Borgarstjórn

Borgarstjóri vígði nýja rennibraut
Borgarstjóri, afmælisbörn úr Dalsskóla og fleiri nemendur vígðu í dag nýjar vatnsrennibrautir við Dalslaug í Úlfarársdal.

Lofar foreldrum afturvirkum greiðslum
Niðurgreiðslur til foreldra barna, átján mánaða og eldri, sem eru hjá dagforeldrum verða afturvirkar til dagsins sem tillögur þess efnis voru samþykktar, að sögn formanns borgarráðs Reykjavíkur. Hann segir foreldra ekki þurfa að líða fyrir seinagang borgarinnar

„Ég get ekki mánuð eftir mánuð greitt 85 þúsund krónur“
Niðurgreiðslur Reykjavíkurborgar til foreldra barna sem vistuð eru hjá dagforeldrum hafa ekki komið til framkvæmda þrátt fyrir að hafa verið samþykktar í sumar. Faðir nítján mánaða drengs segir svör borgarinnar óljós og greiðslurnar verulega íþyngjandi.

Séra Friðrik situr sem fastast og fylgist með í Lækjargötu
Borgarráð hefur verið upptekin við að ræða fjárhagsáætlun og kom því ekki við að ræða „Stóra styttumálið“ á fundi ráðsins í gær. Umræða um tillögu þess að styttan verði fjarlægð frestast því um viku.

Samgöngubætur eða átta milljarða krúnudjásn
Í síðustu viku birtist á Vísi.is frumleg grein um brú. Þar er lagt til að skattgreiðendur komi sér upp brú yfir Fossvoginn, frá Nauthólsvík yfir í Kársnesið, u.þ.b. einn og hálfan kílómetra fyrir vestan Kringlumýrarbraut. Brúin á að vera fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur, fyrir Strætó og Borgarlínu, ef ske kynni að einhver hluti hennar kæmist einhvern tímann í gagnið.

Borgarstjóri útilokar ekki að styttan verði færð
Borgarstjóri útilokar ekki að styttan af séra Friðriki og drengnum verði færð úr Lækjargötu. Upplýsingum verði safnað um málið og líklega tekið fyrir á næsta fundi borgarráðs.

Af dyggðaskreytingu Reykjavíkurborgar
Mannekla á leikskólum Reykjavíkurborgar er ekki ný af nálinni. Borgarstjórarnir okkar tveir hafa farið mikinn í fjölmiðlum og við foreldra leikskólabarna um hvernig þeir hyggjast ætla að bæta úr þessum vanda með ýmiskonar aðgerðum en allt kemur fyrir ekki, það næst ekki að ráða í stöður á nýju leikskólunum sem hafa verið byggðir og þeir leikskólar sem eru nú þegar starfræktir eru margir hverjir illa mannaðir.

Vinstri beygju bjargað fyrir horn
Í grein á Vísi á laugardag um fyrirhugaðar umferðarþrengingar við gatnamót Hringbrautar, Eiðsgranda og Ánanausta, hélt ég því fram að einni hugmynd þar að lútandi væri ætlað að útiloka vinstri beygju frá nyrsta hluta Hringbrautar, vestur Eiðsgrandann.

Vinstri beygjan við Eiðsgranda aldrei í hættu
Vinstri beygjan af Hringbraut á Eiðsgranda við JL-húsið er ekki í hættu líkt og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hefur haldið fram. Beygjan sem lagt er til að hverfi er úr porti nokkrum metrum frá hringtorginu.

Ósammála um breytt gatnamót við JL-húsið
Deilt er um framkvæmdir við JL-húsið sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir gerðar í nafni umferðaröryggis. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir framkvæmdirnar óhjákvæmilegar eftir ítrekaðar kvartanir frá íbúum svæðisins.

Ályktun kvenna í borgarstjórn í tilefni af kvennaverkfalli
Á kvennaári Sameinuðu Þjóðanna 1975 var fyrst boðað til Kvennafrís á Íslandi þar sem konur voru hvattar til að leggja niður launuð og ólaunuð störf í heilan dag, þann 24. október. Tilgangurinn var að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samfélagið og að undirstrika kröfu kvenna um jafna stöðu og kjör á við karla í íslensku samfélagi. Um 90% kvenna á Íslandi tóku þátt í þessum sögulega viðburði sem markaði ákveðin vatnaskil í þróun jafnréttismála á íslandi.

Annað hvort komist allir í pottinn eða enginn
Konur og kvár komast ekki í sund á Selfossi á kvennafrídaginn en karlar munu geta stungið sér ofan í. Í sundlaugum Reykjavíkurborgar verður annað hvort opið fyrir alla eða lokað fyrir alla en gert er ráð fyrir að þjónusta borgarinnar verði afar skert þennan dag.

Vinstrimenn banna vinstri beygju í Vesturbænum
Í fréttum að undanförnu hafa Seltirningar lýst yfir áhyggjum sínum af fyrirhuguðum, róttækum breytingum á gatnamótum Hringbrautar og Eiðisgranda, við JL-húsið. Þar er um er að ræða eina helstu samgönguæðina inn og út úr sveitarfélagi þeirra.

Að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram
Árið 1993 kom félagsmálaráðuneytið því til leiðar að kosið var um sameiningar sveitarfélaga vítt og breitt um landið. Ráðuneytið, sem sinnti meðal annars sveitarstjórnarmálum, hafði lengi hvatt til hreppa og kaupstaði landsins til að mynda stærri og sjálfbærari einingar, en undirtektir verið harla litlar.

Tár féllu þegar borgarfulltrúar báðust afsökunar á illri meðferð
Ræður borgarfulltrúa á borgarstjórnarfundi í dag voru tilfinningaþrungnar en til umræðu var skýrsla vöggustofunefndar sem og tillaga að yfirlýsingu borgarstjórnar. Á ræðum og flutningi borgarfulltrúa mátti heyra að þeim þætti innihald skýrslunnar afar þungbært.

Vill skoða sameiningu við Mosfellsbæ og Seltjarnarnes
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, mun leggja til að Reykjavíkurborg bjóði Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ til viðræðna um sameiningu sveitarfélaganna þriggja.

Opna tímabundna skiptistöð við Skúlagötu
Vegna framkvæmda við Hlemm þarf að opna tímabundna skiptistöð fyrir Strætó við Skúlagötu.

Fylgja eftir svartri skýrslu um vöggustofurnar
Borgarráð ætlar að fylgja eftir tillögum nefndar um málefni vöggustofa. Nefndin kynnti niðurstöðu sína í síðustu viku og benti á að vera barna á vöggustofum hafi haft veruleg áhrif á framtíð þeirra. Til að mynda væru lífslíkur þeirra einstaklinga minni en jafnaldra þeirra og þeir líklegri til að glíma við örorku.

Áform um tugi milljarða í arð ætti að vera stjórn OR „alvarlegt umhugsunarefni“
Áform Orkuveitu Reykjavíkur um að greiða út tugi milljarða í arð til eigenda sinna á næstu árum ætti að vera stjórn fyrirtækisins „alvarlegt umhugsunarefni“ með hliðsjón af versnandi afkomu og að blikur séu á lofti í efnahagsmálum, að sögn stjórnarmanns í OR. Tillaga hans um að fallið yrði frá arðgreiðslum að fjárhæð samanlagt 19 milljarðar á árunum 2024 til 2026 var felld af meirihluta stjórnar Orkuveitunnar.

„Því miður entist þeim ekki aldur eins og fjölmörgum vöggustofubörnum“
Vöggustofubörn sættu illri meðferð að mati vöggustofunefndar. Þá virðast afdrif þeirra talsvert verri en annarra jafnaldra. Maður sem vistaður var á vöggustofu sem og einn þeirra fimmmenninga sem kallaði eftir því að starfsemin yrði rannsökuð segir niðurstöðuna áfellisdóm en henni fylgi þó líka mikill léttir.

Hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra
Einstaklingar sem voru sem börn á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra. Þá voru þeir einnig líklegri til að fara á örorku.

Bregðast við ítrekuðum seinkunum leiðar 14
Til stendur að leggja niður strætóstoppistöðina Hólsveg sem er að finna á horni Langholtsvegar og Hólsvegar í Reykjavík. Strætó númer 14 stoppar þar á leið sinni í átt að Verzlunarskólanum, en ákvörðunin nú er tekin til að strætó geti betur haldið áætlun.

Líst illa á að lífsbjargandi neyslurými verði í bifreið: „Fólk er að deyja“
Reykjavíkurborg skoðar að opna færanlegt neyslurými aftur á meðan leitað er að varanlegu rými. Rauði krossinn segir hugmyndina afleita. Að þjóðfélagshópurinn sem sæki sér þjónustuna eigi skilið betri húsakost en bíl.

Dagur hyggst bjóða Kjötborgarbræðrum í kaffi
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, hyggst bjóða eigendum Kjötborgar, bræðrunum Gunnari og Kristjáni Jónassonum til sín í kaffi. Hann vill skoða lausnir vegna gjaldskyldu við búð bræðranna að erlendri fyrirmynd.

„Við borgum það ekki með glöðu geði, heldur með óbragð í munni“
Gjaldskyldutími í bílastæði miðsvæðis í Reykjavík lengdist í dag og borga þarf meira á ákveðnum stöðum. Verslunareigendur segja gjaldtökuna ósanngjarna og skref í ranga átt.

Breytingarnar á gjaldskyldu og gjaldskrá taka gildi um helgina
Breytingar á gjaldskyldu og gjaldskrá bílastæða Reykjavíkurborgar taka gildi núna um mánaðamótin.

Aldrei fleiri andvígir Borgarlínu
Andstaða við Borgarlínuna hefur aukist nokkuð og samkvæmt nýrri könnun Maskínu hafa raunar aldrei fleiri verið andvígir henni. Þá hafa ekki færri verið hlynntir henni.

Bandarískur sjóðastýringarrisi vill fjárfesta í Carbfix fyrir milljarða
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt að undirgangast tiltekna skilmála vegna tilboðs bandaríska sjóðastýringarfélagsins Stonepeak, einn stærsti innviðafjárfestir heims, um möguleg kaup á nýjum hlutum í fyrirtækinu Carbfix. Erlendir fjárfestar gætu lagt félaginu, sem hefur hannað tæknilausn sem bindur koltvísýring varanlega í bergi, til marga milljarða króna í aukið hlutafé til að standa straum að uppbyggingu þess á komandi árum.

Vill vita hvers vegna skíðalyftan í Breiðholti var fjarlægð
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, vill fá svör hvers vegna staurar fyrir skíðalyftu í Breiðholti hafa verið fjarlægðir. Hún segir samráð í málinu vera ekkert.

Hagsmuni borgarbúa í fyrsta sæti
Sósíalistar lögðu í gær fram tillögu þess efnis að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði hækki í sama hlutfall og þeir voru í áður en borgarstjórn lækkaði þá í miðjum covid faraldri. Vegna þeirrar ákvörðunar hefur borgin orðið af 1,4 milljörðum króna sem nýta hefði mátt í grunnþjónustu við íbúa eða til að bæta fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar.