Andlát

Andlát

Fréttamynd

Karl Th. Birgis­son borinn til grafar

Ritstjórinn Karl Th. Birgisson var borinn til grafar í dag, þriðjudaginn 29. september, en útförin var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Davíð Þór Jónsson sem söng yfir hinum látna.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

María Sigurðar­dóttir er látin

María Sigurðardóttir, eða Mæja eins og hún var alltaf kölluð, er látin 69 ára að aldri. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 11. ágúst eftir baráttu við krabbamein.

Innlent
Fréttamynd

Ung­frú Austur­ríki látin að­eins 22 ára

Fegurðardrottningin Lucia Sisic, ríkjandi krúnuhafi fegurðarsamkeppninnar Ungfrú Austurríki, er látin, aðeins 22 ára að aldri. Sisic fæddist með hjartalokugalla og gekkst undir sjö hjartaskurðaðgerðir á ævi sinni, þar af síðast á undanförnum vetri.

Lífið
Fréttamynd

Lést eftir mis­lukkaða typpastækkun í Taí­landi

Bresk-nígeríski viðskiptajöfurinn Igho „Tiny“ Ubiribo lést eftir að farið í typpastækkunaraðgerð í Taílandi en hann var þar í fríi með eiginkonu sinni í mars. Upphaflega var talið að Ubiribo hefði dáið úr hjartaáfalli en nú hefur dánardómstjóri úrskurðað að typpastækkunin hafi dregið hann til dauða.

Lífið
Fréttamynd

Ey­vindur P. Ei­ríks­son látinn

Eyvindur P. Eiríksson, cand.mag., rithöfundur og Vestfjarðagoði Ásatrúarfélagsins, er fallinn frá. Greint er frá andláti hans í tilkynningu frá Ásatrúarfélaginu en hann var Vestfirðingagoði um árabil. Eyvindur fæddist þann 13. desember 1935 og var því níræður þegar hann lést. 

Innlent
Fréttamynd

Carla Jeffery látin 33 ára að aldri

Leikkona Carla Jeffery er látin, 33 ára að aldri. Jeffery byrjaði tólf ára gömul að leika í kvikmyndum og sjónvarpi og var þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Curb Your Enthusiasm, Disney-myndinni Zombies og framhaldsmyndum hennar. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Gloria Steinem er látin

Gloria Steinem, blaðamaður, rithöfundur og baráttukona sem ruddi brautina í annarri bylgju femínismans, er látin 92 ára að aldri. Steinem stofnaði femíniska tímaritið Ms. Magazine árið 1971 og varð eitt helsta andlit femínisma í Bandaríkjunum á áttunda, níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

Lífið
Fréttamynd

„Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn

Ratko Mladic, alræmdur fyrrverandi hershöfðingi Bosníuserba, er látinn. Hann hlaut lífstíðardóm fyrir þjóðarmorð og stríðsglæpi sem hann framdi í Bosníustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar.

Erlent
Fréttamynd

Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin

Ein þekktasta samtímalistakona Japans, Yayoi Kusama, er látin 97 ára að aldri. Myndlist Kusama einkenndist af doppum, skynörvandi munstrum og endalausum speglum og bar listakonan jafnan eldrauða hárkollu og klæddist litríkum flíkum í stíl við listina.

Lífið
Fréttamynd

Tim Curry er látinn

Breski leikarinn Tim Curry er látinn, 80 ára að aldri. Curry átti tæplega sextíu ára farsælan leikaraferil en er þekktastur fyrir sitt fyrsta hlutverk á stóra skjánum sem Dr. Frank-N-Furter í söngleikamyndinni The Rocky Horror Picture Show.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Dolly Parton látin

Bandaríska söngkonan Dolly Parton er látin 80 ára gömul. Hún lést í dag á heimili sínu í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum. 

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan Bunny Levine er látin

Leikkonan og bókasafnsvörðurinn Bunny Levine er látin, 97 ára að aldri. Hún lést í svefni á heimili sínu í Tarzana í Kaliforníuríki á fimmtudaginn. 

Lífið
Fréttamynd

Steinn Ár­mann er látinn

Steinn Ármann Magnússon, leikari, er látinn. Hann andaðist að heimili sínu í Hafnarfirði síðastliðinn föstudag, 21. ágúst 2026, á 62. aldursári.

Lífið
Fréttamynd

Frank Beard er látinn 77 ára að aldri

Frank Beard, trommari bandarísku rokkhljómsveitarinnar ZZ Top til fimmtíu og sex ára, er látinn, sjötíu og sjö ára að aldri. Hann lést á líknardeild á búgarði sínum í Richmond í Texas-fylki í Bandaríkjunum umvafinn fjölskyldu sinni og ástvinum. Þrátt fyrir að hafa ekki verið í hljómsveitinni frá því að hún var stofnuð spilaði Beard inn á allar fimmtán plötur hennar.

Lífið
Fréttamynd

Leik­konan Hayden Panettiere er látin

Leikkonan Hayden Panettiere er látin. Hún var 36 ára gömul. Panettiere var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kvikmyndirnar Scream 4 og Scream 6.

Lífið
Fréttamynd

Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn

Jason Arday, sem sagði af sér prófessorsstöðu við Cambridge-háskóla í síðustu viku í kjölfar ásakana um ritstuld, er látinn 41 árs að aldri. Hann fannst látinn á heimili sínu í Battersea í suðurhluta Lundúnaborgar síðdegis í dag.

Erlent