
Fjallabyggð

Óvissustigi aflétt á Tröllaskaga
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að fara af óvissustigi Almannavarna sem sett var á 23. ágúst síðastliðinn vegna mikillar rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga.

Sáu í birtingu að skriður höfðu fallið í fallið í firðinum
Þrjú heimili á Húsavík voru rýmd eftir að aurskriða féll á eitt þeirra í nótt vegna mikillar úrkomu. Skriður féllu einnig beggja vegna Strákaganga, og Siglufjarðarvegi var lokað, en á Ólafsfirði var allt þurrt. Skriður féllu innan Siglufjarðar en sköpuðu ekki hættu að sögn slökkviliðsstjóra.

Kviknaði í rútu við akstur á Ólafsfjarðarvegi
Ólafsvegi, norðan við Hvamm, hefur verið lokað tímabundið eftir að eldur kom upp í rútu. Lukkulega var ökumaðurinn einn í ökutækinu þegar að eldur kom upp og náði að koma sér undan ómeiddur.

Skriður fallið við báða enda Strákaganga
Óvissustig er enn í gildi á Norðurlandi eystra vegna hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna grjóthruns og hafa skriður fallið á veginn við báða enda Strákaganga.

Óvissustig vegna rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi vegna mikillar rigningar og aukinnar hættu á skriðuföllum á Tröllaskaga. Hluta Siglufjarðarvegur hefur verið lokað vegna grjóthruns.

Flæðir inn á hús á Eyrinni í úrhellisrigningu
Dæla í fráveitukerfinu á Siglufirði bilaði í nótt. Úrhellisrigning er á svæðinu og gul viðvörun í gildi. Í tilkynningu frá Fjallabyggð kemur fram að unnið sé að viðgerðum á dælunni en vegna mikillar úrkomu hafi flætt inn í nokkur hús á Eyrinni. Í morgun hafði mælst 92 millimetra úrkoma. Eigendur húsa á Eyrinni eru beðnir að huga að kjöllurum í húsum sínum

Komu í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði á Siglufirði
Slökkvilið Fjallabyggðar kom í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði í atvinnuhúsnæði við Norðurgötu á Siglufirði. Slökkvilið hélt þegar á vettvang þegar útkall barst.

Þrítugasta Síldarævintýrið haldið um verslunarmannahelgina
Það var árið 1991 sem hátíðin Síldarævintýrið var haldin í fyrsta sinn á Siglufirði en þar sem nokkur ár hafa dottið út, m.a. vegna Covid faraldursins, er þetta í þrítugasta sinn sem hún fer fram. Af því tilefni verður dagskráin viðameiri en síðustu ár.

Leysingar hugsanleg orsök E.coli bakteríu
E.coli baktería greindist í einu sýni Heilbrigðiseftirlitsins á neysluvatni sem tekið var í íbúðarhúsi á Siglufirði í gær. Í kjölfarið voru fjögur sýni tekin til viðbótar, og er niðurstaðna að vænta úr þeim á morgun. Heilbrigðisfulltrúi segir að erfitt sé að vera með vangaveltur þegar maður hefur ekki heildarmyndina fyrir framan sig. Íbúar eru hvattir til að sjóða vatn fyrir neyslu.

Sjóða þurfi neysluvatn á Siglufirði vegna E.coli
E.coli baktería greindist í sýni Heilbrigðiseftirlitsins á neysluvatni sem tekið var í íbúðarhúsi á Siglufirði í gær.

Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar
Hæstiréttur mun taka fyrir mál Inga Vals Davíðssonar, Ólafsfirðings á fertugsaldri, sem hlaut þriggja ára fangelsisdóm í Landsrétti í apríl síðastliðnum fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar síns.

Sóttu rúman milljarð í fjármögnun
Líftæknifyrirtækið Genís hf. hefur tryggt sér 1,1 milljarð króna í nýtt hlutafé til áframhaldandi þróunar á beinígræðum og lyfjum við bólgusjúkdómum.

Mættu á Seyðisfjörð í brúðkaup á Siglufirði
Brynjar Barkarson, helmingurinn af tvíeykinu Club Dub, mun seint gleyma brúðkaupi Nadine Guðrúnar Yaghi og Snorra Mássonar á Siglufirði á laugardaginn. Og síst bílferðinni þangað.

Stjörnubrúðkaup á Siglufirði: „Partý sem fór hálfpartinn úr böndunum“
Snorri Másson fjölmiðlamaður og Nadine Guðrún Yaghi samskiptastjóri Play giftu sig við hátíðlega athöfn á Siglufirði liðna helgi þar sem þjóðlegt þema einkenndi herlegheitin í ljósi áttatíu ára lýðveldisafmælisins. Um hundrað og fimmtíu gestir mættu í gleðskapinn. Lúðrasveit, skrúðganga og íslenski fáninn settu sterkan svip á daginn.

Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs
Samkomulag hefur náðst um staðarval nýs kirkjugarðs í Ólafsfirði þar sem sá sem fyrir er við kirkjuna er sprunginn. Íbúakosning um málið fór fram á dögunum þar sem rúmlega sex af hverjum tíu greiddu atkvæði með tillögu um að nýjum kirkjugarði skyldi komið fyrir við Brimnes.

Sigurvin dró smábát í land
Klukkan hálf níu í morgun var áhöfn björgunarskipsins Sigurvins kölluð út vegna smábáts rétt utan Flatey á Skjálfanda. Bilun hafði orðið í kælikerfi vélar sem var til þess að allur kælivökvi fór af kerfi smábátsins.

Snjóflóðið reyndist vera stór skafl
Björgunarsveitir á Tröllaskaga voru kallaðar út í dag um klukkan hálf tvö vegna snjóflóðs á Siglufjarðarvegi. Ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofunni segir að öllum líkindum hafi ekki verið snjóflóð. Það sé afar slæm færð á veginum og óvissustig en tilkynningin hafi borist um hættu utan þess svæðis.

Þung umferð í gegnum Siglufjörð og umferðarstýring um Múlagöng
Fjöldi fólks á leið suður af Norðurlandi hefur lagt leið sína fyrir Tröllaskaga, þar sem Öxnadalsheiði er lokuð.

Árekstur á Siglufjarðarvegi
Tveir bílar rákust saman úr gagnstæðri átt á Siglufjarðarvegi á sjöunda tímanum í kvöld. Ekki voru alvarleg slys á fólki en bílarnir eru illa farnir.

Tíu pósthúsum vítt og breitt um land lokað í sumar
Til stendur að loka tíu pósthúsum Póstsins í sumar. Um er að ræða fjögur pósthús á Austfjörðum, fjögur á Norðurlandi, eitt á Vesturlandi og eitt á Vestfjörðum. Sendingar verða í staðinn afgreiddar af bílstjórum póstbíla og í póstboxum.

Eydís og Þorvaldur til Genís
Eydís Einarsdóttir og Þorvaldur Ingvarsson hafa verið ráðin til starfa hjá líftæknifyrirtækinu Genís á Siglufirði.

Passar að eiginmannsefnið gangi ekki fram af fólki
Nadine Guðrún Yaghi er landsmönnum að góðu kunn en hún starfaði sem fréttakona á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni um árabil. Í dag starfar hún sem forstöðumaður hjá Play ásamt því að stýra einu vinsælasta hlaðvarpi landsins, Eftirmálum, ásamt fjölmiðlakonunni Þórhildi Þorkelsdóttur.

Hjalti Einarsson, stofnandi VHE, er látinn
Hjalti Einarsson vélvirki er látinn, 85 ára að aldri. Hjalti er kunnastur fyrir að hafa byggt upp VHE, eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins. Þá varð hann fyrir þeirri lífsreynslu níu ára gamall á bænum Reyðará á Siglunesi að vera lykilvitni í rannsókn mannskæðasta flugslyss á Íslandi en hann er talinn vera sá síðasti sem sá á lofti flugvélina sem fórst í Héðinsfirði með 25 manns árið 1947.

Skulda- eða kuldadagar
Þegar langamma mín hún Petrea í Háaskála (1908-2008) var spurð út í mestu breytingar og framfarir sem hún hafði lifað, sagði hún að það hefði verið hitaveitan - að losna við kuldann og saggann, og komast í þurr föt.

Ólýsanleg vonbrigði þegar skipin sigldu fram hjá
Þegar síldarbáturinn Stígandi frá Ólafsfirði sökk norður í íshafi árið 1967 voru tólf Íslendingar um borð. Fimm sólarhringar liðu þar til þeirra var saknað og umfangsmikil leit hófst. Í millitíðinni lágu þeir hver um annan þveran í ísköldum og þvölum botni gúmmíbáta, þyrstir, svangir, skjálfandi og vonlausir í hrollköldu heimskautaloftinu.

Þorum að viðurkenna staðreyndir - burt með óvissuna
Á undanförnum 4 árum höfum við fylgst með vaxandi ógn steðja að Grindvíkingum. Reykjanesið er vaknað til lífsins og enginn veit hvenær jarðhræringum lýkur þar og hvaða innviðir hafa orðið fyrir árásum úr eldstöðvunum þegar yfir lýkur.

Tröllaskagi er „skíðahöfuðborg“ Íslands
Fyrrverandi ferðamálastjóri gerir það gott í ferðaþjónustu þegar skíði eru annars vegar í Fljótum á Tröllaskaga en þar er hægt að fara á gönguskíði, alpaskíði eða fjallaskíði. Vinsældir skíðaferða á svæðið hafa slegið í gegn enda talað um Tröllaskaga, sem „Skíðahöfuðborg“ Íslands.

Útstunginn og blóðugur jógabolti lykilsönnunargagn
Allt bendir til þess að Tómas Waagfjörð hafi reynt að verjast hnífaárás Steinþórs Einarssonar með jógabolta í íbúð á Ólafsfirði í október 2022. Steinþór hlaut átta ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra í gær. Hann kannaðist ekkert við að jógabolti hefði komið við sögu í átökunum en boltinn var útstunginn og blóðugur.

Dómari fór upp fyrir kröfur saksóknara og dómnum áfrýjað
Verjandi Steinþórs Einarssonar, sem dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir að verða Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði í október árið 2022, segir dóminn mikil vonbrigði og að honum verði áfrýjað. Athygli vekur að ákæruvaldið fór aðeins fram á fimm ára dóm.

Átta ára fangelsi fyrir manndráp á Ólafsfirði
Steinþór Einarsson, 37 ára gamall karlmaður, hefur verið sakfelldur fyrir manndráp, með því að hafa stungið Tómas Waagfjörð, 47 ára, til bana á Ólafsfirði í október árið 2022. Hann var dæmdur í átta ára fangelsi.