
Snjómokstur

„Ég mun tryggja að svona gerist ekki aftur“
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra ætlar að tryggja að álíka ástand og verið hefur á Reykjanesbraut síðustu sólarhringa, með tilheyrandi raski á flugumferð, myndist ekki aftur. Hann segir flókið að taka ákvörðun um lokun brautarinnar og segir að ástandið ætti að opna augu fólks fyrir öryggishlutverki Reykjavíkurflugvallar.

„Við viljum ekki að svona komi fyrir aftur“
Búið er að opna Reykjanesbrautina í báðar áttir og brátt mun eðlileg flugumferð um Keflavíkurflugvöll hefjast á ný. Forstjóri Icelandair tók á móti farþegum tveggja þota sem flogið var frá Keflavík til Reykjavíkur í dag.

Blés snjó af einni gangstétt yfir á aðra
Íbúi í Grafarholti náði því á myndband þegar snjóblásari blés snjó af gangstétt stuttu frá húsi hennar. Snjórinn lenti hins vegar á annarri gangstétt, nær íbúð hennar, sem hún hafði handmokað sjálf tveimur dögum áður.

Ellefu rútur í startholunum að aka frá Keflavík til Reykjavíkur
Vonir standa til þess að hægt verði innan stundar að flytja strandaglópa frá Keflavíkurflugvelli til höfuðborgarsvæðisins í rútum. Í framhaldinu verði vonandi hægt að opna fyrir umferð um Reykjanesbrautina.

Giftu sig óvænt hjá sýslumanni: „Brúðkaupsnóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og eiginmaður hennar Gunnar Sigvaldason fagna nú fimmtán ára brúðkaupsafmæli. Halda þau upp á kristallsbrúðkaupsafmæli sitt 19. desember en þó ekki saman.

Skoði hvort borgin kaupi eigin snjóruðningstæki
Formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar segist vilja láta skoða hvort skynsamlegt sé fyrir borgina að festa kaup á eigin snjóruðningstæki til að hægt verði að ryðja húsagötur fyrr. Til stendur að fara í húsagöturnar í dag áður en bætir í snjó eða hann verður að klaka.

Mannlausir bílar tefja fyrir mokstri og sumir troða sér í gegnum lokun
Mjög blint er á Suðurnesjum, skafrenningur og hávaðarok. Formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes hvetur ökumenn til að virða lokanir. Ekið er með bíla í kippum á milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins.

Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm
Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært.

Allt tiltækt lið Reykjavíkurborgar að störfum
Allt tiltækt lið Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar er að störfum við snjómokstur. Stofn- og tengibrautir eiga að vera færar en safngötur eru margar ófærar í efri byggðum. Ekki er gert fyrir úrkomu á höfuðborgarsvæðinu næstu daga.

Snjóruðningur borgarinnar lokar fólk á Kjalarnesi inni
Eldri hjón eru veðurteppt á Esjumelum eftir að snjóruðningstæki borgarinnar ruddi stórum skafli fyrir veg að húsum á Kjalarnesi. Sonur hjónanna hefur áhyggjur af ástandinu þar sem ómögulegt væri fyrir sjúkrabíl að komast að húsinu en faðir hans er hjartveikur.

Leiðin heim úr vinnu tók sex klukkustundir
Plötusnúðurinn Atli Kanill var einn af þeim fjölmörgu sem lentu í vandræðum vegna veðurs í nótt. Eftir að hafa lokið vinnu um klukkan tvö í nótt tók við sex klukkustunda langt ferðalag heim til Hveragerðis.

Miklar tafir hjá Strætó vegna ófærðar
Miklar tafir eru á ferðum strætisvagna í úthverfum borgarinnar vegna ófærðar. Viðskiptavinir eru beðnir að fylgjast með rauntímakortinu og heimasíðu Strætó til að sjá stöðuna á vögnum og leiðum.

Ástandið ekki verið eins slæmt í mörg ár: „Þetta er bara svo erfitt viðureignar“
Búast má við að kostnaður við snjómokstur í borginni í febrúar verði um þrjú hundruð milljónir sem er tvöfalt það sem venjulega er febrúar. Þeir sem vinna við snjómokstur segja síðustu daga hafa tekið á.

Húsagöturnar helsta úrlausnarefnið
Vond færð er víða í húsagötum á höfuðborgarsvæðinu en klaki gerir þeim sem sinna snjómokstri erfitt fyrir. Tugir snjómoksturstækja aka nú um göturnar til að reyna að ryðja en hafa vart undan líkt og síðustu vikurnar.

Mokstursdrengir segja þakklæti viðskiptavina bestu launin
Her ruðningstækja kappkostar að hreinsa tólf hundruð kílómetra langt gatnakerfi borgarinnar og um 600 kílómetra af stígum. Ungir drengir í Hlíðunum tóku sig líka til og bjóða fólki að moka bílastæði og innkeyrslur.