Sjáðu: Lygilegt mark Ísaks Andra og Valgeir Lunddal lagði upp sigurmarkið Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði ótrúlegt mark þegar Norrköping mátti þola 3-1 tap gegn Djurgårdens IF í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Þá lagði Valgeir Lunddal Friðriksson upp sigurmark BK Häcken. Fótbolti 8. júlí 2024 19:16
Túfa saknaði fjölskyldunnar og snýr aftur til Íslands Knattspyrnuþjálfarinn Srdjan Tufegdzic, eða einfaldlega Túfa, hefur sagt af sér sem þjálfari Skövde í sænsku B-deildinni. Ástæðan er sú að hann saknar fjölskyldu sinnar sem er staðsett á Íslandi. Fótbolti 8. júlí 2024 18:56
Nýta undanþágu til að fá Jason Daða til Englands Enska D-deildarliðið Grimsby Town nýtir sér undanþágu til að sækja hægri vængmanninn Jason Daða Svanþórsson. Það stefnir í að Mosfellingurinn verði leikmaður félagsins fyrr en seinna. Fótbolti 8. júlí 2024 17:16
Nistelrooy snúinn aftur á Old Trafford eftir átján ára fjarveru Ruud van Nistelrooy hóf í dag störf sem aðstoðarþjálfari Manchester United, átján árum eftir að hann yfirgaf félagið sem leikmaður. Fótbolti 8. júlí 2024 16:30
Guðmundur mættur í armenska boltann Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson hefur gert eins árs samning við armenska félagið FC Noah með möguleika á eins árs framlengingu. Fótbolti 8. júlí 2024 14:37
Ronaldo gefur í skyn að hann muni halda áfram í landsliðinu Þrátt fyrir vonbrigðin á Evrópumótinu í Þýskalandi gæti Cristiano Ronaldo haldið áfram að spila með portúgalska landsliðinu. Fótbolti 8. júlí 2024 14:32
Fyrsta ferna Skagamanns síðan Pétur Péturs náði því nítján ára Viktor Jónsson skoraði fjögur mörk í 8-0 stórsigri Skagamanna á HK í Bestu deild karla í fótbolta um helgina. Íslenski boltinn 8. júlí 2024 14:00
Cecilía á leið til Inter Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir er á leið í ítölsku úrvalsdeildina frá Bayern München. Fótbolti 8. júlí 2024 13:24
FCK hafnar risatilboði frá Spáni í Orra Stein Danska úrvalsdeildarliðið FC Kaupmannahöfn hefur hafnað risatilboði frá spænska úrvalsdeildarfélaginu Girona í Orra Stein Óskarsson. Fótbolti 8. júlí 2024 12:50
Bobby Firmino orðinn prestur Roberto Firmino er fyrrum leikmaður Liverpool og mjög trúaður eins og stuðningsmenn Liverpool þekkja frá tíma hans á Anfield. Enski boltinn 8. júlí 2024 12:31
Feðgar komu við sögu þegar Ingi Björn missti bæði markametin sín Ingi Björn Albertsson var markahæsti leikmaður Íslandsmótsins í þrjátíu ár og markahæsti Valsmaðurinn í 46 ár. Nú hefur hann misst bæði þessi markamet sín. Íslenski boltinn 8. júlí 2024 12:02
Sextíu þúsund manns vilja ekki missa De Ligt til Man United Tæplega sextíu þúsund stuðningsmenn þýska stórveldisins hafa sett nöfn sín á undirskriftalista til að reyna að koma í veg fyrir að félagið selji varnarmanninn Matthijs de Ligt til Manchester United. Fótbolti 8. júlí 2024 11:30
Verða að borga Eriksen og dönsku stjörnunum tugi milljóna króna Christian Eriksen, ásamt tuttugu og tveimur öðrum dönskum íþróttastjörnum, vann mál gegn veðmálafyrirtækinu Bet365. Fótbolti 8. júlí 2024 11:01
Helena hefur áhyggjur af FH sem gæti misst öfluga leikmenn Bestu mörkin ræddu FH liðið og framtíð þess eftir skell á heimavelli á móti Breiðabliki í tólftu umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 8. júlí 2024 10:30
Man United á eftir fleiri Hollendingum en De Ligt Manchester United er sagt vera komið langt í viðræðum um kaup á hollenska framherjanum Joshua Zirkzee. Enski boltinn 8. júlí 2024 10:01
Sjáðu þrennu Söndru, fernu Huldu og táningana sjá um þetta fyrir Val Fótboltastelpurnar í Bestu deildinni fundu skotskóna á ný eftir afar fá mörk í umferðinni á undan. Íslenski boltinn 8. júlí 2024 09:30
Adam Ingi fetar í fótspor Haraldar Fótboltamarkvörðurinn Adam Ingi Benediktsson er genginn í raðir Östersund frá Gautaborg. Samningur hans við Östersund gildir til ársloka 2026. Fótbolti 8. júlí 2024 09:20
Leikmenn franska landsliðsins fagna úrslitum kosninganna Franska fótboltalandsliðið er komið í undanúrslit á Evrópumótinu í Þýskalandi en leikmenn hafa líka verið með augun á þingkosningum í heimalandinu og þeim tókst eflaust að hafa einhver áhrif á þær. Fótbolti 8. júlí 2024 09:01
Þakkir til Jimmy Floyd Hasselbaink eftir frábæra vítakeppni enska liðsins Jude Bellingham segir að góð ráð frá Jimmy Floyd Hasselbaink hafi hjálpað honum og ensku landsliðsmönnunum í vítaspyrnukeppninni á móti Sviss. Fótbolti 8. júlí 2024 08:01
Nefna skó í höfuðið á Kroos: „Hann varð bara ástfanginn“ Björgvin Hreinsson, alþjóðlegur vörustjóri Adidas, segir að Toni Kroos, fyrrverandi leikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, hafi einfaldlega orðið ástfanginn af Adidas Adipure 11Pro takkaskónum sem komu út fyrir ellefu árum. Fótbolti 8. júlí 2024 07:00
Stólarnir missa lykilmann en fá Spánverja í staðin Tindastóll hefur samið við hina spænsku Mariu del Mar Mazuecos um að leika mað liðinu út yfirstandandi tímabil í Bestu-deild kvenna. Fótbolti 7. júlí 2024 23:17
Thiago leggur skóna á hilluna Félagsskiptamógúllinn Fabrizio Romano fullyrðir að Thiago Alcantara, leikmaður Liverpool, sé búinn að ákveða að leggja skóna á hilluna í sumar. Fótbolti 7. júlí 2024 22:30
Bayern staðfestir komu Olise Michael Olise er genginn í raðir Bayern München frá Crystal Palace fyrir um sextíu milljónir punda. Fótbolti 7. júlí 2024 21:17
Ásta Eir: Ég er allavegana ekkert að pæla í því „Ég er bara mjög ánægð með okkur,“ sagði Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði Breiðabliks, eftir öruggan 0-4 sigur á FH í Kaplakrika í Bestu deild kvenna. Fótbolti 7. júlí 2024 20:37
Sædís lagði upp tvö í stórsigri Íslenska landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir átti stóran þátt í sigri Vålerenga er liðið vann 6-2 stórsigur gegn Stabæk í norska fótboltanum í dag. Fótbolti 7. júlí 2024 19:26
Uppgjör: FH - Breiðablik 0-4 | Stórsigur skaut Blikum aftur á toppinn Breiðablik kom sér aftur á topp Bestu deildar kvenna með öruggum 0-4 sigri á FH í Kaplakrika í kvöld. Íslenski boltinn 7. júlí 2024 17:15
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - Valur 0-2 | Ragnheiður heldur áfram að skora Valur vann 0-2 sigur gegn Víkingi í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Bæði mörk Vals komu í fyrri hálfleik. Uppgjör og viðtöl væntanleg. Íslenski boltinn 7. júlí 2024 16:25
„Leiðinlegt að kveðja liðið sem maður hefur verið í frá því maður var fjögurra ára“ Víkingur tapaði gegn Val á heimavelli 0-2. Þetta var síðasti leikur Sigdísar Evu Bárðardóttur sem er á leiðinni í Norrköping. Sport 7. júlí 2024 16:23
Keflavík fagnaði sigri í botnslag Bestu deildarinnar Tvö neðstu lið Bestu deildar kvenna mættust í 12. umferð og Keflavík fagnaði 1-0 sigri gegn Fylki. Íslenski boltinn 7. júlí 2024 16:00
Uppgjörið og viðtöl: Þróttur R. - Þór/KA 2-4 | Sandra María Jessen með þrennu í sigri Sandra María Jessen fór á kostum í sigri Þórs/KA gegn Þrótti í Bestu deild kvenna í dag en hún skoraði þrjú mörk í 2-4 sigri. Íslenski boltinn 7. júlí 2024 15:15