Einkunnir Íslands: Guðlaugur Victor aftur bestur Þrátt fyrir stórgóða frammistöðu þurfti íslenska karlalandsliðið í fótbolta að sætta sig við tap fyrir Portúgal, 0-1, í undankeppni EM 2024 í kvöld. Fótbolti 20. júní 2023 21:08
Ronaldo heiðraður á Laugardalsvelli Cristiano Ronaldo fékk afhenta viðurkenningu fyrir leik Íslands og Portúgals sem nú er í gangi. Ronaldo er að leika sinn tvöhundruðasta landsleik á ferlinum í kvöld. Fótbolti 20. júní 2023 19:06
Nkunku orðinn leikmaður Chelsea Franski framherjinn Christopher Nkunku er orðinn leikmaður Chelsea. Kemur hann frá þýska félaginu RB Leipzig og kostar 52 milljónir punda [rúma 9 milljarða íslenskra króna]. Enski boltinn 20. júní 2023 18:30
Fjölmargir mættir utan við Laugardalsvöll Fjölmargir hafa safnast saman við Laugardalsvöll til að fylgjast með landsleik Íslands og Portúgal sem hefst innan skamms. Fótbolti 20. júní 2023 18:15
Byrjunarliðið gegn Portúgal: Aron Einar úti en Arnór Ingvi inn Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta gerir eina breytingu á byrjunarliði Íslands fyrir leik liðsins við Portúgal í undankeppni EM 2024 sem hefst á Laugardalsvelli klukkan 18:45. Fótbolti 20. júní 2023 17:33
Ronaldo fremstur í flokki í gríðarsterku byrjunarliði Portúgala Cristiano Ronaldo er í byrjunarliði Portúgal sem mætir Íslandi á Laugardalsvelli nú á eftir. Ronaldo leikur þar með sinn tvöhundruðasta landsleik á ferlinum. Fótbolti 20. júní 2023 17:32
Fjöldi leikja færður vegna þátttöku U-19 ára landsliðsins á EM Íslenska U-19 ára landsliðið í knattspyrnu tekur þátt í úrslitakeppni EM 2023 í sumar. Sökum þess hefur fjöldi leikja í Bestu deild karla og Lengjudeild karla verið færður til. Sjá má leikina hér að neðan. Íslenski boltinn 20. júní 2023 17:01
Krakkar biðu í ofvæni við hótel Ronaldos Stór hópur ungra aðdáenda stjarnanna í portúgalska landsliðinu í fótbolta bíður þessa stundina við hótel liðsins, Grand Hótel, í von um að sjá leikmennina og fá mögulega eiginhandaráritun. Fótbolti 20. júní 2023 16:08
Til liðs við Reggístrákana hans Heimis: „Jamaíka hefur alltaf verið mér ofarlega í huga“ Demarai Gray, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Everton, hefur ákveðið að gefa Heimi Hallgrímssyni, þjálfara Jamaíka, möguleika á að velja sig í komandi verkefni. Enski boltinn 20. júní 2023 15:30
Hvergi bangnir þrátt fyrir að hafa spilað 130 leiki án sigurs San Marínó tapaði 6-0 fyrir Finnlandi í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu í gær, mánudag. Þjóðin hefur nú spilað 130 leiki án sigurs og situr sem fastast í botnsæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Fótbolti 20. júní 2023 15:01
Segir landsliðsþjálfara Belgíu ljúga Thibaut Courtois, markvörður Real Madríd og belgíska landsliðsins, er verulega ósáttur með ummæli Domenico Tedesco, landsliðsþjálfara Belgíu. Fótbolti 20. júní 2023 14:01
Arsenal snýr sér að Rice eftir að tilboði í Timber var hafnað Tilboði Arsenal í hinn 22 ára gamla Jurriën Timber, varnarmann Ajax, hefur verið neitað. Skytturnar hafa nú sett allt púður í að sækja Declan Rice, fyrirliða West Ham United. Enski boltinn 20. júní 2023 13:01
Seilast langt eftir miða og KSÍ biður fólk að hætta að hringja „Það er mjög mikið verið að hringja inn og spyrja um miða,“ segir Ómar Smárason, yfirmaður samskiptadeildar Knattspyrnusambands Íslands, en margir reyna nú að verða sér úti um miða á leik Íslands gegn Portúgal á Laugardalsvelli í kvöld. Fótbolti 20. júní 2023 12:30
Blikar mæta írsku meisturunum ef allt gengur upp Íslandsmeistarar Breiðabliks mæta írsku meisturunum úr Shamrock Rovers í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu, takist Blikum að komast áfram úr fjögurra liða forkeppninni sem þeir taka þátt í. Íslenski boltinn 20. júní 2023 12:15
Ronaldo svarar Åge: „Ég er vanur þessu“ „Ég er vanur þessu,“ sagði portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo á blaðamannafundi portúgalska landsliðsins fyrir leik liðsins gegn Íslandi í undankeppni EM sem fram fer í dag þegar hann var spurður út í ummæli Åge Hareide um að íslenska liðið ætlaði sér að láta hann finna fyrir því í leiknum. Fótbolti 20. júní 2023 11:30
Albert eftirsóttur Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson virðist á óskalista þónokkurra liða í Serie A, ítölsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Hann var á dögunum orðaður við stórveldið AC Milan en nú hafa þrjú ný lið verið nefnd til sögunnar. Fótbolti 20. júní 2023 09:00
Einkaklefinn, leiðindin við Aron og tímamótin á Íslandi Frægasti íþróttamaður heims, Cristiano Ronaldo, lenti á Íslandi í gær og heimsækir nú landið í að minnsta kosti þriðja sinn. Fyrir sjö árum skapaði þessi 38 ára Portúgali sér miklar óvinsældir hjá íslensku þjóðinni en óvíst er hvernig honum verður tekið á Laugardalsvelli í kvöld, í sannkölluðum tímamótaleik. Fótbolti 20. júní 2023 08:00
„Vakna alla morgna með hausverk“ Knattspyrnumaðurinn Ísak Snær Þorvaldsson hefur glímt við einkenni höfuðmeiðsla undanfarnar vikur og er nýfarinn að treysta sér út úr húsi. Hann vaknar alla morgna með höfuðverk. Fótbolti 20. júní 2023 07:31
Draumaviðbót við Al Nassr væri Íslendingur segir Cristiano Ronaldo Cristiano Ronaldo var léttur í lundu á blaðamannafundi Portúgals í dag fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. Þegar Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolti.net, spurði Ronaldo hvaða leikmann hann myndi vilja fá til Al Nassr glotti hann og svaraði hratt: „Þig!“ Fótbolti 19. júní 2023 23:30
Myndir: Létt yfir Ronaldo og félögum á æfingu í Laugardalnum Portúgalska landsliðið æfði á Laugardalsvelli í dag í undirbúningi sínum fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. Mikill fjölda áhorfenda var mættur á völlinn til að berja stjörnur Portúgals augum. Fótbolti 19. júní 2023 22:15
Frakkar með fullt hús stiga í B-riðli eftir 1-0 sigur á Grikkjum Frakkland er með fullt hús stiga í B-riði í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Grikkland. Frakkar hafa oft leikið betur en í kvöld en það kom ekki í veg fyrir að þeim tækist að landa sigri. Fótbolti 19. júní 2023 21:30
Toppsætið úr greipum beggja liða Slóvenía tók á móti Danmörku í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu í kvöld. Fyrir leiki kvöldsins voru fjögur lið jöfn í H-riðli með 6 stig og tvö þeirra mættust í kvöld. Hvorugu liðinu tókst þó að skjótast á toppinn en liðin skildu jöfn, 1-1. Fótbolti 19. júní 2023 20:52
Englendingar völtuðu yfir Norður-Makedóna England tók á móti Norður Makedóníu í undankeppni EM 2024 í kvöld. Gestirnir þurftu kraftaverk til að fá eitthvað út úr leiknum en voru ekki bænheyrðir. Fótbolti 19. júní 2023 20:45
Átti hina fullkomnu spyrnu í hálfleik Stórskemmtilegt atvik átti sér stað í hálfleik á leik San José Earthquakes og Portland Timbers í MLS-deildinni í knattspyrnu. Leikurinn sjálfur endaði með markalausu jafntefli en atvikið sem um er ræðir fór eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Fótbolti 19. júní 2023 20:01
U21 landslið Íslands lagði Ungverjaland 1-0 U21 landslið Íslands og Ungverjalands mættust í æfingaleik í dag á Bozsik Aréna í Ungverjalandi, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í uppbótartíma. Danijel Djuric, leikmaður Víkings, skoraði eina mark leiksins. Fótbolti 19. júní 2023 19:28
Guðrún skoraði í stórsigri Rosengård Rosengård vann 5-2 sigur á IK Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í dag en íslenska landsliðskonan og varnarjaxlinn Guðrún Arnardóttir kom sínu liði í 3-1 á 59. mínútu. Fótbolti 19. júní 2023 18:55
Finnar á toppinn í H-riðli eftir stórsigur á San Marínó Finnland tók San Marínó í kennslustund í H-riðli undankeppni Evrópumótsins í fótbolta í dag en leiknum lauk með 6-0 sigri Finnlands. Fótbolti 19. júní 2023 18:02
Mættur aftur til Celtic eftir að vera sparkað frá Leicester City Knattspyrnustjórinn Brendan Rodgers er tekinn við skoska stórveldinu Celtic á nýjan leik. Fótbolti 19. júní 2023 17:16
Svona var fundur Portúgals í Laugardal fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Portúgals, sat fyrir svörum ásamt Cristiano Ronaldo blaðamannafundi á Laugardalsvelli, degi fyrir leik Íslands og Portúgals í undankeppni EM karla í fótbolta. Fundurinn var sýndur á Vísi. Fótbolti 19. júní 2023 16:30
Aron biður Ronaldo ekki um treyjuna og Åge vill skemma partýið Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var spurður út í það þegar Cristiano Ronaldo neitaði honum um treyjuskipti, á EM 2016, á blaðamannafundi í dag og hann ætlar ekki að endurtaka leikinn á morgun, þegar Ísland og Portúgal mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM í fótbolta. Fótbolti 19. júní 2023 16:03
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn