Leiknir vann Þrótt í Lengjudeild karla | Heimasigrar í Lengjudeild kvenna Í kvöld fór fram einn leikur í Lengjudeild karla þar sem Leiknir vann Þrótt 3-2. Kvenna megin vann Afturelding 3-1 sigur gegn Gróttu og Fram vann 2-1 sigur gegn HK. Sport 20. júlí 2023 22:16
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - FC Riga 1-0 | Víkingur úr leik þrátt fyrir sigur Víkingur sigraði lettneska liðið Riga FC á Víkingsvelli í kvöld. Leikurinn endaði 1-0 en Helgi Guðjónsson skoraði markið á 82. mínútu leiksins. Leikurinn var sá seinni í einvígi liðanna í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þrátt fyrir sigur eru Víkingar fallnir úr leik því að samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur er 2-1 fyrir Riga og ljóst er að Víkingar ná ekki lengra í Evrópukeppnum þetta tímabilið. Fótbolti 20. júlí 2023 21:45
Newcastle kaupir Harvey Barnes og Al Ahli heldur áfram að safna liði Harvey Barnes er að ganga í raðir Newcastle frá Leicester sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Blaðamaðurinn, Fabrizio Romano, greinir frá því að kaupverðið sé 38 eða 39 milljónir punda. Al Ahli hefur ekki aðeins sótt leikmenn frá Englandi heldur á Marco Silva að þjálfa liðið. Sport 20. júlí 2023 21:00
Umfjöllun: Connah's Quay - KA 0-2 | KA örugglega áfram í aðra umferð KA tryggði sér farseðilinn í aðra umferð Sambandsdeildarinnar eftir 0-2 sigur á Connah´s Quay. KA vann fyrri leikinn 2-0 í Úlfarsárdalnum og einvígið samanlagt 4-0. Í kvöld skoruðu Daníel Hafsteinsson og Elfar Árni Aðalsteinsson mörk KA. Umfjöllun væntanleg. Fótbolti 20. júlí 2023 20:00
Manchester United tilkynnir Bruno Fernandes sem fyrirliða og komu Andre Onana Enska knattspyrnuliðið, Manchester United, hefur tilkynnt að Bruno Fernandes sé nýr fyrirliði. Greint var frá því á dögunum að Harry Maguire yrði ekki lengur fyrirliði og Bruno mun Fernandes taka við því hlutverki. Félagið staðfesti einnig komu Andre Onana með myndbandi. Sport 20. júlí 2023 19:15
Botnliðið fær liðsstyrk Selfoss hefur samið við Abby Burdette um að leika með liðinu út tímabilið í Bestu deild kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem stendur á botni deildarinnar með aðeins sjö stig, fimm frá öruggu sæti. Íslenski boltinn 20. júlí 2023 17:31
Rekinn eftir tapið gegn Klaksvík Þjálfari ungverska knattspyrnuliðsins Ferencváros, Stanislav Chercheso, var látinn taka poka sinn eftir 0-3 tap gegn KÍ Klaksvík frá Færeyjum í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Fótbolti 20. júlí 2023 17:00
Skinner nýr þjálfari Dagnýjar hjá West Ham Kvennalið West Ham United hefur ráðið nýjan þjálfara. Sú heitir Rehanne Skinner og er 43 ára gömul. Hún býr yfir 20 ára reynslu og þjálfaði síðast Tottenham Hotspur. Enski boltinn 20. júlí 2023 16:30
Rooney kvartaði undan Apple Bandaríska MLS-deildin er að fá Lionel Messi inn í deildina og fyrir vikið meiri athygli frá fótboltaheiminum. Fótbolti 20. júlí 2023 16:01
Gat ekki annað en hlegið þegar VAR-dómurinn var kynntur Fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins og sérfræðingur BBC, gat ekki varist hlátri þegar dómari upphafsleiks HM kynnti VAR-dóm fyrir áhorfendum á vellinum. Fótbolti 20. júlí 2023 15:01
Landsliðskona Argentínu með tattú af Ronaldo en ekki af Messi Argentínska karlalandsliðið í fótbolta varð heimsmeistari í fyrra og Lionel Messi komst í guðatölu með Diego Maradona. Hann er samt greinilega ekki guð í augum allra landa sinna. Fótbolti 20. júlí 2023 14:30
Ræddi við franska blaðamenn: Vildi prófa stærri deild og líkar við leikstíl Lille Franska úrvalsdeildarfélagið Lille kynnti Hákon Arnar Haraldsson fyrir fjölmiðlum í dag. Þar var svaraði hann hinum ýmsu spurningum, meðal annars um ákvörðun sína að fara til Lille og hvar á vellinum hann mun spila fyrir félagið. Fótbolti 20. júlí 2023 13:30
Ekki viss um að Messi verði í byrjunarliðinu Lionel Messi spilar sinn fyrsta leik með Inter Miami annað kvöld en það er þó ekki öruggt að argentínski snillingurinn byrji leikinn. Fótbolti 20. júlí 2023 13:01
Brasilíska ríkisstjórnin breytir vinnutímum vegna HM í fótbolta Opinbert starfsfólk í Brasilíu þarf ekki að hafa áhyggjur af því að mæta seint til vinnu þó það horfi á leiki kvennalandsliðsins á HM frá upphafi til enda. Hefðbundnum vinnudegi verður breytt svo fólk geti fylgst með landsliðinu. Fótbolti 20. júlí 2023 12:30
Metfjöldi sá Matildurnar byrja á sigri Ástralía lagði Írland með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðanna á HM kvenna í knattspyrnu. Aldrei hafa fleiri komið saman til að horfa á kvennaknattspyrnu í Ástralíu. Fótbolti 20. júlí 2023 12:02
Neymar ætlar að vera áfram hjá PSG þrátt fyrir mótmæli stuðningsmannanna Þrátt fyrir að hópur stuðningsmanna Paris Saint-Germain vilji losna við hann verður Neymar áfram hjá frönsku meisturunum. Fótbolti 20. júlí 2023 11:30
„Ég bið bara um gamla góða Víkingsliðið mitt“ Víkingar þurfa að taka á stóra sínum í dag þegar liðið mætir lettneska félaginu Riga í seinni leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar. Fótbolti 20. júlí 2023 10:00
Onana búinn að skrifa undir og fer með til Bandaríkjanna Markvörðurinn Andre Onana hefur skrifað undir hjá enska knattspyrnuliðinu Manchester United. Er búið að bóka flug fyrir leikmanninn til Bandaríkjanna en Man United er á leið þangað í æfingaferð í aðdraganda nýs keppnistímabils. Enski boltinn 20. júlí 2023 09:31
Haukur fylgir bróður sínum til Lille Haukur Andri Haraldsson er genginn í raðir Lille í Frakklandi. Þar hittir hann fyrir bróður sinn, Hákon Arnar. Fótbolti 20. júlí 2023 09:12
Stjörnukonan tók þátt í sögulegum sigri í opnunarleik HM Nýja Sjáland byrjaði heimsmeistaramótið á heimavelli frábærlega eða með því að vinna 1-0 sigur á Noregi í opnunarleik HM kvenna í fótbolta í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Þetta var fyrsti sigur Nýja-Sjálands í sögu HM kvenna. Fótbolti 20. júlí 2023 08:59
Leikmenn með stjörnur í augum þegar Ólympíuhetja mætti óvænt á liðsfundinn Ástralska landsliðið í knattspyrnu leikur fyrsta leik sinn á heimsmeistaramótinu gegn Írlandi í dag. Þjálfari liðsins kom leikmönnum þess heldur betur á óvart í síðustu viku þegar hefðbundinn liðsfundur var á dagskrá. Fótbolti 20. júlí 2023 07:30
Fresta því að opna stuðningsmannasvæðið á HM vegna skotárásarinnar Stuðningsmannasvæðið í tengslum HM kvenna í fótbolta er aðeins í nokkra hundrað metra fjarlægð frá staðnum þar sem skotárás varð í borginni Auckland í Nýja-Sjálandi. Fótbolti 20. júlí 2023 06:00
„Við getum gert ótrúlega hluti hér á heimavelli“ Víkingur mætir lettneska liðinu Riga á morgun í seinni leik liðanna í Sambandsdeild Evrópu. Riga leiðir 2-0 eftir fyrri leikinn og Víkingar því með bakið upp við vegg. Fótbolti 19. júlí 2023 23:31
Arftaki Busquets uppalinn í La Masia Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið Spánverjann Oriel Romeu í sínar raðir frá Girona. Sá á að leysa Sergio Busquets af hólmi en samningur þess síðarnefnda rann út í sumar og hann er nú kominn í faðm Lionel Messi í Miami. Fótbolti 19. júlí 2023 23:00
Skotárás fyrir opnunarleik HM í Auckland: „Mótið heldur áfram óhaggað“ Þrír eru látnir eftir skotárás á byggingarsvæði í borginni Auckland í Nýja Sjálandi. Árásarmaðurinn er einn hinna látnu. Að sögn lögreglunnar er fjöldi fólks særður. Erlent 19. júlí 2023 22:47
Leikmenn á leið inn og út hjá Manchester City Riyad Mahrez er á leiðinni frá Manchester City en félagið hefur samþykkt tilboð frá Al Ahli í Alsíringinn. City er hins vegar nálægt því að tryggja sér þjónustu Króatans Josko Gvardiol. Enski boltinn 19. júlí 2023 22:16
Hópslagsmál brutust út í leik á Gothia Cup Hópslagsmál brutust út í leik liðanna Götaholm og Atletico Real Morelos á knattspyrnumóti í Gautaborg í dag. Báðum liðum hefur verið vísað úr keppni eftir atvikið. Fótbolti 19. júlí 2023 21:31
Áfrýjun Santi Mina hafnað og dómurinn fyrir kynferðisbrot stendur Spánverjinn Santi Mina sér fram á fjögur ár í fangelsi þar í landi eftir að áfrýjun hans á dómi vegna kynferðisbrots var vísað frá í dag. Fótbolti 19. júlí 2023 20:45
Fofana frá út árið Wesley Fofana mun ekki spila fyrir Chelsea fyrr en seint á komandi tímabili. Franski varnarmaðurinn sleit krossband nýverið og er alls óvíst að hann verði eitthvað með liðinu fyrr en á þar næstu leiktíð. Enski boltinn 19. júlí 2023 19:16
Mögnuð úrslit hjá Klaksvík sem tryggði sér sæti í annarri umferð Meistaradeildarinnar Færeyska liðið Klaksvík er komið áfram í Meistaradeild Evrópu eftir magnaðan 3-0 sigur gegn Ferencvaros í Ungverjalandi í dag. Fótbolti 19. júlí 2023 19:00