Verslun

Ráðin stafrænn leiðtogi Hagkaups
Helga Eir Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin stafrænn leiðtogi Hagkaups.

Dýrasta spilið kostar 140 þúsund krónur
Eina Pokémon-verslun landsins hefur stækkað við sig vegna mikillar velgengni. Stök spil geta kostað tugi þúsunda króna en eigendurnir segja viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum.

Kalli í Pelsinum látinn
Athafnamaðurinn Karl J. Steingrímsson er látinn. Karl, sem var gjarnan kenndur við verslunina Pelsinn, lést síðastliðinn fimmtudag, 22. febrúar, 76 ára að aldri.

Páskaegg hækkað um allt að 22 prósent á milli ára
Páskaegg eru ódýrust í Bónus en dýrust í 10-11. Verð á páskaeggjum hefur hækkað um 3 til 22 prósent frá því í fyrra

Ekki tilbúin að sleppa taki af Kolaportinu
Unnið er að því að finna nýja staðsetningu fyrir starfsemi Kolaportsins. Listaháskólinn flytur brátt í núverandi húsnæði þess en borgin er ekki tilbúin að sleppa taki af eina markaðstorgi miðbæjarins.

Herjaði á Krónuna og fékk fimm mánuði
Karlmaður hefur verið dæmdur til fimm mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjölda þjófnaðarbrota. Hann virðist hafa haft dálæti á Krónunni þar sem hann stal vörum fyrir ríflega 300 þúsund krónur.

Fréttamaður spreytir sig á græjunni sem allir eru að tala um
Nokkur eintök af nýjum sýndarveruleikagleraugum Apple, sem tröllriðið hafa samfélagsmiðlum, eru komin til landsins og verða til sýnis í verslunum Nova. Tæknin sem notuð er til að stjórna gleraugunum er afar framúrstefnuleg, eins og fréttamaður komst að við prófun í dag.

Gjaldþrotið nam 124 milljónum króna
Gjaldþrot verslunarinnar Eins og fætur toga sem varð gjaldþrota í mars í fyrra en er nú rekin af nýjum aðilum nam 124 milljónum króna. Greint er frá uppgjöri þrotabúsins í Lögbirtingablaðinu í dag.

Leita að húsnæði fyrir starfsemi Kolaportsins
Reykjavíkurborg leitar nú að nýju húsnæði fyrir almenningsmarkað í miðborg Reykjavíkur. Starfsemin hefur verið rekin undir heitinu Kolaportið í 25 ár, lengst af í jarðhæð Tollhússins eða tuttugu ár.

Ekkert annað í stöðunni en að boða til brunaútsölu og byrja upp á nýtt
„Maður er bara búin að fylgjast með úr fjarska og jú, við stóðum þarna fyrir utan og vonuðumst til að þetta myndi klárast en svo varð þetta bara verra og verra. Og maður er svona að teikna upp í huganum hver verða næstu skref fyrir okkur og okkar fyrirtæki.“

Ísey Skyr Bar og Nesti opna í Krónunni Granda
Tveir veitingastaðir, Ísey Skyr Bar og Nesti ferskt og fljótt, hafa verið opnaðir innan Krónunnar á Granda. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Byltingarkennd en líka þung, einmanaleg og óhemju dýr
Sýndarveruleikagleraugu frá Apple, sem nýkomin eru í verslanir í Bandaríkjunum, eru táknmynd þess sem koma skal, að mati sérfræðings. Tæknin sé mun þróaðri en hjá keppinautum. En vandamál hafa einnig gert vart við sig; gleraugun hafa reynst bæði þung og verið einmannaleg.

Mega ekki banna skil á óinnsigluðum unaðsvörum
Neytendastofa hefur gefið tveimur unaðsvöruverslunum fyrirmæli um að gera úrbætur á skilmálum sínum um rétt neytenda til að skila vöru sem keypt er í fjarsölu. Aðeins megi meina neytendum að skila vöru ef hún er innsigluð og skilmálar þess efnis skýrir.

Mátti taka bjór úr hillum eftir allt saman
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins mátti taka tvær tegundir af bjór úr sölu vegna dræmrar framlegðar af sölu þeirra eftir allt saman.

„Þið vitið ekki neitt um hvernig mitt hjarta slær“
Kristján Berg Ásgeirsson, betur þekktur sem Fiskikóngurinn, gerir mikinn greinarmun á flóttafólki sem kemur til landsins til að vinna og þeim sem hanga á spena íslenska ríkisins. Meirihluti starfsfólks hans sé af erlendu bergi brotið. Hann gefur svokölluðu „góða fólki“ langt nef.

Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi
Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum.

Sprenging í matarinnkaupum á netinu
Íslendingar versluðu mest í erlendri netverslun frá Kína árið 2023 eða fyrir rúmlega sex milljarða króna. Verslun í erlendri vefverslun nam rúmlega helmingi af innlendir vefverslun sem eykst um fimmtung á milli ára. Sprenging hefur orðið í verslun á netinu í dagvöruverslunum.

Bílalúgurnar eru okkar sérstaða
Síðasta föstudag, 2. febrúar, opnaði fimmta bílaapótek Lyfjavals á Miklubraut í Reykjavík en Lyfjaval rekur nú fimm bílaapótek.

Málið sem skekið hefur Skeifuna
Hagkaup hefur ekki rekið frægasta kött landsins út á gaddinn, að sögn framkvæmdastjóra. Kettinum er frjálst að dvelja í hlýju anddyrinu þó að heilbrigðiseftirlitið hafi úthýst honum úr búðinni sjálfri. Við kynntum okkur „Stóra Diego-málið“ sem skekið hefur Skeifuna undanfarna daga.

Undrun og reiði meðal vina Diego
Einn frægasti köttur landsins, kötturinn Diego, má ekki lengur leggja sig inni í verslun Hagkaupa í Skeifunni vegna reglna heilbrigðiseftirlitsins en er þó velkominn í anddyrið. Vinir Diego á Facebook eru sárir vegna málsins en kötturinn er þó enn velkominn í A4.

Heimkaup hömstruðu ekki pokana heldur keyptu
Einhverjum neytendum brá þegar þeir fengu ávexti og grænmeti frá Heimkaupum afhent í bréfpokum, sem ætlaðir eru lífrænum úrgangi. Sumir töldu jafnvel að fyrirtækið hefði staðið í hamstri á pokunum, sem leiddi til þess að þeir voru fjarlægðir úr verslunum. Heimkaup kaupa pokana hins vegar dýrum dómi í nafni umhverfisverndar.

Hvalkjöt í íslenskum stórmörkuðum
Á laugardaginn fékk ég sent skjáskot af auglýsingu þar sem Hvalur hf. sagði frá útsölustöðum á sýrðu hvalrengi frá fyrirtækinu og barmar sér yfir því hvað vertíðin hafi verið stutt á liðnu ári. Ég verð að viðurkenna að mér brá nokkuð við að sjá hversu langur listinn var og nöfn hvaða verslana voru á honum.

Hló og grét þegar hún seldi fyrir milljón á einum degi
„Jú það kom alveg tími þar sem ég efaðist. Hvort ég ætti að halda áfram eða hætta. Kannski gæti ég þetta ekkert, mér fannst ég ekki nógu sæt eða vita nógu mikið og svo framvegis,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush.

Verð á brauði frá Myllunni hækkaði mest
Verð á brauði, kexi og kökum hækkaði á bilinu 0-7% frá októberlokum til janúarloka í verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ. Verð hækkuðu ekki í Extra og Bónus, en hækkuðu um 7% í Iceland. Þar munaði mestu um Finn Crisp vörur, sem hækkuðu um fjórðung í Iceland á þessum þremur mánuðum.

Styttri leið úr IKEA einungis tímabundin
Glöggir viðskiptavinir IKEA hafa tekið eftir að leiðin að afgreiðslukassa verslunarinnar og út er talsvert styttri en vanalega. Þó er ekki um að ræða langtímabreytingu heldur einungis tímabundna lausn til þess að standast reglur um eldvarnir meðan á framkvæmdum stendur.

Sló óvænt í gegn í Kína eftir lygilega atburðarás á Laugaveginum
Úkraínsk kona sem rekur verslanir með vefnaðarvörur í Miðborginni hefur óvænt slegið í gegn í Kína eftir að hópur kínverskra stórstirna gerði stórinnkaup í búð hennar á Laugavegi. Við hittum hinn unga og metnaðarfulla atvinnurekanda í Íslandi í dag og ræddum lygilega atburðarásina.

Kristín og Kristján Helgi til Kjör- og Krambúðanna
Kristín Gunnarsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa tekið við nýjum stöðum hjá Krambúð og Kjörbúðinni á verslunar- og mannauðssviði. Kristján Helgi hefur tekið við stöðu sölustjóra Krambúða og Kjörbúða og Kristín sem rekstrarstjóri Krambúða og Kjörbúða.

Guðbjörg kaupir þrjú fyrirtæki
Guðbjörg Magnea Matthíasdóttir útgerðarkona í Eyjum hefur keypt fyrirtækin Expert, Expert kæling og GS Import í gegnum félag sitt Fastus ehf sem sérhæfir sig í heildsöluverslun. Hið sameinaða fyrirtæki ber heitið Fastus ehf., en starfsemi þess skiptist nú í tvö meginsvið; Fastus heilsu og Expert. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fastus.

Gísli í Garðheimum látinn
Gísli Hinrik Sigurðsson, stofnandi Garðheima, er látinn, 79 ára að aldri.

Viðræður hafnar um samruna Samkaupa við Heimkaup og Orkuna
Fjárfestingafélagið Skel og Samkaup hafa undirritað yfirlýsingu um að hefja könnunarviðræður vegna mögulegs samruna Samkaupa við Orkuna og Heimkaup. Þetta kemur fram í tilkynningu Skeljar til Kauphallar.