Ólafía Þórunn úr leik og endar í hópi neðstu kylfinga á opna breska Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. ágúst 2017 13:15 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Mynd/LET/Tristan Jones Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á opna breska risamótinu í golfi en það er örugt að hún nær ekki niðurskurðinum eftir annan hringinn á Kingsbarns golfvellinum. Ólafía Þórunn lék annan hringinn á 75 höggum í dag eða þremur höggum yfir pari. Hún er því samanlagt á sex höggum yfir pari eftir 36 holur. Ólafía er langt frá því á ná niðurskurðinum sem verður líklega í kringum eitt högg undir pari. Okkar kona var því sjö höggum frá því að komast inn á þriðja hringinn. Á holuum 36 þá náði Ólafía fjórum fuglum, hún var með átta skolla og einn skramba. Hún fékk síðan par á 23 holum, tólf pör í gær og ellefu í dag. Ólafía kom inn í 140. sæti á sínu fyrsta opna breska risamóti og mun líklega verða áfram í því sæti þegar leik líkur í kvöld. Ólafía lék báða hringina á 75 höggum en það voru tveir slæmir kaflar sem fóru illa með hana. Hún tapaði þremur höggum á tveimur holum undir lok fyrsta hringsins og byrjaði svo á því að fá fjóra skolla á fyrstu fimm holunum í dag.
Golf Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira