
Kanada

Sjónhverfingarmaðurinn og afhjúparinn James Randi látinn
James Randi, kanadíski sjónhverfingarmaðurinn sem helgaði sig því að hrekja hindurvitni, er látinn, 92 ára að aldri. Randi hélt fyrirlestra fyrir fullum sal í Háskóla Íslands fyrir tíu árum þar sem hann reyndi meðal annars að fyrirfara sér með hómópatalausn, án árangurs.

Íbúar Asbestos samþykkja nafnabreytingu
Íbúar í kanadíska smábænum Asbestos hafa náð saman um nýtt nafn á bænum og þar með sagt skilið við nafnið sem það fékk á námuvinnsluárum á átjándu öld.

Falsaði sögu sína með Íslamska ríkinu
Lögreglan í Kanada hefur handtekið umdeildan mann sem sagðist hafa verið böðull fyrir Íslamska ríkið. Maðurinn heitir Shehroze Chaudhry og er 25 ára gamall.

Handtóku konu sem sendi eitur til Hvíta hússins
Kona sem er grunuð um að hafa sent eitur í pósti til Hvíta hússins og löggæslustofnana í Texas var handtekin á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Bréfin virðist konan hafa póstlagt í Kanada og stendur rannsókn yfir í Quebec.

Ákærður fyrir að leggja sig undir stýri í Teslunni
Ungur Kanadamaður hefur verið ákærður fyrir ógætilegan akstur eftir að upp komst um hann þar sem hann lagði sig um borð í Tesla-bíl sínum, sem er sjálfkeyrandi.

Rifu niður styttu af fyrsta forsætisráðherranum
Mótmælendur í borginni Montreal í Kanada felldu í gær styttu af Sir John A. Macdonald, fyrsta forsætisráðherra landsins.

Ótrúleg saga „Usain Bolt fótboltans“ sem er nú lykilmaður í Evrópumeistaraliði
Alphonso Davies sló í gegn með Bayern München á þessu tímabili en þessi nítján ára strákur á að baki mjög merkilega sögu og í raun ótrúlegt að hann sé kominn svona langt.

Kalifornía óskar eftir aðstoð Ástralíu við að berjast við gróðurelda
Kaliforníuríki hefur óskað eftir aðstoð Ástralíu og Kanada við að glíma við gróðureldana sem hafa brunnið þar undanfarið.

Fyrst kvenna til að gegna embætti fjármálaráðherra Kanada
Chrystia Freeland tekur við embættinu af Bill Morneau sem sagði af sér fyrr í vikunni.

Fjármálaráðherra Kanada hættir
Bill Morneau, fjármálaráðherra Kanada, hefur tilkynnt um afsögn sína í kjölfar fregna um deilur hans og Justin Trudeau forsætisráðherra um fjárútlát kanadíska ríkisins til verndar efnahag landsins.

Sakar krónprins Sádi-Arabíu um að hafa ætlað að láta myrða sig
Fyrrverandi yfirmaður í sádi-arabísku leyniþjónustunni sakar Mohammed bin Salman krónprins um að hafa ætlað að láta ráða sig af dögum í Kanada.

Trudeau glímir við enn eitt hneykslismálið
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og fjármálaráðherra hans sæta nú harðri gagnrýni eftir að í ljós kom að góðgerðasamtök sem þeir veittu milljarðasamning hafa greitt skyldmennum þeirra beggja háar fjárhæðir undanfarin ár. Stjórnarandstaðan krefst afsagnar fjármálaráðherrans.

Telja rússneska njósnara beina spjótum sínum að bóluefnisrannsóknum
Tölvuþrjótar sem eru að öllum líkindum á vegum rússnesku leyniþjónustunnar beina nú spjótum sínum að stofnunum sem reyna að þróa bóluefni gegn nýju afbrigði kórónuveiru að mati leyniþjónusta Bretlands, Bandaríkjanna og Kanada. Rússar hafnað ásökununum.

Gekk vopnaður í kringum heimili Trudeau-fjölskyldunnar í þrettán mínútur
Kanadíska lögreglan segir að vopnaður maður sem braust inn um hliðið sem liggur að heimili kanadíska forsætisráðherrans hafi valsað vopnaður um svæðið í þrettán mínútur áður en að lögregla kom augum á hann.

Evrópusambandið opnar landamæri fyrir fjórtán ríkjum
Evrópusambandið tilkynnti í dag að landamæri aðildaríkjanna yrðu opnuð fyrir ferðamönnum á morgun, 1. júlí, frá fjórtán löndum en Bandaríkjamenn verða ekki meðal þeirra sem fá inngöngu í Evrópu.

Rannsaka rasískan leik heilbrigðisstarfsmanna
Hérað í Kanada rannsakar nú ásakanir um að heilbrigðisstarfsmenn hafi gert sér það að leik að giska á áfengismagn í blóði sjúklinga frumbyggja.

Vikið úr þingsal eftir að hafa sakað þingmann um kynþáttahatur
Formanni Nýja lýðræðisflokksins, Jagmeet Singh, var gert að yfirgefa þingsal fulltrúadeildar Kanadaþings eftir að hafa sakað annan þingmann um kynþáttafordóma eftir að hann hafði ekki stutt tillögu sína fyrir þinginu.

Trudeau þagði vel og lengi áður en hann svaraði spurningu um Trump
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, valdi orð sín afar gætilega er hann var spurður um ástandið í Bandaríkjunum og viðbrögð Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við því, á blaðamannafundi í dag.

Frestar fundi G7 aftur
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann myndi þrátt fyrir allt fresta fundi G7 ríkjanna í ár fram í september. Trump sagði í síðustu viku að líklegast yrði fundurinn haldinn í Washington, þar sem leiðtogarnir myndu hittast augliti til auglits.

Vesturveldi mótmæla tilburðum Kína gagnvart Hong Kong
Ríkisstjórnir Bretlands, Bandaríkjanna, Ástralíu og Kanada fordæmdu kínversk stjórnvöld vegna nýrra laga sem þau hafa samþykkt sem þrengja að frelsi íbúa Hong Kong. Lögin stangist einnig á við alþjóðlegar skuldbindingar Kína gagnvart sjálfstjórnarsvæðinu.

Skoða frekari aðstoð til flugfélaga
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir það í skoðun hvernig hægt sé að hjálpa flugfélögum þegar ferðalög milli landa liggja nánast niðri.

Nágrannar árásarmannsins í Nova Scotia segjast hafa látið lögreglu vita að hann væri hættulegur
Nágrannar Gabriels Wortman, mannsins sem varð 22 að bana í Kanada í apríl, segjast hafa tilkynnt Wortman til lögreglu vegna ofbeldishneigðar og byssueignar hans og segja lögregluna ekki sinnt útköllunum nógu vel.

Kanada bannar hríðskotavopn eftir versta fjöldamorð í sögu landsins
Sala á hríðskotarifflum verður bönnuð í Kanada í kjölfar mannskæðustu skotárásar í sögu landsins fyrir tveimur vikum. Justin Trudeau, forsætisráðherra, kynnti bannið í dag og sagði vopn að þessu tagi aðeins hönnuð til að drepa eins margt fólk og hægt er á sem skemmstum tíma.

Áform um endurræsingu hagkerfisins velta ekki á ónæmi þeirra sem hefur batnað
Forsætisráðherra Kanada, Justin Trudeau, segir að áform og áætlanir kanadískra yfirvalda, sem ætlað sé að koma hagkerfum héraða Kanada aftur af stað eftir faraldur kórónuveirunnar velti ekki á því að fólk sem hafi smitast af veirunni njóti ónæmis gegn veirunni í framtíðinni.

Sílíkonbrjóst björguðu lífi konu sem varð fyrir byssuskoti
Kona sem lifði það af að vera skotin í brjóstkassann af návígi er talin hafa lifað skotið af vegna sílíkonbrjóstapúða sem hún var með.

Flúði kærasta sinn skömmu áður en hann skaut 22 til bana
Maðurinn sem framdi mannskæðustu árás í sögu Kanada um síðustu helgi réðst á kærustu sína áður en hann hélt út og skaut 22 til bana.

„Martröð í helvíti“: Lögreglan í Kanada gagnrýnd fyrir að gefa ekki út viðvörun
Forsvarsmenn lögreglunnar í Kanada segja að undirbúningur fyrir viðvörun til almennings hafi staðið yfir þegar Gabriel Wortman var skotinn til bana um helgina. Hann hafði þá skotið minnst 22 til bana á rúmum þrettán klukkustundum og á mjög stóru svæði í mannskæðustu árás landsins.

22 nú látnir eftir árásina í Nova Scotia
Lögregla fann fleiri lík í brunarústum sem morðinginn skildi eftir sig.

Mannskæðasta árás Kanada: Eldar sem árásarmaðurinn kveikti gera rannsakendum erfitt fyrir
Lögreglan í Kanada segir minnst átján vera látna eftir árásirnar á Nova Scotia í Kanada um helgina.

Sextán látnir eftir skotárásina í Kanada
Sextán létust í skotárás í Nova Scotia um helgina eftir að árásarmaður hóf skothríð á nokkrum stöðum í fylkinu.