
Íslendingar erlendis

Neyslusaga móður: „Það var rítalínið sem rústaði mér alveg“
„Það var rítalínið sem rústaði mér alveg,“ segir Ásta Kristmannsdóttir þegar hún rifjar upp neyslusöguna sína.

Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision
Framlag Íslands til Eurovision 2024 lenti í síðasta sæti keppninnar. Atriðið fékk þrjú stig á undankvöldi keppninnar, minnst allra þjóða.

Leita enn að þeim sem réðu barnabarninu bana
Sá eða þeir sem urðu Iyönnu Brown að bana í júlímánuði í fyrra í Detroit-borg í Bandaríkjunum eru enn ekki fundnir.

Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon
Laufey Lín mætti í gærkvöldi til bandaríska spjallþáttastjórnandans Jimmy Fallon í spjallþátt hans The Tonight Show. Þar tók hún lagið sitt Goddess og spilaði á píanó.

Óskar hafi sett stjórninni afarkosti
TV2 í Noregi segir ástæðu brottfarar Óskars Hrafns Þorvaldssonar frá Haugesund stafa af valdabaráttu milli hans og stjórnenda félagsins. Sú hafi leitt til þess að hann sagði upp.

Í lagi að sætta sig við að vera barnlaus
Unnur Arndísardóttir býr á Spáni með manni sínum Jóni Tryggva Unnarssyni og hundinum þeirra Álfi litla. Þar heldur hún námskeið, stundar hugleiðslu og vinnur sem jógakennari og heilari. Unnur og Jón Tryggvi eru barnlaus en reyndu í mörg ár að eignast barn.

Að endurskapa ásýndina á að vera skemmtileg vinna en ekki kvöð
„Við vinnum mikið með fyrirtækjum sem eru þriggja ára og eldri. Þó enn startup fyrirtæki en oft eru þau kominn á þann stað þegar okkar vinna hefst, að þau vilja þvo af sér þennan sprotastimpil,“ segir Helga Ósk Hlynsdóttir hjá SEROUS.BUSINESS í München, Þýskalandi.

Hera komst ekki áfram
Framlag Íslands í Eurovision, lagið Scared of Heights í flutningi Heru Bjarkar Þórhallsdóttur, komst ekki upp úr fyrri undanúrslitariðli Eurovision sem fór fram í Malmö í kvöld.

„Pollróleg“ en full eftirvæntingar fyrir kvöldinu
Fulltrúar Íslands stíga á svið í fyrri undankeppni í Eurovision í kvöld en keppnin í ár er umdeildari en oft áður vegna framgöngu einnar þátttökuþjóðanna á Gasa.

Laufey skein skært á Met Gala
Tónlistarkonan, súperstjarnan og Grammy verðlaunahafinn Laufey fékk boð á eftirsóttasta tískuviðburð í heimi, Met Gala í New York. Hún skein skært í gærkvöldi í bleikum síðkjól frá tískuhúsinu Prabal Gurung.

„Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“
Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi.

Tróð upp í Norræna partýinu
Hið svokallaða Norræna Eurovision-party fór fram í Malmö í dag. Hera Björk, auk keppenda hinna norrænu landanna, tróð upp í partýinu. Hún flutti bæði Scared of Heights, framlagið í ár, auk lagsins Je ne sais quoi, sem hún flutti í Eurovision árið 2011.

Hver er Kári Hansen?
Kári Vilmundarson Hansen er einn þeirra sem skilaði inn undirskriftum til landskjörstjórnar með það fyrir augum að bjóða sig fram til forseta Íslands. Hann segir í stuttu spjalli við Vísi að hann hefði einfaldlega gripið gæsina, tækifærið.

Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann
Íslenskum karlmanni er gert að greiða samtals þrettán þúsund pólsk slot, sem jafngildir um 450 þúsund íslenskra króna, vegna árásar gegn tveimur lögreglumönnum í Varsjá í Póllandi.

Disneydraumurinn varð loks að veruleika
Langþráður draumur konu með einhverfu rættist á dögunum þegar hún heimsótti Disney World í Flórída. Hún lýsir ferðinni sem algjöru ævintýri en hún safnaði fyrir ferðinni með sölu á armböndum sem hún perlaði.

Kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíuna
Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðingur og rannsóknaprófessor við jarðvísindastofnun háskólans, hefur verið kjörinn heiðursmeðlimur í bandarísku lista- og vísindaakademíunni (American Academy of Arts and Sciences) fyrir störf sín á sviði jarðvísinda.

„Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“
Elín Björg Björnsdóttir, athafnakona og annar eigandi fataverslunarinnar FOU22, og eiginmaður hennar Christian Bruhn kynntust fyrir rúmum áratug á stefnumótaforritinu Tinder. Ástin kviknaði stuttu síðar þegar þau hittust á skemmtistaðnum Bakken í miðborg Kaupmannahafnar.

„Það er einmanalegt að missa móður“
„Ég ætlaði alls ekki í leiklist. Þú getur samt aldrei flúið frá kölluninni og þér sjálfri, úr hverju þú ert og við hvað þú elst upp. Maður er nú genasamsetning foreldra sinna,“ segir leikkonan Unnur Birna J. Backman. Unnur er dóttir Eddu Heiðrúnar Backman heitinnar og Jóns Axels Björnssonar myndlistarmanns og er alin upp í kringum mikla list. Hún ræddi við blaðamann um móðurmissinn, uppeldið, leiklistina, stöðuga þróun á sjálfri sér, hvernig hreyfing bjargaði lífi hennar og margt fleira.

Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum
Einir frægustu athafnamenn landsins þeir Björgólfur Thor Björgólfsson og Skúli Mogensen njóta þessa dagana lífsins í Feneyjum ásamt eiginkonum sínum þeim Kristínu Ólafsdóttur og Grímu Björg Thorarensen. Þar fer nú fram hinn heimsfrægi Feneyjartvíæringur.

Hefur hannað fyrir Miley Cyrus og Erykah Badu
Textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir eða Ýrúrarí hefur vakið mikla athygli víðs vegar um heiminn fyrir einstakar peysur sínar en hennar einkenni er að gefa gölluðum flíkum nýtt og flottara líf. Mynd af peysu Ýrar fór sem eldur um sinu um Internetið fyrir nokkrum árum og leiddi það meðal annars af sér viðskipti við Miley Cyrus og Erykah Badu og viðtal við Vogue. Blaðamaður ræddi við Ýr eða Ýrúrarí en hún verður með sýningu á HönnunarMars í ár.

Íslensk skartgripahönnun á besta stað í New York
„Okkur þykir þetta vera mikill heiður og það er mjög spennandi fyrir lítið íslenskt fyrirtæki að fá svona tækifæri,“ segir gullsmiðurinn Rós Kristjánsdóttir. Hún á skartgripafyrirtækið Hik&Rós ásamt Helga Kristinssyni gullsmíðameistara en þau voru nýlega að byrja að selja hönnun sína í glæsilega verslun á besta stað í New York borg.

Öskur á tónleikum Laufeyjar öfugt ofan í aðdáendur
Hópur tónleikagesta á tónleikum Laufeyjar Lín Jónsdóttur sem fóru fram í Dallas borg í Texas á dögunum virtust missa sig í gleðinni á tónleikunum, og öskruðu með söngkonunni í stað þess að syngja.

Kemur beint frá París með vistvæna tískustrauma
„Markmið mitt er að geta fært reynsluna mína inn í framtíðina með von um betri og sjálfbærari leiðir til að búa til klæðnað,“ segir fata-og textílhönnuðurinn Ása Bríet Brattaberg. Hún hefur verið að gera öfluga hluti í tískuheiminum úti og segist með námi sínu og reynslu hafa aflað sér framúrskarandi tæknilegrar og skapandi þekkingar.

Hvetja til bólusetninga fyrir ferðalög til Evrópu og Bandaríkjanna
Fólk sem hyggur á ferðalög ætti að fara yfir bólusetningar sínar og barna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt á stutta ferð til nágrannalandanna.

Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum
Tugir þúsunda mótmæltu á Tenerife, Lanzarote, Gran Canaria og fleiri eyjum í Kanaríeyjaklasanum í dag. Mótmælendur segja eyjarnar við þolmörk. Það verði að takmarka fjölda ferðamanna. Það sé of dýrt að búa þar og að nýting auðlinda sé ekki lengur sjálfbær.

Nígeríusvindlarinn reyndist vera bróðir hans
Kolbeinn Karl Kristinsson fékk tölvupóst klukkan tvö að nóttu og átti von á að fá Nígeríusvindlara inn á gafl til sín þar sem hann býr í Kaupmannahöfn hvað úr hverju að krefjast peninga. Í ljós kom að bróðir hans Magnús Már Kristinsson hafði tekist að blekkja hann svo vikum skipti þannig að Kolbeini var hætt að lítast á blikuna.

Á slóðum Arabíu Lárens með Anthony Hopkins
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikari er nýlega kominn heim frá Ouarzazete í Marokkó þar sem hann dvaldi í tvo mánuði fyrr á þessu ári við tökur á stórmyndinni Mary. Hann segist þakklátur fyrir tækifærið og ekki síst að fá að leika á móti einum þekktasta leikara samtímans, Sir Anthony Hopkins en þeim er vel til vina eftir verkefnið.

Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina
Lögreglan í borginni Abbotsford í Kanada telur sig hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem hefur flúið réttvísina í borginni vegna ákæru um vörslu og dreifingu á barnaníðsefni. Maðurinn sem um ræðir heitir Jóhann Scott Sveinsson.

Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi
Eliza Reid forsetafrú og Una Sighvatsdóttir sérfræðingur forsetaembættisins fengu sér miðnætursnarl í opinberri ferð forseta Íslands til Skotlands í gærkvöldi. Una sló á létta strengi og birti mynd af þeim Elizu með sérfræðingi forsætisráðherra Skotlands.

Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London
„Mér finnst rosalega erfitt að koma fram fyrir framan fólk en mér finnst ekkert mál að vera fyrir framan myndavél fyrir Tiktok, því þá hef ég hef fulla stjórn,“ segir samfélagsmiðlastjarnan Embla Wigum.