

Verslunarmannahelgin hefur farið afskaplega vel fram í Vestmannaeyjum. Varðstjóri lögreglunnar á svæðinu segir fólk almennt glatt og skemmtilegt.
Margt ungt fólk mun verja verslunarmannahelginni í einangrun í farsóttarhúsi. Kona sem fréttastofa ræddi við ætlaði að skemmta sér á Djúpavogi um helgina en mun í staðinn skoða stjörnuspá í einangrun.
Yfirmaður smitrakningarteymisins segir engar vísbendingar um að faraldurinn sé á niðurleið og hefur áhyggjur af stöðunni. Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna innanlands á einum degi og vegna álags getur smitrakningarteymið ekki hringt í þá sem þurfa í sóttkví.
Heimatilbúin Þjóðhátíð fer nú fram í Vestmannaeyjum. Heimamenn halda í hefðirnar og gestir eru boðnir velkomnir enda næg tjaldstæði laus.
Eyjamenn reyna ekki að leyna því að frestun á Þjóðhátíð er gríðarlegur skellur, ekki bara fjárhagslega heldur ekki síður tilfinningalega.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir lítið meðalhóf felast í að ráðast í harðar aðgerðir á meðan lítill hluti bólusettra veikist alvarlega af Covid-19. Ljóst væri að án bólusetninga væri staðan allt önnur hér á landi.
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, taldi fyrir fáeinum dögum það öllu skipta að Ísland yrði ekki rautt en nú er skiptir það engu máli.
Yfirstandandi Covid-bylgja hefur orðið til þess að Bubbi Morthens hefur tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið og framleiðir nú textaverk í seríu sem hann kallar Regnbogaverk. Textabrot sem Bubbi lætur vinna í listaverk.
Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús í dag, til viðbótar við þrjá sem voru þar fyrir. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar á Landspítala, segir engan vera á gjörgæslu.
Ríkisstjórnin lét þjóðina hlaupa apríl þegar hún hélt hátíð í Hörpu og hrósaði sigri yfir veirunni. Í góðri trú hélt fólk út á göturnar og fagnaði í fölskvalausri og grímulausri gleði.
Á miðnætti tók gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur meðal annars í sér eins metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Einhver óvissa hefur ríkt um grímuskylduna og hafa forsvarsmenn verslana meðal annars kallað eftir skýrari tilmælum frá heilbrigðisyfirvöldum.
Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra. Hann hefur áhyggjur af því hve illa gengur að hemja smitin sem nú séu komin út um allt land og finnast í öllum aldurshópum.
Yfirlæknir á Landspítalanum segir það vonbrigði hve illa bólusetningin virðist hemja veiruna meðal fólks þó að bólusetningin dragi verulega úr alvarlegum veikindum.
Nýjar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti og gilda til og með 13. ágúst. Meðal stærstu breytinga er að hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman er nú 200 og tekin er upp eins metra nálægðarregla.
Sóttvarnalæknir óttast mest að starfsmenn sjúkrahúsa, hjúkrunarheimila og annarra heilbrigðisstofnana veikist af Covid-19 og leiði til smita inni á stofnunum. Útbreiðsla kórónuveirunnar sé mjög mikil í samfélaginu en vonir standi um að bólusetningar komi í veg fyrir alvarleg veikindi.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir vonar að atburðir síðustu daga verði til þess að fólk hugsi sig um áður en það fer á fjöldasamkomur. Hann segir því færri sem hittist næstu vikurnar því betra.
Fjármála- og efnahagsráðherra telur enn ótímabært að segja að efnahagslegt bakslag muni hljótast af nýjum sóttvarnaaðgerðum. Veitingamenn og kráareigendur eru ósáttir að gripið hafi verið til nýrra aðgerða. Það sé mikið högg fyrir reksturinn.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir koma til greina að leggja til frekari takmarkanir sjáist ekki skýr árangur af þeim sem taka í gildi á miðnætti.
Skipuleggjendur hátíða og annarrar dagskrár sem átti að vera nú um helgina eða á næstunni hafa brugðist við hertum samkomutakmörkunum á mismunandi hátt.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að með nýjum hertum aðgerðum innnanland sé verið að reyna að tempra fjölgun smita hér á landi. Algjör samstaða hafi verið innan ríkisstjórnarinnar um þær aðgerðir sem farið verður í.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands.
Formaður þjóðhátíðarnefndar segir að kannaður verði möguleikinn á því að fresta þjóðhátíð um nokkrar vikur. Erfitt verði að halda hátíðina um verslunarmannahelgina innan þeirra samkomutakmarkana sem taka eiga gildi á morgun.
Tilkynnt hefur verið um að 200 manna samkomutakmarkanir og eins metra fjarlægðartakmörk taki gildi á miðnætti annað kvöld. Þá verður skemmtistöðum gert að hætta að hleypa inn klukkan ellefu á kvöldin, og loka á miðnætti.
Ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tilkynnti í dag um nýjar sóttvarnaraðgerðir vegna bylgju kórónuveirufaraldursins sem borið hefur á undanfarna daga. Íþróttaviðburðir eru þar ekki undanskildir nýjum reglum.
Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst.
Helga Vala Helgadóttir þingmaður Samfylkingarinnar hefur sett fram harða gagnrýni á ríkisstjórnina vegna viðbragða hennar, eða öllu heldur meints sofandaháttar, við minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis.
Eigandi Laugaáss segist verða fyrir miklu tjóni eins og aðrir veitingamenn verði samkomutakmarkanir hertar. Hann styðji aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að sporna við útbreiðslu faraldursins en þær muni koma illa við marga.
Verulegur þrýstingur er á ráðherra frá stjórnarþingmönnum um að gefa ekki eftir þau sjónarmið sem flokkarnir vilja standa fyrir. Komandi kosningabarátta skerpir þær línur.
Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum líkir sóttvarnatakmörkunum og afléttingum á víxl við pyntingar á stríðsföngum í aðsendri grein sem birtist á Vísi í dag. Hún hvetur ráðamenn og aðra til „meðalhófs í umræðu og ákvörðunum“, einkum varðandi þjóðhátíð í Eyjum.
Óhætt er að segja að þungt sé yfir Íslendingum eftir Covid-fréttir dagsins. 78 greindust með kórónuveiruna í gær og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, þungur á brún, boðaði hertar aðgerðir innanlands á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag.