Hinn eftirsótti Šeško áfram hjá Leipzig Þrátt fyrir að vera eftirsóttur af Arsenal, Chelsea ásamt Manchester og Newcastle United þá hefur hinn 21 árs gamli Benjamin Šeško ákveðið að vera áfram á mála hjá RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 11. júní 2024 12:01
De Jong ekki með Hollandi á EM Frenkie de Jong, miðjumaður Barcelona, verður ekki með Hollandi á Evrópumóti karla í fótbolta sem hefst á föstudaginn kemur. Fótbolti 11. júní 2024 11:30
Hættir líklega ef England verður ekki Evrópumeistari Gareth Southgate, landsliðseinvaldur Englands, hefur opinberað að hann muni að öllum líkindum hætta sem þjálfari enska karlalandsliðsins fari svo að England standi ekki uppi sem Evrópumeistari að loknu EM sem hefst á föstudaginn kemur. Fótbolti 11. júní 2024 11:01
Tuttugu ár síðan allt stefndi í að „ómennskur“ Rooney yrði hetja Englands Fyrir tuttugu árum síðan trúði nær allt England – allavega þau þeirra sem horfa á fótbolta - að loks myndi þjóðin vinna EM sem þá fór fram í Portúgal. Svo meiddist undrabarnið Wayne Rooney og vonir Englands hurfu út um gluggann. Fótbolti 11. júní 2024 10:01
Segir Bayern hafa náð samkomulagi við lykilmann Leverkusen Það virðist næsta víst að miðvörðurinn Jonathan Tah færi sig um set frá Þýskalandsmeisturum Bayer Leverkusen til Bayern München. Fótbolti 11. júní 2024 09:31
Mörk Hollands gegn Íslandi Holland lagði Ísland 4-0 þegar liðin mættust í vináttulandsleik karla í knattspyrnu. Um var að ræða síðasta leik Hollands áður en liðið heldur á Evrópumótið sem fram fer í Þýskalandi. Fótbolti 11. júní 2024 08:00
„Má ekki vanmeta gæðin sem við búum yfir“ „Mér líður vel, þetta var góð frammistaða hjá okkur,“ sagði Memphis Depay, leikmaður Hollands, eftir 4-0 sigur á Íslandi á mánudagskvöld. Um var að ræða síðasta leik Hollands áður en liðið fer til Þýskalands þar sem Evrópumót karla í knattspyrnu hefst á föstudaginn kemur. Fótbolti 11. júní 2024 08:00
„Ég er ekki fórnarlamb kynþáttaníðs heldur böðull rasista“ Vinícius Júnior, leikmaður Evrópu- og Spánarmeistara Real Madríd, hefur tjáð sig eftir að þrír stuðningsmenn Valencia voru dæmdir í átta mánaða fangelsi fyrir kynþáttaníð í hans garð á síðustu leiktíð. Fótbolti 11. júní 2024 07:31
„Léleg snerting hér eða þar þá eru þeir komnir strax í andlitið á þér“ „Gríðarlega erfiður leikur, það fór mikil orka í leikinn á föstudaginn og bara tveir dagar á milli leikja þannig þetta var mjög erfitt,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson eftir 4-0 tap Íslands gegn Hollandi í gærkvöld. Fótbolti 11. júní 2024 07:00
Meðvitaður um stöðu sína hjá Man Utd en vill ólmur vera áfram Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, er sagður meðvitaður um stöðu sína hjá félaginu en vill ólmur vera þar áfram þrátt fyrir að Man Utd hafi skoðað þjálfaramarkaðinn í sumar. Enski boltinn 10. júní 2024 23:31
Myndaveisla frá veisluhöldum Hollands í Rotterdam Holland lagði Ísland 4-0 í vináttuleik en um var að síðasta leik Hollands áður en liðið heldur á EM karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi. Fótbolti 10. júní 2024 23:00
„Þreytuleg mistök og fáum þrjú mörk á okkur í seinni“ Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir það ekki góða tilfinningu að þurfa að sækja boltann fjórum sinnum í eigið net í einum og sama leiknum. Fótbolti 10. júní 2024 21:24
„Þreytumerki eftir að þeir skoruðu þriðja markið“ „Þetta var erfitt í kvöld, þeir eru drullu góðir. Fannst við inn í leiknum í langan tíma,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson eftir 4-0 tap Íslands í Rotterdam. Fótbolti 10. júní 2024 21:20
„Þeir eru bara með gæði fram á við og í öllu liðinu“ „Þetta var vissulega mjög erfitt,“ sagði Valgeir Lunddal Friðriksson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, eftir 4-0 tap gegn Hollendingum í kvöld. Fótbolti 10. júní 2024 21:14
Åge eftir tapið í Rotterdam: Höfðum ekki sama hraða og á Wembley „Það var mikið af þreyttum löppum þarna úti. Virkilega erfitt að spila á móti tveimur góðum landsliðum á svona stuttum tíma, aðeins þrír dagar á milli leikja,“ sagði Åge Hareide eftir 4-0 tap Íslands í Rotterdam í kvöld. Fótbolti 10. júní 2024 21:06
Áfall fyrir botnlið Þróttar Sierra Marie Lelli, leikmaður botnliðs Þróttar Reykjavíkur í Bestu deildar kvenna í fótbolta, mun ekki spila meira með liðinu á þessari leiktíð vegna meiðsla sem hún varð fyrir í æfingaleik gegn U-23 ára landsliði Íslands. Íslenski boltinn 10. júní 2024 19:31
Fóru yfir það besta frá „syni Haraldar“ Hákon Arnar Haraldsson gekk í raðir franska efstu deildarliðsins Lille fyrir nýafstaðið tímabil. Eftir að gera það gott með FC Kaupmannahöfn í Danmörku þá átti hann erfitt uppdráttar fyrst um sinn í Frakklandi en sýndi hvað í sér bjó á síðari hluta tímabilsins. Fótbolti 10. júní 2024 18:46
Davíð Snorri í rigningunni á De Kuip: „Má segja að veðrið sé okkur í hag“ Davíð Snorri Jónasson, aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta, segir veðrið með liðinu í hag fyrir vináttuleikinn gegn Hollandi í Rotterdam í kvöld en mikil rigning var skömmu fyrir leik. Fótbolti 10. júní 2024 18:26
Byrjunarlið Íslands: Ein breyting frá sigrinum á Englandi Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, gerir eina breytingu frá sigrinum á Englandi. Valgeir Lunddal Friðriksson kemur inn í liðið fyrir Daníel Leó Grétarsson. Fótbolti 10. júní 2024 17:52
Uppgjör: Holland - Ísland 4-0 | Hollendingar fara dansandi inn á EM Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mátti þola 4-0 tap er liðið mætti því hollenska í vináttulandsleik í kvöld. Þetta var seinasti leikur Hollendinga fyrir EM sem hefst á föstudaginn. Fótbolti 10. júní 2024 17:31
Þýska landsliðið sefur í sumarbústöðum Það mun ekki væsa um þýska karlalandsliðið í knattspyrnu meðan á Evrópumótinu stendur í Þýskalandi. Fótbolti 10. júní 2024 17:00
Bera þurfti Bolt af velli á sjúkrabörum Bera þurfti jamaíska spretthlauparann Usain Bolt af velli á sjúkrabörum í árlegum góðgerðarleik í fótbolta í Lundúnum í gær. Komið hefur í ljós að Bolt sleit hásin í umræddum leik. Fótbolti 10. júní 2024 14:01
Hefur ekki hugmynd um hvað tekur nú við Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari segir marga hafa spurt sig að því hvað taki nú við hjá henni og Aroni Einari Gunnarssyni fótboltamanni nú þegar samningur hans er runninn út hjá Al Arabi. Sannleikurinn sé sá að hún hafi ekki hugmynd og viðurkennir Kristbjörg að hún eigi erfitt með óvissuna. Lífið 10. júní 2024 13:51
Óskar um nýja starfið hjá KR: „Ég er ekki ógn við Gregg Ryder“ Knattspyrnudeild KR greindi frá því í hádeginu að Óskar Hrafn Þorvaldsson hefði verið ráðinn til starfa hjá félaginu. Óskar Hrafn mun verða deildinni innan handar en þó ekki í starfi aðalþjálfara karlaliðs félagsins eins og hefur verið hvíslað um undanfarnar vikur. Óskar sjálfur segist ekki vera ógn við núverandi þjálfara karlaliðs félagsins, Gregg Ryder. Íslenski boltinn 10. júní 2024 13:20
Reynir aftur að fá Bale til Wrexham: „Hann má spila golf hvenær sem er“ Rob McElhenney, eigandi velska félagsins Wrexham, hefur ekki gefið upp von um að Gareth Bale muni spila aftur fótbolta. Enski boltinn 10. júní 2024 13:01
Ancelotti, Real Madrid og árangur liðsins – út frá sálfræðilegum pælingum Spænska félagið Real Madrid vann meistaradeildina í 15. sinn um daginn sem er ótrúlegur árangur. Real Madrid er heillandi áfangastaður fyrir bestu leikmenn heim vegna þess mikla árangurs sem liðið hefur náð í gegnum tíðina. Skoðun 10. júní 2024 13:01
Óskar Hrafn tekinn til starfa hjá KR Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur tekið við störfum hjá Knattspyrnudeild KR. Íslenski boltinn 10. júní 2024 12:53
Átta mánaða fangelsi fyrir kynþáttaníð í garð Vinicius Þrír karlmenn hafa verið sakfelldir og hlotið átta mánaða fangelsisdóm fyrir kynþáttaníð í garð Vinicius Jr., leikmanns Real Madrid, í leik liðsins gegn Valencia í maí árið 2023. Fótbolti 10. júní 2024 12:30
„Ég held það hræði ekki Íslendinga“ Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide óttast ekki aðstæður á De Kuip í Rotterdam í kvöld. Spilað verður í alíslenskri, en þó hollenskri, haustlægð. Fótbolti 10. júní 2024 12:01
Datt af hjóli og missir af EM Michal Sadileik, miðjumaður tékkneska landsliðsins og hollenska félagsins Twente, hefur dregið sig frá keppni á Evrópumótinu eftir að hafa dottið af hjóli. Fótbolti 10. júní 2024 11:01