Hamrarnir í brasi í Belgíu West Ham United náði aðeins jafntefli gegn Gent i fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Lokatölur 1-1 og allt í járnum fyrir síðari leik liðanna í Lundúnum eftir viku. Fótbolti 13. apríl 2023 19:15
Glæsimark Wieffer kom Feyenoord yfir í einvíginu Feyenoord vann 1-0 sigur á Roma í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Rómverjar klúðruðu vítaspyrnu í leiknum. Fótbolti 13. apríl 2023 18:45
Reynslumikill fyrrverandi þjálfari Danmerkur og Noregs á óskalista KSÍ KSÍ hefur sett sig í samband við, hinn norska þjálfara, Age Hareide um að taka við karlalandsliði Íslands. Fótbolti 13. apríl 2023 16:51
Þjálfari Ronaldos rekinn Rudi Garcia hefur verið rekinn þjálfari Al Nassr í Sádí-Arabíu. Langskærasta stjarna liðsins er Cristiano Ronaldo. Fótbolti 13. apríl 2023 16:32
„Ætlar hann að skjóta úr þessu?“ „Hvað er í gangi þarna, eigum við að ræða þetta eitthvað? Ég ætla að gera ráð fyrir því að hann sé á æfingasvæðinu og sé að setja boltann af þessu færi í samskeytin mjög reglulega. Annars getur ekki verið að hann fái að skjóta boltanum þaðan. Hvaða vitleysa er þetta?“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, sérfræðingur Bestu deildar Stúkunnar sem var vægast sagt hissa á tilraun Sveins. Fótbolti 13. apríl 2023 15:31
Mané fékk bann og sekt fyrir kjaftshöggið Forráðamenn Bayern München hafa ákveðið að setja Sadio Mané í bann og sekta hann fyrir að slá liðsfélaga sinn, Leroy Sané, eftir tapið gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í fyrrakvöld. Fótbolti 13. apríl 2023 15:00
Segir Mourinho að troða bikarsafninu þar sem sólin skín ekki Það verður seint sagt að José Mourinho, knattspyrnustjóra Roma á Ítalíu, og Antonio Cassano, fyrrverandi leikmanni Roma sem og ítalska landsliðsins, sé vel til vina. Fótbolti 13. apríl 2023 12:31
Sáttafundur í morgun en Mané gæti fengið þunga refsingu Leroy Sané og Sadio Mané voru báðir mættir á æfingu Bayern München í morgun eftir að upp úr sauð þeirra á milli í Manchester í fyrrakvöld, eftir 3-0 tapið gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Fótbolti 13. apríl 2023 11:30
Segir leikmenn skorta trú en allt geti gerst á Brúnni Frank Lampard, tímabundinn stjóri Chelsea, hafði ekki gefið upp alla von þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir 2-0 tap sinna manna á Santiago Bernabéu í fyrri leik Chelsea og Real Madríd í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 13. apríl 2023 10:30
Sjáðu mörk Real gegn Chelsea og rauða spjaldið Evrópumeistarar Real Madrid eru í góðum málum í einvígi sínu við Chelsea í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, eftir 2-0 heimasigur í gær. Mikil spenna er í einvígi AC Milan og Napoli eftir 1-0 heimasigur Milan. Fótbolti 13. apríl 2023 10:04
Leikur FH og Stjörnunnar færður fram um klukkustund Þó hvorugu liðinu sé spáð frábæru gengi í sumar þá er leikur FH og Stjörnunnar umtalaðasti leikur 2. umferðar Bestu deildar karla í knattspyrnu. Hann hefur nú verið færður fram um klukkustund vegna handboltaleiks FH sama dag. Íslenski boltinn 13. apríl 2023 09:31
Vindurinn stendur undir nafni Landsliðsmaðurinn fyrrverandi Birkir Már Sævarsson er með gælunafnið „Vindurinn“ vegna þess gríðarlega hraða sem hann býr yfir. Þrátt fyrir að vera orðinn 38 ára gamall virðist ekkert farið að hægjast á Birki Má sem var fljótasti leikmaður Vals í 1. umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 13. apríl 2023 08:31
Ætla ekki að reka manninn sem ráðinn var fyrir rétt rúmum mánuði Knattspyrnustjórinn Chris Wilder er tiltölulega nýtekinn við sem stjórn enska B-deildarliðsins Watford. Samt sem áður fann félagið sig knúið að gefa út tilkynningu þess efnis að staða hans væri ekki í hættu en Watford hefur aðeins unnið einn leik af þeim sex sem Watford hefur stýrt. Enski boltinn 13. apríl 2023 07:30
„Fannst þeir fara miklu oftar upp bakvið Kennie“ Lárus Orri Sigurðsson leikgreindi viðureign KA og KR í 1. umferð Bestu deildar karla í Stúkunni að leik loknum. Farið var yfir sóknarleik heimamanna í leiknum en þær fóru flestar upp vinstri vænginn, í svæðið sem Kennie Chopart – hægri bakvörður KR – hafði skilið eftir á bakvið sig. Íslenski boltinn 12. apríl 2023 23:31
Eins ítalskt og það verður hjá AC Milan AC Milan, liðið sem situr í 4. sæti Serie A með 52 stig, vann 1-0 sigur á Napoli, liðinu í 1. sæti Serie A með 74 stig, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 12. apríl 2023 21:25
Evrópumeistararnir í góðri stöðu Evrópumeistarar Real Madríd lögðu Chelsea 2-0 í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeild Evrópu er liðin mættust á Santiago Bernabéu í Madríd. Fótbolti 12. apríl 2023 21:05
Mané og Sané slógust inn í klefa Leikmenn Bayern München voru eðlilega nokkuð ósáttir eftir 3-0 tap á Etihad-vellinum í Manchester á þriðjudagskvöld. Sumir voru þó pirraðri en aðrir. Fótbolti 12. apríl 2023 20:30
Ekki talið að Rashford verði frá keppni út tímabilið Marcus Rashford missir af leik Manchester United og Sevilla í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í knattspyrnu annað kvöld. Hann verður þó ekki frá út tímabilið eins og svartsýnasta fólk taldi eftir að hann haltraði af velli í síðasta leik Man United. Enski boltinn 12. apríl 2023 19:00
Útskýrði af hverju Stjarnan getur ekki skipt á heimaleikjum við FH Helgi Hrannarr Jónsson, formaður meistaraflokksráðs Stjörnunnar, hefur útskýrt af hverju félagið vildi ekki skipta á heimaleikjum við FH í Bestu deild karla í knattspyrnu. Allar líkur eru á að leikur liðanna í 2. umferð fari fram á frjálsíþróttarvelli FH-inga. Íslenski boltinn 12. apríl 2023 18:31
Sjáðu hamarinn hjá Rodri og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Manchester City vann öruggan 3-0 heimasigur á Bayern München í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld og Inter lagði Benfica í Lissabon 2-0. Mark Rodri, miðjumanns City, bar af. Fótbolti 12. apríl 2023 16:00
„Ég er leiður því ég á frábærar minningar þaðan“ Knattspyrnustjóri Real Madrid, Carlo Ancelotti, var spurður hvort hann væri leiður að sjá Chelsea í þeirri stöðu sem liðið er í og hvort hann myndi íhuga að taka aftur við liðinu. Fótbolti 12. apríl 2023 14:30
Mun gefa Messi knús en senda Mbappé heim í sjúkrabíl Argentínumaðurinn Facundo Medina kveðst klár í slaginn fyrir toppslag Lens og Paris Saint-Germain í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Stjörnur liðsins munu hins vegar fá misjafnar móttökur hjá kauða. Fótbolti 12. apríl 2023 14:01
Söluferlið lengist og Glazer-fjölskyldan freistar þess að fá meira Hin bandaríska Glazer-fjölskylda, sem á enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United, hefur opnað fyrir þriðju umferð tilboða í félagið. Eigendurnir flýta sér hægt, freista þess að fá hærri boð í félagið og alls er óvíst að það takist að selja félagið fyrir lok yfirstandandi leiktíðar. Enski boltinn 12. apríl 2023 12:46
Vilja reynslubolta í stað Arnars og fengu alls konar ábendingar Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, segir að markmiðið sé að næsti þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta verði þjálfari með mikla, alþjóðlega reynslu. Fáir íslenskir þjálfarar passi við það viðmið. Fótbolti 12. apríl 2023 11:16
Handtekinn grunaður um nauðgunartilraun og heróínvörslu Ísraelski markvörðurinn Boris Klaiman, sem leikur með Volos í grísku úrvalsdeildinni, var handtekinn í gær eftir að 17 ára stúlka sakaði hann um tilraun til nauðgunar. Fótbolti 12. apríl 2023 11:01
Ætla að greiða hæsta fé sem greitt hefur verið fyrir fótboltakonu Barcelona ætlar að freista þess að fá til sín norsku knattspyrnustjörnuna Ödu Hegerberg í sumar og er reiðubúið að greiða Lyon metfé og jafnframt að gera Hegerberg að einni launahæstu knattspyrnukonu heims. Fótbolti 12. apríl 2023 09:31
Þjálfarinn sagður rekinn eftir megna óánægju Ronaldos Dagar franska þjálfarans Rudi García sem þjálfari Al Nassr í Sádi-Arabíu virðast vera taldir. Spænska blaðið Marca fullyrðir að hann hafi þegar verið rekinn og vísar í sádi-arabíska miðla. Ástæðan mun meðal annars vera megn óánægja aðalstjörnu liðsins, Cristiano Ronaldo, og fleiri leikmanna í garð Frakkans. Fótbolti 12. apríl 2023 08:31
Liverpool dregur sig úr kapphlaupinu um Bellingham Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool mun ekki reyna að kaupa ungstirnið Jude Bellingham frá Borussia Dortmund í sumar þar sem hár verðmiði myndi gera félaginu erfitt fyrir að endurbyggja liðið sem Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er með í höndunum. Fótbolti 12. apríl 2023 07:01
Hóf þjálfaraferilinn í efstu deild á lygilegum sigri: „Er í þessu fyrir þessar tilfinningar“ Hann byrjaði þjálfaraferil sinn í efstu deild með lygilegum sigri gegn Íslandsmeisturunum og erkifjendunum. Ómar Ingi Guðmundsson fer af stað með látum í Bestu-deildinni. Fótbolti 11. apríl 2023 23:01
Inter komið hálfa leið í undanúrslit Inter Milan vann mikilvægan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Benfica í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 11. apríl 2023 20:56