyrri hálfleik í tapi Lille Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille í tapi liðsins gegn Lorient í dag. Lorient fór með sigur af hólmi og fyrsta tap Lille í deildinni því staðreynd. Fótbolti 27. ágúst 2023 17:22
Valskonur með átta stiga forskot á toppnum Valur vann öruggan 4-1 sigur á Keflavík í Bestu deild kvenna í dag. Á sama tíma tapaði Breiðablik fyrir Þrótti og fer Valur því með átta stiga forskot inn í lokahluta Íslandsmótsins. Fótbolti 27. ágúst 2023 16:51
Elliði og Elvar markahæstir í sigurleikjum sinna liða Melsungen og Gummersbach unnu opnunarleiki sína í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag og voru Íslendingarnir í liðunum atkvæðamiklir. Sport 27. ágúst 2023 16:36
Ítalíumeistarar Napólí hafa augastað á Alberti Guðmundssyni Ítalíumeistarar Napólí eru sagðir hafa augastað á Alberti Guðmundssyni sem leikur með nýliðum Genoa í Seríu-A en honum sé ætlað að leysa hinn mexíkóska Hirving Lozano af hólmi. Ekkert er þó frágengið í þessu máli. Fótbolti 27. ágúst 2023 14:30
AGF vann Íslendingaslaginn gegn Lyngby Það var boðið upp á Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag þegar AGF tók á móti Lyngby. Stöðva þurfti leikinn í rúmar 20 mínútur þegar 88:30 voru komnar á klukkuna vegna þrumuveðurs. Fótbolti 27. ágúst 2023 14:16
Leik Breiðabliks og Víkings í kvöld verður ekki frestað Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest fyrri ákvörðun sína um að leik Breiðabliks og Víkings sem fram fer í kvöld verði ekki frestað. Breiðablik hafði óskað eftir því að KSÍ myndi endurskoða ákvörðun sína um að fresta ekki en sú ákvörðun stendur. Fótbolti 27. ágúst 2023 13:01
Manchester United vilja fá Cucurella lánaðan frá Chelsea Manchester United eru í neyðarleit að vinstri bakverði til að leysa Luke Shaw af næstu vikur. Marc Cucurella, leikmaður Chelsea, er sagður koma sterklega til greina og að viðræður á milli United og Chelsea séu þegar farnar af stað. Fótbolti 27. ágúst 2023 11:30
Messi lyfti Inter af botninum Lionel Messi heldur áfram að gera það gott hjá Inter Miami en liðið vann í nótt sinn fyrsta deildarleik í háa herrans tíð og lyfti sér af botni deildarinnar. Messi innsiglaði sigur liðsins með laglegu marki undir lok leiks. Fótbolti 27. ágúst 2023 09:33
Höskuldur markahæstur í allri Evrópu Næsta vor má gera ráð fyrir því að menn á borð við Erling Braut Haaland, Kylian Mbappe eða Harry Kane verði markahæstu menn í Evrópukeppnunum. Nú heitir sá markhæsti Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika. Fótbolti 26. ágúst 2023 23:01