Newcastle gerði Tonali að dýrasta Ítala sögunnar Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle hefur gengið frá kaupum á ítalska knattspyrnumanninum Sandro Tonali frá AC Milan. Fótbolti 3. júlí 2023 22:46
„Frábærar í fyrri en seinni hálfleikur var hryllilegur“ Þróttur sigraði Selfoss 3-0 á heimavelli fyrr í kvöld. Nik Chamberlain, þjálfari liðsins, var sáttur með niðurstöðu leiksins en óánægður með frammistöðu liðsins í seinni hálfleik. Fótbolti 3. júlí 2023 22:32
Staðfesta 76 ára Hodgson sem setur stefnuna á efri hlutann Crystal Palace hefur staðfest að Roy Hodgson muni stýra liðinu á næsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni og þessi tæplega 76 ára gamli þjálfari er strax farinn að setja markið hátt. Fótbolti 3. júlí 2023 20:30
Patro Eisden staðfestir komu Stefáns Inga Stefán Ingi Sigurðarson, markahæsti leikmaður Bestu-deildar karla, er genginn til liðs við belgíska félagið Patro Eisden frá Breiðablik. Fótbolti 3. júlí 2023 19:55
Íslensk mörk í sigrum í sænska og norska boltanum Þeir Sveinn Aron Guðjohnsen og Ari Leifsson voru báðir á skotskónum er lið þeirra unnu sigra í sænska og norska boltanum í kvöld. Sveinn Aron skoraði fyrra mark Elfsborg í 2-0 sigri gegn Hammarby og Ari skoraði ein mark Strömsgodset í 1-0 sigri gegn Stabæk. Fótbolti 3. júlí 2023 19:21
Ekki byrjaður að láta sig dreyma um Gylfa í Val: „Lítur mjög vel út“ Það ráku margir upp stór augu þegar fréttist af því að Gylfi Þór Sigurðsson væri mættur á æfingu með Bestu deildar liði Vals. Þjálfari liðsins, Arnar Grétarsson, segist ekki vera farinn að láta sig dreyma um að sjá Gylfa í treyju Vals í sumar, hann hafi þó engu gleymt inn á knattspyrnuvellinum. Fótbolti 3. júlí 2023 18:46
Gerrard tekinn við Al-Ettifaq Steven Gerrard, fyrrverandi leikmaður Liverpool og enska landsliðsins, er tekinn við stjórnartaumunum hjá Al-Ettifaq í sádiarabísku deildinni. Fótbolti 3. júlí 2023 17:46
Sextán ára stelpa frá Barcelona í HM-hópi Ítala en ekki fyrirliðinn Það er ekki pláss fyrir fyrirliða ítalska kvennalandsliðsins í fótbolta í HM-hópnum en þar er aftur á móti sextán ára stelpa sem spilar með einu besta liði heims. Fótbolti 3. júlí 2023 16:13
Málaði 75 metra háa veggmynd af Messi og setti heimsmet Lionel Messi var alltaf þjóðhetja í Argentínu en hann komst í guðatölu með því að leiða liðið til heimsmeistaratitils í fyrra. Fótbolti 3. júlí 2023 12:00
Þrettán ára stelpa spilaði fyrir HM-landslið Suður Afríku eftir skróp leikmanna Suður Afríka er á leiðinni á HM kvenna í fótbolta en það er sannkallað ófremdarástand í gangi milli leikmanna liðsins og knattspyrnusambandsins. Fótbolti 3. júlí 2023 11:31
Gylfi á æfingu hjá Val Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson tekur þátt í æfingu Bestu deildarliðs Vals á Hlíðarenda í dag. Fótbolti 3. júlí 2023 10:43
Reggí strákarnir hans Heimis unnu stórt en töpuðu samt markastríðinu Jamaíska fótboltalandsliðið tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Gullbikarsins í nótt með sínum öðrum sigurleik í röð í keppninni. Heimir Hallgrímsson fór því taplaus með liðið í gegnum riðlakeppnina. Fótbolti 3. júlí 2023 07:31
Dagskráin í dag: Leikur í Bestu deild kvenna Einn leikur er á dagskrá í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 3. júlí 2023 06:00
Finnur United eftirmann De Gea í Hollandi? Samningaviðræður Manchester United og David De Gea eru í biðstöðu. Byrjað er að orða félagið við aðra markmenn og nú virðist sem félagið sé farið að horfa til Hollands í leit sinni. Enski boltinn 2. júlí 2023 22:45
Viðar Örn kominn í búlgörsku úrvalsdeildina Viðar Örn Kjartansson er genginn til liðs við CSKA 1948 í búlgörsku úrvalsdeildinni. Viðar Örn skrifar undir tveggja ára samning við liðið. Fótbolti 2. júlí 2023 21:30
Úkraínumenn slógu út Frakka Úkraína er komið í undanúrslit Evrópumóts U21-árs landsliða í knattspyrnu eftir sigur á sterku liði Frakka í kvöld. Úkraína mætir Spáni í undanúrslitum. Fótbolti 2. júlí 2023 21:15
Breiðhyltingar skildu Njarðvík eftir í fallsæti Leiknir úr Breiðaholti lyfti sér úr fallsæti Lengjudeildar karla eftir sigur á Njarðvík á heimavelli í dag. Með sigrinum fara Breiðhyltingar upp fyrir Njarðvík í töflunni. Fótbolti 2. júlí 2023 20:15
Gordon tryggði Englandi sæti í undanúrslitum England tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Evrópumóts U21-árs landsliða í knattspyrnu þegar liðið lagði Portúgal 1-0. Leikmaður Newcastle skoraði sigurmarkið. Fótbolti 2. júlí 2023 18:15
Kristall Máni byrjaði í tapi Rosenborg Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Rosenborg sem tapaði á útivelli gegn Álasund í dag. Rosenborg er aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti í deildinni. Fótbolti 2. júlí 2023 17:16
Dominik Szoboszlai staðfestur sem önnur sumarkaup Klopp Dominik Szoboszlai var í dag staðfestur sem nýr leikmaður Liverpool en hann semur við félagið til ársins 2028. Fótbolti 2. júlí 2023 16:55
Ægir strengdi sér líflínu í fallbaráttunni Ægir vann lífsnauðsynlegan sigur í baráttu sinni um að forðast fall úr Lengjudeild karla í fótbolta þegar liðið sótti Vestra heim á Ísafjörð í níundu umferð deildarinnar í dag. Fótbolti 2. júlí 2023 16:39
Arnór Ingvi skoraði á móti Valgeiri Arnór Ingvi Traustason skoraði annað marka Norrköping þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Häcken í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í dag. Fótbolti 2. júlí 2023 15:30
Guðrún hetjan þegar Rosengård vann Guðrún Arnardóttir, landsliðskona í fótbolta, skoraði sigurmark Rosengård þegar liðið vann 2-1 sigur gegn Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 2. júlí 2023 15:17
Manchester United með augastað á Rasmus Højlund Atalanta hefur samkvæmt því sem fram kemur í enskum fjölmiðlum hafnað kauptilboði Manchester United í danska landsliðsframherjann Rasmus Højlund. Fótbolti 2. júlí 2023 12:14
Blikar mjaka Íslandi upp fyrir Lúxemborg og Georgíu Sigrar Breiðabliks í forkeppni Meistaraadeildar Evrópu í fótbolta karla mjakaði Íslandi upp um tvö sæti á styrkleikalista UEFA yfir deildarkeppni evrópskra þjóða. Fótbolti 2. júlí 2023 11:48
David de Gea gæti endurnýjað kynnin við Ronaldo David de Gea er orðaður við sádí-arabíska liðið Al-Nassr. Þar gæti hann orðið samherji Cristiano Ronaldo á nýjan leik en þeir léku saman hjá Manchester United. Fótbolti 2. júlí 2023 11:04
Stjörnustrákar fóru heim með Orkumótsbikarinn Orkumótinu í fótbolta stráka lauk í Vestmannaeyjum í gær en þar leika strákar í 6. flokki karla á stærsta móti ársins í þeim aldursflokki. Fótbolti 2. júlí 2023 09:34
Breyta rangstöðureglunni þökk sé Wenger FIFA hyggst breyta rangstöðureglunni á þann veg að allur líkami sóknarmanns þarf að vera fyrir innan líkama varnarmanns til að vera dæmdur rangstæður. Nýja reglan verður prófuð í sumum leikjum í Hollandi, á Ítalíu og í Svíþjóð á komandi leiktíð. Fótbolti 2. júlí 2023 09:00
Hvorki Manchester United né Bayern München vilja Sabitzer Bayern München er talið vera tilbúið að selja Marcel Sabitzer. Hann var á láni hjá Manchester United en hann spilaði átján leiki og skoraði þrjú mörk fyrir enska stórveldið. Enski boltinn 2. júlí 2023 07:00
Íslandsbaninn hjá Liverpool til 2028 Dominik Szoboszlai hefur skrifað undir samning við Liverpool til ársins 2028. Frá þessu greinir félagskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano á Twitter síðu sinni. Fótbolti 1. júlí 2023 22:01
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn