Skattar og tollar
25 26 27 28 ›
Hefðu fengið lítinn stuðning Skattkerfisbreytingar sem eingöngu hefðu komið þeim lægst launuðu til góða hefðu lítinn stuðning fengið hjá skattgreiðendum, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 15:01
Afnám eignarskatts einstaklinga Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp sem felur í sér 4% lækkun tekjuskatts einstaklinga, afnám eignarskatts á einstaklinga og fyrirtæki og tæplega helmings hækkun barnabóta. Gert er ráð fyrir að þessar breytingar komi til framkvæmda í áföngum á árunum 2005-2007. Innlent 13.10.2005 15:00
22 þúsund á mánuði Ef allir launþegar nytu skattaafsláttar á borð við þann sem sjómenn njóta myndi hagurinn vænkast. Innlent 13.10.2005 14:54
Áhyggjur vegna skattalækkana Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna áforma ríkisstjórnarinnar um skattabreytingar að því er fram kemur í ályktun fundar stjórnar félagsins í gær. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar dregur í efa þá fyllyrðingu að nú sé svigrúm til skattalækkana. Innlent 13.10.2005 14:50
10 þúsund minna í vasann Skattprósentan á að lækka niður í um 35% í lok kjörtímabilsins eða svipað og hún var 1988 þegar staðgreiðslukerfið var tekið upp. Hins vegar hefur maður sem hafði 50 þúsund krónur á mánuði 1988 10 þúsund krónum minna eftir í vasanum nú en hann hefði haft ef skattkerfið hefði haldist óbreytt. Innlent 13.10.2005 14:48
Vilja hærri skatta á áfengi Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. Innlent 13.10.2005 14:48
Útsvar hækki um 1% Þingflokkur vinstri-grænna hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér heimild til sveitarfélaga til að hækka útsvar um eitt prósentustig úr 13,03% í 14,03%. Innlent 13.10.2005 14:47
Samskráning í virðisaukaskattsskrá Geir H. Haarde fjármálaráðherra lagði fram frumvarp á Alþingi í gær um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Frumvarpið heimilar skattstjóra að samskrá tvö eða fleiri skráningarskyld hlutafélög og einkahlutafélög á virðisaukaskattsskrá. Innlent 13.10.2005 14:47
Útgjöld að aukast Ríkissjóður stendur vel, í það minnsta mun betur en í fyrra. Ekki er þó hægt að þakka ríkisstjórninni fyrir aðhald í fjármálum því útgjöldin eru að aukast. Það sem gerir buddu Geirs Haarde fjármálaráðherra svo þunga eru skatttekjurnar sem aukast sífellt samfara meiri neyslu og vaxandi hagvexti. Innlent 13.10.2005 14:47
Óréttlát stimpilgjöld Margret Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar lagði fram fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi í gær þar sem hún spurði um álit ráðherrans á lækkun eða afnámi stimpilgjalda. Í máli þingmannsins kom fram að Samfylkingin teldi að almenningur nyti ekki vaxtalækkunar á húsnæðislánum sem skyldi vegna "óréttlátrar skattlagningar í formi stimpilgjalda". Innlent 13.10.2005 14:47
Framsókn stoppar matarskattslækkun Flokkar sem fengu 82% atkvæða í kosningum eru fylgjandi lægri matarskatti. Framsókn er á móti og útlit fyrir að málið sofni á þingi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir þó að lækkun komi til greina ef "svigrúm" gefist. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:47
Halldór skýrir skatta Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda. Innlent 13.10.2005 14:46
Þriðjungur greiðir ekki skatt 35% fólks greiðir engan tekjuskatt og nýtur þar með ekki 1% tekjuskattslækkunar sem gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, samkvæmt upplýsingum yfirmanns efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Geir H. Haarde, fjármálaráðherra sagði hins vegar að tekjuskattslækkunin gagnaðist "nærri öllum" enda borguðu meir en 80% tekjuskatt. Innlent 13.10.2005 14:44
Skattar meðallauna lækka um 30.000 Einstaklingur með eina milljón í laun sparar rúmar 270.000 krónur á skattalækkun ríkisstjórnarinnar miðað við útreikninga Alþýðusambands Íslands. Framkvæmdastjóri ASÍ telur lækkunina lítt gagnast tekjulágum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 14:44
Hvetur fólk til meiri vinnu Deilt var á Geir Haarde fjármálaráðherra í umræðum um fjárlagafrumvarpið á Alþingi í dag. Geir var sakaður um að hygla hálauna- og stóreignafólki með skattalækkunum en láta hina sitja eftir. Ráðherra svaraði því til að þessu fyrirkomulagi væri ætlað að hvetja fólk til að vinna meira. Innlent 13.10.2005 14:44
Skattalækkanir í lok kjörtímabils Landsmenn þurfa að bíða þar til í lok kjörtímabilsins eftir mestum hluta skattalækkana, að því er fram kom í stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Helstu boðberar skattalækkana úr hópi stjórnarliða virðast ætla að láta sér það lynda. Innlent 13.10.2005 14:44
40% tekna til ríkis og bæja Það stefnir í að hið opinbera jafni met sitt í álögum á landsmenn á þessu ári. Nú er áætlað að rétt um fjörutíu prósent af öllum tekjum landsmanna fari til ríkis og sveitarfélaga í formi skatta. Stjórnvöld hyggjast þó létta skattbyrðina á næstu árum. Menning 13.10.2005 14:44
Lægri matarskatt og betri skóla Samfylkingin kynnti áherslur sínar í þingbyrjun í Alþingishúsinu í gærdag. Ef hagvaxtarspár ganga eftir ætlar flokkurinn að beita sér fyrir að hagnaðurinn verði til þess að matarskattur verði lækkaður og að fjármagn til skólanna verði aukið til muna. Innlent 13.10.2005 14:44
Heimsmet í samneyslu Ef hið opinbera gáir ekki fljótlega að sér mun skattbyrði aukast og afkoma fyrirtækja versna. Samneysla sem hlutfall af landsframleiðslu er nú hæst á Íslandi af öllum OECD ríkjunum. Innlent 13.10.2005 14:44
Ríkið tekur 84% af vodkaflösku Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær eiga Íslendingar heimsmet í skattlagningu á áfengi. Samkvæmt sundurliðuðum kostnaðartölum frá ÁTVR fer hlutur ríkisins í einstakri vörutegund upp í allt að 85% af verði. Innlent 13.10.2005 14:39
Heimsmet í áfengissköttum "Við eigum heimsmetið," segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna, um áfengisskatta á Íslandi í samanburði við önnur lönd. Skattar á sterkt vín og léttvín eru hvergi hærri en hér. Aðeins Norðmenn eru fyrir ofan okkur í álagningu á bjór. Innlent 13.10.2005 14:38
Skattakóngur Íslandssögunnar "Þetta var ansi bólginn dagur," sagði Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbankans og skatthæsti einstaklingur Íslandssögunnar, samkvæmt álagningarseðlum skattstjóraembættanna sem birtir voru í gær. Björgólfur greiðir 295 milljónir í opinber gjöld, sem að mestu er fjármagnstekjuskattur vegna sölu og kaupa á eignarhlutum í fyrirtækjum sem eru skráð erlendis. Innlent 13.10.2005 14:28