
Framsóknarflokkurinn bætir við sig
Framsóknarflokkurinn bætir við sig fimm prósentum á milli kannanna hjá Fréttablaðinu en í nýjustu könnun blaðsins sem Prósent framkvæmdi mælist flokkurinn með 17,3 prósent.
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Framsóknarflokkurinn bætir við sig fimm prósentum á milli kannanna hjá Fréttablaðinu en í nýjustu könnun blaðsins sem Prósent framkvæmdi mælist flokkurinn með 17,3 prósent.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, hvatti Birgi Ármannson, forseta Alþingis, til að fjarlægja listaverkið Svörtu keiluna sem er staðsett fyrir utan Alþingishúsið í ræðu sinni á þinginu í dag. Listaverkið er eftir Santiago Sierra og var sett niður árið 2012 sem minnisvarði um borgaralega óhlýðni.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, telur að enginn fái það sem hann vill í þeim breytingum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á rammaáætlun. Hún vísar því á bug að tillögunar séu aðför að náttúrunni.
Þó þingflokkar hafi náð saman um heildarramma þingloka standa örfá mál eftir sem ekki hefur enn tekist að ná sátt um. Samkvæmt heimildum fréttastofu er veiting ríkisborgararéttar þar stærst og enn lengst á milli flokkanna í því. Nái þeir ekki saman um það í kvöld eða snemma á morgun gæti þetta sett þinglok í algert uppnám.
Stjórnarþingmaðurinn Bjarni Jónsson klöknaði í ræðustól þegar hann lýsti andstöðu sinni við breytingar á rammaáætlun í umræðum um málið á Alþingi nú síðdegis. Hann sagði dapurlegt að sterkari náttúruverndartaug væri ekki að finna í samstarfsflokkum Vinstri grænna í ríkisstjórn.
Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2023 til 2027 var samþykkt á Alþingi rétt fyrir klukkan þrjú í dag, með 35 atkvæðum gegn 12 atkvæðum. Ellefu þingmenn greiddu ekki atkvæði og fimm þingmenn voru fjarverandi.
Stjórnarandstaðan deildi hart á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í dag. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkissjóð í gríðarlegri klemmu þar sem um fjörutíu milljarðar króna hafi verið teknir úr honum í formi skattalækkanna á undanförnum árum.
Alls voru 23 mál á dagskrá þingsins í dag en tólf mál stóðu eftir klukkan þrjú, þar á meðal umræða um fjármálaáætlun næstu fimm ára og fjáraukalög 2022. Gera má ráð fyrir að fundurinn standi yfir í nokkurn tíma en aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar verða einnig til umræðu.
Við Vestfirðingar líkt og íbúar annarra landshluta erum háð greiðum samgöngum í okkar daglega lífi alla daga ársins. Með samþjöppun grunnþjónustu og stærri atvinnusvæðum skiptir nú enn meira máli en áður að hafa greiðar samgöngur og útséð með að sú þróun komi til með að breytast næstu áratugi.
Fyrsta fjármálaáætlun nýrrar ríkisstjórnar verður afgreidd á Alþingi í vikunni. Tilgangur slíkrar áætlunar er að útskýra hvernig eigi að fjármagna loforð ríkisstjórnarinnar eins og þau birtast í stjórnarsáttmála.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins vill að fólki verði gefið rúmt samningsfrelsi þegar kemur að tæknifrjóvgun. Á dögunum greindi kona frá því að kynfrumum látins eiginmanns hennar hafi verið eytt, þvert á vilja þeirra beggja. Frumvarpi um breytingu á lögum um tæknifrjóvgun er ætlað að girða fyrir slík atvik.
Fyrrverandi umhverfisráðherra Samfylkingarinnar í stjórn með Sjálfstæðisflokknum segir breytingar í nýrri rammaáætlun mikla afturför og telur ljóst að Vinstri græn hafi verið beitt þrýstingi. Þingflokksformaður Vinstri grænna reiknar með að rammáætlun verði samþykkt á Alþingi þrátt fyrir andstöðu innan flokksins.
Þingflokksformaður Vinstri grænna á von á að rammaáætlunin verði samþykkt í núverandi mynd þrátt fyrir andstöðu samflokksmanns hans við að Héraðsvötn verði færð úr verndar- í biðflokk. Rammaáætlunin væri mikilvægt tæki og því ætti einstakt mál ekki að koma í veg fyrir áætlunin nái fram að ganga.
Meirihluti fjárlaganefndar leggur til að meðal annars verði horft til þyngdar ökutækja þegar kemur að boðaðri endurskoðun á skattlagningu á umferð og ökutæki. Reiknað er með að flýting á innleiðingu nýrra gjalda vegna umferðar og eldsneytis skili ríkissjóði fimmtán milljörðum á árunum 2023 til 2027. Meirihluti nefndarinnar telur að ekki sé hægt að horfa mikið lengur framhjá því að núverandi fyrirkomulag komi niður á viðhaldi vega.
Þingmaður Samfylkingarinnar segir nýkynntar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda í efnahagsmálum helst bitna á grunnþjónustunni við landsmenn á meðan aðrir sleppi algerlega. Ríkisstjórnin sé að grafa undan velferðarþjónustu þar sem almennum borgurum er kastað fyrir bílinn.
Þingmaður Vinstri grænna ritar ekki undir álit meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar um tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Hann segir niðurstöðu meirihlutans vera sér mikil vonbrigði og þar standi hæst að Héraðsvötn í Skagafirði hafi verið færð í biðflokk úr verndunarflokki.
Meðlimir Sambands ungra Sjálfstæðismanna ætla að keyra fólki í miðbænum ókeypis um í kvöld. Markmiðið er að varpa ljósi á það sem þau kalla fordæmalaust ástand á leigubílamarkaði hér á landi.
Íslenskir leigubílstjórar hafa það ekkert sérstaklega gott. Á síðasta ári voru regluleg heildarlaun einka- leigu- og sendibifreiðastjóra kr. 579.000,- á mánuði, að meðaltali. Eins og við hin þurfa þeir að hafa í sig og á, borga af lánum og þvíumlíkt.
Þingmaður Pírata segir að það sé gömul saga og ný að lögreglan vilji auknar valdheimildir. Koma þurfi á virku eftirliti með störfum lögreglu áður en hugmyndir um lengri gæsluvarðhaldstíma séu skoðaðar.
Ríkið ætlar að spara tæpa tuttugu og sex milljarða króna á næsta ári með aðhaldsaðgerðum og hækkun gjalda. Atvinnuvinnuveganefnd afgreiddi umdeilt frumvarp Lilju Alfreðsdóttur um hækkun endurgreiðslna til kvikmyndagerðar til loka afgreiðslu á Alþingi í dag.
Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir stjórnvalda koma fram í nefndaráliti fjárlaganefndar síðar í dag eða á morgun. Samkomulag tókst milli allra þingflokka nema Miðflokksins á Alþingi í gærkvöldi um hvaða mál fá afgreiðslu fyrir þinghlé í næstu viku.
Fjármála- og efnahagsráðherra lagði tillögur að breytingum á fjármálaáætlun fyrir fjárlaganefnd í dag, sem ætlað er að vinna gegn þenslu og verðbólgu í hagkerfinu. Meðal tillagðra breytinga á tekjuhlið ríkissjóðs er lækkun á afslætti á áfengisgjaldi og tóbaksgjaldi í fríhöfninni.
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að sem betur fer verði ekkert af skerðingum réttinda útlendinga að sinni eftir að dómsmálaráðherra dró útlendingafrumvarp sitt til baka á Alþingi í dag. Stjórnarflokkarnir hafa náð samkomulagi um um fyrstu breytingar á rammaáætlun í sjö ár.
Þingmaður Viðreisnar segir lífeyrissjóðina ætla að mismuna yngri og eldri kynslóðum í lífeyrisréttindum með nýlegri breytingu á reglum sínum. Tugir milljarða verði færðir frá yngri kynslóðum til hinna eldri og þar með væri brotið gegn grunngildum samtryggingarinnar sem lífeyrissjóðirnir ættu að byggja starfsemi sína á.
Guðmundur Björgvin Helgason stjórnmálafræðingur hefur hlotið tilnefningu forsætisnefndar Alþingis til embættis ríkisendurskoðanda. Hann hlaut 54 atkvæði en 3 greiddu ekki atkvæði.
Ríkisstjórnin boðar aðgerðir til að mæta þenslu í hagkerfinu. Innviðaráðherra segir að þetta muni ekki bitna á neinum framkvæmdum.
Þingmaður Flokks fólksins spyr ríkisstjórn Íslands að því hver græði og hver tapi ef þúsundir missa heimili sín eins og eftir fjármálahrunið árið 2018. Hún segir verðbólgudrauginn kominn á stjá og að stefni í óefni á húsnæðismarkaði.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður og þingmaður Miðflokksins, segir að ríkisstjórnin hafi áorkað afar litlu á þeim fimm árum sem hún hefur verið við völd. Stjórnmál séu ekki sérsvið ríkisstjórnarinnar og nú sé „Covid-skjólið“ horfið.
Þingflokksformaður Viðreisnar veltir því fyrir sér hvernig einkunnaspjald ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur lítur út að fyrsta ári eftir endurnýjað samstarf hennar loknu. „Eru allir ráðherrar stoltir á bekkjarmyndinni?“ spyr hann.
Þingflokksformaður Vinstri grænna - græns framboðs sagði flokkinn hafa sannað sig að vera sú stjórnmálahreyfing sem hefur kjark til að takast á við áskoranir og verkefni, stjórnmálahreyfing sem hikar ekki við samstarf við aðra, sem getur verið í forystu og getur vísað veginn, í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum Alþingis.