Dramatískur sigur Barcelona sem er komið með níu fingur á titilinn Barcelona tók á móti Real Madríd í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Gestirnir urðu að vinna El Clásico ætluðu þeir sér að eiga möguleika á að verja meistaratitil sinn. Allt kom fyrir ekki þar sem Börsungar skoruðu sigurmarkið í uppbótartíma, lokatölur á Nývangi 2-1 og titillinn svo gott sem mættur til Katalóníu. Fótbolti 19. mars 2023 22:15
Juventus heldur í vonina um Meistaradeildarsæti Þrátt fyrir að fimmtán stig hafi verið tekin af liðinu þá heldur Juventus enn í vonina um Meistaradeildarsæti að leiktíðinni lokinni. Liðið vann gríðarlega mikilvægan 1-0 útisigur á Inter Milan í kvöld. Fótbolti 19. mars 2023 21:50
Lazio vann slaginn um Róm Lazio hafði betur gegn Roma í slagnum um Rómarborg í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Lokatölur í leik dagsins 1-0 Lazio í vil. Fótbolti 19. mars 2023 19:06
Tvær vítaspyrnur Leverkusen komu í veg fyrir að Bayern kæmist aftur á toppinn Bayer Leverkusen vann 2-1 sigur á Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tap Bæjara þýðir að liðið er í 2. sæti þegar níu umferðir eru eftir. Fótbolti 19. mars 2023 18:50
Sjáðu mörkin: Ótrúlegur viðsnúningur Man United sem er komið í undanúrslit Manchester United er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar eftir ótrúlegan 3-1 sigur á Fulham þar sem gestirnir frá Lundúnum fengu að líta þrjú rauð spjöld á aðeins nokkrum sekúndum er Man United sneri leiknum sér í hag. Enski boltinn 19. mars 2023 18:30
PSG tapaði óvænt á heimavelli Frakklandsmeistarar París Saint-Germain töpuðu óvænt 0-2 á heimavelli fyrir Rennes í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 19. mars 2023 18:16
Brighton þægilega í undanúrslitin Brighton & Hove Albion er komið í undanúrslit FA-bikarkeppninnar á Englandi eftir 5-0 sigur á D-deildarliði Grimsby Town í dag. Enski boltinn 19. mars 2023 16:45
Alfreð skoraði fyrir Lyngby og Hákon fyrir FCK Alfreð Finnbogason heldur áfram að skora mikilvæg mörk fyrir Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni, en hann skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli gegn Horsens í dag. Þá skoraði Hákon Arnar Haraldsson fyrra mark FCK í 2-1 sigri gegn Viborg. Fótbolti 19. mars 2023 16:30
Napoli valtaði yfir Torino og titillinn blasir við Það virðist vera fátt sem getur komið í veg fyrir það að Napoli tryggi sér ítalska meistaratitilinn í knattspyrnuí fyrsta skipti síðan árið 1990. Liðið er með 21 stigs forskot eftir afar sannfærandi 4-0 sigur gegn Torino í dag. Fótbolti 19. mars 2023 16:15
Arsenal með átta stiga forskot eftir sigur gegn þjálfaralausu liði Crystal Palace Arsenal vann öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 19. mars 2023 16:00
Manchester United í undanúrslit eftir öruggan sigur Manchester United tryggði sér farseðilinn í undanúrslit FA-bikars kvenna er liðið vann öruggan 1-3 sigur gegn B-deildarliði Lewes í dag. Fótbolti 19. mars 2023 14:35
Sheffield United í undanúrslit eftir endurkomusigur Sheffield United er á leið í undanúrslit FA-bikarsins eftir endurkomusigur gegn Blackburn Rovers í dag. Lokatölur 3-2, en Blackburn náði forystunni í tvígang í leiknum. Fótbolti 19. mars 2023 14:00
Zlatan orðinn elsti markaskorari sögunnar Sænski knattspyrnumaðurinn Zlatan Ibrahimovic skráði sig á spjöld sögunnar í gærkvöldi er AC Milan mátti þola 3-1 tap gegn Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 19. mars 2023 10:01
Fyrsti sigur tímabilsins hjá Þorleifi og félögum Þorleifur Úlfarsson og félagar hans í Houston Dynamo unnu góðan sigur er liðið tók á móti Austin FC í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt. Lokatölur 2-0, en þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu. Fótbolti 19. mars 2023 09:30
Enginn spilað meira en Bruno Fernandes Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, verður seint sagður latur knattspyrnumaður. Enginn leikmaður í bestu fimm deildum Evrópu hefur spilað meira en Portúgalinn á þessari leiktíð. Enski boltinn 19. mars 2023 08:01
Lét allt og alla hjá Tottenham heyra það eftir leik Antonio Conte var ekki skemmt eftir að lið hans, Tottenham Hotspur, missti niður tveggja marka forystu gegn Southampton, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Það fengu allt og allir það óþvegið þegar hann mætti á blaðamannafund að leik loknum. Enski boltinn 18. mars 2023 23:30
Miðvörður Víkinga mögulega með slitið krossband Kyle Douglas Mc Lagan, miðvörður bikarmeistara Víkings, fór meiddur af velli þegar Víkingur tapaði 1-0 fyrir Val í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Óttast er að hann sé með slitið krossband í hné. Íslenski boltinn 18. mars 2023 22:01
Dortmund á toppinn eftir stórsigur Borussia Dortmund tyllti sér tímabundið á topp þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu þökk sé 6-1 sigri á Köln. Þýskalandsmeistarar Bayern München þurfa sigur gegn Bayer Leverkusen á morgun til að ná toppsætinu að nýju. Fótbolti 18. mars 2023 20:31
Jóhann Berg og félagar áttu aldrei möguleika gegn Håland og félögum Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley, toppliðs ensku B-deildarinnar, þegar liðið sótti Englandsmeistara Manchester City heim í 8-liða úrslitum ensku FA-bikarkeppninnar. Burnley sá aldrei til sólar en Man City vann öruggan 6-0 sigur. Enski boltinn 18. mars 2023 19:45
Everton náði í stig á Brúnni Chelsea hafði unnið þrjá leiki í röð áður en Everton mætti á Brúnna í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 2-2 þar sem gestirnir jöfnuðu metin í blálokin. Enski boltinn 18. mars 2023 19:30
KA mætir Val í úrslitum Lengjubikarsins KA hafði betur gegn ÍBV í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni. Íslenski boltinn 18. mars 2023 18:31
Willum Þór og Orri Steinn hetjurnar Willum Þór Willumsson kom inn af bekk Go Ahead Eagles í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á Utrecht. Orri Steinn Óskarsson er þá kominn á blað fyrir Sønderjyske í dönsku B-deildinni. Fótbolti 18. mars 2023 18:00
Leeds upp um fimm sæti | Æsispennandi fallbarátta Fallbarátta ensku úrvalsdeildarinnar hefur sjaldan verið jafn spennandi. Aðeins munar fjórum stigum á Southampton sem situr á botni deildarinnar með 23 stig og Crystal Palace sem situr í 12. sæti með 27 stig. Enski boltinn 18. mars 2023 17:16
Valur í úrslit með marki í uppbótartíma Valsmenn eru komnir í úrslit Lengjubikars karla í knattspyrnu eftir dramatískan 1-0 sigur gegn Víkingum í undanúrslitum í dag. Fótbolti 18. mars 2023 16:17
Landsliðsumræðan hafði engin áhrif á Albert sem skoraði tvö fyrir Genoa Albert Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir Genoa er liðið vann góðan 3-0 útisigur gegn botnliði Brescia í ítölsku B-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 18. mars 2023 14:54
Íslendingalið Bayern skoraði fimm í fyrri hálfleik Íslendingalið Bayern München vann afar öruggan 5-0 sigur er liðið heimsótti Köln heim í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik. Fótbolti 18. mars 2023 13:53
Pep spenntur að taka á móti „goðsögninni“ Vincent Kompany Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Englandsmeistara Manchester City, kveðst spenntur fyrir því að taka á móti „einni mestu goðsögn sem hann hefur þjálfað“ þegar lærisveinar Vincents Kompany í Burnley mæta á Etihad völlinn í átta liða úrslitum FA-bikarsins síðar í dag. Fótbolti 18. mars 2023 13:16
Lucas Leiva glímir við hjartavandamál og leggur skóna á hilluna Brasilíski knattspyrnumaðurinn Lucas Leiva, sem líklega er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool, glímir við hjartavandamál og hefur því ákveðið að leggja skóna á hilluna. Fótbolti 18. mars 2023 11:01
Sverrir Ingi dregur sig úr landsliðshópnum | Guðmundur kemur inn Sverrir Ingi Ingason, miðvörður PAOK í Grikklandi, hefur dregið sig úr landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki í undankeppni EM 2024. Í hans stað kemur Guðmundur Þórarinsson, leikmaður OFI Crete. Fótbolti 18. mars 2023 08:00
Þróttarar enduðu með fullt hús stiga Þróttur Reykjavík vann FH 5-2 í lokaleik liðanna í riðlakeppni Lengjubikars kvenna. Þróttur endar með fullt hús stiga og er komið í undanúrslit keppninnar þar Breiðablik eða Stjarnan verða mótherjinn. Íslenski boltinn 17. mars 2023 23:01