Elfsborg áfram á toppnum eftir jafntefli við Gautaborg Elfsborg er áfram á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni, en naumlega þó, eftir 1-1 jafntefli gegn Gautaborg í dag. Fótbolti 16. júlí 2023 15:28
Riga FC á fleygiferð í bikarnum Það er þétt dagskrá hjá Riga FC, andstæðingum Víkings í Sambandsdeildinni, þessa dagana. Liðið fór auðveldlega í gegnum bikarleik sinn í dag og mætir svo Víkingum á fimmtudaginn. Fótbolti 16. júlí 2023 11:54
Jankto fyrsti opinberlega samkynhneigði leikmaðurinn í topp fimm deild í Evrópu Tékkneski landsliðsmaðurinn Jakub Jankto er genginn til liðs við Cagliari sem leikur í Seríu A á Ítalíu. Jankto brýtur þar með blað í sögunni en hann er fyrsti opinberlega samkynhneigði leikmaðurinn til að spila í topp fimm deild í Evrópu. Fótbolti 16. júlí 2023 11:26
Gengur hvorki né rekur hjá Messi og félögum Inter Miami situr sem fastast á botni MLS deildarinnar í Bandaríkjunum, en liðið tapaði nokkuð örugglega fyrir Saint Louis City á útivelli í nótt, 3-0. Lionel Messi á enn eftir að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið. Fótbolti 16. júlí 2023 09:42
Ramsey-feðgar skrifuðu undir hjá uppeldisfélagi föðursins Velski knattspyrnumaðurinn Aaron Ramsey, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Juventus, er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Cardiff. Elsti sonur hans, Sonny, skrifaði einnig undir samning. Fótbolti 16. júlí 2023 09:01
Sýndu að konurnar geti kallað fram sömu tilfinningar og karlarnir Franska fjarskiptafyrirtækið Orange sendi frá sér magnaða auglysingu í aðdraganda heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu þar sem sýnt er fram á að kvennaliðið geti auðveldlega kallað fram sömu tilfinningar hjá aðdáendum og karlaliðið. Fótbolti 15. júlí 2023 23:32
Rice þakkar fyrir sig: „Metnaðurinn alltaf legið í að spila á hæsta getustigi“ Enski landsliðsmaðurinn Declan Rice varð fyrr í dag dýrasti leikmaður Arsenal frá upphafi er hann gekk í raðir félagsins frá West Ham fyrir 105 milljónir punda. Fótbolti 15. júlí 2023 22:46
Inter hafi ekki lengur áhuga á Lukaku Ítalska úrvalsdeildarfélagið Inter Milan hefur ekki lengur áhuga á að festa kaup á belgíska framherjanum Romelu Lukaku frá Chelsea. Fótbolti 15. júlí 2023 22:01
Kaupa leikmann frá Rúmeníu en fá hann ekki fyrr en í janúar Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton & Hove Albion hefur komist að samkomulagi við rúmenska félagið FCV Farul Constanta um kaup á kantmanninum Adrian Mazilu. Leikmaðurinn gengur þó ekki í raðir félagsins fyrr en næsti félagsskiptagluggi opnar. Fótbolti 15. júlí 2023 21:30
Mike Dean hættir alfarið eftir 28 ára feril Enski knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur ákveðið að hætta alfarið í dómgæslu eftir 28 ára langan feril. Fótbolti 15. júlí 2023 20:45
Fullyrða að FH sé að sækja KR-ing Grétar Snær Gunnarsson, leikmaður KR í Bestu-deild karla í knattspyrnu, er á leið til FH. Fótbolti 15. júlí 2023 20:00
Liverpool gefur Fabinho leyfi fyrir því að semja við Al-Ittihad Fátt virðist geta komið í veg fyrir að brasilíski miðjumaðurinn Fabinho gangi í raðir sádiarabíska liðsins Al-Ittihad frá Liverpool. Fótbolti 15. júlí 2023 19:16
Messi kynntur til leiks hjá Inter Miami Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, er opinberlega genginn til liðs við Inter Miami. Fótbolti 15. júlí 2023 18:38
Valgeir og félagar á toppinn eftir dramatískan sigur Valgeir Lunddal Friðriksson og félagar hans í Häcken unnu dramatískan 4-2 sigur er liðið tók á móti Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 15. júlí 2023 17:54
Declan Rice formlega orðinn leikmaður Arsenal Declan Rice er nú loks formlega orðinn leikmaður Arsenal, en hann skrifaði undir samning við liðið nú rétt í morgun. Samningurinn er til ársins 2028 með möguleika á framlengingu. Fótbolti 15. júlí 2023 13:31
West Ham kveður Declan Rice með tilfinningaþrungnu myndbandi West Ham staðfesti formlega í morgun að fyrirliði liðsins, Declan Rice, hefði yfirgefið liðið. Hann fékk höfðinglegar kveðjur á samfélagsmiðlum liðsins með tilfinningaþrungnu myndbandi. Fótbolti 15. júlí 2023 12:01
Van der Sar kominn heim til Hollands en áfram á gjörgæslu Edwin Van der Sar, fyrrverandi markvörður Manchester United og hollenska landsliðsins, var í gærkvöldi fluttur með sjúkraflugi frá Króatíu heim til Hollands. Hann hefur verið á gjörgæslu síðan 7. júlí vegna blæðinga inn á heila. Fótbolti 15. júlí 2023 11:30
Fabinho ekki með Liverpool til Þýskalands | Stórt tilboð frá Al-Ittihad á borðinu Liverpool héldu í morgun í æfingaferð til Þýskalands með 32 manna hóp en Fabinho er ekki á meðal þeirra leikmanna. Á borði félagsins er 40 milljón punda tilboð frá Al-Ittihad en Fabinho hefur þegar samþykkt launatilboðið frá Sádunum. Fótbolti 15. júlí 2023 11:00
Frumsýningu á Kenilworth Road í ensku úrvalsdeildinni seinkað Fyrsta heimaleik Luton Town í sögunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla hefur verið verið frestað þar sem heimavöllur liðsins verður ekki klár í tæka tíð fyrir leik liðsins gegn Burnley. Fótbolti 15. júlí 2023 06:01
Ágúst Eðvald ósáttur við að fá gult spjald fyrir dýfu Ágúst Eðvald skoraði eina mark leiksins á 2. mínútu þegar Breiðablik vann nauman sigur gegn Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Ágúst Eðvald segir góða byrjun hafa lagt grunninn að sigrinum. Fótbolti 15. júlí 2023 00:04
Jón Þórir: „Með þessari vinnusemi vinnum við hvaða lið sem er“ Jón Sveinsson, þjálfari Fram, var eðlilega ósáttur með niðurstöðuna þegar lið hans tapaði fyrir Breiðabliki, 0-1, í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Jón sagðist þó heilt yfir ánægður með frammistöðu síns liðs. Fótbolti 14. júlí 2023 23:56
Óskar Hrafn: „Erum að horfa á kommóðu og í henni eru margar skúffur“ Breiðablik fór með eins marks sigur af hólmi gegn Fram fyrr í kvöld. Blikarnir komust yfir á 2. mínútu, urðu manni fleiri á 48. mínútu og virtust ætla að sigla sigrinum örugglega heim en voru tæpir að missa leikinn í jafntefli á lokamínútum. Fótbolti 14. júlí 2023 23:52
Orri Steinn á skotskónum fyrir FC Köbenhavn Orri Steinn Óskarsson skoraði seinna mark FC Köbenhavn þegar liðið laut í lægra haldi fyrir tékkneska liðinu Viktoria Plzen, 3-2, í æfingaleik í fótbolta karla í dag. Fótbolti 14. júlí 2023 23:01
PSG blandar sér í baráttuna um Kane Franska félagið PSG hyggst bjóða í Harry Kane, framherja Tottenham Hotspur og enska karlalandsliðsins í fótbolta, en Kane hefur undanfarna daga verið sterklega orðaður við Bayern München. Fótbolti 14. júlí 2023 22:02
„Ég læri af þessum mistökum“ Berglin Rós Ágústsdóttir skoraði eina mark Íslands er liðið mátti þola 2-1 tap gegn Finnlandi í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Hún segist hafa séð margt jákvætt í leik íslenska liðsins sem hægt sé að taka með sér í næsta leik. Fótbolti 14. júlí 2023 20:29
Umfjöllun: Ísland - Finnland 1-2 | Tap í fyrsta heimaleik ársins Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mátti þola 2-1 tap er liðið tók á móti Finnum í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld. Berglind Rós Ágústsdóttir skoraði mark Íslands eftir að Eveliina Summanen og Jutta Rantala höfðu komið Finnum tveimur mörkum yfir. Fótbolti 14. júlí 2023 19:57
Rúnar Þór og Alex Þór spiluðu í sigri Rúnar Þór Sigurgeirsson og Alex Þór Hauksson léku báðir með Öster þegar liðið bar sigur úr býtum, 2-1, í leik sínum við Skövde AIK í sænsku B-deildinni í fótbolta karla í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 18:58
Leik hætt vegna of mikillar hörku Það var ekki mikil vinátta á milli leikmanna Írlands og Kólumbíu í vináttulandsleik liðanna í fótbolta kvenna sem fram fór í dag. Leiknum sem var liður í undirbúningi þessara liða fyrir heimeistaramótið sem hefst í Ástralíu og Nýja-Sjálandi eftir sex daga. Fótbolti 14. júlí 2023 18:34
Klopp lánar miðvörð til gamla félagsins síns Hollenski varnarmaðurinn Sepp van den Berg fær ekki tækifærið hjá Liverpool á komandi tímabili því félagið hefur lánað hann enn einu sinni. Fótbolti 14. júlí 2023 16:30
Sif og Söndru þakkað fyrir á Laugardalsvellinum í kvöld Tvær öflugar knattspyrnukonur sem hafa gefið íslenska kvennafótboltanum mikið í gegnum árin verða heiðraðar í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 16:13
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn