
Skoðun

Sóknarfæri með breyttri sýn
Á fundi leikskólaráðs á miðvikudaginn var samþykkt tillaga frá Vinstri grænum sem markaði tímamót í ýmsum skilningi. Í tillögunni fólust tilmæli um að nýta ákvæði kjarasamnings til tímabundinna greiðslna til að bregðast við tímabundnum aðstæðum á vinnumarkaði sem leiða af sér meira starfsálag.

Starfmannaekla í leik og grunnskólum
Sú staða sem upp er komin vegna manneklu bæði á leikskólum og í grunnskólum borgarinnar kallar á tafarlausar aðgerðir borgaryfirvalda. Nauðsynlegt er að halda góðri samstöðu meðal þeirra starfsmanna sem þegar eru við störf og tryggja nauðsynlega þjónustu.

Söfnum góðum minningum
Menningarnótt í miðborginni er nokkurs konar uppskeruhátíð eftir gott og veðursælt sumar. Hún er orðinn sá viðburður sem fáir vilja missa af því hún er aldrei eins; alltaf ný og óvænt.

Stöndum vörð um Nónhæð
Það var í maí s.l. að nokkrir íbúar Nónhæðar komust að því fyrir tilviljun að innan tíðar stæði til að hefja umfangsmiklar byggingarframkvæmdir á lóðunum Arnarsmára 32 og 36 (efst á Nónhæð).

Kvótinn og krónan
Aðalhöfundur kvótans hefur varið verk sín í kvótamálum með, að útgerðin hafi þá verið á hausnum. Rétta hafi þurft hana við fjárhagslega og það hafi verið gert með kvótanum, sem útgerðarmenn fengu að gjöf. Þaðan nafnið gjafakvóti.

Öfugmælabrandari
Íslendingar ferðast gjarnan til gamalla fallegra borga, eins og Kaupmannahafnar, Amsterdam, Parísar... Þar verslum við í litlu krúttlegu búðunum, sitjum á kaffihúsunum, kaupum póstkort og tökum ljósmyndir í allar áttir. Við kunnum að meta gömlu húsin í þessum fallegu borgum. En samt virðist vera allt í lagi að rífa gömlu húsin í fallega miðbænum okkar og byggja ný.

Samgöngur við Eyjar
Í júní á síðasta ári skilaði starfshópur þáverandi samgönguráðherra skýrslu um samgöngur til Vestmannaeyja. Starfshópurinn gerði að tillögu sinni að skoðuð yrði nánar sú lausn að byggja ferjuhöfn í Bakkafjöru.

Námsmenn fá frítt í strætó
Í næstu viku hefst skólastarf aftur að hausti. Um leið hefst tilraunaverkefnið frítt í Strætó sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu standa að.

Kársnes skipulagt í sátt við íbúa
Boðað var til sérstaks aukafundar 8. ágúst í bæjarstjórn Kópavogs til þess eins að afgreiða tillögu um deiliskipulag með 105 íbúðum á einum skikanum þar.

British Airways og umhverfið
Íslendingar hafa tekið British Airways opnum örmum síðan félagið hóf reglulegt áætlunarflug milli London og Keflavíkur fyrir rúmu ári síðan. Flugrekstur er ein þeirra atvinnugreina í heiminum, sem áhrif hefur á hitastig jarðar.

Eigum við að lengja vinnudaginn?
Undanfarna daga hafa berið birt nokkur viðtöl við nóbelsverðlaunahafann Edward C. Prescott um að lækka ætti skatta svo fólk fengist til þess að skila lengri vinnudegi. Hannes Hólmsteinn bauð svo upp á ráðstefnu um þetta málefni.

Útrýmum kjarnavopnum
Í kvöld verður þess minnst að nú eru liðin sextíu og tvö ár frá kjarnorkuárásunum á Hírósíma og Nagasakí. Kertum verður fleytt við Tjörnina í Reykjavík og Minjasafnstjörnina á Akureyri og þannig lögð áhersla á kröfuna um friðsaman og kjarnorkuvopnalausan heim.

Auka þarf jöfnuð og draga úr misskiptingu
Ójöfnuður hefur aukist mikið á Íslandi síðustu 14 árin. Ástæðurnar eru margar. Ein helsta ástæðan er sú, að skattleysismörkin hafa ekki fylgt breytingum á verðlagi og kaupgjaldi.

Hvað eiga bílaumboðið Hekla og Hekluskógar sameiginlegt?
Staðfestur hefur verið merkilegur samstarfssamningur landbúnaðarráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Landgræðslu ríkisins og Skógræktar ríkisins. Markmið þessa merkilega verkefnis er að nýta birkiskóga til að verjast náttúruhamförum, bæta landgæði og binda kolefni.

Étur þorskur laxaseiði?
Þetta er skrifað fimmtudaginn 19. júlí 2007 þegar vikuleg laxasíða birtist í sjónvarpinu. Textavarpið segir okkur á síðu 355 að enn sem komið er sé veiðin á laxi í mörgum laxveiðiám aðeins brot af því sem hún var í fyrra og verri en allt sem menn hafa séð áður eða lengi.

Reykleysi á veitingastöðum
Hér er ekki ætlunin að tala um réttmæti reykingabannsins sem slíks. Ég skrifa þessa grein fyrst og fremst út frá því sjónarhorni hver ávinningurinn af því er fyrir mig sem íþróttakonu og heilbrigða manneskju.

Tími almennings er kominn
Ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar breyttu skattkerfinu mikið á síðasta áratug. Fjármagnstekjuskatturinn lækkaði skattbyrði hátekjufólks stórlega en rýrnun skattleysismarka jók skattbyrði almennings, mest hjá þeim sem lægri tekjur höfðu.
Hvar er útboðið á tollkvótanum?
Neytendur eiga rétt á að fá svör við því hvers vegna ekki er búið að bjóða út og byrjað að flytja inn um 400 tonn af þeim 550 tonnum af kjöti sem voru boðin út í mars á 0 kr. Þessi núllkvóti er liður í samningi sem ríkisstjórn Íslands gerði við ESB og átti að leiða til lægra vöruverðs. Eða svo fullyrtu yfirvöld í byrjun árs.
Launin þín eru nú til sýnis
Frá og með deginum í dag og næstu tvær vikur munu upplýsingar um tekjur hvers og eins okkar liggja frammi til sýnis fyrir atbeina íslenska ríkisins.

Vopnasalar borða líka fisk
Undanfarnar vikur höfum við fylgst með óhefðbundnum aðgerðum um það bil 30 manna hóps gegn álverum og ýmsu fleiru, með dyggri aðstoð sumra fjölmiðla. Í sumum tilvikum höfum við einnig hlýtt á viðtöl við talsmenn hópsins. Þar hefur meðal annars ítrekað komið fram að mótmæli gegn álverum snúist um að ál sé notað til vopnaframleiðslu og í „hernaði“.
Kristni stendur á traustum grunni
Mér var bent á grein í Fréttablaðinu 16. júlí síðastliðinn (bls. 18), sem bar yfirskriftina „Viðheldur fáfræði kristninni?“ Ég ætla ekki að mæla því bót að menn verji eða vinni að framgangi málstaðar með því að forðast tilteknar staðreyndir, eða með því að lifa gegn eigin sannfæringu. Enginn ætti að predika það sem hann trúir ekki innst inni.

Pólitísk rekstrarstjórn yfir Leifsstöð?
Þegar Flugstöð Leifs Eiríkssonar var gerð að hlutafélagi var ég í hópi þeirra sem andæfði því; taldi að helsta flugstöð Íslendinga ætti að vera í eigu þjóðarinnar og á forræði hennar.

Við þurfum stuðning bæjarbúa
Mjög margir íbúar á Kársnesinu hafa gripið til þess ráðs að hengja borða utan á hús sín þar sem mótmælt er hugmyndum núverandi meirihluta Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna um gríðarlega þéttingu byggðar á Kársnesinu með tilheyrandi umhverfisspjöllum og auknum umferðarþunga.
Óskiljanlegt langlundargeð
Fyrir fáeinum dögum las ég í Fréttablaðinu, að núverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur stefndi ekki að millilandaflugi um Reykjavíkurflugvöll. Þetta kom mér spánskt fyrir sjónir.

Loks fulltrúi fólksins í ríkisstjórn
Röðun í ráðuneyti nýju stjórnarinnar er Samfylkingunni til sóma. Sjálfstæðisflokkurinn var ekki eins lýðræðislegur. Það hefði verið flokknum til framdráttar að gera Guðfinnu að ráðherra án þess að vitað sé hvers er að vænta af henni eða Guðlaugi.

Enn um Jesúm og heimsendi
Fyrir skemmstu birtist á þessum síðum greinin „Viðheldur fáfræði kristninni?“ þar sem ég benti m.a. á þá staðreynd að stór hluti fræðimanna í Bandaríkjunum og Þýskalandi hafi frá því bók Alberts Schweitzer „Leitin að hinum sögulega Jesú“ kom út árið 1906 litið á Jesúm sem heimsendaspámann.

Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs
Sæll Gunnar. Hversu lengi ætlar þú að skella skollaeyrum við óánægju íbúa á Kársnesi vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga á svæðinu? Mér brá þegar ég las svar þitt í Fréttablaðinu (21.júli 07) við áhyggjum íbúa hér.

Engin hækkun á lífeyri aldraðra enn
Stjórnmálaflokkarnir lofuðu eldri borgurum margvíslegum kjarabótum fyrir kosningar. Engin hækkun hefur enn orðið á lífeyri aldraðra frá almannatryggingum. Það eina,sem hefur gerst í málefnum aldraðra er að þeir,sem eru 70 ára og eldri, geta nú farið út á vinnumarkaðinn án þess að sæta skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna.

Ritstjórinn og barrtrén
Þorsteinn Pálsson ritstjóri Fréttablaðsins birti leiðara í blaðinu 16. júlí síðastliðinn undir yfirskriftinni Flórufasismi. Í greininni reiðir ritstjórinn hátt til höggs gegn þeirri stefnu Þingvallanefndar að takmarka á Þingvöllum útbreiðslu barrtrjáa sem þar var plantað á öldinni sem leið.

Að verja vondan málstað
Fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá könnunum ASÍ á þróun matarverðs í helstu verslanakeðjum landsins. Kannanirnar hafa sýnt að á tímabilinu frá því í desember 2006 til maí 2007 lækkaði verðið um 4,2 til 6,7% í lágvöruverðsverslunum og 1,6 til 6,4% í öðrum verslanakeðjum.