
Guðni Th. Jóhannesson

Guðni hoppaði í fyrsta Mottumarssokkaparinu
Guðni Th. Jóhannesson fékk fyrsta parið af Mottumarssokkunum sem seldir eru til styrktar Krabbameinsfélaginu í Mottumars. Guðni hefur árlega tekið við fyrsta pari sokkanna frá árinu 2018 þegar þeir voru fyrst framleiddir.

Forsetahjónin ræddu við Palestínumenn á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og eiginkona hans Eliza Reid ræddu á föstudaginn við Palestínumenn búsetta á Íslandi á Bessastöðum yfir kaffi og kleinum. Þau ræddu um stríðið sem geysar á Gasa og áhrif þess á Palestínumenn hérlendis og annars staðar.

Menntaverðlaun Suðurlands fóru í Vík í Mýrdal
Mikil ánægja er á meðal íbúa í Mýrdalshreppi þessa dagana því grunnskólinn í Vík, Víkurskóli og Katla jarðvangur voru að fá Menntaverðlaun Suðurlands fyrir samstarfsverkefni í strandlínurannsóknum í Víkurfjöru.

Guðni segir kjaftasögur einn af löstunum í litlu samfélagi
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ræddi kosti og galla smæðar íslensks samfélags á dögunum í sérstöku erindi þegar Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis voru veitt á Grand Hótel. Þar vísaði hann til kjaftagangs sem algengur væri í íslensku samfélagi vegna smæðar þess.

Unaðsstund Elizu og Guðna
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson skelltu sér á tónleika Víkings Heiðars Ólafssonar í Eldborgarsal Hörpu í gærkvöldi. Goldberg-tilbrigðin voru flutt fyrir fullum sal. Unaðsstund að sögn Elizu.

Forsetahjónin fagna sprengidegi
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Eliza Reid forsetafrú fagna sprengideginum eins og fjölmargir Íslendingar. Hjónin kíktu í heimsókn til Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu í dag og fengu sér saltkjöt og baunir.

Eliza að drukkna í viðtölum í Dubai
Eliza Reid forsetafrú og rithöfundur lætur vel af heimsókn sinni til Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þar sem hún var á meðal þátttakenda í Emirates Literary bókahátíðinni.

Þau fengu Íslensku bókmenntaverðlaunin
Steinunn Sigurðardóttir hlaut í dag Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Ból. Eva Björg Ægisdóttir hlaut Blóðdropann fyrir bók sína Heim fyrir myrkur. Gunnar Helgason og Rán Flygenryng hlutu verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bók sína Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að drepa.

Svartnættið er ekki hér allt um kring
Draga á úr sjálfsvígum hér á landi með víðtækum aðgerðum í verkefni sem kallast Lífsbrú. Efla á samvinnu í málaflokknum og koma öllum þeim úrræðum sem eru í boði betur á framfæri að sögn landlæknis. Forseti Íslands hvetur alla til að láta sig málefnið varða.

Lykildagsetningar þegar líður að kjöri nýs forseta
Frambjóðendur til forseta Íslands mega þann 1. mars byrja að safna meðmælum rafrænt fyrir framboð sitt. Þeir hafa átta vikur eða til 26. apríl til að skila meðmælum og tilkynna um framboð. Þá verða fimm vikur til kjördags.

Verðlaunaðir fyrir umhverfisvænt sementslaust steinlím
Gonzalo Patricio Eldredge Arenas og Heiðar Snær Ásgeirsson hlutu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verðlaunin eru veitt þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt voru af Nýsköpunarsjóði námsmanna árið 2023.

Forsetinn boðar samstöðu og enga uppgjöf
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands vitnaði í forvera sinn Kristján Eldjárn og Snorra goða í ávarpi um kvöldmatarleytið þar sem hann blés baráttuhug í landsmenn. Skilaboðin voru skýr; við gefumst ekki upp.

Bjarni heiðraður á Bessastöðum
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra og formann Sjálfstæðisfloksins stórriddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu í desember.

Forsetinn sendir skeyti en mæting afþökkuð
Ekki er gert ráð fyrir aðkomu fulltrúa erlendra ríkja til Danmerkur á sunnudag þegar Margrét Þórhildur Danadrottning lætur krúnuna í hendur Friðriks sonar síns. Forseti Íslands mun þó senda heillaskeyti til Danaveldis.

Eftirlaun Guðna allt önnur en Ólafs Ragnars og Vigdísar
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á rétt á biðlaunum í sex mánuði eftir að hann lætur af embætti í sumar. Hann nýtur ekki aukinna réttinda þegar kemur að eftirlaunum fyrir að hafa gegnt embætti forseta Íslands.

„Ég hef enga eftirsjá“
„Hér sit ég sjö mánuði enn, eftir það geri ég fastlega ráð fyrir því að sinna fræða og rannsóknarstörfum, hverfa á ný í þann heim sem ég kom úr. En annars veit ég ekkert hvað framtíðin beri í skauti sér þar fyrir utan. Við látum það ráðast,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti lýðveldisins, sem tilkynnti í gær að hann ætlaði að láta tvö kjörtímabil nægja og ætlar ekki að gefa kost á sér aftur.

Veit loksins hvers virði hann er
Einn þekktasti göngugarpur landsins, Reynir Pétur Ingvarsson, var í dag sæmdur fálkaorðu á Bessastöðum fyrir afrek hans og framgöngu í þágu fatlaðra. Hann segist oft hafa spurt sig í gegnum tíðina hvers virði hann væri, en nú væri hann kominn með svarið.

Elísabet, Gylfi Þór og Reynir Pétur í hópi nýrra fálkaorðuhafa
Fjórtán Íslendingar – sjö karlar og sjö konur – voru sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á Bessastöðum í dag.

Hjónin hafi ákveðið að verja lífinu á annan hátt
Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur og prófessor emiritus, segir að ákvörðun Guðna Th. Jóhannessonar forseta að sækjast ekki eftir endurkjöri hafi komið sér ákaflega mikið á óvart. „Ég, eins og fleiri, átti von á því að hann myndi taka eitt kjörtímabil í viðbót þannig að þetta yrðu samtals tólf ár.“

Guðni lætur hjartað ráða og býður sig ekki fram að nýju
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hyggst ekki bjóða sig aftur fram til forseta Íslands næsta sumar. Sjöundi forseti lýðveldisins verður því kjörinn í forsetakosningum í júní næstkomandi.

Vaktin: Hvað gerir Guðni?
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands mun tilkynna það í nýársávarpi sínu klukkan 13, hvort hann hyggist bjóða sig fram á ný til embættis forseta Íslands. Guðni hefur setið í forsetastól frá árinu 2016 en þegar hefur verið greint frá tveimur sem íhuga að bjóða sig fram til forseta.

Nýja forsetahöllin sprettur upp
Guðni Th. Jóhannesson, forseti íslenska lýðveldisins, er að reisa höll undir sig og fjölskyldu sína og miðar byggingu hennar vel.

Forsetinn setur mark frá Højlund á óskalistann í viðtali á Old Trafford
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var tekinn á tal á varamannabekk Manchester United fyrir leik liðsins gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Guðni þögull sem gröfin fram á nýársdag
Forseti Íslands ætlar ekki að upplýsa um áform sín í embætti fyrr en í árlegu áramótaávarpi sínu. Þetta segir forsetinn í skriflegu svari til fréttastofu.

Tíu tilnefnd sem framúrskarandi ungir Íslendingar
Tíu einstaklingar hafa verið tilnefndir sem framúrskarandi ungur Íslendingur af Junior Chamber International á Íslandi. Verðlaunin eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni.

Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forseta Íslands í heimsókn
Forsetahjónin fóru víða í dag í fyrstu opinberu heimsókn forseta Íslands til Reykjavíkur frá því Vigdís Finnbogadóttir heimsótti borgina á 200 ára afmæli hennar árið 1986. Borgarstjóri segir mikilvægt að fá forsetann í heimsókn.

Forsetahjónin í opinberri heimsókn til Reykjavíkur á fimmtudag
Þétt dagskrá verður í boði borgarinnar þegar forsetahjónin heimsækja höfuðborgina á fimmtudaginn. Borgarstjórahjónin munu leið þau í gegnum borgina á hina ýmsu viðburði og fjölbreyttar heimsóknir. Borgarbúum gefst kostur á að hitta þau á Kjarvalsstöðum.

Þakklátur og stoltur af samfélaginu
Haldin var svokölluð samverustund fyrir Grindvíkinga og þau sem vildu sýna þeim samhug og styrk í Hallgrímskirkju í dag. Þar sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti, að hann væri þakklátur og stoltur fyrir að búa í samfélagi Íslendinga. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði óvissuna erfiða

Davíð loksins á Bessastaði eftir langa bið
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, fór ásamt fríðu föruneyti til fundar við forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannesson.

Guðni vann hetjudáð þegar maður hneig til jarðar
„Fallegt að sjá Guðna forseta stíga sterkt inn þegar gamall maður hneig niður í Ikea. Litla góða Ísland í hnotskurn,“ skrifar Katrín Oddsdóttir lögmaður á Facebook-síðu sína í dag.