Enginn náð í fleiri stig en McKenna síðan hann tók við Ipswich Kieran McKenna hefur svo sannarlega svifið um á bleiku skýi síðan hann tók við Ipswich Town í ensku C-deildinni. Undir hans stjórn hefur liðið flogið upp um tvær deildir í því sem er hans fyrsta starf sem aðalþjálfari. Þá hefur enginn, ekki einu sinni Pep Guardiola, nælt í jafn mörg stig og McKenna síðan hann tók við stjórnartaumunum hjá Ipswich. Enski boltinn 4. maí 2024 23:31
„Við þurfum níu stig til að vinna titilinn“ Pep Guardiola segir sína menn þurfa að vinna þá þrjá leiki sem Manchester City á eftir í ensku úrvalsdeildinni ætli liðið sér að verða Englandsmeistari fjórða árið í röð. Lærisveinar Pep lögðu Úlfana 5-1 í dag. Enski boltinn 4. maí 2024 22:45
Girona í fyrsta sinn í Meistaradeild Evrópu og tryggði Real í leiðinni titilinn Girona mun leika í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti á næstu leiktíð en það varð ljóst eftir 4-2 sigur liðsins á Barcelona í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í fótbolta, nú í kvöld. Þar með er ljóst að Börsungar geta ekki náð Real Madríd á toppi deildarinnar og Real því orðið meistari. Fótbolti 4. maí 2024 19:16
Skoraði fernu og Englandsmeistararnir halda í við Skytturnar Erling Braut Håland skoraði fjögur mörk Englandsmeistara Manchester City þegar liðið fékk Úlfana í heimsókn í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Lokatölur 5-1 og Man City stigi á eftir Arsenal og með leik til góða þegar skammt er til loka móts. Enski boltinn 4. maí 2024 18:35
Real Madrid náði fjórtán stiga forskoti á toppnum Real Madrid steig stórt skref í átta að spænska meistaratitlinum með 3-0 sigri á Cadiz í spænsku deildinni í dag. Fótbolti 4. maí 2024 16:33
Kane skoraði en Bayern tapaði Stuttgart vann 3-1 sigur á Bayern München í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en þetta var síðasti leikur Bæjara fyrir seinni undanúrslitaleikinn í Meistaradeildinni á móti Real Madrid. Fótbolti 4. maí 2024 16:23
Kristín Dís og Þórdís fögnuðu sigri en það gekk illa hjá Halmstad strákunum Kristín Dís Árnadóttir og félagar í Bröndby unnu flottan sigur í dag í úrslitakeppninni um danska meistaratitilinn í fótbolta. Fótbolti 4. maí 2024 15:06
Diljá og félagar töpuðu toppslagnum á heimavelli Diljá Ýr Zomers og félagar í Leuven töpuðu í dag gríðarlega mikilvægum leik í baráttunni um belgíska meistaratitilinn í knattspyrnu. Fótbolti 4. maí 2024 13:45
Þórir bæði með mark og stoðsendingu Þórir Jóhann Helgason var á skotskónum með liði Eintracht Braunschweig í þýsku b-deildinni í dag. Fótbolti 4. maí 2024 12:59
Glódís Perla þýskur meistari annað árið í röð Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Bayern München tryggðu sér í dag þýska meistaratitilinn í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Bayer Leverkusen á útivelli. Fótbolti 4. maí 2024 11:55
Óvænt úrslit í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð Lengjudeildar karla í kvöld. Njarðvíkingar byrja deildina vel en hitt Suðurnesjaliðið tapaði nokkuð óvænt á heimavelli. Fótbolti 3. maí 2024 21:28
Sveindís sneri aftur í stórsigri Wolfsburg Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur í leikmannahóp Wolfsburg í dag eftir meiðslin sem hún varð fyrir í landsleik gegn Þjóðverjum fyrir tæpum mánuði síðan. Fótbolti 3. maí 2024 19:01
Ísak skoraði og Dusseldorf enn í baráttunni um sæti í efstu deild Ísak Bergmann Jóhanesson landsliðsmaður í knattspyrnu skoraði eitt marka Dusseldorf þegar liðið vann 3-1 sigur á Nurnberg. Þá mættust Hamburger og St. Pauli í eldheitum nágrannaslag en bæði lið eru með í toppbaráttunni. Fótbolti 3. maí 2024 18:31
Sveindís mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir meiðsli Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Sveindís Jane Jónsdóttir, er mætt aftur í leikmannahóp Wolfsburg eftir að hafa glímt við axlarmeiðsli sem hún varð fyrir í landsleik gegn Þýskalandi í síðasta mánuði. Fótbolti 3. maí 2024 15:58
Ánægjulegar myndir af Cecilíu Rán Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir er farin að æfa á nýjan leik með aðalliði Bayern München eftir margra mánaða fjarveru vegna erfiðra meiðsla. Fótbolti 3. maí 2024 11:02
Börn Maradona vilja flytja jarðneskar leifar hans Börn knattspyrnugoðsins Diego Armando Maradona hafa biðlað til dómstóls í Argentínu um að leyfi til flutnings á jarðneskum leifum hans. Fótbolti 3. maí 2024 10:30
Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Vegna hótana í garð fjölskyldu hans hefur Ángel Di María ákveðið að snúa ekki heim til Argentínu þegar samningur hans við Benfica rennur út í sumar. Fótbolti 3. maí 2024 07:00
Fiorentina og Olympiacos í kjörstöðu eftir mikla markaleiki Fiorentina rétt marði 3-2 sigur gegn Club Brugge og Aston Villa tapaði 2-4 á heimavelli gegn Olympiacos í undanúrslitum Sambandsdeildar Evrópu. Fótbolti 2. maí 2024 21:23
Leverkusen lætur ekki undan og lagði Roma á útivelli Bayer Leverkusen vann 2-0 útivallarsigur gegn Roma á meðan Marseille og Atalanta skildu jöfn 1-1 í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar. Fótbolti 2. maí 2024 21:11
Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið Aðeins eitt mark var skorað í fyrri leik Borussia Dortmund og Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær. Fótbolti 2. maí 2024 15:01
„Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Pep Guardiola var harðorður við leikmenn Manchester City á fyrsta fundi sínum eftir að hann tók við starfinu árið 2016 ef marka má þáverandi leikmann liðsins. Enski boltinn 2. maí 2024 13:30
Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ford Fantasy leikur Bestu deildar karla er kominn í loftið þriðja sumarið í röð. Leikurinn er frábær viðbót fyrir æsta fótboltaaðdáendur og eykur enn frekar á spennuna yfir sumarið. Lífið samstarf 2. maí 2024 12:46
Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Viðtal Jamie Carragher við Jadon Sancho, leikmann Dortmund, hefur vakið athygli en Carragher viðurkenndi að hafa drukkið átta bjóra með stuðningsmönnum Dortmund áður en hann fór í beina útsendingu. Fótbolti 2. maí 2024 09:30
Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Eftir sigur Dortmund gegn PSG í gærkvöld er endanlega ljóst að það verða Ítalía og Þýskaland sem fá eitt aukasæti hvort í nýrri útgáfu Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á næstu leiktíð, en ekki England. Fótbolti 2. maí 2024 09:01
Rangnick hafnar Bayern München Ralf Rangnick, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ákveðið að hafna boði um að taka við Bayern München og ætlar að halda áfram þjálfun landsliðs Austurríkis. Fótbolti 2. maí 2024 08:32
Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, hélt því nýverið fram að lið hans væri eitt það skemmtilegasta, og þróttmesta, áhorfs í ensku úrvalsdeild karla. Stenst sú staðhæfing ef tölfræði síðustu 10 leikja er skoðuð? Enski boltinn 2. maí 2024 07:01
FH fékk tvær sektir frá KSÍ Knattspyrnusamband Íslands hefur sektað FH um alls 28 þúsund krónur vegna fjölda refsistiga sem liðið fékk í 3-0 tapinu gegn Val í Mjólkurbikar karla og svo í 2-1 sigrinum á ÍA í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 1. maí 2024 22:31
Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Borussia Dortmund leiðir 1-0 eftir fyrri leik liðsins gegn París Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu. Leikurinn var gríðarlega jafn en þrumuskot Füllkrug reyndist munurinn að þessu sinni. Fótbolti 1. maí 2024 21:00
Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Strömsgodset lagði Kristiansund örugglega í norsku bikarkeppninni í fótbolta. Logi Tómasson var meðal markaskorara. Fótbolti 1. maí 2024 16:05
Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Bjarki Steinn Bjarkason og félagar í Venezia töpuðu á grátlegan hátt fyrir Catanzaro, 3-2, í ítölsku B-deildinni í dag. Fyrir leikinn hafði Venezia unnið þrjá sigra í röð. Fótbolti 1. maí 2024 15:45
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn