Erlent
258 259 260 261 262 263 264 265 266 … 334 ›
Náðuð 27 árum eftir að hún myrti manninn sem seldi hana í vændi Sara Kruzan var náðuð síðastliðinn föstudag, 27 árum eftir að hún var dæmd fyrir morðið á Georg Howard sem misnotaði hana og seldi í vændi. Kruzan var sextán ára þegar hún drap Howard og aðeins sautján ára þegar hún hlaut lífstíðardóm fyrir morðið. Erlent 4.7.2022 16:10
Talinn líklegur til að fremja fleiri árásir og spilla sönnunargögnum Maðurinn sem er grunaður um að hafa myrt þrjá og sært fjóra alvarlega í skotárás á verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn í gær hefur verið úrskurðaður í 24 daga varðhald á lokaðri geðdeild. Maðurinn er 22 ára Dani og er talinn hafa verið einn að verki. Erlent 4.7.2022 13:46
Telja að málverk á hollenska þinginu sé ránsfengur nasista Menningarminjastofnun Hollands hefur lagt hald á málverk sem hangið hefur á veggjum hollenska þinghússins í yfir tuttugu ár. Talið er að nastistar hafi stolið málverkinu á tímum seinna stríðs. Erlent 4.7.2022 13:26
„Ég heyrði skothljóð en ætlaði samt ekki að trúa þessu“ Íslensk kona sem var við störf í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn í gær þegar árásarmaður hóf skothríð segir upplifunina bæði skelfilega og óraunverulega. Sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn segir borgarbúa slegna. Opið hús verður í Jónshúsi í Kaupmannahöfn þar sem Íslendingar geta rætt við prest og starfsmenn sendiráðsins. Erlent 4.7.2022 12:18
Flugmenn SAS í verkfall Um níu hundruð flugmenn flugfélagsins SAS munu leggja niður störf í dag eftir að kjaraviðræður þeirra við flugfélagið sigldu í strand. Erlent 4.7.2022 12:02
Fékk óvart greidd 300 sinnum hærri laun og flúði Chíleskur maður fékk í síðasta mánuði útgreidd mánaðarlaun sem voru 300 sinnum hærri en hann átti að fá. Í stað þess að endurgreiða fyrirtækinu launin lét maðurinn sig hverfa. Nokkrum dögum síðar barst tilkynning frá lögfræðingi mannsins um að hann hafi sagt upp starfi sínu. Síðan hefur ekkert heyrst frá manninum. Erlent 4.7.2022 11:26
Sex látin vegna skriðu á Marmolada Sex eru látin vegna jökulskriðu í ítölsku ölpunum, átta aðrir eru slasaðir og sautján er saknað. Erlent 4.7.2022 07:49
Lysychansk fallin í hendur Rússa Úkraínuher hefur staðfest að borgin Lysychansk í austurhluta Úkraínu er nú fallin í hendur Rússa. Eftir afar harða bardaga síðustu daga hafa úkraínskar varnarsveitir neyðst til að hörfa frá borginni en áður höfðu Rússar lýst því yfir að borgin væri nú þeirra. Erlent 4.7.2022 07:19
Hinn grunaði verði vistaður á lokaðri geðdeild Maðurinn sem var handtekinn í gær vegna skotárásar í verslunarmiðstöðinni Field's hefur verið úrskurðaður í 24 daga gæsluvarðhald. Þrjú létu lífið í skotárásinni í Kaupmannahöfn í gær. Hin látnu eru sautján ára piltur og stúlka, bæði dönsk og fjörutíu og sjö ára gamall maður sem var rússneskur ríkisborgari. Erlent 4.7.2022 07:02
Myndband sýnir lögreglumenn í Ohio skjóta óvopnaðan mann til bana Myndband sem birtist opinberlega á sunnudag sýnir átta lögreglumenn í borginni Akron, í Ohio ríki í Bandaríkjunum, skjóta á óvopnaðan mann en við krufningu fundust um sextíu byssukúlur í líkama mannsins sem hafði flúið lögreglumennina. Erlent 4.7.2022 00:10
Höfuðborginni breytt á svipstundu Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sendi frá sér yfirlýsingu vegna skotárásarinnar í Kaupmannahöfn í kvöld. Drottning landsins gerði slíkt hið sama sem og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Erlent 3.7.2022 23:37
Mikil örvænting hafi gripið um sig þegar fréttir bárust af skotárásinni Íslendingar sem ætluðu á tónleika Harry Styles í Royal Royal Arena í kvöld segja mikla örvæntingu hafa gripið um sig inni í tónleikahöllinni þegar fréttir bárust af skotárás í verslunarmiðstöðinni Field‘s í næsta húsi. Erlent 3.7.2022 22:33
Þrjú látin og þrjú í lífshættu eftir skotárás í Kaupmannahöfn Þrjú eru látin og þrjú eru í lífshættu eftir skotárás í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn. 22 ára danskur karlmaður hefur verið handtekinn vegna málsins. Erlent 3.7.2022 17:44
Skothríð í verslunarmiðstöð í Kaupmannahöfn Skotmaður vopnaður haglabyssu hóf skothríð inni í verslunarmiðstöðinni Field's í Kaupmannahöfn upp úr sex að staðartíma í dag. Lögreglan segir að nokkrir séu látnir eftir árásina og nokkrir særðir. Þá hefur 22 ára danskur karlmaður verið handtekinn vegna málsins. Erlent 3.7.2022 16:25
Lést eftir tvo daga í haldi Rússa Dmitry Kolker, rússneskur eðlisfræðingur og stærðfræðingur, lést í gær en hann hafði verið handtekinn af rússnesku alríkislögreglunni einungis tveimur dögum áður. Handtakan hefur verið mikið gagnrýnd en hann lá þungt haldinn inni á spítala er lögreglan sótti hann. Erlent 3.7.2022 14:57
Sex látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á Slóvíansk Að minnsta kosti sex eru látnir og fimmtán særðir eftir árás Rússa á borgina Slóvíansk í austurhluta Úkraínu. Árásin er sú stærsta sem borgin hefur þurft að þola til þessa segir bæjarstjóri borgarinnar. Erlent 3.7.2022 14:21
Neyðarástand í Sydney vegna mikillar rigningar Þúsundum íbúa suðausturhluta Sydney, stærstu borgar Ástralíu, hefur verið gert að yfirgefa heimili sín vegna mikillar rigningar í borginni. Stærsta stífla borgarinnar er orðin yfirfull af vatni. Erlent 3.7.2022 10:06
Hóta verkfallsaðgerðum vegna slæmra aðstæðna Flugfreyjur og -þjónar flugfélagsins Ryanair á Spáni stefna á að fara í verkfall í tólf daga í júlí. Aðstæðurnar sem flugfélagið býður upp á séu ekki boðlegar fyrir starfsfólk. Erlent 3.7.2022 08:24
Sakar Úkraínumenn um að beina flugskeytum að Hvíta-Rússlandi Alexander Lukasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, heldur því fram að Úkraínumenn hafi reynt að skjóta flugskeytum á herstöðvar landsins fyrir þremur dögum en að varnarkerfi þeirra hafi stöðvað flugskeytin í öll skiptin. Erlent 2.7.2022 23:14
Segja íbúa verjast af hörku en saka Rússa um að varpa fosfórsprengjum Úkraínskir hermenn berjast af hörku við rússneskar hersveitir í norðurhluta Úkraínu en ekkert lát er á árásum Rússa í austurhlutanum. Úkraínski herinn hefur meðal annars sakað Rússa um að varpa fosfór sprengjum á Snákaeyju. Talsmaður hersins segir Rússa óttast mótspyrnu heimamanna. Erlent 2.7.2022 20:41
Við veljum okkur vini eftir lykt Við veljum okkur vini sem lykta eins og við. Iðnvæðingunni er um að kenna að maðurinn er nánast eina spendýrið sem er ómeðvitað um lyktina af samborgurum sínum. Þetta eru niðurstöður nýrrar vísindakönnunar. Erlent 2.7.2022 16:16
Fordæma mögulega dauðarefsingu bresku hermannanna Bresk stjórnvöld hafa fordæmt það að tveir Bretar, Dylan Healy og Andrew Hill, skyldu fá dauðadóm í Rússlandi. Skýrsla frá rússneskum dómstólum var lekið í gær en samkvæmt henni verða mennirnir dæmdir til dauða. Erlent 2.7.2022 15:51
Trump hótaði Svíþjóð viðskiptastríði vegna rappara Donald Trump hótaði Svíum viðskiptastríði vegna fangelsunar bandaríska rapparans A$AP Rocky árið 2019 segir Morgan Johansson, dómsmálaráðherra Svía, í viðtali við Dagens Nyheter. Erlent 2.7.2022 15:13
Komu í veg fyrir úrskurð sem leyfði þungunarrof í Texas Hæstiréttur í Texas-ríki hefur komið í veg fyrir úrskurð undirréttar í ríkinu sem leyfði konum að fara í þungunarrof þrátt fyrir niðurfellingu Roe v Wade. Erlent 2.7.2022 14:16
Þóttist vera fórnarlamb og gæti hlotið dauðarefsingu Vörubílstjóri sem keyrði vörubíl sem fannst yfirgefinn í Texas á mánudag með 53 látið farandfólk innanborðs segist ekki hafa vitað af bilaðri loftræstingu. Upphaflega faldi vörubílstjórinn sig nálægt vörubílnum og þóttist vera einn af farandfólkinu en var handtekinn stuttu síðar. Verði hann sakfelldur gæti hann hlotið dauðarefsingu. Erlent 2.7.2022 13:04
Fimm létust í jarðskjálfta í Íran Fimm eru látnir eftir snarpan jarðskjálfta í suðurhluta Íran í morgun. Jarðskjálftinn mældist 6,3 stig og fundu íbúar nágrannalanda Írans einnig fyrir honum. Erlent 2.7.2022 10:17
Logan Paul gengur til liðs við WWE Samfélagsmiðlastjarnan Logan Paul hefur skrifað undir samning við World Wrestling Entertainment (WWE). Hann ætlar að glíma við fjölbragðaglímukappann The Miz undir lok júlimánaðar á Summerslam. Erlent 1.7.2022 22:27
Á sjálfsvígsvakt eftir dóminn vegna frægðar sinnar Söngvarinn R. Kelly hefur verið settur á sjálfsvígsvakt í fangelsinu sem hann dvelur í. Hann var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi á miðvikudaginn fyrir að nota frægð sína til að þvinga unga aðdáendur til samræðis og beita þá markvissri kynferðislegri misnotkun. Erlent 1.7.2022 21:14
Úkraínuforseti segir ESB aðild ekki mega dragast í mörg ár Forseti Úkraínu segir aðildarferli landsins að Evrópusambandinu ekki mega taka einhver ár eða áratugi. Tuttugu og einn almennur borgari féll, þeirra á meðal tvö börn, og tæplega fjörutíu manns særðust í eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús og sumarbúðir í Odessa héraði í gærkvöldi. Erlent 1.7.2022 19:20
Reknir eftir að hafa sagt rasískan brandara um Meghan Markle Tveimur lögreglumönnum í London var í dag sagt upp vegna skilaboða sem þeir sendu á hópspjall með öðrum lögreglumönnum. Skilaboðin innihéldu meðal annars rasískan brandara um Meghan Markle, eiginkonu Harry Bretaprins. Erlent 1.7.2022 18:39