Landslið karla í fótbolta

Jóhann og Arnór æfðu en ekki Gulli og sungið fyrir Ísak
Ekki taka allir þátt í æfingu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í Búdapest í dag, í aðdraganda úrslitaleiksins við Úkraínu um sæti á EM í Þýskalandi.

„Ef Albert má vinna leikinn þá má hann koma í viðtal“
Það vakti mikla athygli eftir leik Íslands og Ísraels að stjarna leiksins, Albert Guðmundsson, fékk ekki að ræða við fjölmiðla eftir leik. KSÍ sagði þvert nei við slíkum bónum.

„Hareide var kallaður stuðningsmaður Hamas“
Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur ekki verið vinsælasti maðurinn í Ísrael síðustu daga.

„Maður er bara að vona það besta“
„Við notuðum daginn til að jafna okkur eftir átök gærkvöldsins, en auðvitað erum við mjög ánægðir með hafa unnið þennan leik svona sannfærandi,“ segir Jóhannes Karl Guðjónsson aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands á hóteli íslenska liðsins í Búdapest í gær.

Arnór Sig ekki með gegn Úkraínu
Arnór Sigurðsson verður ekki með í leiknum mikilvæga gegn Úkraínu á þriðjudag. Frá þessu greini Knattspyrnusamband Íslands í kvöld.

Framundan úrslitaleikur við Úkraínu: „Erfitt að útskýra andrúmloftið“
Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson ræðir við sérfræðinginn Kjartan Henry Finnbogason um íslenska sigurinn mikilvæga gegn Ísrael í undanúrslitum umspils um laust sæti á EM 2024 í fótbolta og þá horfa þeir félagar fram til hreins úrslitaleiks gegn Úkraínu í Póllandi á þriðjudaginn kemur.

KSÍ með pakkaferð á leikinn mikilvæga gegn Úkraínu
Á þriðjudag mætast Ísland og Úkraína í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumóti karla í knattspyrnu sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar. Leikurinn fer fram í Póllandi og verður KSÍ með pakkaferð á leikinn.

Albert í hóp með Van Nistelrooy og Ronaldo
Albert Guðmundsson komst í fámennan hóp þegar hann skoraði þrennu á móti Ísrael í umspilinu um laust sæti á EM í sumar.

„KSÍ í rauninni breytir eigin reglum“
Albert Guðmundsson, hetja íslenska landsliðsins í gærkvöld, fékk ákveðna undanþágu hjá KSÍ til að spila leikinn. Sambandið breytti eigin reglum til að heimila þátttöku hans.

„Ekki fallega gert af Gylfa“
Draumur allra FH-inga var að Gylfi Þór Sigurðsson myndi snúa aftur í Kaplakrika og spila með uppeldisfélagi sínu á lokastigum ferilsins. Hann mun hins vegar spila sína fyrstu leiki í Bestu deildinni sem leikmaður Vals í sumar.

Albert dró verulega úr áhyggjum UEFA
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta sá til þess í gærkvöld að Ísrael muni ekki spila í lokakeppni Evrópumótsins í Þýskalandi í sumar. Það einfaldar verulega skipulag öryggisgæslu á mótinu.

Albert fyrstur til að skora tvær þrennur fyrir Ísland
Albert Guðmundsson varð í gær fyrsti leikmaðurinn í sögu karlalandsliðsins í fótbolta sem nær að skora tvær þrennur fyrir Ísland.

Ungstirnið brjálað eftir tapið gegn Íslandi og ljót hróp rannsökuð
Hinn 19 ára gamli Oscar Gloukh, vonarstjarna Ísraela og leikmaður RB Salzburg, var vægast sagt illur eftir tapið gegn Íslandi í gærkvöld. Hann strunsaði inn til búningsklefa og lét ljót orð falla í leikmannagöngunum.

Kallaður til fyrir úrslitaleikinn vegna meiðsla og óvissu
Åge Hareide hefur ákveðið að bæta Stefáni Teiti Þórðarsyni í íslenska landsliðshópinn fyrir úrslitaleikinn við Úkraínu næsta þriðjudag, um sæti á EM í fótbolta.

KSÍ neitaði að senda Albert í viðtal
Albert Guðmundsson var stjarna íslenska landsliðsins í kvöld en íslenska þjóðin fékk ekki að heyra í honum eftir leik.

„Maður vinnur sér inn heppni“
Åge Hareide var hæstánægður eftir 4-1 sigur Íslands á Ísrael í kvöld en sigurinn tryggir Íslandi sæti í úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudag. Sigurliðið fer á Evrópumótið í Þýskalandi næsta sumar.

„Smá heppni með okkur og góður karakter“
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, var eðlilega stoltur af liðinu eftir magnaðan 4-1 sigur gegn Ísrael í kvöld. Með sigrinum er Ísland nú aðeins einum sigri frá sæti á EM í sumar.

„Auðvelt að hlaupa vitandi af honum“
Guðmundur Þórarinsson átti góðan leik í vinstri bakverðinum hjá íslenska liðinu í sigrinum á Ísrael í dag. Hann sagðist hafa hugsað að Eran Zahavi myndi klúðra áður en hann tók seinni vítaspyrnu Ísraela í leiknum.

Samfélagsmiðlar yfir leiknum: Ísland fer á EM
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætti því ísraelska í undanúrslitum umspilsins um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi nú í sumar. Eins og svo oft áður voru Íslendingar virkir á samfélagsmiðlinum X, áður Twitter, á meðan leik stóð.

Einkunnir Íslands: Albert bar af í endurkomunni
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum í umspili um laust sæti á EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar.

Sverrir Ingi: Heppnin með okkur og við ætlum á Evrópumótið
Ísland vann 4-1 í umspilsleik gegn Ísrael um sæti á Evrópumótinu í sumar. Sverrir Ingi, fyrirliði liðsins, sagði heppnina hafa verið með liðinu en var afar ánægður með karakterinn sem liðið sýndi og kvaðst fullur sjálfstrausts fyrir úrslitaleikinn gegn Úkraínu.

Umfjöllun: Ísrael - Ísland 1-4 | Albert skaut Íslandi í úrslitaleik
Ísland er á leið í úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi í sumar eftir 4-1 sigur á Ísrael í kvöld. Ísland átti frábæra endurkomu í leiknum eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik.

Sjáðu mörkin: Albert hlóð í þrennu í endurkomunni
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann magnaðan 4-1 sigur er liðið mætti Ísrael í undanúrslitum umspilsins fyrir EM sem fram fer í Þýskalandi í sumar.

Albert, Hákon og Orri byrja allir í kvöld
Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, byrjar með mjög sókndjarft lið í leiknum á móti Ísraelsmönnum í Búdapest í kvöld.

Bjarki Már leitar að Tólfunni í Búdapest
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolta, gerði sér ferð frá heimabæ sínum Veszprém í Ungverjalandi til höfuðborgarinnar Búdapest til að líta umspilsleik Íslands augum.

„Ekkert að stressa sig of mikið á því hvað er að gerast í kringum þá“
„Það er búið að bíða eftir þessu í mjög langan tíma og núna er bara komið að þessu og það er bara geggjað og mikill spenningur,“ segir Arnór Ingvi Traustason landsliðsmaður í knattspyrnu.

Sá föður sinn skrifa söguna: Reiðubúinn í að rita næsta kafla
Andri Lucas Guðjohnsen, atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta segir að draumur sinn myndi rætast ef íslenska landsliðinu tækist að tryggja sér sæti á komandi Evrópumóti í fótbolta. Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um EM sæti í kvöld.

Vill hafa sérstakar gætur á Blikabana í kvöld
Það er ekki mikið um heimsþekkt nöfn í landsliði Ísraela, ekki frekar en því íslenska, en landsliðsþjálfarinn Åge Hareide vill að sínir menn hafi sérstakar gætur á 36 ára gömlum framherja mótherjanna í Búdapest í kvöld.

Er stress í liði Íslands? „Öðruvísi spennustig en maður er vanur“
Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta, getur ekki beðið eftir því að halda út á völl og leika gegn Ísrael í mikilvægum undanúrslitaleik í umspili um laust sæti á EM. Möguleiki er á því að leikurinn fari alla leið í vítaspyrnukeppni, Arnór hefur reynslu af þeim en vill helst sleppa við að halda í svoleiðis keppni í þessum leik. Klára frekar bara verkefnið áður en til þess myndi koma.

Leikdagur í Búdapest: Kjartan Henry rekinn á hótelinu
Ísland mætir Ísrael í undanúrslitum umspils um sæti á Evrópumóti karla í fótbolta í kvöld. Okkar menn í Búdapest hituðu upp fyrir leikinn.