Tímamót

Sigurborg Ósk á von á barni
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, á von á barni. Hún greinir frá þessu á Twitter og segir að „lítill laumufarþegi“ hafi fengið að fylgja með til Húsavíkur, þar sem hún býr nú, í vor.

Knattspyrnukempur giftu sig á Laugardalsvelli
Helena Ólafsdóttir og Guðlaug Jónsdóttir knattspyrnukempur gengu í heilagt hjónaband um helgina. Það fór vel á því að þær létu pússa sig saman á þjóðarleikvanginum sjálfum, Laugardalsvelli.

Fæddi stúlku á leiðinni frá Afganistan til Bandaríkjanna
Afgönsk kona, sem fékk flugfar með bandaríska hernum frá Afganistan, fæddi barn í flugvélinni. Konan fór í hríðir á leiðinni til Ramstein herstöðvarinnar í Þýskalandi, þar sem gera átti stutt stopp, og lítil stúlka kom í heiminn þegar flugvélin lenti.

Tíu þúsundasta staðfesta kórónuveirusmitið skráð hér á landi
Þau tímamót urðu í gær að tíu þúsundasta staðfesta kórónuveirusmitið greindst hér á landi frá upphafi faraldursins.

„200 manna takmörkunin þýðir bara tap“
Páll Óskar Hjálmtýsson hefur ákveðið að fresta afmælistónleikum sínum í enn eitt skiptið. Um er að ræða fimmtugsafmælistónleika en Páll Oskar stefnir á að halda tónleikana í mars 2022 þegar hann verður nýorðinn 52 ára.

Scarlett Johansson eignaðist dreng
Leikkonan Scarlett Johansson og Saturday Night Live stjarnan Colin Jost hafa eignast dreng og fékk hann nafnið Cosmo. Jost deilir gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Gugga um lífið eftir ferilinn : Stefndi á EM 2021, gat ekki neitað tilboði Eskilstuna og vildi vera meira með tvíburunum
Guðbjörg Gunnarsdóttir lagði hanskana nokkuð óvænt á hilluna nýverið eftir farsælan feril hér heima, erlendis sem og með íslenska landsliðinu. Ólíkt öðru atvinnuíþróttafólki sem hættir keppni þá hefur Gugga nú þegar tekið næsta skref og er orðinn markmannsþjálfari Eskilstuna í Svíþjóð.

Marta María og Páll Winkel létu pússa sig saman í dag
Marta María Jónasdóttir, oftast kennd við Smartland, og Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar, giftu sig við hátíðlega athöfn í Bessastaðakirkju í dag.

Logi Pedro og Hallveig eignuðust dreng
Tónlistarmaðurinn Logi Pedro og Hallveig Hafstað Haraldsdóttir eignuðust dreng í gærmorgun.

Eyddi brúðkaupsdeginum í einangrun
Þau Íris Rós Ragnhildardóttir og Árni Beinteinn Árnason gátu ekki haldið draumabrúðkaupið sitt, eins og til stóð að gera í gær. Íris greindist með kórónuveiruna nokkrum dögum fyrir stóra daginn og er því reglum samkvæmt í einangrun.

Sigmar og Júlíana gengin í það heilaga
Sigmar Guðmundsson, frambjóðandi Viðreisnar og fyrrverandi fjölmiðlamaður, og Júlíana Einarsdóttir mannauðssérfræðingur, eru gengin í það heilaga.

Kveðjum rignir yfir Guðbjörgu - „Einn besti markmaður sem Ísland hefur átt“
Fyrrum landsliðskonan í fótbolta, Guðbjörg Gunnarsdóttir, tilkynnti í morgun að hún hefði lagt markmannshanskana á hilluna. Fyrrum félagar Guðbjargar í landsliðinu kepptust við að þakka henni fyrir sig í dag.

Anna og Valdimar í skýjunum með frumburðinn
Tónlistarmaðurinn Valdimar Guðmundsson og Anna Björk Sigurjónsdóttir, hjúkrunarnemi og flugfreyja hjá Icelandair, eru í skýjunum eftir að nýr sonur þeirra mætti með hvelli í heiminn á mánudag.

Salka Sól og Arnar Freyr eiga von á sínu öðru barni
Tónlistarfólkið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld á von á sínu öðru barni.

„Ég sé enga leið út úr þessu“
Magnús Kjartansson er risi í íslenskri tónlistarsögu; rokkstjarna og bakhjarl ýmissa merkra tónlistarverkefna í senn. Magnús fagnaði sjötugsafmæli sínu í mánuðinum og hver hefði nú trúað því? Hann er enn að. Á fullu.

Veldið stækkar og barn númer tvö á leiðinni
Lífið og lánið virðist leika við rapparann Herra Hnetusmjör þessa dagana, sem og blessað barnalánið. Sara Linneth Castañeda kærasta Árna Páls tilkynnti í dag að von væri á þeirra öðru barni.

Frosti og Helga eignuðust dreng sem var strax nefndur Máni
Fjölmiðlamaðurinn Frosti Logason og konan hans Helga Gabríela Sigurðar eignuðust sitt annað barn um helgina. Drengurinn fæddist á tíunda tímanum og var þegar í stað nefndur Máni Frostason í höfuðið á Mána Péturssyni, sem fer með umsjón útvarpsþáttanna Harmageddon á X-inu ásamt Frosta.

Heiða Ólafs hvarf aftur til fortíðar með Simma Vill og Kalla Bjarna
Söngkonan Heiða Ólafsdóttir var gæsuð af vinkonuhóp sínum í gær. Eins og við var að búast var mikið sungið, enda samanstendur vinkonuhópur hennar af mörgum af flottustu söngkonum landsins.

Þórhildur Sunna gekk í það heilaga í garðinum heima
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, giftist unnusta sínum Rafal Orpel í gær. Athöfnin fór fram í garðinum heima hjá parinu og voru aðeins þeir allra nánustu viðstaddir.

Haf-dóttirin komin í heiminn
Hjónin Karitas Sveinsdóttir og Hafsteinn Júlíusson, sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store, eignuðust í dag sitt annað barn, litla stúlku.

Leynd ólétta Scarlett Johansson opinberuð
Hollywood leikkonan Scarlett Johansson á von á barni með eiginmanni sínum Colin Jost. Erlendir fjölmiðlar greindu frá fréttunum fyrr en dag, en samkvæmt þeirra heimildum á leikkonan að vera komin töluvert langt á leið.

Ólafía Þórunn í skýjunum með frumburðinn
Sonur Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur atvinnukylfings og Thomas Bojanowski kom í heiminn þann 29. júní og er parið í skýjum með frumburðinn. Frá þessu greinir Ólafía í nýrri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún birtir glæsilega mynd af nýburanum.

Elsti Íslendingurinn 109 ára í dag: „Ég nenni nú ekki að verða mikið eldri“
Dóra Ólafsdóttir, elsti Íslendingurinn, fagnar 109 ára afmæli í dag. Hún er hress og kát og fylgist alltaf vel með þjóðmálunum. Hún þakkar langlífið reyk- og áfengislausum lífstíl.

Kærastinn bað Unnar Eggerts á afmælisdaginn
Leikkonan, skólastýran og hlaðvarpsstjórnandinn Unnur Eggertsdóttir hefur trúlofast kærasta sínum Travis. Unnur segir frá rómantísku bónorðinu í færslu á Instagram.

Vigdís Birna er rauðhærðasti Íslendingurinn
Hin þrettán ára gamla Vigdís Birna var valin rauðhærðasti Íslendingurinn árið 2021. Keppnin fer fram á Írskum dögum á Akranesi ár hvert.

Raforkustöðin í Elliðarárdal hundrað ára
Hundrað ár eru síðan rafstöðin í Elliðaárdal var gangsett. Um sannkallaða byltingu var að ræða: Ljós kviknuðu, eldavélar hitnuðu og vélar púluðu af stórauknum krafti.

Hefði vart getað óskað sér betri tíðinda á afmælisdaginn
„Dagur gleði og gæfu er runninn upp,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, í sannkallaðri hátíðarfærslu á Facebook-síðu sinni.

Þjáningarþríburar fylgdust að á öllum skólastigum
Þríburarnir Jón Friðrik, Kristján og Þór Guðjónssynir útskrifuðust um helgina með BS-gráðu í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Bræðurnir hafa fylgst að í gegn um öll skólastig en Jón Friðrik segir þá bræður aldrei hafa ákveðið það saman hvaða skóli eða nám yrði fyrir valinu.

Arna Ýr fæddi soninn í rósabaði í stofunni heima
„Öllum líður vel, fæðingin tók bara þrjár til fjórar klukkustundir og hann er átján merkur,“ segir fegurðardrottningin og samfélagsmiðlastjarnan Arna ýr Jónsdóttir í samtali við Vísi.

Aron Mola og Hildur eiga von á barni
Leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola og unnusta hans Hildur Skúladóttir eiga von á öðrum dreng.