Fréttir
Tugir farast í skógareldum
Slökkvilið Ísraels sagðist í gærkvöld ekkert ráða við skógareldana sem geisuðu skammt frá borginni Haífa. Stjórnvöld sögðu þetta verstu náttúruhamfarir í sögu Ísraels.
Tómas tyllir sér við Tjörnina
Jón Gnarr borgarstjóri afhjúpaði styttu af Reykjavíkurskáldinu Tómasi Guðmundssyni við Reykjavíkurtjörn í gær.
Styttist í samninga um eftirlit
Þótt litlar líkur séu á að samkomulag takist á sextándu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó um að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, þá hafa Bandaríkjamenn og Kínverjar að mestu náð saman um það hvernig eftirliti með útblæstri verður háttað.
Milljónir urðu strandaglópar
Milljónir manna komust hvergi og þurftu að fresta ferðum sínum þegar loka þurfti flugvöllum og tafir urðu á lestarsamgöngum víðs vegar um Evrópu vegna snjóa og kulda í gær.
Vilja fá dómsmál fellt niður
„Eitt af helstu viðfangsefnum bandaríska sendiráðsins í Madríd undanfarin sjö ár hefur verið að reyna að fá fellt niður sakamál gegn þremur bandarískum hermönnum, sem sakaðir eru um að hafa drepið spænskan sjónvarpstökumann,“ segir spænska dagblaðið El Pais, sem hefur upplýsingar um þetta úr leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar.
Réðst á konu með hnúajárni
Ríkissaksóknari hefur ákært tæplega þrítugan karlmann fyrir Héraðsdómi Suðurlands fyrir að ráðast á konu, misþyrma henni og hrinda í baðkar. Þá er maðurinn ákærður fyrir vopnalagabrot og fleira.
Fylgi stjórnarinnar 36 prósent
Könnun Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36 prósenta þjóðarinnar samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Það er 6 prósentustigum meiri stuðningur við ríkisstjórnina en mældist í sambærilegri mælingu í október. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í gær.
Gnýr og slysahætta af hraðakstri í þjóðgarði
„Eftir að nýi Lyngdalsheiðarvegurinn milli Þingvalla og Laugarvatns var opnaður hefur hraði og hávaði frá umferð aukist mikið í þjóðgarðinum og um leið slysahætta,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
Segir rangt að ráðuneyti neiti vinnu
Upplýsingafulltrúi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins segir alrangt að ráðuneytið hafi neitað að vinna að aðildarviðræðum stjórnvalda við ESB. Það er í mótsögn við ummæli formanns Bændasamtakanna.
Íslenskt fyrirtæki vill selja þúsund rafjeppa hér á landi
Íslenska þróunarfélagið Northern Lights Energy (NLE) hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við bandaríska fyrirtækið AMP Electric Vehicles um sölu á eitt þúsund rafjeppum hér á landi á næstu fimm árum. Verkefnið er hluti af þjóðarátaki um rafbílavæðingu Íslands sem NLE stendur að.
Ráðuneytið vissi af skorti á markaðnum
Leifur Þórsson, framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara ehf., hafði samband við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið í sumar sökum fyrirsjáanlegs skorts á kjúklingi á markaðnum vegna salmonellusýkingar hjá framleiðendum.
Óhagstæð skattalög stöðva gagnaverin
Gera þarf miklar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra til að það nái því markmiði að gera samkeppnisstöðu gagnavera hér á landi sambærilega við gagnaver í ríkjum Evrópusambandsins, segir Friðrik Þór Snorrason, formaður Samtaka íslenskra gagnaversfyrirtækja.
Leikskólagjöld hækka mest
Kostnaður vegna leikskóla og grunnskóla hjá reykvískri fjölskyldu með þrjú börn, gæti hækkað um nær 100 þúsund krónur á ári samkvæmt útreikningum borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna.
Öll framleiðslan á að vera vistvæn
Prentsmiðjan Svansprent í Kópavogi má nota norræna umhverfismerkið Svaninn, þekktustu umhverfisviðurkenningu Norðurlanda.
Makrílviðræður skiluðu engu
Lokatilraun strandríkja sem aðild eiga að makrílveiðum í NA-Atlantshafi til að komast að samkomulagi um hlutdeild Íslands í makrílveiðum næsta árs skilaði engum árangri. Fundað var í Ósló dagana 25.-26. nóvember með þátttöku ESB, Noregs, Færeyja og Íslands en Rússland átti þar áheyrnarfulltrúa.
Sala Hyundai jókst um 45 prósent
Allir helstu bílaframleiðendur, að Toyota undanskildum, hafa greint frá mikilli söluaukningu nýrra bíla í nýliðnum mánuði. Þróunin er sögð til marks um hægan bata bílaiðnaðarins vestra.
Lengd fingra segir til um áhættuna
Lengd fingra karla getur gefið vísbendingu um hversu hætt þeim er við að fá krabbamein í blöðruhálskirtil. Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá því að þetta megi lesa úr nýrri rannsókn sem birt var í læknaritinu British Journal of Cancer Study.
Kínverjar hvetja til sex ríkja viðræðna
„Ég veit að það varð mannfall sunnanmegin,“ sagði Choe Song-il, norðurkóreskur hermaður sem fenginn var til að fylgja fréttamönnum til þorpsins Panmunjom á hlutlausa landsvæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu.
Átta hafa orðið úti í Póllandi
Miklir kuldar og óvenjumikil snjókoma torvelda fólki lífið víða í Evrópu þessa dagana, einkum þó norðan til í álfunni.
Skógareyðing ekki minni í 22 ár
Eyðing Amazon-regnskógarins hefur ekki verið hægari í 22 ár, að því er fram kemur í gögnum frá ríkisstjórn Brasilíu.
Lífverðir fylgdu hljómsveit Jónsa eftir í Suður-Kóreu
„Það var engin lögreglufylgd en það voru öryggisverðir sem pössuðu upp á okkur,“ segir Þorvaldur Þór Þorvaldsson, trommari í hljómsveit Jónsa úr Sigur Rós.
Eina vottaða dagblaðaprentsmiðjan
Ísafoldarprentsmiðja hefur fengið vottun Svansins, opinbers umhverfismerkis Norðurlandanna. Prentsmiðjan er fyrsta dagblaðaprentsmiðjan sem fær Svansvottun hér á landi. Fréttablaðið er prentað í Ísafoldarprentsmiðju.
Leiðandi í netmarkaðsmálum
Íslenska netmarkaðsfyrirtækið Nordic Emarketing hefur skapað sér nafn víða um heim undanfarin ár þar sem það hefur verið leiðandi í markaðssetningu á vefnum.
Vinna að bættri nýtingu fjármuna
Birtingahúsið fagnar nú um þessar mundir tíu ára afmæli sínu, en á þessum tíma hefur fyrirtækið unnið brautryðjendastarf í markaðsráðgjöf hér á landi. Helstu verkefni Birtingahússins, að sögn Huga Sævarssonar framkvæmdastjóra, eru ráðgjöf til fyrirtækja um hvernig megi hagnýta sem best fé til auglýsingabirtinga.
Fréttablaðið fjallar oftast um Jón Ásgeir
Fréttablaðið hefur birt mun fleiri fréttir um Jón Ásgeir Jóhannesson en fjóra aðra viðskiptamenn sem voru í forystu fjármálafyrirtækja í aðdraganda bankahrunsins á sex mánaða tímabili. Þetta kemur fram í samantekt sem Creditinfo vann fyrir Björgólf Thor Björgólfsson.
Síminn braut gegn trúnaðarskyldum
Síminn braut gegn trúnaðarskyldum með því að nýta sér upplýsingar um viðskiptavini keppinauta sinna, Nova og Vodafone.
Hunter skoðar tilboð
Skoski auðkýfingurinn Sir Tom Hunter er sagður íhuga tilboð í bresku skókeðjuna Office upp á 150 milljónir punda, jafnvirði um átján milljarða króna. Hunter keypti verslunina fyrir sjö árum fyrir sextán milljónir punda.
Jólagjafir með hagtölugleraugum
Jólagjafahugmyndir Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst hafa í gegnum tíðina elt hagsveiflur. Jólagjöfin í ár er íslensk lopapeysa, sem er í takt við hrun efnahagslífsins, fall bankanna, hrun krónunnar og samdrátt kaupmáttar, en allt þetta hefur valdið því að neytendur leita síður út fyrir landsteinana eftir gjöfum.
Í lánshæfismatinu er falinn vandi landsins til lengri tíma
Í síðustu viku hófust á vettvangi Evrópusambandsins viðræður um að nýtt yfirþjóðlegt fjármálaeftirlit sem vaka á yfir verðbréfaviðskiptum og mörkuðum hafi einnig eftirlit með lánshæfismatsfyrirtækjum.
Einkunnirnar aldrei verið lægri
Lengst af hafa þrjú matsfyrirtæki metið lánshæfi ríkissjóðs Íslands, en það eru fyrirtækin Moody’s Investors Service, Fitch Ratings og Standard & Poor’s.