Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. Körfubolti 11. mars 2007 17:30
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. Körfubolti 11. mars 2007 10:17
Rasheed Wallace: Það þýðir ekkert að sekta mig Vandræðagemlingurinn Rasheed Wallace hjá Detroit Pistons hefur sent þau skilaboð til forráðamanna NBA-deildarinnar að það þýði ekkert að sekta sig eða setja sig í leikbann – hann muni ekki breyta leikstíl sínum. Wallace, sem er þekktur fyrir sorakjaft í leikjum Detroit, segist eiga nóg af peningum til að borga sínar sektir. Körfubolti 10. mars 2007 19:00
Shaq stendur sig vel í fjarveru Wade Tröllið Shaquille O´Neal hjá Miami lék einn sinn besta leik á tímilinu í nótt þegar meistarar Miami lögðu Minnesota í NBA-deildinni í nótt, 105-91. O´Neal skoraði 32 stig, þar af 15 í fyrsta fjórðung, og hitti úr 13 af 16 skotum sínum í leiknum. Körfubolti 10. mars 2007 12:47
Philadelphia - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld Leikur Philadelphia 76ers og LA Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Heimamenn í Philadelphia eiga vart von á góðu í leiknum í kvöld, þar sem Kobe Bryant mun snúa aftur eftir eins leiks bann og setur eflaust á svið góða sýningu í heimafylki sínu. Liðin hafa verið á ólíku róli í undanförnum leikjum og hér fyrir neðan er létt upphitun fyrir leik kvöldsins. Körfubolti 9. mars 2007 08:30
Varanlega skaddaður eftir árás lukkudýrs Maður nokkur í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur höfðað skaðabótamál á hendur NBA liði Indiana Pacers. Hann segist búa við varanlegt líkamstjón eftir að hann varð fyrir árás lukkudýrs liðsins á leik fyrir ári, en það er sex feta há og blálit fígúra af kattarætt sem nefnist Boomer. Körfubolti 9. mars 2007 04:03
Miami og Cleveland minna á sig Nokkrir athyglisverðir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og þar á meðal tveir stórleikir í Austurdeildinni. Miami burstaði Chicago á heimavelli og hefndi fyrir ófarirnar úr opnunarleik sínum í haust og Cleveland vann þýðingarmikinn útisigur á Detroit á útivelli í framlengingu. Körfubolti 8. mars 2007 04:39
Kobe Bryant tók út bann í nótt Kobe Bryant hjá LA Lakers tók út eins leiks bann í nótt þegar lið hans steinlá á útivelli fyrir Milwaukee Bucks 110-90 á útivelli. Bryant fékk bannið fyrir að slá til Marco Jaric hjá Minnesota Timberwolves í fyrrinótt. Körfubolti 8. mars 2007 04:27
Kobe Bryant aftur í bann? Svo gæti farið að Kobe Bryant hjá LA Lakers yrði í leikbanni í kvöld þegar liðið mætir Milwaukee Bucks á útivelli. Bryant fékk dæmda á sig sóknarvillu í leiknum sem var mjög lík þeirri sem hann fékk í leik gegn San Antonio í janúar og kostaði hann leikbann. Körfubolti 7. mars 2007 17:16
Dallas öruggt í úrslitakeppnina Dallas Mavericks varð í nótt fyrsta liðið í NBA deildinni til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni þó enn sé langt eftir af deildarkeppninni. Dallas bætti enn félagsmet sitt og vann 16. leikinn í röð og 22. heimaleikinn í röð þegar liðið skellti New Jersey 102-89. Jason Terry skoraði 24 stig fyrir Dallas en Vince Carter 32 fyrir New Jersey. Körfubolti 7. mars 2007 13:40
Troðslan kostaði 70 þúsund krónur C.J. Miles, tvítugur leikmaður Utah Jazz, átti heldur bitra innkomu með liði sínu í sigri á Charlotte Hornets í gærkvöld. Miles lék aðeins tvær mínútur í blálokin á stórsigri Utah, en uppskar lítið annað en 70 þúsund króna sekt. Körfubolti 6. mars 2007 23:15
Shaquille O´Neal kennir börnum að léttast Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat er nýjasti NBA leikmaðurinn sem tekur þátt í raunveruleikasjónvarpi. O´Neal verður gestur í þætti á ABC sjónvarpsstöðinni sem fjallar um offituvandamál barna í Bandaríkjunum. Þar mun hann ráðleggja börnum hvernig á að ná af sér aukakílóum, en svo má deila hvort hinn íturvaxni miðherji er rétti maðurinn í það verkefni, enda hefur hann oft verið full þéttur á velli í NBA deildinni. Körfubolti 6. mars 2007 18:56
Artest settur út úr liði Sacramento Ron Artest hefur verið settur út úr liði Sacramento Kings um óákveðinn tíma eftir að hann var handtekinn fyrir heimilisofbeldi í gær. Kona hringdi í neyðarlínuna af heimili hans og hélt því fram að hann hefði ítrekað hrint sér í gólfið og hindrað hana í að hafa samband við lögreglu. Körfubolti 6. mars 2007 14:55
Ron Artest handtekinn Framherjinn Ron Artest hjá Sacramento Kings var handtekinn á heimili sínu í dag eftir að kona hringdi í neyðarlínuna þaðan og tilkynnti að hún hefði verið beitt ofbeldi. Artest var færður á lögreglustöð og er þetta í þriðja sinn á nokkrum árum sem hann kemst í kast við lögin á þennan hátt. Körfubolti 5. mars 2007 22:52
Wade ætlar í endurhæfingu Dwyane Wade, leikmaður Miami Heat og verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA síðasta vor, tilkynnti nú síðdegis að hann ætli að reyna að vera með liði sínu í úrslitakeppninni sem hefst þann 21. apríl. Wade fór úr axlarlið á dögunum og þarf í uppskurð, en hann hefur nú ákveðið að reyna að fresta því þangað til í sumar. Körfubolti 5. mars 2007 17:13
Endurkoma Yao Ming í beinni á NBA TV í kvöld Kínverski risinn Yao Ming snýr væntanlega aftur með liði Houston Rockets í NBA deildinni í kvöld þegar liðið sækir Cleveland Cavaliers heim klukkan tólf á miðnætti. Leikurinn verður sýndur beint á NBA TV-rásinni á Fjölvarpinu. Ming hefur misst úr 32 leiki vegna fótbrots, en hann var með 27 stig og 9 fráköst að meðaltali í leik áður en hann meiddist. Körfubolti 5. mars 2007 14:36
100 stiga skoteinvígi í Milwaukee Ben Gordon og Michael Redd buðu upp á skotsýningu í nótt þegar Chicago Bulls lagði Milwaukee Bucks 126-121 í framlengdum leik í NBA deildinni. Gordon og Redd skoruðu samanlagt 100 stig í leiknum. Körfubolti 5. mars 2007 04:19
New Orleans - Utah í beinni í nótt Leikur New Orleans Hornets og Utah Jazz verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt í nótt. Þarna er á ferðinni áhugavert einvígi leikstjórnendanna Chris Paul og Deron Williams, sem eru án efa leikstjórnendur framtíðarinnar í NBA. Körfubolti 4. mars 2007 19:52
Dallas setti met með 15. sigrinum í röð Dallas Mavericks setti í nótt félagsmet þegar liðið vann 15. sigurinn í röð í NBA deildinni. Dallas lagði Orlando naumlega á heimavelli 92-89 þar sem Dirk Nowitzki skoraði 29 stig, hirti 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Dwight Howard skoraði 25 stig og hirti 10 fráköst fyrir Orlando, en Dallas varð í nótt 6. fljótasta liðið í sögu NBA til að ná 50. sigurleiknum í deildarkeppninni. Körfubolti 4. mars 2007 14:20
Besti leikur Shaquille O´Neal í vetur Gamla brýnið Shaquille O´Neal fór á kostum í nótt þegar hann fór fyrir Miami í góðum sigri á efsta liði Austurdeildarinnar, Detroit Pistons, 85-82. Miami hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleiknum en hafði nauman sigur á lokasprettinum eftir að Detroit hafði náð að jafna leikinn og komast yfir í fjórða leikhluta. Leikurinn var sýndur beint á Sýn. Körfubolti 3. mars 2007 13:56
Upphitun fyrir Miami - Detroit á Sýn annað kvöld Það verður sannkallaður stórleikur á dagskrá Sýnar klukkan eitt annað kvöld þegar meistarar Miami Heat taka á móti erkifjendum sínum Detroit Pistons í NBA deildinni. Detroit hefur mjög örugga forystu í fyrsta sætinu í Austurdeildinni, en Miami er sem stendur í sjöunda sætinu og þarf nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 1. mars 2007 20:45
Philadelphia stöðvaði Phoenix Philadelphia varð í nótt eina liðið í Austurdeildinni í NBA sem náði að vinna Phoenix Suns á heimavelli. Philadelphia sigraði 99-94 og var þetta eina tap Phoenix á útivelli gegn liði í Austurdeildinni. Amare Stoudemire skoraði 31 stig og hirti 14 fráköst fyrir Phoenix en Andre Iguodala skoraði 24 fyrir Philadelphia. Körfubolti 1. mars 2007 14:31
Drífðu þig inn í eldhús kona Cedric Maxwell, fyrrum leikmaður og núverandi útvarpslýsandi hjá Boston Celtics var látinn biðjast afsökunar opinberlega í gærkvöldi eftir karlrembuleg ummæli sín í garð kvendómara í deildinni á mánudagskvöldið. Körfubolti 28. febrúar 2007 22:00
Wade hallast að sjúkrameðferð Bakvörðurinn snjalli Dwyane Wade hjá Miami Heat hefur gefið það í skyn að hann muni fara í endurhæfingu og reyna að snúa aftur í síðustu viku deildarkeppninnar í NBA. Wade fór úr axlarlið á dögunum og hefur enn ekki gefið endanlegt svar um það hvort hann ætli í uppskurð eða endurhæfingu. Körfubolti 28. febrúar 2007 21:15
Denver - Orlando í beinni í nótt Leikur Denver Nuggets og Orlando Magic verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 2 eftir miðnætti í nótt. Þar gefst áhorfendum tækifæri til að sjá þrjár af skærustu stjörnum NBA deildarinnar í einum pakka. Körfubolti 28. febrúar 2007 17:45
13 í röð hjá Dallas Dallas heldur áfram að mala andstæðinga sína í NBA deildinni og í nótt vann liðið Minnesota á útivelli 91-65 og þar með 13. sigurinn í röð. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og áttu heimamenn aldrei möguleika eftir að Dallas-vörnin hélt þeim í aðeins 27 stigum í fyrri hálfleiknum. Þá hefur Phoenix unnið alla útileiki sína gegn liðum úr Austurdeildinni í vetur og setti nýtt met í nótt. Körfubolti 28. febrúar 2007 03:57
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti. Dallas er á ótrúlegri sigurgöngu og hefur unnið 12 síðustu leiki sína, en þó Minnesota hafi ekki gengið eins vel, stöðvaði liðið langa sigurgöngu Phoenix Suns í janúar og er því til alls líklegt. Körfubolti 27. febrúar 2007 20:47
Reggie Miller orðaður við Dallas Dallas Morning News heldur því fram í dag að stórskyttan Reggie Miller sé einn þeirra leikmanna sem komi til greina til sem síðasti maður inn í hóp liðsins fyrir úrslitakeppnina. Miller lagði skóna á hilluna árið 2005 en er sagður í mjög góðu formi og haft var eftir Mark Cuban eiganda Dallas að hann hefði áhuga á að fá Miller til að styrkja lið sitt. Körfubolti 27. febrúar 2007 20:00
Livingston fór úr hnjálið Leikstjórnandinn Shaun Livingston hjá LA Clippers varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í leik liðsins gegn Charlotte Bobcats í nótt en hann lenti illa í byrjun leiksins og fór úr hnjálið. Ljóst er að leikmaðurinn verður frá keppni um óákveðinn tíma þó meiðslin væru raunar ekki jafn alvarleg og útlit var fyrir í fyrstu. Hann á enn eftir að fara í frekari læknisrannsóknir. Körfubolti 27. febrúar 2007 16:01
Glæsilegt met hjá Dallas Sjóðheitt lið Dallas Mavericks varð í nótt fyrsta liðið í sögu NBA deildarinnar til að ná þremur 12 leikja sigurgöngum á einu og sama keppnistímabilinu þegar það valtaði yfir Atlanta 110-87. Þetta var jafnframt 20. heimasigur Dallas í röð og hefur liðið nú unnið 47 af síðustu 52 leikjum sínum eftir að það tapaði fyrstu fjórum leikjunum í haust. Körfubolti 27. febrúar 2007 05:05